Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986
B 11
• Drottningin og hertogafrúin við útför hertogans 1972.
win forsætisráðherra trúði þessu
ekki í fyrstu. Þegar hann heyrði
haft eftir Emest Simpson í febrúar
1936 að nýi konungurinn ætlaði að
kvænast Wallis Simpson fannst
honum sú fregn svo fáránleg að
hann vísaði henni á bug.
í maí 1936 bauð Játvarður kon-
ungur Baldwin til kvöldverðar og
sagði: „Fyrr eða síðar verður for-
sætisráðherra minn að hitta tilvon-
andi eiginkonu mína.“ Hertogafrú-
in: „David, þú mátt ekki tala svona,
það getur ekki gengið, þeir leyfa
þér það aldrei." Hann vísaði mót-
bárum hennar á bug. I sama mánuði
sótti hún um skilnað, þótt hún teldi
sig ekki geta tekið bónorði hans.
Sumarið 1936 fóru Játvarður
konungur og frú Simpson í
skemmtisiglingu um Miðjarðarhaf
í snekkjunni „Nahlin". Öll blöð
heims fylgdust með ferðinni nema
þau brezku, sem birtu ekkert um
samband þeirra fyrr en í desember.
Síðan fór konungurinn með frú
Simpson til Balmoralhallar, þar sem
hún kom fram í hlutverki gestgjafa
í veizlum konungsins, og það vakti
mikla gremju í fjölskyldu konungs-
ins.
Skilnaðarmálið var tekið fyrir um
sama leyti og stjóm Baldwins varð
uggandi. Nú gat varla nokkur vafi
leikið á hvað konungurinn og ást-
kona hans hygðust fyrir. Baldwin
prinsinn af Wales algerlega á sínu
valdi. Hún er þegar farin að líta út
fyrir að vera hefðarkona, sem nán-
ast gerir ráð fyrir að allir standi
upp og hneygi sig þegar hún gengur
í salinn."
Sjálf skrifaði frú Simpson síðar:
„Mér datt aldrei í hug að ég hefði
nokkum hæfileika til að vera
drottning. Ég held að Bandaríkja-
menn hafi einfaldlega ekki menntun
til slíks." En konungurinn lagði
hart að henni og fjölskylda hans
og Stanley Baldwin forsætisráð-
herra töldu hann „meira en lítið
btjálaðan".
Vegna bjartsýni Játvarðar fór
frú Simpson að halda að hún gæti
orðið drottning. Trúlega stappaði
hún í hann stálinu, en ólíklegt er
að hún hafi haft að öðm leyti áhrif
á gerðir hans í meginatriðum. Hann
virtist halda hann gæti verið kon-
ungur, þótt hann kvæntist henni.
Sennilega vildi hún vera hjákona
hans og að hann kvæntist ekki.
Hann sannfærði hana um að
„ hann ætlaði að vera áfram konung-
I ur og kvænast henni, að hann gæti
ekki unnið krýningareið sinn ef
hann tæki sér hjákonu og kvæntist
ekki og þjóðin mundi sætta sig við
þetta.
Furðu lostinn
Hann fór ekkert dult með það
að hann ætlaði að ganga að eiga
frú Simpson þegar hún hefði fengið
skilnað frá eiginmanni sínum. Bald-
0 Með Churchill (1929). Churchill studdi Játvarð VIII með ráðum
og dáð og spurði: „Af hveiju má konungurinn ekki kvænast elsk-
unni sinni?“ Leikritahöfundurinn Noel Coward svaraði: „Englend-
ingar vilja enga elsku fyrir drottningu. “
reyndi að tala um fyrir konunginum
og vildi fá málið út úr heiminum
áður en hann yrði krýndur í árs-
byrjun 1937, en án árangurs. í
októberlok fengu Simpson-hjónin
skilnað að borði og sæng.
Um þetta leyti varð Baldwin
forsætisráðherra áhyggjufullur
vegna margra bréfa sem hann hafði
fengið um frásagnir bandarískra
blaða af „ástarævintýri aldarinnar".
Hann ákvað að tala alvarlega við
konunginn, en kom sér ekki að
því að spyija hann hvort hann
ætlaði að kvænast frú Simpson.
Hins vegar lá alveg ljóst fyrir að
forsætisráðherrann tæki aldrei í
mál að fráskilin, bandarísk kona
settist að í Buckinghamhöll.
Um miðjan nóvember skrifaði
einkaritari Játvarðar honum að ef
frú Simpson færi ekki strax úr landi
mundu brezku blöðin ijúfa þögnina,
stjómin yrði áreiðanlega að segja
af sér og konungurinn gæti tæplega
ekki myndað nýja stjórn.
Konungurinn hafði aðeins um
tvennt að velja: segja skilið við
„Wally" eða afsala sér völdum.
Ráðgjafar hans sögðu honum að
hann yrði að rækja skyldur sínar
sem konungur og „vemdari trúar-
innar", en hann kvaðst hafa aðeins
einni skyldu að gegna: að vera
Wallis verðugur eiginmaður. „Allt
sem ég veit um hamingju er tengt
henni að eilífu," sagði hann.
Þegar Baldwin ræddi í síðasta
sinn við konung var konungurinn
harður á því að ef ríkisstjórnin
samþykkti ekki hjónaband hans og
frú Simpsons mundi hann leggja
niður völd. Konungurinn virðist
hafa talið að hann gæti skotið máli
sínu til þjóðarinnar og tryggt sér
stuðning hðnnar vegna mikillar lýð-
hylli sinnar. En það samrýmdist
ekki stjómskipunarlögum og engin
ríkisstjórn gat heimilað slíkt. Vera
má að hann hafi blekkt frú Simpson
í þessu efni.
Að beiðni konungs íhuguðu
stjómir Baldwins og brezka sam-
veldisins möguleika á „vinstri hand-
ar giftingu", sem hefði verið bundin
því skilyrði að frú Simpson gerði
ekki kröfu til tignar hans eða eigna.
En stjórnskipunarlög gerðu ekki ráð
fyrir slíkri giftingu og hún kom
ekki til greina.
Stíflan brestur
Þegar konungurinn heyrði sögu-
sagnir um að til stæði að sprengja
hús frú Simpsons í loft upp bauð
hann henni til Fort Belvedere og
hún dvaldist hjá honum síðustu
valdadaga hans. Rúður í húsi henn-
ar vom brotnar sama dag og brezku
blöðin rufu þögn sína, 3. desember
1936. Hún hafði fengið hótunar-
bréf, því þó að brezku blöðin hefðu
verið þögul var samband þeirra nú
á allra vitorði í Bretlandi.
Síðan fór frú Simpson til Cannes,
en talaði við konunginn í síma í
marga klukkutíma á dag. Hinn 7.
0 ÍParis 1958.
0 Windsor-hjónin koma aftur til Englands 1967.
desember gaf hún út yfirlýsingu,
þar sem hún bauðst til að draga
sig í hlé, því að „aðstæðumar væm
bæði óheppilegar og óveijandi".
Játvarður sagði í endurminningum
sínum: „Það hvarflaði ekki að mér
að hún væri að biðja um að fá að
losna. En það var það sem hún átti
við. Og aðrir lásu það sama út úr
yfirlýsingu hennar.“
En nú varð ekki aftur snúið. Fjór-
um dögum síðar, 11. desember
1936, sagði Játvarður VIII í kunnu
útvarpsávarpi frá Windsor-kastala:
“Fyrir nokkmm klukkustundum
innti ég af hendi síðasta skylduverk
mitt sem konungur og keisari . . .
Þið vitið öll ástæðurnar, sem hafa
knúið mig til að afsala mér hásæt-
inu . . . En þið verðið að trúa mér
þegar ég segi ykkur að mér hefði
verið ógerningur að bera þá þungu
byrði án hjálpar og stuðnings kon-
unnar sem ég elska.“
Játvarður hafði ráðið ríkjum
aðeins í 325 daga og varð fyrsti
þjóðhöfðingi í sögu Breta sem lagði
niður völd af fúsum vilja og af ást-
arástæðum. Bróðir hans, hertoginn
af York, tók við ríkjum og lét það
verða eitt sitt fyrsta verk að gera
hann að hertoga af Windsor. Skýrt
var tekið fram opinberlega að Ját-
varður fengi aldrei stöðu, sem hann
yrði ánægður með, og kona hans
fengi aldrei prinsessutign.
Hertoginn af Windsor fór strax
í sjálfskipaða útlegð og kom ekki
aftur til Bretlands nema í snöggar
heimsóknir. Nýlega kom fram að
hertoginn sagði Beaverbrooks lá-
varði í bréfi að hann hefði talið það
„móðgun" að hertogafrúin fékk
ekki titilinn „hennar konunglega
hátign". En hann kvað það „smá-
muni“ og ekki ástæðuna til þess
að þau fóru frá Bretlandi. Hin
raunverulega ástæða hefði verið sú
að hann hefði viljað auðvelda bróður
sínum að treysta sig í sessi.
Frú Simpson fékk ekki lögskilnað
fyrr en sex mánuðum eftir valdaaf-
salið og hertogahjónin hittust ekki
aftur fyrr en í maí 1937 í Chateau
de Candé, skammt frá Tours í
Frakklandi, þar sem þau giftu sig
3. júní 1937. Hertogafrúin sagði í
æviminningum sínum að hún og
hertoginn hefðu vænzt þess a.m.k.
að fá að búa í Bretlandi til frambúð-
ar og að hún fengi konunglega
nafnbót.
Flóttamenn
Eftir giftinguna þáðu hertoga-
hjónin boð um að fara til Þýzka-
lands. Hertoginn vildi koma í veg
fyrir stríð og þau hittu Hitler og
Göbbels að máli. Heimsóknin varð
vatn á myllu nazista, sem notuðu
hana í áróðri sínum.
Windsor-hjónin settust að í
Frakklandi í janúar 1939. Þegar
heimsstyijöldin brauzt út starfaði
hertoginn í hermálasendinefnd
Breta í París. í september flutti
tryggasti vinur þeirra, Mountbatten
lávarður, þau til Portsmouth í her-
skipinu „Kelly“.
I júní 1940 fóru Windsor-hjónin
til Spánar og Portúgals. Hertoga-
hjónin hafa verið sökuð um að hafa
gælt við þá hugmynd að snúa aftur
til Bretlands sem konungshjón
þegar Þjóðveijar hefðu sigrað í
stríðinu. Hitler mun hafa haft slíka
ráðagerð á pijónunum, en ljóst er
að hvorugt þeirra hafði samvinnu
við Þjóðveija. Vera má að Þjóðveij-
ar hafi ráðgert að ná tangarhaldi
á hertoganum á Spáni, með valdi
ef nauðsyn krefði, til að nota hann
í samningaviðræðum við Breta.
í Lissabon tók hertoginn l>oði
Churchills um að verða landstjóri
Breta á Bahamaeyjum. Bretar vildu
koma í veg fyrir að þau féllu í
hendur Þjóðveijum og þau sigldu
frá Lissabon í ágúst 1940.
Eftir stríðið sneru hertogahjónin
aftur til Frakklands. Þau gátu farið
til Bretlands, en brezka stjórnin
vildi ekki samþykkja hertogafrúin
yrði ávörpuð „yðar konunglega há-
tign“, eins og á Bahamaeyjum. Árið