Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 22

Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 22
22 B MQRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986 I* 3C A DROTnNSJ'IKI Umsjón: Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Ásdís Emilsdóttir Svavar A. Jónsson Kirkjan og1 verka- lýðsbaráttan * Islenskur prestur í Skotlandi segir frá Kristindómurínn er bókstaflega róttækur vegna þess að hann tekur á rótum mannlegs lífs. Það gerír hann ekki sem fjarlæg hugmyndafræði, heldur sem veruleiki. Sá veruleiki er Krístur, Guð, kominn inn í mannleg kjör. Guð sjálfur tekst á við mannlegt líf eins og við þekkjum það. Guð snertir ekki einungis á tilteknum flötum lífsins, heldur lífinu öllu. Kristindómurinn er ekki bara f ílósóf ía sigurvegaranna. Hann er ekki lífspeki hinna sterku. Kristur á krossinum, sjálfur Guð, er grátur Iítilmagnans, þjáning þess kúgaða og sorg harmkvælamannsins. Hann er örvæntingarhróp þess yfirgefna og óttaslegin möglun þess villta. Hann er sviti þess, sem erfiðar og blæðandi undir þess særða. Hann er gremja öreigans og reiði þess undirokaða. Hann er sérhvert andvarp þess, sem þjáist. „Hann var fyrirlitinn, og menn forðuðust hann, harmkvælamaður og kunnugur þjáningum, iíkur manni, er menn byrgja fyrir andlit sín, fyrirlitinn og vér mátum hann einskis. En vorar þjáningar voru það, sem hann bar, og vor harmkvæli, er hann á sig lagði.“ (Jes. 53,3-4a.) Krístindómurínn er jafnframt lífsstefna vegna þess að hann er veruleiki þess, sem sigraði illskuna og dauðann og þjáninguna og öfl heljar. Af framangreindu leiðir, að krístindómurinn tekur til allra sviða mannlegs lífs. Þar starfar kirkjan í ljósi sigursins mesta og allt starf hennar á upphaf sitt, líf og takmark í Jesú Krísti, sem er vegurinn, sannleikurínn og lífið. Hingað kom á dögunum íslenskur maður, sem er prestur I Skotlandi, Sveinbjörn Bjarnason að nafni. Hann er kvæntur skoskrí konu og er prestur í kolanámubæ einum ekki ýkja langt frá Edinborg. Hann er guðfræðingur frá Háskóla íslands en hefur stundað framhaldsnám við Edinborgarháskóla. Okkur lék hugur á að forvitnast um kirkjuna í Skotlandi og starf hennar þar í ljósi sigursins mesta. Sveinbjörn hefur orðið. Trúin og líf mannsins „Trúin flallar um allt líf manns- ins. Við höfum þau fyrirmæli frá frelsaranum að við eigum að gera trúna þekkta meðai manna og að við eigum að elska náungann. Boðunin og kærleikurinn til ná- ungans verða að haldast í hendur. Það er ekki hægt að boða trú öðruvísi en að hún verði að holdi í lífi mannsins. Trúnni er ekkert óviðkomandi, það er ekkert í lífi mannsins, sem ekki snertir trúna. Þess vegna er það mjög mikilvægt að sitja þar, sem fólkið situr og vita, hvað amar að, hvar sárin blæða." Hvað blæða sárin í söfnuði Sveinbjamar? Atvinnuleysi „Ég er prestur í um 10.000 manna koianámubæ. Bærinn á alla sína afkomnu undir kolum. En nú eru engar námur lengur í bænum. Þeim var flestum lokað upp úr 1960, m.a. vegna lækkandi olíuverðs. Þá byijaði atvinnuleysið og síðan hefur verið mikið at- vinnuleysi á svæðinu. Atvinnu- leysi á meðal karlmanna er um 33%, en heildaratvinnuleysið er um 28%. Þeir unglingar, sem eru að koma úr skóla í vor, eiga næstum enga möguleika á vinnu. Enn eru einhveijar kolanámur starfandi í nágrenni bæjarins. 1 bænum mínum eru vélsmiðjur kolanámumanna. Þar vinna núna liðlega 250 menn. Fyrir tveimur árum voru allt að 500 manns þar í vinnu. Auk þess að vera sóknar- prestur í bænum er ég prestur vélsmiðjanna. Þessi 28%, sem eru án atvinnu, hafa ekkert að gera. Fólkið situr bara heima. Þegar kreppan var, fyrr á öldinni, þá bar meira á atvinnuleysingjunum. Þeir söfn- uðust gjaman saman úti við. En í dag situr fólk heima. Ungling- amir t.d. sitja bara heima, fara á fætur upp úr hádeginu og sitja síðan heima og horfa á sjónvarpið. Þegar komið er kvöld, safnast þeir einhvers staðar saman á götum úti. Þetta er mikið þjóð- félagslxil. Það ber e.t.v. ekki eins mikið á því og áður, því það er núna inni á heimilunum." Vonleysi „Atvinnuleysið er stærsta vandamálið, sem við eigum við að glíma. Því fylgir mikið von- leysi. Við sjáum þess merki strax í bamaskólunum. Það er erfitt að kenna bömunum þar, því þau eru alltaf að spyija: „Til hvers eigum við að læra?“ Áður fyrr var alltaf sagt: „Þú verður að halda þér að bókinni til þess að þú fáir góða vinnu.“ Þetta er ekki satt lengur. Bömin sjá ekki tilgang með nám- inu. Vonleysið, tómleikinn og til- gangsleysið leiða síðan af sér önnur vandamál. Við höfum til að mynda miklar áhyggjur af 14—16 ára unglingum. Það ber sífellt meira á fíkniefnaneyslu á meðal þeirra, sértaklega sniffa þau lím og gas. Allskyns smáaf- brot aukast. Lauslæti á meðal þessa aldurshóps fer vaxandi. Margir foreldrar hafa enga stjórn á bömum sínum lengur. Þetta svæði er með þeim verstu í Evrópu hvað snertir atvinnuleysi. Maður hefði vænst þess, að stjórn- völd tækju þetta vandamál föstum tökum. Þau hafa aftur á mótí látið fijálsu framtaki eftir að leysa vandann. Það dugar skammt. Þetta er ekki svæði, sem dregur að sér fijálst framtak. Það er of fjarlægt mörkuðunum, styrkir eru betri annars staðar og skattar á stói-fyrirtæki eru hærri í Skotlandi en í Énglandi. Það er samdráttur í starfi kirkj- unnar einsog á öðrum sviðum. Kirkjan er ekki rekin af ríkinu heldur er hún fjármögnuð af því, sem söfnuðurinn sjálfur lætur af hendi rakna. Þegar tekjur fólksins em litlar, eins og á mínum slóðum, verða tekjur kirkjunnar minni." Kirkjan og fólkið „Kirkjan hefur samt mikil af- skipti af félagslegum vanda fólks. í starfi mínu sem prestur er ég alltaf að fjalla um þessi vandamál. Það er líka mikill ótti á meðal þess fólks, sem er í vinnu, um framtíð sína. Framtíð vélsmiðj- anna, þar sem ég er prestur er mjög óviss. Hluti af mínu starfi er að vera rödd þeirra, sem ekki geta talað sjálflr. Ég hef t.d. verið í sambandi við stjóm kolanám- anna í Skotlandi og rætt við hana um framtíð vélsmiðjanna og önnur vandamál, sem upp hafa komið. Við höfum átt mjög erfítt upp á síðkastið vegna nýyfirstaðins verkfalls kolanámumanna, sem þið hafíð heyrt um í fjölmiðlum. Því verkfalli lauk um mitt síðasta ár og hafði þá staðið í 13 mánuði. Það var ákaflega erfiður tími. Við erum enn að ná okkur. Þegar verkfallið hófst missti mikill Ijöldi fólks tekjur. Velta í verslunum minnkaði um þriðjung, svo dæmi séu tekin. Þannig náðu harðindin til fleiri en þeirra, sem voru í verkfalli. Margir liðu mikinn skort. Við í söfnuðinum sáum að okkar hlutverk var að styðja þá, Sr. Sveinbjöm Bjarnason sem í verkfallinu stóðu. Deilan var óvenjuleg að því leyti að það var ekki bara verið að deila um laun. Yfírleitt eru verkföll vegna óánægju með laun. En hjá okkur var ekki verið að beijast um laun, heldur um framtíð, framtíð þeirra, sem voru í vinnu líka. Það var verið að beijast fyrir framtíð þjóð- félagsins. Ef námuvinnsla hverfur alveg af þessu svæði, sjáum við ekkert sem fyllt gæti það skarð. Þetta er spuming um byggðaþró- un. Þegar verið er að fjalla um byggðaþróun er ekki nóg að horfa í peningana. Það verður að líta í fleiri áttir. Það verður að hugsa um velferð fólksins. Reyndar má segja að það sé hjáguðadýrkun að leggja bara efnahagsmálin til grundvallar, sé litið á málið frá sjónarhóli kristninnar. Þá erum við farin að gleyma að það eru svo margir aðrir þættir, sem verða að takast með í reikninginn. Mér fannst ég þurfa að minna á þetta, að almenn velferð fólksins mætti ekki gleymast, menn mættu ekki einblína á peningahliðina. Afkomu þjóðféiags er aldrei hægt að meta til fjár. Það er til dæmis ekki hægt að meta í pen- ingum þá kvöl, sem er orsök atvinnu- og afkomumissis. Það er ekki hægt að meta í peningum, þegar heimili flosna upp. Atvinnu- leysi er óskaplegt áfall fyrir þá, sem hafa alltaf unnið fyrir sér og sinni fjölskyldu. Allt í einu er það ekki hægt lengur og mönnum fínnst að það sé búið að kasta þeim á haugana, þeir hafí ekkert hlutverk iengur í þjóðfélaginu." Mikil samstaða „Okkur fannst við mæta mikilli andstöðu frá stjómvöldum á meðan að deilan stóð yfir. Fjöl- miðlar gáfu mjög ranga mynd af því, sem var að gerast, bæði í Bretlandi og án efa hér á landi líka. í umfjöllun fjölmiðla um málið var aðal áherslan lögð á þau ólæti, sem voru í sambandi við verkfallið, en þau voru fátíð. Lítið var fjallað um deiluna sjálfa og rödd þess fólks, sem í deilunni átti heyrðist yfírleitt ekki. Þegar verk- fallið byijaði og raunar mest allan tíma þess, var samstaðan nánast algjör. Bæði námumenn og fjöl- skyldur þeirra stóðu saman. Eig- inkonurnar sýndu fádæma hörku í því að sjá fyrir fjölskyldunum. Þetta kostaði miklar fórnir. Ung fjölskylda í mínum söfnuði átti t.d. nýjan bíi, sjónvarp, myndseg- ulband og öll þau nýtísku tæki, sem eru á heimilum í dag, þegar verkfallið byijaði. Þegar verkfall- inu lauk var allt farið. Þau áttu ekkert eftir, en samt sem áður voru þau aldrei í vafa um að þau væru að beijast fyrir því, sem væri rétt, þau væru ekki einungis að beijast fyrir þeirri atvinnu, sem væri til staðar, heldur fyrir fram- tíð samféiagsins. Þau væru að beijast fyrir framtíð bamanna. Hvert yrði hlutskipti bamanna, ef atvinnuleysið yrði jafn mikið ogþaðværiídag? Söfnuðurinn sá strax að það var hans hlutverk að styðja verk- fallsfólkið. Við byijuðum t.a.m. mjög snemma á því að úthluta matargjöfum og peningum. Söfn- uðurinn bar fram gjafir sem fóm, enda er það hluti af messunni, að hann komi með framlag sitt til kiijunnar á hveijum sunnudegi. Mörgum fjölskyldum var hjálpað á þennan hátt.“ Sár, sem erfitt er að græða „Þessi orrusta vannst ekki og ég er hræddur um að hún sé töpuð. Verkfaliið leystist eiginlega upp og þjónaði ekki þeim tilgangi, sem því var ætlaður. Stjómvöld gerðu allt sem þau gátu til þess að kljúfa félag námuverkamanna. Það tókst í Englandi. Klofningur- inn hefur ekki orðið í Skotlandi en klofningurinn í Englandi veikti mjög aðstöðu skoskra námu- verkamanna. Það var einnig mjög þrýst á menn að fara til vinnu eftir að klofningurinn byijaði. Fyrstu 8 mánuði verkfallsins var samstaðan algjör. Eftir það fór hópurinn að riðlast, þó að ég geti nú talið á fíngmm annarrar hand- ar þá, sem ég vissi að fóm snemma til vinnu. En þetta ágerð- ist og það olli náttúmlega leiðind- um, þegar menn fóm að fara aftur til vinnu. Þeir, sem fóm fyrst til vinnu, verða aldrei teknir inn í samfélagið aftur. Þeir þarfnast sálusorgunar og umönnunar. Þó að ég styddi verkfallsmenn, hafði ég það gott samband við alla í bænum, að ég gat líka stutt þá, sem fóm fyrstir til vinnu aftur. Fólk er býsna langrækið í þessum efnum. Það var t.d. mjög langt verkfall 1926 og ég heyrði gamla menn tala um hvað það hefði verið erfitt. Ég man að það var sagt við einn þeirra: „Þú veist nú ekkert um það. Þú vannst!" Þeir mundu það 60 ámm seinna og ijölskyldur em jafnvel klofnar síð- an þá. Langan tíma tekur að lækna þessi sár. Samt er það eitt af okkar hlutverkum að koma á eðlilegu sambandi á milli fólks aftur. Meðan á verkfallinu stóð komu bæði þeir, sem í verkfalli vom og þeir, sem ekki fóm í verkfall, til guðsþjónustu saman. Stundum var spenna í loftinu. En fólkið kom saman og stundum gat það talað saman." Að taka afstöðu „Ég talaði ekki máli verkfalls- manna úr stólnum. Þar reyndi ég að líta á það, sem var að gerast í samfélaginu, með augum ritn- ingarinnar. Það er aftur á móti ekkert launungarmál, að ég studdi verkfallið á annan hátt, t.d. á opinbemm fundum. Þetta er sá vandi sem við stöndum frammi fyrir, þegar við fömm að fjalla um mannlífið í heild og reynum að kynnast því, sem aflaga hefur farið, hvar sem það er í þjóðfélag- inu. Ég stend frammi fyrir þessum vanda á sérstakan hátt, þar sem hluti af mínu starfí er að vera prestur verkamanna. Sú spuming, sem þá kemur alltaf upp er: Hvar stendur þú? Kirkjan getur ekki alltaf verið hlutlaus, ef það er spurning um það, sem er rétt eða rangt. Ég sá ekki betur en að rangindi væm höfð í frammi í verkfallinu. Þessvegna sá ég mig tilneyddan til að taka afstöðu. Ég tók mér stöðu meðal þeirra, sem vom að líða skort.“ Þakka þér fyrir Sveinbjörn. Berðu kveðjur frá íslandi til safn- aðar þíns í Skotlandi. —SAJ. U

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.