Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986
B 23
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Barðstrend-
ingafélagsins
Starfsemi deildarinnar lauk með
2ja kvölda firmakeppni (tvímenn-
ingi). Sigurvegari varð „Múrara-
meistarafélag Reykjavíkur" og spil-
uðu f.h. þess Viðar Guðmundsson
og Pétur Sigurðsson.
Múrarameistarafélag Reykjavíkur
(Viðar Guðmundsson
— Pétur Sigurðsson) 258
Steypustöð B.M. Valláhf.
(Þórarinn Árnason
— Ragnar Bjömsson) 256
Réttingarþjónustan
(Gísli Víglundsson
— Helgi Einarsson) 251
Bridsdeildin þakkar eftirtöldi'”1
fyrirtækjum veittan stuðning:
Barðstrendingafélagið
Bif reiðakennsla Hannesar
B.M.ValIáhf.
Einingahús S. Péturssonar
Gestur hf.
Grandihf.
Hjólbarðaliöllin
Húsasmiðjan
Járnsmiðja Gríms Jónssonar
J. Þorláksson & Norðmann
Kristinn Gunnarsson
Nathan & Olsen
Nonni hf.
Réttingarþjónustan
Smurstöðin Hafnarfirði
Vatnsveitan
Vélsmiðja Viðars og Eiríks
Bif reiðaby ggingar
Blikkogstál
Borgarhúsgögn
Faxi hf.
Glerskálinn hf.
Heldahf.
Hreingerningaþjónusta Valdimars
ístex hf.
J.S. Gunnarsson sf.
J J. vinnuvélar
Múrarafélag Reykjavíkur
Nesskip
Pétur Nikulásson
Sjóbúðin
Steypustöðin hf.
Þ. Skaptason.
Bridssamband
íslands
Bikarkeppni Bridssambands ís-
lands 1986 hefst í næsta mánuði.
Spilatími hverrar umferðar verður
sem hér segir:
1. umferð skal vera lokið fyrir
18. júní 1986 (undankeppninni).
2. umferð (32 sveita úrslit) skal
vera lokið fyrir 16. júlí 1986.
3. umferð (16 sveita úrslit) skal
vera lokið fyrir 13. ágúst 1986.
4. umferð (8 sveita úrslit) skal
vera lokið fyrir 31. ágúst 1986.
5. umferð (undanúrslit 4 sveita)
verður spiluð laugardaginn 6. sept-
ember og úrslitaleikurinn verður
daginn eftir, 7. september 1986.
Spilamennska hefst báða dagana
kl. 10 árdegis, en í undanúrslitum
em spiluð 48 spil milli sveita og
64 spil í úrslitaleiknum.
í öllum öðrum umferðum eru
spiluð 40 spil milli sveita. Þátttöku-
gjald pr. sveit verður kr. 4.000, sem
greiðist til Bridssambands íslands
í upphafí keppni. Greiðslu skulu
fylgja nöfn spilara, nafnnúmer og
heimilisfang. Spilað er um gullstig
í hverri umferð. Áríðandi er að
fyrirliðar tilgreini þann spilafjiilda
sem hver einstakur spilari spilar í
hverri umferð (séu fleiri en 4 spilar-
ar í sveitinni). Bregðist þetta, má
búast við að stig fyrir þann leik
veiöi ekki skráð.
í bikarkeppnum er dregið í hverri
umferð. Sveit sem fær heimaleik
ber skylda til að aðstoða gesti hvað
varðar uppihald og viðurgjöming
meðan á leik stendur, enda myndu
gestgjafar njóta þess hins sama
yrðu þeir á útivelli. Fyririiðar skulu
koma sér saman um leiktíma. Að
öllu óbreyttu, gildir auglýstur spila-
tími Bridssambandsins í hverri
umferð.
Skráning sveita til Bridssam-
bands íslands er hér með hafin.
Henni lýkur miðvikudaginn 21.
maí nk. kl. 16. Strax á eftir verður
svo dregið í 1. umferð keppninnar.
Skráningum skal komið til Ólafs
Lárussonar eingöngu, hjá BSÍ og
lieima: 91—16533.
Sigurvegarar öðlast rétt til þátt-
töku í | Evrópubikarképpni eða
sambærilegri keppni, á þeim kjörum
sem Evrópusambandið (mótshald-
arar ytra) býður.
Tónabíó sýnir
„Salvador“
TÓNABÍÓ hefur byijað sýningar
á bandarísku kvikmyndinni
„Salvador", sem fjallar um harð-
svíraða blaðamenn í uppreisninni
í Salvador, að því er fram kemur
í tilkynningu kvikmyndahússins.
í kynningu kvikmyndahússins
segir m.a.:
„Richard Boyle blaðamaður hef-
ur víða farið en hann er hins vegar
laus í rásinni, drykkfelldur, skilinn
við konuna og sitthvað fleira, sem
veidur því að útgefendur eru ekki
ginnkeyptir fyrir að ráða hann og
senda á staði, þar sem átökin standa
og mikilla tíðinda er að vænta.
Dr. Rock uppgjafaplötusnúður,
leysir hann úr fangelsi og Boyle
ákveður þá að fara til San Salvador.
Gallinn er bara sá að hann hefur
ekki blaðamannaskírteini og hann
vantar peninga til að komast á.
staðinn. Þótt óvænlega horfí um
tíma, tekst honum þó að komast
suður.
Hann áttar sig fljótlega á því að
það eru ekki neinir englar sem
ameríisk stjómvöld styðja þar í
landinu og ausa Qármunum og
hergögnum í. Báðir aðilar halda úti
morðsveitum til þess að drepa
andstæðingana og skelfa alþýðu
manna með miskunnarlausum
hermdarverkum."
ÞEKKIR ÞU
STERKT KORT
ÞEGAR ÞÚ SÉRÐ ÞAÐ
SHS 3
0051
J0N joNs
EURÖCARD /CELAND
INYJUIÍH BUNINGI ?
EUROCARD
1 tlÝJUM BÚniHGI
EUROCARD
Efí STEfífíT KfíEDITfíOfíT
• ílú er Homin þrívíddar Ijósmynd, teHin með
lasergeisla (holography) á framhlið
Hortsins. Á henni sjást stafirnir MC sem nú
werða samheiti Hortsins um allan heim.
15ýnishorn af eiginhandaráritun handhafa
Hortsins er nú á baHhlið þess.
1
SlGNAlDRt
í telex number
0000/00 OO/ABCD 1
• Allir handhafar Eurocard HreditHorts munu
fá nýja Hortið fyrir loH júní 1986. Fram að
þeim tíma eru bæði Hortin jafn gild.
• Eitt allra Horta býður Eurocard lands-
mönnum eftirtalin hlunnindi án sérsta^s
endurgjaids:
• EUROKREDIT ereinstöH þjónusta hér. Með
EUROfíREDIT getur Horthafi látlð Eurocard
á ísiandi um greiðslu waxta og afborgana
afsHuldum sínum, hafi wöru- eða þjónustu-
salinn gert samning um það wið KreditHort hf.
Flestar stærstu ferðasHrifstofurnar eru
t.d. aðilar að EUROKREDIT nú þegar.
• Mánaðarlega sundurliðun útgjalda Horthafa,
í helstu útgjaldafloHHa.
• \JaHt á neyðarsíma alla sólarhringa ársins,
fyrir Horthafa stadda erlendis.
• 5lysaábyrgð ferðalanga án sérstaHs
endurgjalds. Bætur geta numið allt að
fjórum milljónum Hróna (U5D ÍOO.OOO)
fyrir slys í farartæHi innanlands sem utan.
• \/Ið bjóðum Horthöfum afnot af neyðarþjón-
ustu (5E5A. 0E5A weitir Eurocard Horthafa
aðstoð á staðnum, í allflestum tilfellum,
lendi hann í nauðum erlendis.
EUROCARD |
gildara en þig grunar 1