Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 26

Morgunblaðið - 04.05.1986, Side 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986 „Líbýumenn hafa sýnt hugdirfsku og sjálfstæði“ — segir Hassan Mansour, utanríkisráðherra Líbýu í einkasamtali við Morgunblaðið Fes, Marokkó, 2. maí. Frá Johönnu Kristjónsdóttur. „NEI, ÉG get ómögulega sagt að ég sé dús við fundinn hér í Fes. I fyrsta lagi var ekki failist á að ræða eingöngu árás Banda- ríkjamanna á Líbýu og ekki tókst heldur að ákveða dagsetningu fyrir næsta fund okkar. Auk þess erum við ákveðnir í að halda þeirri kröfu til streitu að fundur- inn verði haldinn i Libýu en engin samstaða náðist um það. En auðvitað er mikilvægt í sjálfu sér að fundurinn var haldinn og allir sendu fulltrúa og mjög eindregin fordæming var samþykkt á Bandaríkin. Og það var mest um vert að hittast svo skömmu eftir þessa hryllilegu árás svo að umheimur megi sjá að arabaríkin fordæma nýnasistann Reagan og ónafngreinda dömu sem getur varla notið mikillar virðingar fyrir þann hátt sem hún átti i þessu athæfi.“ Vil ekki fremur en aðrir búa við stöðugan ótta Þetta sagði Hassan Mansour, utanríkisráðherra Líbýu, í viðtali við biaðamann Morgunblaðsins á Hótel Fes skömmu eftir að fundi utanríkisráðherranna var lokið. Það er vissulega kurteislega til orða tekið að segja að fundurinn hafi verið beinn ósigur fyrir Líbýu og mjög mikillar tregðu gætti í að gagnrýna bandaríkin hvað svo sem Mansour sagði við mig. „Ég fullyrði," hélt Mansour áfram, „að það er stórskrítið hvað þið Evrópubúar sjáið allt í svörtu eða hvítu." Þegar ég innti hann eftir því hvort hann áliti sem sagt að gagnrýnin á Líbýu ætti ekki rétt á sér fyrir að hýsa hryðjuverka- menn og aðstoða þá baðaði hann út öllum öngum og sdagði: „Þið teljið það sem sagt gott og gilt að Reagan sprengi konur og böm í tætlur af því hann hlustar á róg og sögusagn- ir sem engar sannanir em fyrir eða hvað? Þið teljið líklega allt til sóma af því að Líbýumenn hafa sýnt hugdirfsku og sjálfstæði og ekki farið troðnar slóðir né heldur gerst þý bandarísku heimsvaldasinnanna. Þið verðið að athuga að sjálfsvirð- ingu þjóðar má ekki misbjóða á þennan hrottalega hátt. Ég skal segja frúnni að ég á tvo syni og einn afastrák og ég vil ekki fremur en aðrir þurfa að búa við stöðugan ótta um hver verði framtíð þeirra. Og hvers getum við vænst nú nema við gemm lýðum ljóst í eitt skipti fyrir öll að við unum ekki slíkum yfirgangi. Haldið þér ekki að ég viti ekki að sagan endurtekur sig og ofbeldinu verður ekki útrýmt meðan menn eins og Hitler og Reagan geta farið öllu sínu fram, þótt þeir falli að lokum sem betur fer.“ Rústir í Trípólí höfuðborg Lfbýu eftir loftárás Bandaríkjamanna. BEMTIHA Laugavegi 80, sími 17290 Síðustu sýningar á „Stöðugum ferðalöngum“ UNDANFARNAR vikur hefur íslenski dansflokkurinn sýnt „Stöðuga ferðalanga", þijá ball- etta eftir Ed Wubbe. Nú em einungis þijár sýningar eftir á þessu verki, sunnudaginn 4. maí, þriðjudaginn 6. maí og fímmtudaginn 8. maí, og hefjast sýningar kl. 20.00 í Þjóðleikhúsinu. „Ed Wubbe hefur á undanfömum missemm komist í fremstu röð danshöfunda í Evrópu og því mikill fengur að fá hann til að semja verk fyrir íslenska dansflokkinn, en hann er bókaður næstu tvö árin að minnsta kosti, meðal annars til að semja verk fyrir hinn fræga Gull- berg-ballett í Stokkhólmi. Auk dansara íslenska dansfíokksins taka tveir erlendir karldansarar þátt í sýningunni, þeir Patrick Dadey frá Bandaríkjunum, og Norio Mamyia frá Japan." segir í frétt frá Þjóðleikhúsinu. Heilbrigðis- og tryggingaráðherra: Skipar stjórn geislavarna MORGUNBLAÐINU hefur borist svohljóðandi fréttatilkynning frá heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu: Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra hefur skipað eftirtalda í stjórn Geislavarna ríkisins samkv. lögum nr. 117/1985, um geisla- varnir:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.