Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986
B 27
Moammar Khadafy, leiðtogi Líbýumanna, á sérstökum fundi með
sovéskum fréttamönnum, viku eftir loftárás Bandaríkjamanna.
Getið ekki komið fram
við okkur eins og
óþekka krakka
Ég spurði Mansour hvað hann
segði um brottvísun líbýskra dipló-
mata frá ýmsum ríkjum áður vin-
veittum Líbýu og hvort hann óttað-
ist ekki að Llibýa myndi einangrast
á alþjóðavettvangi.
Mansour vék sér undan að svara
spumingunni en fór þess í stað að
tala glaðlega um hvað mikilvægur
væri stuðningur sem hefði komið
fram frá samtökum óháðra ríkja.
Ég ítrekaði spuminguna og hann
sagði: „Nei, öldungis hreint ekki.
Reynslan hefur sýnt að sá sem
reynir að einangra fullvalda þjóð
hlýtur að einangrast sjálfur. Þið
getið ekki komið fram við okkur
eins og óþekka krakka og bara
lokað okkur inni í skáp þar til við
gefumst upp og Iofum að gera allt
eins og mamma segir. Og ekki
aldeilis og þetta verða menn að
hafa í huga og gleyma ekki hinum
mannlega þætti.
Frúin kemur frá mikilli háborg
skáklistarinnar þar sem Reykjavík
er og við synir mínir tökum oft
skák og ég vona að afraksturinn
verði liðtækur seinna. En ég vil
ekki að við og þeir þurfi að lifa við
ógnina um bandarískar sprengjur
yfir höfði sér, að ég nú ekki tali
um að það mundi mgla stöðuna. ..
Hvað segið þér? Hryðjuverk
Líbýumanna? Af hverju emð þér
alltaf að tala um þetta? Hver framdi
ljótasta hryðjuverkið gegn Líbýu
og á hvaða forsendum? Þessum
áróðri að allt illt sé Líbýumönnum
að kenna, það er nú meira hvað þið
hafið einfaldar lausnir og emð trú-
gjörn. Við beitum engan ofbeldi en
auðvitað verjum við hendur okkar.
Hvað verði nú? Ja, ef ég vissi
það, en ég get fullvissað frúna um
að Líbýa lætur ekki einangra sig
og hún mun halda fullri reins með
aðstoð þeirra ríkja sem skilja mál
réttlætisins og um hina kæmm við
okkur kollótta," sagði Hassan
Mansour, utanríkisráðherra að lok-
um.
Viðræður um Rockall
Þátttakendur í viðræðum Dana, Færeyinga og íslendinga um Rockallsvæðið í Reykjavík 1. maí sl.: Talið frá
vinstri: Jörgen Staffeldt, deildarstjóri í orkuráðuneytinu, Jakob Höymp, fulltrúi I utanríkisráðuneytinu, Morten
Sparre Andersen, jarðfræðingur, Daniel Nolsöe, dómari, fulltrúi færeysku landstjómarinnar, W. Mcllquham
Schmidt, sendiherra og formaður dönsku nefndarinnar, Ólafur Egilsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu,
Hans G. Andersen, sérstakur ráðunautur í hafréttarmálum, formaður íslensku nefndarinnar, dr. Guðmundur
Pálmason, jarðeðlisfræðingur, dr. Manik Talwani, sérstakur ráðunautur íslenskra stjórnvalda I landgrunnsmálum,
Karl Gunnarsson, jarðeðlisfræðingur, Eyjólfur K. Jónsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og Kristinn
F. Árnason, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu.
Bensínlítrinn úr 30 í 28 krónur
í fyrradag lækkaði bensínlítr-
inn úr 30 krónum í 28 krónur.
Bensínlítrinn hefur þá lækkað
um 7 krónur, eða 20%, frá ára-
mótum.
í landinu em nú birgðir af bens-
íni til fjögurra mánaða. Þessar
birgðir vom keyptar í mars og
apríl á afar hagstæðu verði eða á
129 dollara tonnið, segir í frétt frá
Verðlagsstofnun. Olíufélögin nýttu
sér þetta lága verð til þess að kauþa
inn meira magn en venja er. Undan-
fama daga hefur innkaupsverð á
bensíni farið hækkandi og er nú
152 dollarar tonnið. Við þetta má
bæta að innkaupsverðið fór í 210
dollara tonnið í byijun ársins en
komist var hjá að gera innkaup til
landsins á þeim tíma.
(Fréttatilkynning)
Styrkir til
tónleika-
halds utan
Reykjavíkur
Félag íslenskra tónlistar-
manna hefur fengið fjárveitingu
frá menntamálaráðuneytinu til
að styrkja tónleikahald utan
Reykjavíkur 1986-1987.
Um þessar mundir auglýsir fé-
lagið eftir umsóknum frá einleikur-
um, einsöngvurum eða kammer-
hópum um styrk til tónleikahalds,
enda sé a.m.k. einn þátttakandi
félagi í FÍT. Styrkveiting miðast
við að haldnir séu a.m.k. þrennir
tónleikar á mismunandi stöðum í
sama landshluta. Auk þess er ætlast
til að flytjendur annist tónlistar-
kynningu eða haldi námskeið í skól-
um í tengslum við tónleikana þar
sem því verður við komið.
Styrkupphæð miðast við fjölda
flytjenda, og er umsóknarfrestur til
1. september nk. Vonir standa til
að þessar styrkveitingar verði til
góðs bæði tónlistarmönnum og tón-
listarlífi utan Reykjavíkur.
Fréttatilkynning.
Magnús Magnússon, prófessor,
sem jafnframt er formaður, Guðjón
Magnússon, aðstoðarlandlækni, og
Ingimar Sigurðsson, yfirlögfræð-
ing.
Hlutverk Geislavama ríkisins er
m.a. eftirlit og umsjón með lögum
nr. 117/1985, um geislavarnir, og
reglum settum samkvæmt þeim, en
lögunum er ætlað að tryggja nauð-
synlegar öryggisráðstafanir gegn
jónandi geislum frá geislavirkum
efnum og geislatækjum í því skyni
að koma í veg fyrir skaðleg áhrif
slíkrar geislunar.
Forstöðumaður Geislavama rík-
isins hefur verið skipaður Sigurður
M. Magnússon, kjameðlisfræðing-
ur.
IBM PC............................kr. 87.500
IBM PC/XT 20mb....................kr. 147.500
IBM PC/AT 20 mb ..................kr. 256.000
1946
1986
£
Proprinter .........................kr. 28.500
Quietwriter ........................kr. 64.500
Arkamatari f/Quietwriter............kr. 18.500
Pappírsdragari f/Quietwriter ......kr. 4.100
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33, sími: 20560
Tölvudeild Akureyri:
Gránufélagsgötu 4,600 Akureyri
sími: 96-26155
STOÐFORRITIN FRÁIBM ERU:
Áætlunarstoð ...... kr. 6.200
Skrástoð .......... kr. 6.200
Myndstoð .......... kr. 6.200
Skýrslustoð........ kr. 5.400
Ritstoð............ kr. 6.200
Teiknistoð......... kr. 6.200
IBM PC tölvurnar eru öflugar, fljótvirkar og öruggar. Þær eru
hannaðar til að mæta ólíkum þörfum og hafa því mismunandi
eiginleika, en allar eiga þær sameiginlegt að vera auðveldar,
þægilegar, traustarog einfaldar [ notkun. Þess vegna finnurðu
örugglega eina á meðal þeirra sem hentar þér. IBM PC tölvurnar eru
leiðandi á sínu sviði og þess vegna finnurðu líka að allur hugbúnaður
fyrir PC umhverfið er sniðinn fyrir þær. Með IBM PROPRINTER eða
QUIETWRITER tölvuprenturum verður öll útskrift á gögnum hraðvirk
og hljóðlát, með vönduðu letri og snyrtilegum frágangi.
Auk IBM PC bjóðum við til sölu IBM system 36 töivubúnað í
þremur stærðum ásamt tilheyrandi notendahugbúnaði.