Morgunblaðið - 04.05.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAI1986
B 37
T\
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
I lagi að nota tölvu
við píanóstillingar
Velvakandi géður.
Vegna ummæla Leifs H. Magn-
ússonar píanóstillingamanns í
morgunþætti útvarpsins þ. 30.
apríl sl. varðandi píanóstillitölvur,
langar mig að taka fram, að það
er ekki sama hvemig slík tæki eru
notuð. Sú staðhæfíng Leifs, að
tónninn í hljóðfærunum yrði flatur
ef slík tæki væru notuð, á ekki við
nein rök að styðjast. Þetta fer eftir
næmleika og tónheyrn þess sem
stillir hljóðfærið. Mjög margir still-
ingamenn nota iitla tónhæðarmæla
eða stillitölvur til að hafa til hlið-
sjónar við að taka „temperatur".
Hins vegar nota þeir eyrun við að
stilla hljóðfærið til fullnustu. Þessir
litlu tónmælar eins og ég kýs að
kalla þá, geta verið mjög nákvæmir
á miðborðinu á píanóinu, en verða
aftur á móti ónákvæmari þegar
kemur niður í bassa og ofarlega í
diskant. Leifí hlýtur að vera ljóst
að það eru ekki þessar stillitölvur
sem stilla hljóðfærin, heldur menn-
imir sem nota þær, og ef stillinga-
maðurinn kann ekki verkið, þá þýðir
heldur ekki að nota tölvu. Til eru
reyndar stillitæki sem sögð em svo
nákvæm, að þau nemi hljóma betur
en nokkurt mannseyra, en slík tæki
em geysidýr, og ég veit ekki hvort
nokkur stillingamaður hér á landi
hefur yfír slíkum grip að ráða. Ég
vil geta þess, að ein bezta píanó-
verksmiðja heims, Grotrian-Stein-
weg sér um allar konsertstillingar
í Stadthalle og Staatstheater í
Braunschweig. Meistarinn, sem
þær framkvæmir, notar lítinn mæli
til hliðsjónar þegar hann tekur
„temperatur". Og þeir em vand-
virkir hjá Grotrian. umsögn Leifs
er því út í loftið, og til þess eins
fallin að skapa vantraust á þeim
sem kjósa að nota slík tæki.
Með þökk fyrir birtinguna.
Isólfur Pálmarsson.
HEILRÆÐI
Foreldrar.
Nú fer sá tími í hönd þegar reiðhjólin em tekin fram. Yfírfarið
hjólin með bömum ykkar og sjáið um að allur öryggisbúnaður sé
í lagi. Brýnum fyrir bömum okkar að gæta varúðar og leiðbeinum
þeim hvar ömggast er að hjóla.
Nafnaþulan enn
Náttúrulíf smyndir
of seint á dagskrá
Þórir Baldvinsson hríngdi.
„Ég fékk nýlega bréf frá Nátt-
úmfræðingafélaginu — ég hef verið
í því og er áhugamaður um náttúm-
fyrirbæri — þar sem segir, að félag-
ið hafi látið sjónvarpið fá myndröð
af náttúmlífí til birtingar í sjón-
varpinu, til þess að vekja athygli á
byggingu náttúmgripasafns, sem
núna er verið að tala um. En þegar
ég ætlaði að kanna þetta nánar,
fann ég ekkert um það í sjónvarps-
dagskránni. Engu að síður koma
myndimar í sjónvarpinu, en það er
eins og verið sé að pukra með þær,
því að maður getur ekki séð á hvaða
dögum þær em birtar. Og annað
verra: Myndimar em sýndar svo
seint, að gamalt fólk getur ekki séð
þær. Það á erfitt með að halda sér
vakandi fram undir miðnætti. Við
gamla fólkið emm búin að missa
af vorinu og sumrinu og því er það
eins og að svipta okkur hluta af
guðdóminum að haga dagskránni
þannig, að við missum af öllu „nátt-
úrulegu". Einar Egilsson, sem hefur
með þetta að gera fyrir Náttúm-
fræðingafélagið, sagði mér, að þeir
hjá sjónvarpinu hefðu sagt ómögu-
legt að birta myndimar á öðmm
tíma. En það er til málsháttur sem
segir: Allt er hægt með góðum vilja.
Og þar sem ég er farinn að gera
sjónvarpið að umtalsefni, vildi ég
nefna dálítið sem mér hefur fallið
illa, en það er þegar verið er að
skjóta inn ákaflega háværam lag-
stúfum á milli dagskrárliða, ef eitt-
hvert hlé verður. Tónlistin nú á tfm-
um er svo hávær, að hún er algjör
plága fyrir gamalt fólk, þó að unga
fólkið fínni ekki fyrir því. Mér
finnst, að a.m.k. stundum mætti
hafa örlítið mildari tónlist í þessum
hléum."
Enn berast Velvakanda svör við
fyrirspum um nafanþulu, sem birt-
ist hér í dálkunum á dögunum.
Oddfríður Sæmundsdóttir í
Reykjavík sendir Velvakanda úr-
klippu úr bamablaðinu Æskunni
frá 1914 þar sem þuluna er að fínna
og stendur undir henni Kr. Þ. Gerir
Oddfríður því skóna, að það standi
fyrir Kristleifur Þorsteinsson, og
svo gera fleiri, sem haft hafa
samband við Velvakanda. Fylgir
þulan hér með, eins og hún birtist
í Æskunni, og svörin einnig. Um
leið biðst Velvakandi afsökunar á
prentvillum, sem slæddust inn í
þuluna í dálkunum þriðjudaginn 29.
apríl sl.
Einn kann vel á ísum heija,
annar bytjar viku hveija,
með þriðja er venja að húsum hlúa,
hét hinn fjórði á Guð að trí.a,
fimmti hylur ásjónu’ ýta,
eimáskamásjöttalíta,
sjöundi við það sýnist dottinn,
sá áttundi, það er meiri spottinn,
dauðann níundi ei nálgast hót,
nauða tíundi þyrfti um snót,
hjá ellefta stendur heimskan hátt,
heima’ í þeim tólfta sá hefir átt,
þrettánda fysir fjöri' að granda,
^órtándi sýnir mér skipun landa,
fimmtándi á himni fæðist og deyr,
fleygir sextándi hvössum geir,
seytjándi er afleiðing unaðstíða,
áljándi má í saurinn skríða,
eg þeim nítjánda á eldinn kasta,
með andanum finn ég þann tuttugasta.
I. Bjöm, 2. Helgi, 3. Torfí, 4. Krist-
inn, 5. Grímur 6. Hreinn, 7. Hallur,
8. Éilífur, 9. Ofeigur, 10. Meyvant,
II. Álfur, 12. Bergur, 13. Vigfús,
14. Kort, 15. Dagur, 16. Bogi, 17.
Ársæll, 18. Páll, 19. Brandur, 20.
Loftur.
Vísa vikunnar
|[elveiðífrumvarpið:
,Framsóknarmenn sigldi^
»ví í strand þrjú ár í röð“J
: segir Etríll-Tónsson þingmaður Siálfstæðisflok^sins 1
Egill sínum ráðum réð,
ráðherrann setti ljótan.
Þar hefur „ömmu“ sína séð
sá er bað um kvótann.
Hákur.
TONABIO
Það sem hann sá var vitfirring, sem tók öllu fram
sem hann hafði gert sér í hugarlund . . . Glæný
og ótrúlega spennandi amerísk stórmynd um
harðsvíraða blaðamenn í átökunum í Salvador.
Myndin er byggð á sönnum atburðum, og hefur
hlotið frábæra dóma gagnrýnenda.
Aðalhlutverk: James Woods, Jim Belushi og John
Savage.
Leikstjóri: Oliver Stone (höfundur „Midnight Ex-
press", „Scarface" og „The Yearof the Dragon".)
Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30.
íslenskurtexti.
Bönnuð innan 16 ára.
Nýjar videoleigur
Meiripartur mynda nýlegar.
Leigjum einnig út videotæki
og sjónvörp.
Endurnýjum reglulega.
Eigum mikið af óperum og ballettmyndum.
HrfflJSTAÍM
VIDEO
Hafnarstræti 2.
Sími621101.
Opið 12-23.30.
Ofanleiti 14.
Sfmi 33379.
Opið 10-23.30.
Gott efni
■¥
<
*