Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.05.1986, Qupperneq 38
Op 0 ) .• t T •/'/■ I ’ ■ (\ \ t -.y* 38 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1986 I I RiEI/HI ■ > II H> SI ASSA j- í i I ■ >} Austurbæjarbíó: Árásin á Kol- krabbann Michele Placido lék góða gæjann í Kolkrab- banum og þótti standa sig vel, að minnsta kosti límdust íslend- ingar fyrir framan skjá- inn þegar myndin var sýnd í sjónvarpinu í vetur. Leikstjóri þeirr- ar myndar, Damiano Damiani, og leikarinn Michele Placido hafa leitt hesta sína saman á ný, að þessu sinni í bíómyndinni Attacco alla Piovra sem á ís- lensku útleggst „Árás- in á Kolkrabbann". Damiani er sérfraeð- ingur í spennumyndum, hann hefur sérhæft sig í mafíunni, enda á heimavelli, en að þessu sinni leikur Michele Placido ekki þann góða gæja sem við þekkjum úr sjónvarpinu. í Árás- inni á Kolkrabbann leik- ur hann nefnilega vonda gæjann, Mario, ,sem sendur er af maf- íunni til Palermo í þeim tilgangi að halda spill- ingunni í horfinu. Mario reynir að fá yngri bróður sinn til liðs við sig, en hann er því fráhverfur; er yfir sig hrifinn af fjórt- án ára stúlku sem selur sig til að kaupa eiturlyf. Örlögin haga því svo til aðyngri bróðirinn neyð- ist til að ræna og drepa svo vinkonan fái sinn skammt af eitri. Við það kætist Mario. Michele Placido, þekktur úr sjónvarpsþáttunum Kol- Norman Jewison, leikstjóri. Meg Tilley leikur nunnuna ungu og Jane Fonda sálfræð- inginn Livingston, sem rannsakar morðmálið. Anne Bancroft leikur abbadísina í „ Agnes, barn Guðs“. Stjömubíó: með Dustin Hoffman, enn út- nefnd), The Turning Point (1977, útnefnd enn einu sinni) og Fíla- manninum (1980). Hlutverkin í þessum myndum voru öll alvarleg, nema ef til vill í Mrs. Robinson, en Bancroft hefur einnig leikið í léttvaegari myndum, hún lék meira að segja sálfa sig í Þöglu mynd Brooks, og hefur sýnt og sannað að hún er ágætur gamanleikari. Anne hefur heldur ekki langt að sækja ráðleggingar um slíkt, eigin- maður hennar er einn sá geggjað- asti í kvikmyndaheiminum. Hjónaband Anne Bancroft og Mel Brooks hefur löngum vakið umtal og aðdáun, því engir skilja hvernig þau fara að því að tolla saman í þrjátíu ár í höfuðborg « lauslætisins, Hollywood. Þau kynntust um það leyti sem Anne var að þreifa fyrir sér, ung og óreynd, á bandaríska leiksviðinu fyrir meira en þrjátíu árum. Hún söng lagið „Ég get sko giftst hve- nær sem er“ en þá greip djúp rödd fram í fyrir henni með þessum orðum: „Hæ, Anna, ég heiti Mel Brooks." Stjörnubíó tekur von bráðar til sýninga kvikmyndaútgáfuna af heimsþekktu leikriti John Piel- meiers, Agnes barn Guðs (Agnes of God) sem Norman Jewison gerði á síðasta ári. Myndin var þá sýnd við mikla aðsókn og voru tvær leikkonur myndarinnar, Meg Tilley og Anne Bancroft útnefndar til Óskarsverðlauna. Agnes barn Guðs er annaö leik- ritið sem Norman Jewison filmar í röð, hitt var Saga hermanns, sýnd i Stjörnubíói fyrir réttu ári. Meg Tilley leikur Agnesi, unga nunnu sem sökuð er um að hafa myrt nýfætt barn sitt innan klaustur- veggjanna. En þegar abbadísin og sálfræðingur byrja að rannsaka málið og yfirheyra Agnesi kemur í Ijós að hun man ekki nokkurn skapaðan hlut. Jane Fonda leikur sálfræðinginn og Anne Bancroft abbadísina sem telur Agnesi sak- lausa, en sálfræðingurinn er ekki ánægður með svo einfalt svar og vill kafa dýpra í málið. Jewison heimsótti klaustur vítt og breitt um Bandaríkin og Kan- ada, ásamt kvikmyndatökumann- inu Sven Nykvist og leikonunum þrem. Þessi leiðangur tók sex mánuði. „Það sem skipti okkur mestu að ferð lokinni var að við skildum hve trúin er mannfólkinu nauðsynleg," sagi Jewison. „Það erfiðasta var að koma skoðunum fulltrúa andstæðra lífsmáta til skila. Ein persóna myndarinnar er veraldleg og trúlaus, önnur er trú- rækin og guðhrædd. En höfundur leikritsins gleymdi ekki kímninni og í miðjum slagi njóta þær sam- vista og hlæja af hjartans lyst." Anne Bancroft, gift Mel Brooks, heldur um þessar mundir upp á þrjátíu ára leikferil. Hún er búin að leika í reiðarinnar býsn af myndum mörgum ógleymanleg- um, svo sem The Miracle Worker (1962, fékk Óskarinn), The Pumpkin Eater (1964, útnefnd til Óskars), Mrs. Robinson (1967, Anne Bancroft f lækist í morð mál innan klausturveggja Justin Henry lelkur með Richard Harrisí„Degi Martins". Justin Henry Justin Henry var niu ára þegar hann lék með Dustin Hoffmann f „Kramer gegn Kra- mer“ hér um árið. Henry var mikið f sviðsljósinu, var meira að segja útnefndur til Óskars- verðlauna, en hann kærði sig ekki um að missa af æsku sinni, hélt áfram skólagöngu og hætti að hugsa um bíómyndir. ^ Justin Henry er nú fimmtán ára og er byrjaður að leika í myndum á ný. A eftir Kramer lék hann á móti Roy Scheider í sjón- varpsmyndinni Tiger Town og unglingamyndinni Sixteen Cand- les. Síðan lék hann með Richard Harris í „Degi Martins", en hún fjallaði um strokufanga sem tek- ur ungan dreng í gíslingu til að lifa á ný æsku sína. Það versta við bíómyndir, segir Justin Henry, er að fólk leyfir manni ekki að stækka og þroskast. Það man eftir mér eins og ég var í Kramer gegn Kramer, níu ára pjakkur, og áttar sig ekki á því að ég eldist eins og aðrir. krabbanum, snýr aftur i Ár- ásinni á Kolkrabbann, sem Austurbæjarbió sýnir um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.