Morgunblaðið - 06.06.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JUNÍ1986
Verðlaun veitt fyrir kappróður. Áhöfnin á Þóri SF 77 sigraði áhafnir annarra báta, en siðan kepptu
landmenn sér.
Líflegur sjómanna
dagfur á Höfn
Höfn í Homafirði:
Sjémannadagurinn á Höfn
var haldinn hátíðlegur í blíð-
skaparveðri sunnudaginn 1.
júní.
Sjómannamessa var í Hafn-
arkirkju kl. 11.00. Eftir hádegi
var samkoma á hóteltúninu
með Qölbreyttri dagskrá.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra flutti ræðu dags-
ins. Aldraður sjómaður, Sveinn
Einarsson, var heiðraður og
veitt voru verðlaun fyrir kapp-
róður sem háður hafði verið
daginn áður. Eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum gerði
fólk sér margt fleira til gam-
ans, en að loknum öllum
skemmtiatriðum var gengið í
skrúðgöngu niður að höfn, en
þar var öllum boðið í siglingu.
Dansleikir voru haldnir á Hótel
Höfn og í Sindrabæ bæði laug-
ardags- og sunnudagskvöld.
Haukur
dagsins.
í reiptoginu kepptu bátsmenn á móti skipstjórum og báru bátsmennimir sigur úr býtum i þeirri
viðureign.
Morgunblaðið/Haukur
f byrjun naglaboðhlaupsins þurftu keppendur að nálgast hamarinn og naglana á botni 1000 litra
kars, sem fullt var af vatni eins og sést á myndinni. Keppendur voru valdir af handahófi úr hópi
áhorfenda og kepptu eiginmenn á móti konum sínum.
Ferðablað-
ið Land er
komið út
FERÐABLAÐIÐ LAND er komið
út og borið inn á hvert heimili i
landinu.
í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum blaðsins segjast þeir geta
fullyrt, að jafn ítarleg úttekt á
ferðamannaþjónustu í landinu og
sú sem í blaðinu birtist hafi ekki
komið út áður.
Meðal greinahöfunda í Landi má
nefna að Steindór Steindórsson frá
Hlöðum skrifar um Akureyri, Sr.
Heimir Steinsson um Þingvelli, Sr.
Guðmundur Óli um Skálholt og
Gylfi Þorkelsson frá Laugarvatni
um Landsmót hestamanna á Hellu.
í ensku útgáfu ritsins er m.a.
grein eftir Önnu Yates þar sem hún
fjallar um drykkjusiði íslendinga,
sveitaböll og annað er lýtur að
skemmtanalífi okkar.
Þegar báðar útgáfumar eru tald-
ar saman er upplag Lands 130
þúsund eintök.