Morgunblaðið - 06.06.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.06.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986 17 + Gamla sagan um orð og athafnir eftir Halldór Árnason Stutt er síðan þúsundir foreldra um land allt lögðu grunninn að stofnun samtaka um vímulausa æsku. Hinn mikli áhugi fyrir stofn- un þessara samtaka lýsir betur en flest annað þeim áhyggjum sem býr með foreldrum um framtíð bama sinna. í nýlegri könnun landlæknis kemur fram að nær annar hver 15 ára unglingur á höfuðborgarsvæð- inu neytir áfengis mánaðarlega eða oftar, þó enn vanti þá 5 ár í lögaldur til áfengiskaupa. Þúsundir óharðn- aðra unglinga mæta gífurlegum þrýstingi jafnaldra sinna um að taka þátt í drykkju eða vera ella fyrirlitnir. Það er fáum unglingum gefið að standast slíkan þrýsting. Ekki er að efa að foreldrar bera hag og velferð bama sinna fyrir brjósti umfram allt annað. Bömin em dýrmætasta eign hvers foreldris og þar stenst ekkert samjöfnuð. Virk samtök foreldra um vímu- lausa æsku, þar sem foreldrar létta undir með bömum sínum að stand- ast þrýsting jafnaldranna og sam- félagsins, yrðu án efa talin til eins merkasta framtaks almennings hér á landi. Fólki er að verða ljóst mikilvægi þess að saman fari orð og athafnir hinna fullorðnu. Að öðmm kosti vinnst aldrei gagn- kvæmt traust. í ljósi þessa kemur vægast sagt á óvart sá mikli stuðningur við opnun áfengisútsalna, þar sem hann var kannaður samfara nýaf- stöðnum bæjarstjómarkosningum. Vart verður séð að opnun á áfengis- útsölu komi til með að draga úr áhyggjum foreldra á velferð bama sinna, frekar mætti ætla hið gagn- stæða. Fróðlegt væri að fá upplýs- Halldór Árnason ingar frá þeim bæjarfélögum, þar sem áfengisútsölur hafa verið opn- aðar á undanfömum ámm, hvaða áhrif það hafí haft á áfengisneyslu unglinga og félagsstarf þeirra. Eg vil beina þeirri spumingu til nýkjörinna bæjarfulltrúa hvort opnun áfe.igisútsölu sé það framlag sem þeir ætla að veita samtökum um vímulausa æsku til brautar- gengis. Höfundur er hagfræðiugur hjá Þjóðhagsstofnun. Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Petta er meðalstór, 3ja dyra rúmgóöur og bjartur bíll. Hann er tramdrifinn, meö tann- stangarstýri, mjúkri og langrí fjöðrun og þaö er sér- staklega hátt undir hann. Sem sagt sniðinn fyrir ísienskar aðstæður. Véiin sem er 1300 cm3, 4ra strokka, spræk og sparneyt- in, er hönnuð af einum virt- asta bílaframleiðanda Evrópu. Bensíneyðsla er innan viö 61 á hundraðiö í lang- keyrslu, en viöbragöstími frá 0-100 km hraða er þó aðeins 14,5 sek. Þessi nýi bíll er 5 manna og mjög rúmgóður miðaö við heildarstærð. Aftursætið má leggja fram og mynda þannig gott flutningsrými. Hurðirnar eru vel stórar svo allur um- gangur er mjög þægilegur. Það er leitun að sterkbyggð- arí bíl. Sérstök burðargrind er í öllu farþegarýminu, sílsareru sérstyrktir og sama er að segja um aðra burðarhluti. Þessum bfl er ætlað að henta jafn vel á malbikuðum brautum Vestur- Evrópu, sem á hjara norður- slóða. Og þá er komið að því sem kemur mest á óvart. Fyrír þennan bíl þarftu aðeins að borga frá 239 þúsund krónum, því hann er á sér- stöku kynningarverði. Ætlarðu ekki að sjá hann birtast á morgun? SUÐURLANDSBRAUT 14 SÍMI 38600 - 31236

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.