Morgunblaðið - 06.06.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ1986
Hundaræktarsýning í Garðabæ:
115 hundar kepptu
í tíu flokkum
HUNDARÆKTARFÉLAG ís-
lands gekkst fyrir hundarækt-
arsýningu á sunnudaginn var
við Garðaskóla í Garðabæ. Var
þetta ellefta sýningin af þessu
tagi á vegum félagsins, en
fyrsta sýningin var haldin árið
1973 í Hveragerði. Að þessu
sinni tóku þátt í sýningunni 115
hundar og kepptu þeir í tíu flokk-
um. Þeir hundar sem unnu sinn
flokk komust síðan í úrslitakeppn-
ina.
Fyrstu verðlaun á sýningunni
fékk tíkin Vigga, af Labrador
Retriever kyni, og er eigandi
hennar Stefán Gunnarsson. Ann-
að sæti var skipað íslenskum §ár-
Skoða verður hundana vel og vandlega áður en þeir eru dæmdir.
Að þessu sinni hafði Hundaræktarfélagið fengið til liðs við sig
finnskan dómara, Gittu Ringwall, og hér er hún að búa sig undir
að skoða upp í einn þátttakandann.
Verðlaunahafamir ásamt eigendum sínum. Talið frá vinstri: Tíkin Vigga, sem hlaut fyrsta sætið
á sýningunni, með eiganda sínum, Stefáni Gunnarssyni, þá islenski fjárhundurinn Stefanía, með
eiganda sinum, Valgerði Auðunsdóttur, í þriðja sæti lenti Guttormur Roi, eigandi hans er Þuríður
Bergmann Jónsdóttir og i fjórða sæti var Sunnudagsglóinn, hundur af Golden Retriever-kyni, en
eigandi hans er Þórður Björnsson.
hundi.Stefaníu, og er eigandi
hennar Valgerður Auðunsdóttir. í
þriðja sæti var Guttormur Roi,
hundur af Dachs kjmi og er eig-
andi hans Þuríður Bergmann
Jónsdóttir. Fjórða sætið skipaði
Sunnudagsglóinn, hundur af
Golden Rettriever kyni í eigu
Þórðar Bjömssonar.
Talsvert var um áhorfendur á
sýningunni þrátt fyrir rigninguna
sem var þennan dag. Guðrún
Guðjónssen, formaður Hunda-
ræktarfélagsins, sagði í samtali
við blaðamann að bagalegt væri
að geta hvergi haldið sýningu sem
þessa innadýra, en heilbrigðisyfir-
völd hafa bannað að komið sé
með hunda inn í skóla og íþrótta-
hús. Sagði Guðrún að víðast hvar
annarsstaðar í heiminum væm
sýningar af þessu tagi haldnar
innandyra og jafnvel í andymm
stórmarkaða.
Nemendasamband
Samvinmiskólans:
Lokabindi
árbókarinnar
ÚT ER komið 11. bindi Árbókar
Nemendasambands Samvinnu-
skólans og er það lokabindi
verksins, en 1. bindi kom út árið
1972 undir ritstjórn Sigurðar
Hreiðars, blaðamanns.
Ellefta bindið er þeirra stærst,
283 bls. í því segir Jón Sigurðsson,
skólastjóri, frá fyrirhuguðum breyt-
ingum á Samvinnuskólanum sem
gerðar verða nú í haust. Svavar
Lámsson ritar um Framhaldsdeild
Samvinnuskólans sem tók til starfa
1973 og birtar em myndir af öllum
stúdentum þaðan. Þá er mynda-
syrpa úr lífl og starfí Jónasar Jóns-
sonar, sem var skólastjóri Sam-
vinnuskólans 1918—1955. Af öðm
efni í bókinni em upplýsingar um
nokkra nemendur sem faliið hafa
niður í fyrri bókum auk leiðréttinga.
En meginhluti bókarinnar er nafna-
skrá yflr öll bindin. Þar hafa komið
upplýsingar og myndir af þeim
2.124 nemendum sem stunduðu
nám við Samvinnuskólann
1918—1979. Einnig er nafnaskrá
yfír alla þá einstaklinga sem nefndir
hafa verið í bókunum, alls um 14
þúsund manns.
Þessi síðasta bók er sett og prent-
uð í prentsmiðjunni Odda en inn-
bundin í bókbandsstofunni Amar-
felli. Ritstjóri er Guðmundur R.
Jóhannsson.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásídum Moggans! y
raðauglýsingar — Taðaugjýsinga? — radauglýsingar |
| fundir — mannfagnaöir |
Aðalfundur
Mundið aðalfund orlofsdvalar á Nesvík 7.
júní kl. 15.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Tolistjórans í Reykjavík, Skiptaréttar Reykjavikur, Gjald-
heimtunnar í Reykjavík, Eimskipafélags íslands hf., ýmissa lögmanna,
banka og stofnana, fer fram opinbert uppboð í uppboössal tollstjóra
í Tollhúsinu við Tryggvagötu (hafnar megin) laugardaginn 7. júni
1986 og hefst það kl. 13.30.
Seldar verða ýmsar ótollaöar og upptækar vörur og tæki, óinnieystar
vörur úr þb. Hafskips hf., ótollaðar nýjar og notaðar bifreiðir og
tæki, fjámumdir ýmsir munir og tæki og lögteknir munir.
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavík: Dráttarvagn ca 8250 kg., Merced-
es Benz PL-1113 vélarlaus, dráttarvagn ca 4.600 kg., Ford Granada
ST. árg. 1978, Range Rover árg. 1978, Cadillac DE Ville árg. 1975,
vörubifreið Man 16-19 2 FAK árg. 1979, hjólhýsi Club 440 TN, hjól-
hýsi Caravan, allskonar bifreiöavarahlutir, tau- og skófatnaður, skurð-
bretti, grænmeti, gólfdúkur, varahlutir i báta og skip, parket. Bús-
áhöld, gler og postulínsvara, sólaðir hjólbarðar, ca 30 þúsund kg.,
loftpressa, 2 bifreiðir Honomack, snjóplógur, fjaðrir, stigar og tröpp-
ur, krossviður, vinnupallar, sporfatnaður, skiðaskór, allskonar verk-
færi, leikföng, allskonar húsgögn, álklæðning, hreinlætistæki, papp-
irspokar, iseyöir, flisar, rafbúnaður, ilmefni, tectyl, fittings, rennilok-
ar, gólfflísar, glerull, ræstiefni, matvara, stálvir, gjafavörur, borð-
búnaður, álstigar, ámokstursvél, þéttingar o.fl., mikiö magn af vara-
hlutum í bifreiðir, vefnaðarvara, bökunarofn, skíöi og skór, sjónaukar,
haglabyssur, myndavélar o.fl., kasettur, töskur, linsur o.fl. bilkeðjur,
hátalarar, bílaútvörp, magnarar, myndbönd, sjónvspil, tengibúnaður,
armbandsúr, rakvélar o.fl., viftur, myndavélar, slöngur í hjólb., flöss,
Ijósmælar, klukkur, myndbönd, spólur, hljómtæki, sjónvarpstæki og
margt fleira.
Eftir kröfu tollstjóra og þb. Hafskips hf.: Dieselvél í Scania vörubifr.,
3 Honomack bifreiðir, húsgögn, vefnaöarvara, kleinuvél, Ijósbúnaöur,
fatnaöur, allskonar varahlutir, glervara, hreinlætisvörur, dúkur, lím-
bönd og læknavörur, skófatnaður, rafall, Honomack bifreið, bakarofn-
ar, 2 Volvo trukkar, texstile, parket, mótor, salt ca 70 tonn, mat-
vara, Lessian 60 x es ca 60 bl., teppi, allskonar viður, búslóð, 66
karton kaffi, ritföng, jám og stál, eggjabakkar og margt fleira.
Eftir kröfu skiptaréttar: Allskonar munir úr db. og þb. m.a. ýmislegt
úr þb. blómaverslunar og skóverslunar.
Fjárnumdir og lögteknir munir: Sjónvarpstæki, myndbandstæki,
hljómtæki, allskonar húsbúnaöur, fatnaður, skrifstofutæki og búnaö-
ur, allskonar heimilistæki, stór ísvél í sölutum og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla viö hamarshögg.
Uppboðshaldarínn i Reykjavik.
Flutningabílar til sölu
Höfum á söluskrá eftirfarandi flutningabíla:
G.M.C 1974 á grind með nýlega vél. BED-
FORD 1979 með búkka. BEDFORD 1979 2ja
hásinga. BEDFORD 1979 1 hásing. G.M.C
1975 1 hásing.
Upplýsingar gefa Guðmundur Árnason í síma
99-1000 eða kaupfélagsstjóri.
Kaupfélag Árnesinga.
Mötuneyti — Veitingahús
Til sölu gömul Rafa eldavél, stór 6 hellna og
tveggja ofna. Þarfnast lagfæringar. Einnig
rafmagnsgrillplata (Broilir) og stór djúpsteik-
ingarpottur, tveggja hólfa.
Uppl. gefur Skúli Hansen í síma 14944.
Arnarhóll,
veitingahús,
Hverfisgötu 8-10.
Utsala — Utsala
Byggingameistarar, húseigendur. Otsala
verður á niðurföllum, þakventlum, þaklúgum,
ennfremur plastkúflar, ýmsar stærðir af gólf-
ristum o.fl. Opið laugardag 7. júní kl. 13-19
í Auðbrekku 2 (áður Blikksmiðjan Vogur).
Upplýsingar í símum 41779, 41080 og
37727.
Hestamarkaður
Hestamarkaðurinn verður haldinn á svæði
Fáks, Víðidal, föstudaginn 6. júní nk. kl.
13.00-18.00. Danskur hestakaupmaður vill
kaupa þæga fjölskylduhesta.
Félag hrossabænda.
Hjallaefni til sölu
Landeigendur, sumarbústaðaeig-
endur, verktakar, hestamenn
Grandi hf. er að taka niður og selja hluta af
fiskhjöllum sínum á Korpúlfsstöðum. Um er
að ræða þrjár stærðir grenitimburs.
1. Spírur 6,5-7,0 m langar.
2. Uppistöður 3,0-3,5 m langar.
3. Ásar 10 m langir.
Upplýsingar gefur Baldur Halldórsson í síma
44271.
Fossvogur —
fyrirframgreiðsla
Óska eftir að taka á leigu íbúð eða hús í
Fossvogi. Fyrirframgreiðsla. Tilboð sendist
augldeild Mbl. merkt: „X — 5649“.
Sérhæð til leigu í
Hafnarfirði
í þriggja hæða stigahúsi í blokk. 170 fm og
45 fm bílskúr. íbúðin skiptist í 5 svefnher-
bergi, stórt sjónvarpshol, annað hol, stofu,
borðstofu og þvottahús inn af eldhúsi. Gufu-
bað í sameign. íbúðin er laus 1. júlí og leigist
í allt að 4 ár. Lysthafendur leggi inn umsókn
ásamt uppl. á augldeild Mbl. merkt: „Útsýni
-2606“.