Morgunblaðið - 06.06.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986
35
Hundum
úthýst
Samþykkt hefur verið í borgar-
stjóm að banna hunda milli kl.
8.00 og 21.00 á Laugavegi, frá
Rauðarárstíg að Pósthússtræti.
Þá er einnig bannað að vera með
hunda í almenningsgörðum borg-
arinnar á sama tíma samkvæmt
upplýsingum frá Inga Ú. Magn-
ússyni gatnamálastjóra.
Á Seltjarnamesi hefur verið sett
upp skilti við golfvöllinn, sem bann-
ar að hundar gangi þar lausir en
nokkur brögð eru að því að hundum
sé sleppt lausum þar samkvæmt
upplýsingum frá bæjarskrifstofu
Seltjarnarnesshrepps. Bannið er
vegna fuglanna við völlinn en hund-
ar eiga til að ganga hart að þeim.
Lögvernd:
Mótmælir umfjöllun fjöl-
miðla vegna rannsóknar
Haf skipsmálsins
Morgunblaðinu hefur borizt eftir-
farandi:
„Stjóm Lögvemdar mótmælir
harðlega umfjöllun fjölmiðla vegna
rannsóknar Hafskipsmálsins.Hvað
eftir annað hafa fjölmiðlar birt
fréttir af málinu með niðrandi orða-
lagi um sakbominga og myndir af
sumum þeirra verið birtar aftur og
aftur, jafnvel á forsíðu.
Sakborningar em í einangmn og
geta með engu móti varið réttar-
stöðu sína.
Að því ber að gæta að enginn
er sekur fyrr en sekt hans er sönnuð
og dómstólar haft málin til með-
ferðar.
Allir geta verið sammála um að
spillingu og óheiðarleika þarf að
uppræta í þjóðfélaginu. En allir eiga
að vera jafnir fyrir lögum. Á meðan
rannsókn stendur yfir eiga hvorki
íjölmiðlar né almenningur að setjast
í dómarasæti eins og gert hefur
verið í málum starfsmanna Haf-
skips. Fólki er eflaust í fersku minni
þegar ríkissaksóknari neitaði
nafnabirtingu vegna okurmálsins.
Við bendum á að enn hafa ekki sést
á sjónvarpsskermi sakbomingar
sem ákærðir hafa verið fyrir inn-
flutning og sölu eiturlyfja né heldur
ofbeldismenn. Það hefur því sann-
ast að enn sem fym em ekki allir
jafnir fyrir lögum á íslandi.
Hlutverk almennings og ijölmiðla
er að veita lögreglu og dómsyfir-
völdum aðhald til tryggingar eðli-
legu réttaröryggi.
Stjóm Lögvemdar harmar að við
íslendingar skulum vera svo langt
á eftir öðmm þjóðum í réttarfari.
Við ítrekum fyrri ályktanir okkar
að meðan eitt embætti hefur alræð-
isvald í opinberum sakamálum get-
ur ísiand ekki orðið annað en lög-
regluríki.
Það hlýtur því að vera kappsmál
allra landsmanna að vinna að gjör-
breytingu á því kerfí sem nú er
unnið eftir í dómsmálum.
Ef tala á um lýðfrjálst land verða
allir að vera jafnir fyrir lögum.
Það er lítilmannlegt að velta sér
upp úr óhamingju annarra. Og á
meðan heldur spillingin áfram hjá
þeim sem eiga sér talsmenn á rétt-
um stöðum og siðleysið ræður ríkj-
um í skjóli laga sem eiga engan rétt
á sér í nútímaþjóðfélagi."
Landsmót skólaskákar:
Héðinn og Hannes
Hlífar skólameistarar
Skák
Karl Þorsteins
Landsmóti skólaskákar, hinu
áttunda í röðinni, lauk nú fyrir
skömmu. Lokakeppnin var haldin
í Reykjavík og varð Hannes Hlífar
Stefánsson skólaskákmeistari í
eldri flokki og Héðinn Steingríms-
son í þeim yngri.
Keppnin er gífurlega umfangs-
mikil og hefst forkeppnin í hverj-
um grunnskóla. Sigurvegarinn
þar fær þátttökurétt á kjördæmis-
mót og sá hlutskarpasti í hveiju
kjördæmi fær loks aðgang að
landsmótinu, nema Reykjavík fær
þrjá fulltrúa til keppni, svo alls
eru keppendur tíu.
Fulltrúar höfuðborgarinnar
röðuðu sér líka í efstu sætin. í
eldri flokki var hatrömm barátta
milli Hannesar og Þrastar Árna-
sonar og þurfti úrslitaeinvígi til
að útkljá sigurvegarann og hafði
Hannes þá betur. Hannes hefur
áður sigrað í Landsmóti, þá árið
1984 í yngri flokki. Þeir félagar
höfðu eins og oft áður óheyrilega
yfírburði gagnvart öðrum keppi-
nautum og unnu þá alla, báðir
tveir. Á undanfömum árum hafa
þeir bróðurlega skipt á milli sín
unglingaverðlaunum í öllum mót-
um og munu vafalaust gera það
áfram.
Sigurður Daði Sigfússon
hreppti þriðja sætið. Hér er á
ferðinni ágætur skákmaður en
ólán hans er fólgið í undraverðum
styrk þeirra félaga. Sigurður
Gunnarsson frá Siglufírði kom
næstur, efstur landsbyggðar-
manna. Skortir hann fleiri tæki-
færi til að etja kappi við sterka
skákmenn.
Héðinn Steingrímsson sigraði
rétt einu sinni alla andstæðinga
sína í yngri flokknum. Lætur
nærri að þessi klausa hljómi jafn
kunnuglega og hjá glímudómur-
um hér áður „Sigtiyggur vann“.
Héðinn slær öll aldursmet hvað
skákstyrkleika snertir og í raun
er eftir litlu að slægjast hjá honum
að etja kappi við jafnaldra. Er
mikilvægt að hlúa vel að skák-
þjálfun hjá pilti og gildir jafnframt
um þá félaga í eldri flokki þvi
sjaldan hafa hæfíleikar verið meiri
hjá drengjum.
Helgi Áss Grétarsson hlaut
annað sætið, ofar að stigum en
Magnús Ármann. Báðir eru þeir
efnilegir skákmenn og nýtur Helgi
vafalaust góðrar leiðsagnar eldri
systkina sem eru vel þekkt á skák-
sviðinu.
Lokastaðan:
Eldri flokkur
l.Hannes Hlífar Stefánsson,
Hagaskóla, 8 ‘A vinn. af 9
mögul.
2. Þröstur Árnason, Seljaskóla,
8'/2 v.
3. Sigurður Daði Sigfússon, Selja-
skóla, 6 v.
4. Sigurður Gunnarsson,
Grunnsk. Siglufj., ö'Av.
5. Magnús P. Örnólfsson,
Grunnsk. Bolungarv., 4’A v.
Yngri flokkur
1. Héðinn Steingrímsson, Hvassa-
leitissk., 9 vinn. af 9 mögul.
2. Helgi Á. Grétarsson, Breið-
holtssk., 6 V2 v.
3. Magnús Ármann, Breiðholts-
skólat 6 V2 v.
4. Páll Ámason, Kársnesskóla,
5>/2V.
5. Hjalti Glúmsson, Barnaskóla
Selfoss, 5 v.
Landsmótið stóð nú á þeim
tímamótum að lokamótið hefur
verið mótum að lokamótið hefur
verið haldið í öllum kjördæmun-
um. Það hefur fyrir löngu sannað
giidi sitt og glætt áhuga á skák-
iðkun meðal grunnskólanema um
allt land, og er von að vegur þess
muni enn aukast um komandi ár.
Islandsmót
grunnskólasveita
í kjölfar Landsmótsins var
haldið íslandsmót grunnskóla-
sveita. Seljaskóli bar þar sigur úr
býtum enda voru helstu burðarás-
amir í sveitinni í efstu sæturh á
landsmótinu. Sveitina skipuðu:
Þröstur Árnason, Sigurður Daði
Sigfússon, Sæberg Sigurðsson og
Kristinn Friðriksson. Sveitin hlaut
33 vinninga af 36 mögulegum.
18 sveitir tóku þátt í mótinu og
varð staða efstu sveita þessi:
1. Seljaskóli Rvk., 33 vinn. af 36
mögulegum.
2. Gagnfræðask. Akureyrar,
251/2 v.
3. Breiðholtsskóli a-sv. 23 v.
4. Varmahlíðarskóli, 2OV2 v.
Að lokum kemur þmngin bar-
áttuskák frá landsmótinu.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Svart: Þröstur Árnason
I. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rd2
— c5,4. exd5 — exd5,5. dxc5?!
Leiktap. Svartreita biskup svarts
kemur nú á leikvöllinn með leik-
vinningi í samanburði við 5. Rf3
— Rc6, 6. Bb5 - Bd6, 7. dxc5
5. - Bxc5, 6. Rb3 - Bd6, 7.
Rf3 - Re7, 8. Bd3 - 0-0, 9. 0-0
— Rc5,10. Rbd4 — Rxd4
10. — Bg4?, 11. Bxh7+ væri
vanhugsað
II. Rxd4 — Rg6,12. c3
Markvissara framhald var 12.
Dh5!, því þar stendur drottningin
vel til sóknar og vamar.
12, —Re5,13. Be2 — Dh4
Svartur hefur nú viðunandi sókn-
arfæri fyrir peðið.
14. g3 — Df6,15. f4?
Það er ákaflega auðvelt að gagn- -
rýna hinn gerða leik enda opnast
nú hvíta kóngsstaðan á varasam-
an hátt. 15. Rf3 var betra.
15. - Rc6, 16. Rb3 - Bh3, 17.
Hel — Had8,
17. - Hfe8!, 18. Bf3 - Bc7 var
betra til að hindra ferð biskupsins
á miðborðið.
18. Be3 - Bc7, 19. Dd2 - Hfe8,
20. Hadl — h6,21. Bf3
Hvítur er á góðri leið að endur-
skipuleggja liðsuppstillinguna eft-
ir hinn gáleysislega 15. leik. Ef
drottningin væri á f2 væri því
lokið en nú kemur taktísk kúvend-
ing.
21. - Re5!, 22. Bg2 - Rc4, 23.
Df2 — Bxg2,
23. - Rxe3, 24. Hxe3 - Bb6,
25. Rd4 — Bg4 var líklegra til
árangurs.
24. Kxg2 — Hxe3, 25. Hxe3 —
Bb6, 26. Rd4 - Rxe3, 27. Dxe3
— Bxd4?
Ekkert lá á þessum viðskiptum.
28. Dxd4?
Mistök. 28. Hxd4 var sjálfsagt.
28. - Ða6!, 29. c4 - Hc8!, 30.
Dxd5 — Hxc4
30. — Dxa2 var skeinuhættara.
31. Dd8+ - Kh7, 32. Dd3 -
Kg8,33. Df5
Hótar máti.
33. - Dc6+, 34. KhS - De8,
35. Kd7 — b6,36. Dd3
36. Dd5 er svarað með 36. —
Hc5, t.d. 37. Hd8 - hxd5, 38.
Hxe8+ - Kh7, 39. He7 - Ha5
og jafnteflið blasir við eða 36.
Hxa7 — Hc5 er ákaflega vara-
samt á báða aðila.
36. - De6+, 37. f5 - Dc6, 38.
Hd6 - Dc5, 39. Hd8+ - Kh7,
40. Hd7 - Kg8, 41. Hd5 - Dc6,
42. Hd8+ Kh7, 43. Kd7 - Kg8,
44. Hd8+ - Kh7, 45. f6+ - g6,
46. Dd5
Hvítur finnilr enga vinningsáætl-
un enda líklega eftir litlu að slægj-
ast.
46. - Dxd5, 47. Hxd5 - Hc6,
48. Hd7
og jafntefli var samið enda til lít-
ils að beijast eftir 48. — Hxf6,
49. Hxa7 - Hf2.
Tónlistarbandalag íslands:
Starfsemi tónlistar-
stofnana í hættu
AÐALFUNDUR Tónlistarbandalags íslands var haldinn fyrir nokkru.
Bandalagið var stofnað í mars 1985 og telur innan sinna vébanda
32 félög og samtök, sem vinna að tónlistarmálum. Félagar eru um
11.000.
Formaður TBÍ er Stefán Edel-
stein en aðrir í stjóm em Ásdís
Þorsteinsdóttir, Halldór Haralds-
son, Helga Hauksdóttir og Runólfur
Þórðarson
A aðalfundinum gerði Jón Öm
Marínósson tónlistarstjóri Ríkisút-
varpsins grein fyrir stefnu þess i
tónlistarmálum. Einnig var á fund-
inum fjallað um starfsemi Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar.
Þijár tillögur vom samþykktar á
fundinum og em þær efnislega á
þessa leið:
1 Fundurinn bendir stjómvöldum
á, að starfsemi ýmissa stofnana
í tónlistarlífi sé í hættu vegna
minnkandi framlaga hins opin-
bera og að framlög íslenska rkis-
ins til listastarfsemi sé,sem hlut-
fall af ríkisútgjöldum með því
lægsta sem þekkist á Vesturlönd-
um. Skorað er á menntamálaráð-
herra að snúa þessari þróun við.
2 Fundurinn telur tónlist og aðra
listastarfsemi ekki skipa nógu
veglegan sess í fjölmiðlum og
skorar á ríkisfjölmiðlana að ráða
sérstaka menningarfréttamenn á
fréttastofur sínar.
3 Fundurinn vill vekja sérstaka
athygli almennings og stjóm-
valda á starfi Sinfóníuhljómsveit-
ar æskunnar og hvetur stjómvöld
til þess að styðja þetta framtak.