Morgunblaðið - 06.06.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ1986
Símamynd/AP
• Altobelli skorar annaft mark sitt í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó. Hann kom Ítalíu yfir gegn Argent-
fnu í gær meft því að skora úr vrtaspyrnu strax á 7. mínútu en Maradonna sem sést lengst til vinstri á
myndinni jafnafti fyrir leikhlé.
Körfuknattleikur:
Bandarísk hjón koma
og þjálfa hér á landi
Heims-
meistara-
jafntefli
Daufur leikur Argentínu og Ítalíu
ITALfA OG Argentína gerftu 1:1
jafntefli f A-riftli HM í gær. Leik-
menn beggja lifta tóku enga
áhættu, sóttu Irtið og sættu sig
greinilega við jafntefli frá byrjun
til enda leiksins. Alessandro Alto-
belli skoraði 1:0 fyrir ftalfu úr víta-
spyrnu á 7. mfnútu og Maradona
jafnaði leikinn á 33. mfnútu. Fátt
markvert gerðist í leiknum og lótu
áhorfendur óspart í Ijós óánægju
sfna með púi og hnjóðsyrðum.
Leikurinn fór rólega af stað en
á 7. mínútu handlék Oscar Garre
knöttinn innan vítateigs og Alto-
belli skoraði úr vítaspyrnunni 1:0
fyrir Italíu. Þetta var annað mark
Altobelli í keppninni.
Maradona jafnaði á 33. mínútu
eftir sendingu frá Jorge Valdano.
Markvörður ftalíu, Giovanni Galli,
var illa staðsettur og Maradona
átti ekki í erfiðleikum með að
skora. Skömmu fyrir leikhlé skall-
aði Valdano rétt framhjá marki Ital-
íu og fleiri urðu færin ekki í fyrri
hálfieik.
Leikmenn mættu til leiks í síðari
hálfleik ákveðnir í að halda fengn-
um hlut. Reyndar fengu Argentínu-
menn marktækifæri strax í upphafi
síðari hálfleiks þegar Jorge Burruc-
haga skaut framhjá eftir auka-
spyrnu frá Maradona og Bruno
Conti skaut í stöng hinum megin.
Eftir þetta fór leikurinn að mestu
fram á miðjum vellinum og liðin
fengu fá afgerandi marktækifæri.
Þó var Jose Brown nærri því að
skora með skalla fyrir Argentínu á
68. mínútu og skömmu síðar varði
Pumpido, markvörður Argentínu,
gott skot frá Antonio Cabrini.
Argentína og ftalía eiga nú góða
möguleika á að komast áfram.
Argentína er með 3 stig og á eftir
að leika gegn Búlgaríu og Italía er
með 2 stig fyrir leikinn gegn Suð-
ur-Kóreu.
- West þjálfar Valsara en ekki ákveðið hvert frúin fer
Happatala Elkjærs
Körfuknattleiksdeild Vals hefur
ráðið bandariskan þjálfara fyrir
næsta keppnistfmabil. Jon R.
West heitir hann og er 36 ára
gamall. West er rúmlega tveir
metrar á hæð og hefur starfað
sem aðstoðarþjálfari hjá
Dubuque f lowa frá árinu 1978.
Valsmenn og West gerðu samn-
ing til eins árs og mun West koma
til landsins í ágúst og hefjast þá
æfingar undir hans stjórn. West
lék með háskólaliði Dubuque þeg-
ar hann var yngri og nam síðan
íþróttafræði í háskólanum og lék
jafnframt með liðinu. Árið 1974 hóf
hann að þjálfa hjá skólanum, fyrst
þá yngstu en hefur smátt og smátt
unnið sig upp I að verða aðstoðar-
þjálfari aöalKðsins.
Eiginkona West mun koma hing-
að með honum og er hún einnig
körfuknattleiksþjálfari og heyrst
Golf:
Meistara-
flokks-
menn í GR
ÞRÍR meistaraflokksmenn f golfi
hafa nýlega gengift f Golfklúbb
Reykjavfkur úr öðrum klúbbum.
Þetta eru þeir Magnús Ingi Stef-
ánsson, sem kemur úr Ness-
klúbbnum, Magnús Birgisson,
sem kemur frá Akureyri, og Björn
N. Björnsson, sem kemur frá
Leyni á Akranesi.
hefur að einhver íslensk kvennalið
hafi mikinn áhuga á að fá hana til
að þjálfa næsta vetur. Hvort af
því veröur er ekki endanlega frá-
gengið en ekki er ólíklegt að þau
hjónin þjálfi bæði næsta vetur.
Þegar Ijóst var að Torfi Magnús-
son ætlaði ekki að þjálfa Valsmenn
áfram sendu þeir bréf víöa um lönd
og fengu talsvert mörg svarbréf.
Eftir að stjórnin hafði athugað
málin varð úr að hafa sarnband við
West þar sem þeir töldu sig ráða
við þær kröfur sem hann setti. [
samtali við Morgunblaðiö í gær
sagði einn stjórnarmanna aö þeir
hefðu getað valið úr mörgum
þjálfurum og jafnvel frægum en
þeir hefðu verið svo óhemju dýrir
að West hefði verið valinn.
Þess má geta í lokin að íslenska
landsliðið í körfubolta hefur leikið
gegn skóla þeim sem hann þjálfaöi
og fékk slæman skell.
ÞAÐ má með sanni segja að 58
sé happatalan hans Preben El-
kjær Larsen markaskorarans
mikla í lifti Dana. Á miðvikudaginn
lék hann sinn 58. landsleik fyrir
Danl og skoraði þar sitt 34. mark
í landsleik og gerði það á 58.
mínútu.
Á blaðamannafundi eftir leikinn
gegn Skotum sagðist Elkjær, sem
er 28 ára gamall, að hann hefði
ekki nokkurn áhuga á því að hætta
að skora mörk, en hinsvegar hefði
hann áhuga á að hætta öðru,
nefnilega að reykja, en hann hefur
reykt lengi og mikið en segist nú
ætla að hætta því. Vonandi að það
takist hjá þessum skemmtilega
sóknarmanni.
Danir
ánægðir
• Það rílcti að vonum mikH
gleði meðal Dana hvar sem
þeir voru staddir í heimin-
um í gaer, í Danmörku eða
Mexíkó. Þeir höfðu Ifka
ástœðu til aö vera glaðir
því í gœr var þjóðhátíðar-
dagur þeirra og að auki
unnu Danir sinn fyrsta sig-
ur í lokakeppni heims-
meistaramótsins í knatt-
spyrnu og það yfir Skotum.
Dönsk blöð voru full af frá-
sögnum af þessum merka
atburði og hér gefur að líta
fyrirsagnir nokkurra blaða
í gœr þar sem myndum er
slegið upp á forsíðum og
greinilegt að Danir voru,
og eru vœntanlega enn, f
sjöunda himni.
annsMucnuc
.....(BSí*« |»
itriiHni
Símamynd/Wordfoto
Badminton!
Eftirtaldir tímar eru lausir í sumar:
Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud.
16.20 16.20 16.20 16.200
17.10 17.10 17.10
18.00 18.00 18.00 18.00
18.50 18.50
19.40 19.40
20.30
21.20 21.20
22.10 22.10 22.10
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur, s. 82266.
Frjálsar íþróttir:
Vormót öldunga
ÁRLEGT vormót öldunga verður
haldið á frjálsíþróttavellinum f
Laugardal þriðjudaginn 10.6. og
hefst kl. 20.00, sem er breyting
frá mótaskrá FRÍ. Keppt verftur í
eftirtöldum greinum f þeim ald-
ursflokkum þar sem næg þátt-
taka verftur (karlar 35 ára og
eldri, konur 30 ára og eldri):
200 m hlaup karla og kvenna, 400
m hlaup karla og kvenna, 400 m
grindahlaup, kringlukast karla og
kvenna, sleggjukast, hástökk karla
og kvenna, 10.000 m hlaup karla
og 5.000 m hlaup kvenna.
Tímaseðill liggur frammi á skrif-
stofu FRÍ, á Laugardalsvelli og hjá
mótsstjóra, Ólafi G. Guðmunds-
syni (s. 75292).