Morgunblaðið - 15.06.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1986
43
Miniung:
Þóra Thorlacius
Minning:
Sigrún H.
Pálsdóttir
Fædd 22. júní 1934
Dáin 10. júní 1986
Það er alltaf jafnerfitt að taka
fregn um lát einhvers sem er manni
kær, þótt vitað hafi verið að hverju
stefndi. Dauðastríð Sigrúnar Hönnu
Pálsdóttur er búið að standa yfir í
nokkra mánuði og var erfitt. Fyrsta
áfallið kom síðastliðið sumar. Þá
fékk hún nýmakast. Síðan kom
þrálát flensa og út frá henni að
talið var, bólgur í aðra öxlina.
Seinna kom svo í ljós að um krabba-
mein var að ræða. Við fengum
fregnina á gamlársdag og var frek-
ar dauft yfir mannskapnum, en það
hýmaði samt yfir honum, þegar í
ljós kom, að geislameðferðin hafði
haft sín áhrif og bletturinn var
horfinn. Og ekki dró hún af sér við
æfíngar á hendinni, sem hafði
lamast og náði töluverðum árangri.
En í marz fór hana að kenna til í
baki og hægt og rólega lömuðust
fótleggimir. Krabbamein í höfði og
blettur sást í hryggnum var úr-
skurðurinn í þetta sinn. Og úr því
var ekki aftur snúið.
Ég man ennþá þegar ég var að
koma inn í fjölskylduna og hvað
mér var vel tekið. Við hlógum að
því oft eftir á, þegar að minn tilvon-
andi eiginmaður ætlaði að vera
riddaralegur og skera fyrir mig
steikina, en það tókst ekki betur
til en svo að hún flaug út á borð.
Þetta var mín fyrsta máltíð á heim-
ili Sigrúnar en ekki sú síðasta. Þá
um sumarið urðu ferðir hennar
margar inn í Reykjavík að sjúkra-
beði Rúnars, eiginmanns hennar,
og óraði engan þá, að hún ætti eftir
að fara á undan. Og síst af öllum
hann sjálfan. Hann talaði oft um
sjálfan sig sem veika hlekkinn, en
reyndist þó sá sterkari, þegar á
þurfti að halda. Hans sjúkrahúsvist-
ir urðu fleiri og alltaf stóð hún eins
og klettur við hliðina á honum.
Árin hafa liðið hratt og margt
hefur gerst. Þau urðu henni erfið
síðustu árin. Samt vom nokkrir
sólargeislar, sem komu inn í líf
hennar. Þar á ég auðvitað við
bamabömin fjögur. Að vísu fékk
hún lítið að kynnast því fjórða. Það
fæddist ekki fyrr en í byrjun maí.
En mikið var hún ánægð, að ég
tali nú ekki um þegar að sonur
hennar lagði hann í fang hennar
tæpri viku áður en hún lézt.
Mig langar til að þakka fyrir
þessi ár, sem við fengum saman. Ég
veit að henni líður betur þar sem
hún er núna. Sjálfsagt hefur litla
dóttir hennar tekið á móti henni.
Rúni minn. Innilegustu samúðar-
kveðjur sendi ég þér. Það er vanda-
samt að finna jafn góða stoð og
þú varst Rúnu í hennar veikindum.
Grétar, Anna, Magga, Sævar,
Jenný, Páll og systkinin. Ykkur
sendi ég mínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Hvíl í friði.
OUý
Fædd 22. júlí 1898
Dáin 9.júní 1986
Jesús sagði: „Hver sem lifir og
trúir á mig, mun aldrei að eilífu
deyja." (Jóh. 11,26). Hann sagði
þessi huggunarorð við syrgjandi
konu. Hann segir þau enn í dag við
þá, sem sjá á eftir ástvinum sínum,
hvort heldur þeir eru ungir eða
gamlir. Þegar ég því kveð Þóm,
móðursystur mína, er ljúft að mega
minnast þessara orða Jesú.
Þóra Thorlacius var fædd að
Fellsmúla í Landsveit 22. júlí 1898.
Hún var dóttir hjónanna Jóhönnu
og Einars Thorlacius, þá sóknar-
prests að Fellsmúla — síðar prófasts
að Saurbæ á Hvalíjarðarströnd.
Þar ólst hún upp í stómm systk-
inahópi, sem öll em nú látin. Því
er hún sú síðasta þeirra, sem kveður
nú á sínu áttugusta og áttunda
aldursári.
Að loknu kvennaskólanámi hér í
Reykjavík fór hún til Danmerkur.
Þar lærði hún karlmannafatasaum
og við það vann hún í nokkur ár í
Kaupmannahöfn. Að þessari iðn
sinni vann hún alla tíð, en lengst
hjá Andrési Andréssyni klæðskera
hér í borg.
Fyrst man ég Þóm frænku,
þegar hún kom í sumarfríum sínum
heim til foreldra minna vestur í
Ólafsvík, hvað hún alloftast gerði.
Síðar tókst með okkur Þóm einlæg
vinátta, þegar ég var send í skóla
á unglingsárum mínum. Þá fékk ég
að sofa í herbergi með henni í tvo
vetur. Fyrir það er ég henni ævin-
lega þakklát.
Eftir að ég eignaðist mitt eigið
heimili var hún þar tíður gestur og
henni og eiginmanni mínum var
einkar vel til vina.
Sjálfsbjargarviðleitni Þóm var
viðbmgðið. Það kom hvað best í
Ijós eftir að hún eignaðist sitt heim-
ili, en Þóra var alla tíð ógift. Með
einstökum viljastyrk og þrautseigju
reyndi hún í lengstu lög að bjarga
sér sjálf. Óhætt er að segja að hún
stóð á eigin fótum næstum því
lengur en heilsa hennar og kraftar
leyfðu. Þá var gott að eiga góða
granna. Vinum hennar á Hjarðar-
haga 40, sem reyndust henni
umhyggjusamir og góðir meðan
hún enn var heima, skulu hér færð-
ar þakkir.
Sömuleiðis ber að þakka öllum
þeim sem önnuðust hana eftir að
hún var upp á aðra komin, bæði í
Kumbaravogi og á Landspítalanum.
Þegar ættingjar heimsóttu Þóm
á þessum stöðum, bar þeim öllum
saman um það, hve hún var þakk-
lát fyrir allt það, sem fyrir hana
var gert og hlúð að henni. Hún
kvartaði aldrei, þótt auðséð væri
að undir lokin hrakaði mjög líðan
hennar. Samt megum við muna
hana fagna okkur í hvert skipti sem
við komum til hennar. Og í síðustu
vikunni sem hún lifði hafði húr.
yfir með okkur systmm ljóð og
vers, enda var hún afar ljóðræn og
kunni m.a. mikið af Passíusálmun-
um.
Því þykir mér hlýða að ljúka
þessum minningarbrotum um Þóm
frænku með línum úr 45. Passíu-
sálmi Hallgríms Péturssonar.
IþínumdauðaóJesú
er mín lífgjðf og huggun trú.
Krístín Magnúsdóttir Möller
MALL
seiðandi
sólskinseyjan
...mmmmm!!
3vikurfrákr.23. 00r
SEUUM NÚ SÍÐUSTU 39 SÆTISUMARSINS Á KOSTAKJÖRUM
JULI-BROTTFARIR
Fjölskyldutilboð
Fullt fargjald fyrir einn,
aðrir greiðaminna.
Verðdæmi
kr. 24.797,- á mann miðað við 4ra
manna fjölskyidu.
Gististaðir
í sérflokki
Royal Playa de Palma
Royal Jardin del Mar
RoyalTorrenova
KOSTAKJOR
Við tryggjum gistingu á hóteli eða í íbúð. Öll gist-
ing með baði.
Verðdæmi:
Kr. 23.100 á mann miðað við 3ja manna fjölskyldu.
OTCOVTMC
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580
umboö a tsiandi lynf
\ DINERSCLUB
. - international
I