Morgunblaðið - 12.07.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986
13
tonn af flökum og blokk á jafnaðar-
verði 105 kr. og alls 6,9 milljarða
ísl. kr.
í vinnslu á Bandaríkjamarkað
fara 2,6 kg af slægðum fiski með
haus í 1 kg af flökum og blokk,
roðflettum, beinhreinsuðum og
skorin af þunnildin. Þetta magn,
66 þús. tonn, hefðu því verið 172
þúsund tonn af slægðum með haus,
eins og fiskinum er landað á mörk-
uðum. Þá gefum við okkur eins og
6% rýrnun í ísnum í flutningi út og
þá væri löndunarmagnið á erlend-
um mörkuðum 162 þús. tonn.
Jafnaðarverð hefur verið um árs-
bil 54 kr. pr. kg á ferskfisks
mörkuðunum og 162 þús. tonn þá
lagt sig á 8,7 milljarða ísl. kr.
brúttó í gjaldeyri. I erlendum gjald-
eyri er greiddur löndunarkostnaður
11% og annar erlendur kostnaður
7% og frá dragast því alls 18% og
þá er fenginn nettó gjaldeyrir sem
skilar sér heim, 7,1 milljarður - á
móti 6,9 í vinnslunni á Bandaríkja-
markaði, „dýrasta markaðinn", sem
kallaður er.
Fiskveiðarnar hafa sem sé
borgað alla vinnsluna á þennan
markað og gott betur. 6-7 þús.
manns í beinni vinnu á hann og
ekki undir hálfum milljarði varið til
endurnýjunar véla, tækja og húsa
á árinu. Það sitja menn upp í Há-
skóla og reikna út óhagkvæmni
fiskveiðanna og leggja það helzt
til, líkt og forstjóri SH, að þær séu
alfarið lagðar undir vinnsluna, eins
og hún er nú rekin.
Erlendir fálkaþjófar koma hér til
Reykjavíkur og æða norður í Mý-
vatnssveit til að stela fálkum. Það
er að leita langt yfír skammt.
Framhald.
Höfundur er rithöfundur.
Helstu kostir
Gott rými, spameytni, góðir akst-
urseiginleikar, lipurð í akstri.
Reynsluakstur:
Fiat Regata DS
Verd kr. 509.500 (9.7.1986)
Umboð: Fiat umboðið, Sveinn Egilsson hf.
Helsti búnaður
Miðstýröar læsingar
Tveir útisjieglar, Qarstýrðir
Stækkanleg farangursgcymsla
Þokuljós að aftan
Fullvaxnir hjólkoppar
Rafstýrð miðstöð
Tölvustýrt viðvörunarkerfi
Klukka í mælaborði
Rafknúðir rúðuupphalarar að framan
Einkunnagjöf
4=frába2rt, 3=gott, 2=viðunandi, l=lélegt, 0=óhæft
Vél, Vélarafl/snerpa 3
skipting, Skipting 3
drif, Hlutf.milli gira 4
Lággír 4
Undirvagn Fjörðun 3
Hcmlar 3
Stýri 3
Öryggis- Ljósabúnaður 4
atriði Belti 3
Útsýni 3
Sjieglar 3
Læsingar 4
Rúðuþurrkur/-sprauta 3
Handbremsa 4
Stjómtæki Stýrishjól 3
Rofar 4
Fótstig 4
Mælaálestur 2
Þægindi Sæti 3
Miðstöð/blástur 4
Hljóðeinangrun 3
Rými ökum. 3
Rými farþ. 3
Innstig/útstig 4
Annað Klæðning/innrétting 3
Farangursrými 3
Smámunageymslur 4
Meðaltal 3.33
Tæknilegar upplýsingar
Helstu Mesta lengd mm 4260
mál Mesta breidd mm 1650
Mesta hæð mm 1415
Eigin þyngd kg 1000
F'arangursgeymsla Itr 513
Tankur Itr 55
SætaQöldi 5
Hæfni Hámarkshraði km/klst 155+
Hröðun 0-100 km/klstsck 16
Beygjuradíus m 5.15
Vél Gerð 4 strokka diesel, vatnskæld, stjömu- olíuverk.
Slagrúmmál sm8 1929
Þjöppunarhlutfall 21:1
Mesta afl hö/sn.min. 65/4600
Mesti togkr. kgm/sn.min. 12.1/2000
Kassi Girkassi ögíra alsamh. 5. yfirgir
ogdrif Framdrif, hlutfa.ll 3.588:1
Fjiiðmn Framan/aftan Sjálfstæð
gormafj.
á hverju
hjóli.
Jafnvægis-
stengur.
Hemlar Framan Diskar
Aftan Skálar
Dekk Framan/aftan 165/66
SR 14
Veiðiþáttur Umsjón Guðmundur Guðjónsson
Stórlaxar hér, stórlaxar
þar, stórlaxar alls staðar
Kemur að því að
25 punda hængur
veiðist í Korpu?
Fiskifræðingarnir spáðu
sterkum og góðum stórlaxa-
göngum í sumar og svo virðist
sem þeir hafi haft lög að mæla.
Þeir spáðu einnig góðum smá-
laxagöngum og þegar þetta er
ritað, í byrjun júlí, ber ekki á
öðru en að víðast hvar ætli það
að standast líka. Það sem menn
kannski óraði ekki fyrir var hins
vegar hversu vænn Íaxinn hefur
í raun verið, sá stóri. Meðal-
þyngdin í Laxá í Aðaldal er til
dæmis talin 20 prósent meiri en
venjulega og er þá átt við þyngd
einstakra fiska. 18-19 punda lax-
ar hafa reynst vera aðeins
tveggja ára fiskar úr sjó og veit
það á geysigóð fæðuskilyrði í
hafinu. Það sem sést hefur af
smálaxi undirstrikar þetta, smá-
fiskurinn er einnig feitur og
fagur fiskur úr sjó. Virðist þetta
sumar geta orðið betra en meðal-
sumar, e.t.v. miklu betra. Þannig
eru menn að gera sér vonir um
að Laxá í Þing. losi 3.000 laxa í
sumar og byrjunin i sumum
hinna ánna er þess eðlis að veið-
in í þeim i sumar gæti orðið með
mesta móti.
En það var þetta með stórlax-
ana. Sem fyrr segir, er þetta ritað
í upphafi júlí og þó að júní sé tími
stórlaxins, þá er yfirleitt átt við
venjulegan tveggja ára físk úr sjó,
10-15 punda laxinn. Morgunblaðið
hefur hins vegar fengið fréttir af
20-25 punda löxum úr tíu laxveiði-
ám og 19,5 punda laxar hafa
vitanlega veiðst í tveimur ám til
viðbótar. Ennþá stærri fískar hafa
bæði sést og sloppið af færum veiði-
garpa sem endranær. Enn á eftir
að renna upp „tími" hinna stóru,
yfírleitt veiðist ekki svo ýkja mikið
af þeim í júní. Það verður þvi veru-
lega skemmtilegt að fylgjast með
hver þróunin verður. Kannski að
það veiðist slatti af 25-30 punda
laxi í sumar, hver veit? Kannski
einhveijir enn stærri? En þá þýðir
ekkert að vera með silungagræjur,
helst að þræða upp úr píanóinu á
hjólið. Til gamans skulum við rifja
upp helstu stórlaxaveiði júnímánað-
ar.
Laxá í Aðaldal: 27. júní veiddi
Gunnar Ragnars forstjóri á Akur-
eyri stærsta laxinn sem frést hefur
af, 25 punda dreka sem greip svarta
Tóbíspóninn hans í Kirkjuhólma-
kvísl að kvöldi dags. Að sögn
Gunnars var laxinn gæfur og fljótur
að gefast upp. Viðureignin tíðinda-
laus. Það fylgdi sögunni að laxinn
hefði þegar lagt nokkuð af og virð-
ist því hafa gengið býsna snemma
í ána, jafnvel einhvem tíma í maí.
I Laxá hefur auk þessa veiðst 22
punda lax, í Kistukvísl og nokkrir
20 punda fískar, víða í ánni.
Hvítá í Amessýslu: Fyrir landi
Langholts hefur veiðst einn 24
punda fiskur, annar 22 punda, einn
20 punda og þó nokkrir 16-18
punda. Þetta er rómaður stórlaxa-
pottur og fyrir fáum dögum var
veiðimaður að nafni Sverrir Krist-
insson þarna á ferð með maðk á
króknum og beit þá á hjá honum
gríðarvænn fískur, 25-30 punda lax
að því er menn töldu. Eftir hálftíma
reiptog skilaði stórhvelið önglinum,
en hélt eftir maðkinum. Fyrir landi
Iðu var lítil veiði framan af, en
hefur glæðst. Einn af tiltölulega
fáum löxum sem þar hafa veiðst
vó 20 pund og er mál manna að
svo stór lax sé eigi algengur þar
svona snemma sumars. Síðar veið-
ast yfírleitt bara margir slíkir og
enn stærri.
Langá: I „hreinu smálaxaánni"
veiddist annan veiðidaginn 21
Þessar hafa birst áður, en koma
nú aftur af því þær henta efn-
inu, sá stærsti til þessa, 25
pundari úr Laxá í Aðaldal, nán-
ar tiltekið úr Kirkjuhólmakvisl,
og hinir tveir eru úr smálaxa-
ánni Langá á Mýrum. Sá stærri
er 21 pund og sá stærsti sem
þar hefur veiðst í áraraðir.
Smærri Iaxinn er „aðeins“ 16
pund. Sá stóri veiddist í Glanna.
punds hængur og var veiðimaður-
inn Jóhannes Guðmundsson bóndi
á Anabrekku og formaður veiðifé-
lags Langár. Þetta er stærsti lax
sem veiðst hefur í Langá um ára-
bil og átti hann kyn að rekja til
Þverár í Borgarfirði, merktur fískur
að auki. Daginn áður veiddist 16
punda hængur í ánni og er það stór-
lax nær raunveruleikanum í Langá.
Vatnsdalsá: Á fyrstu dögunum
var 21 punds ferlíki afonglað og
enn stærri fískar hafa þegar sést í
ánni. Það þætti mikið ef þessi lax
yrði sá stærsti í Vatnsdalsá eftir
sumarið.
Norðurá: Sigmar Jónsson veiddi
20 punda hæng í Myrkhylsrennum
fyrir nokkru og tók flykkið maðk.
í sama holli var 18 punda laxi land-
að og nokkru áður var öðrum 18
punda laxi snarað á land. Þetta eru
virkilegir stórlaxar á Norðurárvísu
og 20 punda lax hefur ekki veiðst
þar árum saman.
Laugardalsá: Þar hefur þegar
veiðst einn 20 punda og fleiri af
svipaðri stærð sést renna sér.
Reykjadalsá og Mýrarkvísl:
Venjulega er ekki sérlega mikil
veiði í þessum ám í júní, þær taka
að glæðast þegar líður á sumarið.
Að þessu sinni hefur þó verið dálít-
il veiði og í báðúm hefur 20 punda
löxum verið landað.
Hofsá: Á fyrstu dögunum veiddi
Eiríkur Sveinsson læknir á Akur-
eyri 22 punda hæng á spón, annan
19 punda og missti að auki þann
þriðja sem var mun stærri en stærri
laxinn. Félagi hans einn dró auk
þess 20 punda hrygnu á land og
greip sá fískur einnig spón.
Blanda: Umsjónarmaður þessa
þáttar hefur fengið það staðfest að
einn 21 punds lax hafí veiðst og
heyrt það en ekki fengið staðfest á
hinn bóginn að raunar hafi tveir
slíkir laxar veiðst. Við þetta allt
saman má bæta, að svona listar eru
fljótir að úreldast og e.t.v. má nú
þegar bæta nokkrum stórlöxum við
listann.
Við þetta má bæta, að 19,5
punda Iax hefur veiðst í Þverá og
þar hafa bæði Jóhannes Nordal og
Barði Friðriksson att kappi við
„stórlaxa" sem hafa haft betur eft-
ir æsilegar viðureignir. Ótaldir eru
allir 17-18 punda laxarnir sem
veiðst hafa, enda upptalningin orðin
ærin nú þegar og mál að linni. Það
má þó öllum Ijóst vera, að þó að
það sé misjafnlega mikið af stórlaxi
í ánum, þá er hann rígvænn og það
Runólfur Ágústsson, veiði-
vörður við Langá á Mýrum,
telst nú til fyrirmyndar eftir
að hafa útbúið og látið fjölrita
möppu eina sem inniheldur lýs-
ingu á öllum veiðistöðum
árinnar fyrir löndum Langár-
foss og Ánabrekku, jafnframt
því sem veiðin sumarið 1985 er
tíunduð i skýrsluformi og er
tekið á málum frá öllum mögu-
legum sjónarhornum. Má
nefna, að kafað er ofan í fiski-
fræðilega þætti, umhverfis-
þætti, skráð er hvað veiddist
hvar og hvaða flugur reyndust
veiðnastar svo eitthvað sé
nefnt.
„Þetta er aðallega gert fyrir
þá sem aldrei hafa rennt hér áð-
er meira af verulega vænum fískum
en venjulegt getur talist á seinni
árum.
ur. Það er mikil endumýjun á
veiðimönnum og einkanlega
síðsumars koma hér alltaf margir
sem aldrei hafa veitt í ánni áður.
Þessari möppu er ætlað að vera
þeim stoð og stytta,“ sagði Run-
ólfur í samtali fyrir skömmu. Víst
er, að rit veiðivarðarins er eins
tæmandi og hægt er að hugsa sér
og mættu ýmsir taka Runólf sér
til fyrirmyndar hvort heldur er
um að ræða veiðiverði, leigusala
eða veiðiréttareigendur. Víða eru
alltof mikil brögð af því að ókunn-
ugum er ekki veitt nægjanleg
aðstoð við framandi laxveiðiár,
það skortir góð kort, vegvísa og
spjöld á árbakka. Margt hefur
breyst til batnaðar í þessum efn-
um á seinni árum, en betur má
ef duga skal.
Gottframtak
veiðivarðar