Morgunblaðið - 12.07.1986, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986
Áð í Galtalækjarskógi. Frá
vinstri Þórunn Þorsteins-
dóttir, Ingibjörg Rafnar
eiginkona Þorsteins Páls-
sonar, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarfull-
trúi, Helga Björk Vil-
hjálmsdóttir, Þorsteinn
Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins og Anna
Johnsen eiginkona Vil-
hjálms.
í Galtalækjarskógi. Úr Varðarferðinni.
Fj ölmennasta Varð-
arferðin í áraraðir
- segir Gunnlaugnr S. Gunn-
laugsson framkvæmdasljóri
fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík
Landsmálaf élagið Vörður
fór um síðustu helgi í sína ár-
legu sumarferð. Var þátttakan
í ferðinni ein sú besta í árarað-
ir.
„Ferðin var óskaplega vel
heppnuð og fólk mjög ánægt með
hana, þó að veðrið hafí kannski
ekki verið eins og best verði á
kosið," sagði Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Við héldum að stað snemma
morguns og fórum fyrst í Þjórsár-
dal. Þar fengum við okkur
morgunkaffí og Jónas Bjarnason,
formaður Varðar flutti ávarp.
Þaðan var farið að Veiðivötnum.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins hélt ávarp og
snæddur var hádegisverður. Að
því loknu var ekið um svæðið og
það skoðað. A heimleiðinni kom-
um við svo við á Galtalæk og tók
þar sr. Hannes Guðmundsson á
móti okkur. Síðdegiskaffí var svo
drukkið í Galtalækjarskógi."
„Um 800 manns tóku þátt í
ferðinni og var farið á 15 rútum.
Þetta er ein fjölmennasta Varðar-
ferð sem farin hefur verið i
áraraðir. Aðalfararstjóri í ferðinni
var Einar Þ. Guðjohnsen."
„Ætla að skrifa
heimildarrit
um leiksljórn
á Islandi“
- segir Brynja Benediktsdóttir sem hlaut
styrk úr Menningarsjóði leikstjóra
Ég ætla að nota þennan styrk
til að skrifa bók um leikstjórn á
íslandi, eins konar heimildarrit,"
sagði Brynja Benediktsdóttir,
leikstjóri, sem hlotið hefur 35
þúsund króna styrk úr Menning-
arsjóði Félags leikstjóra á ís-
landi. Styrkveitingin hefur verið
árlegur viðburður undanfarin
sex ár, en Brynja var meðal
þeirra sem á sínum tíma áttu
þátt i að koma Menningarsjóði
leikstjóra á laggirnar.
„Tilgangur sjóðsins er að efla
þessa listgrein, leikstjóm, bæði til
styrktar á uppsetningum leikrita,
til utanfarar eða annarra verka sem
bæta hæfni og kunnáttu leikstjóra,
og svo til að auðvelda mönnum að
fylgjast með nýjum aðferðum og
tækni varðandi leikstjóm," sagði
IUIOSAEYÐIIMG
Mosi í görðum hefur lengi verið vandamál hjá
garðeigendum. Nú býðst yður ný þjónusta. Við
úðum grasflötina með sérstöku mosaeyðandi efni
(hættulausu).
Pantanir í síma 25707 f rá kl. 18 tll 20.
Brynja Benediktsdóttir tekur við viðurkenningu úr hendi Helgu Bachmann, formanns stjórnar
Menningarsjóðs Félags leikstjóra á íslandi.
Brynja ennfremur. „Ég ætla sem
sagt að nota þetta til að skrifa þessa
bók, sem gæti heitið „Dagbók leik-
stjóra". Þetta verður heimildarrit
um starf leikstjórans, leiðbeiningar
byggðar á eigin reynslu og lýsingar
á vinnubrögðum. Bókin gæti þannig
komið að notum fyrir áhugamanna-
leikhús úti á landi og hugsanlega
gæti almenningur einnig haft af
henni gagn og ánægju."
Aðspurð kvaðst Brynja hafa haft
í mörgu að snúast að undanfömu.
„Ég er núna að setja upp leikverk
fyrir Þjóðleikhúsið sem verður
frumsýnt 25. september og heitir
„Uppreisnin á ísafírði". Ekki verður
upplýst hver höfundur er fyrr en í
haust, en um 50 leikarar taka þátt
í sýningunni. Einnig hef ég verið
að vinna að uppfærslu á þætti sem
fluttur verður á Kjarvalsstöðum 16.
ágúst. Þar verða fjórir leikarar og
við ætlum að kalla þáttinn „Flensað
í Malakoff", en hann er byggður
upp á svipmyndum frá 19. öld.
Tónlistin er eftir Finn Torfa Stef-
ánsson.
Bókinni mun ég svo reyna að
sinna á milli verkefna í Þjóðleik-
húsinu. Starf okkar leikstjóranna
er eins og sfldarvertíð. Við vinnum
alla daga, nótt og dag, fyrir frum-
sýningar og svo koma hlé á milli.
Eg ætla þá að sæta færis og vinna
í bókinni."
Brynja sagði að bókinni væri
ekki ætlað á jólabókamarkaðinn og
ekki lægi fyrir hvenær hún kæmi
út. „Eins og ég sagði þá verður
þetta í og með heimildarrit um
þessa listgrein, en heimildir um
íslenskt leikhús eru mjög af skom-
um skammti. Ég ákvað því að nota
styrkinn til að skrifa þessa bók og
leggja þar með örlítið af mörkum
í þeim efnum,“ sagði Brynja Bene-
diktsdóttir.