Morgunblaðið - 12.07.1986, Síða 16

Morgunblaðið - 12.07.1986, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986 AKUREYRI Galli að hafa Byggðastofnun ná- lægt Öðrum stj órnunarstofnu num - segir Áskell Einarsson, framkvæmda- sljóri Fjórðungssambands Norðurlands Akurevri „Á SIÐASTA þingi Fjórðungssambands Norðlendinga var rætt um málefni Byggðastofnunar, ogþar komu fram eindreg- in sjónarmið um að aðsetur hennar yrði á Akureyri,“ sagði Áskell Einarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga í samtali við Morgunblaðið i tilefni af ákvörðun stjórnar Byggðastofnunar þar sem þessu var hafnað. Áskell taldi þetta vera prófmál á það, hvort stofnanir ríkisins verði yfírleitt færðar út á land. „Það væri eðlilegt að stofnun, sem væri ný yrði flutt, auk þess sem henni er ætlað að þjóna lands- bygðinni." Að sögn Áskels hefur Fjórð- ungssambandið undanfarið verið að vinna að þvi, að afla hug- myndinni fylgi meðal annarra Úórðungssambanda óg alþingis- manna og taldi Áskell lands- byggðarmenn styðja hugmyndina sem prófínál. Um þau rök, að það henti ekki að hafa stofnunina á Akureyri, sagði Áskell að það hefði háð Byggðastofnun og byggðamálum á Islandi, að fengist væri við vanda landsbyggðarinnar Qarri þeim vettvangi, sem vandinn væri. „Ef þeir stjómsýsluaðilar, sem við þessi vandamál etja væru stað- settir á landsbyggðinni, myndi það móta betur afstöðu þeirra." Um þau rök, að Byggðastofnun þyrfti að vera i nálægð við aðrar stjómarstofnanir, hafði Áskell það að segja, að nálægð við aðrar stjómarstofnanir væri í raun galli, vegna þess, að stofnunin hafí ekki fengið að vera í friði fyrir pólitisk- um þrýstingi, og ekki þýði annað en að viðurkenna, að Byggðasjóð- ur hafí verið misnotaður. Fé hans hafí verið notað til verkefna, sem ekki eru byggðavérkefni og sé hann þannig orðinn eins konar viðbótar ú'árfestingarsjóður. „Með staðsetningu stofnunarinnar á Akureyri yrði hún laus við póli- tiskan yfírgang og hefði betra horf til þess að sinna stjómunar- störfum." Um samgönguþáttinn hafði Áskell það að segja, að daglega væru 3-5 ferðir með flugi til Akur- eyrar frá Reykjavík og næstum dag hvem væru ferðir á ísaljörð og Egilsstaði og samgöngur við Vestur- og Suðurland væru ekk- ert verri en milli Norðurlands og Reykjavíkur. Þvi mætti það ljóst vera, að Akureyri væri ekki illa í sveit sett til þess að þjóna iands- byggðinni. Áskeil kvaðst harma það mjög, að þingmenn utan af landi skyldu ekki fylgja þessu máli eftir, og taldi hann að i framtíðinni yrði Áskell Einarsson, framkvæmda- stjóri. örðugra að sækja önnur mál eftir að þetta tapaðist. „Það undrar mig mjög og marga aðra, að þing- menn Framsóknarflokksins yrðu þess valdandi, að þessi tilraun til valddreifingar um byggðir lands- ins mistókst." Varðandi hugmyndir um stjóm- sýsluútibú, vildi Áskell minna á, að Fjórðungssambönd Norðlend- inga og Vestfírðinga hafí á sínum tíma farið fram á það við Fram- kvæmdastofnun, að hún gerði úttekt á uppbyggingu stjómsýslu- miðstöðva um landið og sérstaka áætlanagerð, þar sem fjármagn til þessa yrði ráðstafað úr Byggða- sjóði. Niðurstöður úr þessu hafí verið þær, að áætlanagerð lauk aldrei og að Qármagn úr Byggða- sjóði væri ekki auðsótt. Áskell taldi það mjög æskilegt, að Byggðastofnun beitti sér fyrir stjómsýsluútibúum um landið. Hins vegar var hann vantrúaður á að stofnunin gæti rekið slíka starfsemi fyrir hinar og þessar stofnanir. „Ég hef meiri trú á því að fela landshlutasamtökum þetta verkefni." „Ég tel tillöguna vera algera markleysu, þar eð ekki er kveðið uppúr um það, hvar eigi að byija. Það hefði óneitanlega verið sára- bót, ef stjómin hefði ákveðið að koma upp útibúum er þjónuðu Norðurlandi, Austurlandi og Vest- fjörðum til að byija með, en úr því að svo var ekki gert, er þessi tillaga sýndarmennska ein, sagði Áskell og bætti við: „Það sem þarf er athafnir en ekki orð.“ Taldi mig ekki hæfan til að taka afstöðu í málinu - segir Sigfús Jónsson um þá ákvörðun sína að víkja af fundi stjómar Byggðastofnunar í LEIÐARA Dags á Akureyri í gær er rætt um þá ákvörðun stjórnar Byggðastofnunar siðastliðinn þriðjudag að flytja hana ekki til Akureyrar. Er þar ráðist nokkuð harkalega á tilvonandi bæjarstjóra Akureyrar fyrir að hafa sent vara- mann sinn á fundinn. í leiðaranum segin „Það er held- ur dapurleg byijun á bæjarstjóra- ferli Sigfúsar Jónssonar að heykjast á því að greiða atkvæði um þetta mikilvæga mál. Fyrir tæplega ári þegar Sigfus var enn sveitarstjóri á Skagaströnd, sagði hann á Fjórð- ungsþingi Norðlendinga að ekki stæði á sér að greiða því atkvæði að Byggðastofnun flyttist til Akur- eyrar.“ Dagur segir að nú hafí Sigfús hins vegar kosið að kalla til varamann sinn í stjóm, „enda er sagt að hann hafí lofað einhveijum starfsmönnum stofnunarinnar að stuðla að því að hún yrði ekki flutt norður. Þetta verður ekki til þess að auka traust manna á nýja bæjar- stjóranum." í samtali við Morgunblaðið, sagði Sigfús Jónsson, að hann hafl ekki talið sig hæfan til þess að taka afstöðu í þessu máli, þar eð hann sem tilvonandi bæjarstjóri hefði þama beinna hagsmuna að gæta. Auk þess hefði ákvörðun sín ekki ráðið úrslitum. Sigfús kvaðst ekki hafa lagt varamanni sínum neinar línur í þessari atkvæðagreiðslu, þá hefði hann allt eins getað mætt sjálfur á fundinn; „menn verða að hafa eitt- hvað siðferði," sagði hann. Um afstöðu varamanns síns kvaðst hann lítið hafa að segja, enda væri hún alfarið hans mál. Sigfús treysti sér ekki til þess að gagnrýna ákvörðun stjómarinn- ar, enda væri þetta hennar ákvörð- un. Hins vegar taldi Sigfús að það væri aðallega tvennt er réði ákvörð- un stjómarinnar. í fyrsta lagi væri það andstaða flestra starfsmanna stofnunarinnar, en i öðru lagi, og það væri sárgrætilegast, væri það að forystumenn í landsmálum og Sigfús Jónsson, bæjarstjóri. sveitarstjómarmenn væru á móti. Sigfús taldi landsbyggðarmenn vera klofna í þessu máli, það að í raun væru það aðeins Akureyringar og menn úr nærliggjandi sveitum, sem væru því fylgjandi að flytja stofnunina til Akureyrar. Um þá tillögu, sem stjóm Byggðastofnunar samþykkti, að Unglingalandsliðið á Norðurlandi Akureyri. Unglingalandslið íslands i knattspyrnu, skipað leik- mönnum undir 18 ára, er nú i æfingaferð um Norðuriand. Með i för eru Lárus Loftsson þjálfari liðsins, Helgi Þor- valdsson, Sveinn Sveinsson og Steinn Halldórsson unglinga- nefndarmenn KSÍ. Liðið lék í fyrrakvöld æfínga- leik við meistaraflokk Tindastóls á Sauðárkróki og sigraði landslið- ið 3:2 í fjörugum leik. í gærmorg- un æfðu strákamir svo á Þórsvellinum héma á Akureyri og í gærkvöldi léku þeir við Magna á Grenivík. í dag leikur unglingaliðið gegn 1. flokki KA og á morgun leika strákamir gegn úrvalsliði UÍA á Unglingalandsliðshópurinn eftir æfingu á Þórsvellinum i gærmorgun, ásamt þjálfara sínum Lárusi Loftssyni, Sigi Held landsliðsþjálfara og fleiri forráðamönnum KSÍ, norðlenskum þjálfurum sem fylgdust með æfingunni og fleirum. sumarhátíðinni á Eiðum. Unglingalið þetta tekur þátt i Evrópukeppninni i haust og er nú að hefjast tveggja ára áætlun hjá liðinu — fram að úrslitakeppni EM sem verður í mai 1988. Sigi Held, landsliðsþjálfari, og Guðni Kjartansson, aðstoðarmað- ur hans, voru einnig á Akureyri í gær. Þeir verða með unglinga- námskeið á Þórsvellinum á vegum KSÍ. beina því til ríkisstjómarinnar að leita hagkvæmra leiða til að koma á fót miðstöðvum úti á landi, þar sem opinberir stjómsýslu- og þjón- ustuaðilar hefðu útibú sin, sagði Sigfús að þessi tillaga væri mun merkiiegri en hin fyrri, ef eitthvað yrði úr henni. „Með því að hafa dregið mig í hlé, tel ég að ég eigi nú auðveldara með að beita mér i þessu máli innan stjómar Byggða- stofnunar, þar eð aðrir stjómar- menn þurfa ekki lengur að velkjast í vafa um það, að ég vinni þar af heiðarleika. Ég hef hins vegar ávallt verið þeirrar skoðunar, að Alþingi hefði á sínum tíma átt að taka af skarið um staðsetningu Byggðastofnunar, í stað þess að vísa málinu til stjómar Byggða- stofnunar; þá var lag.“ Sigfús sagði ennfremur: „allir vilja fá aukna þjónustu opinberra aðila á landsbyggðinni — spuming- in er bara um leiðir. Ég tel samstöðu landsbyggðarmanna geta orðið hvað víðtækasta, þar sem um er að ræða slík stjómsýsluútibú, enda er það alveg sjálfsagt, að lands- byggðarmenn geti rekið þjónustu sína f sínu byggðarlagi. Annar kost- ur við þessa tillögu er, að hún á ekki að hafa i för með sér neina fjölgun starfsmanna í stjómsýsl- unni, einungis færslu. Segjum sem svo, að 30 manns starfí við ein- hveija opinbera stofnun f Reykja- vík. Með dreifmgu þjónustu þessarar stofnunar í slíkar lands- hlutamiðstöðvar væri nóg að stofnunin hefði um 20 starfsmenn í Reykjavík en hinir 10 væm dreifð- ir um landsbyggðina." Sigfús taldi að bæjarstjóm Akureyrar ætti fljót- lega að fara að ræða þessi mál við forsætisráðherra; „þessir menn í stjóm Byggðastofnunar, er greiddu atkvæði gegn þvf að hún væri á Akureyri, em þrátt fyrir það allir af vilja gerðir til þess að dreifa opinberri þjónustu um landið." „Mér hefur fundist menn vera sammála þeirri ákvörðun minni að sitja ekki fundinn; þeir á Degi mega alveg gagnrýna mig, enda tek ég ekkert mark á þeim. Þeir vita greinilega ekkert hvað þeir eru að tala um og virðast ekki skilja hug- takið hagsmunaárekstur.“ Um ásökun leiðarahöfundar Dags um að hann hafi lofað starfsmönnum stofnunarinnar fyrir sunnan að stuðla að því að stofnunin yrði ekki færð nrður hafði Sigfús þetta eitt að segja: „Rugl!“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.