Morgunblaðið - 12.07.1986, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 12.07.1986, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1986 GráhamTurner á Islandi: Aston Villa áfram í búning- um frá Henson „LEIKURINN hefði getað farið á hvorn veginn sem var og ef eitthvað var, átti Hveragerði betri marktækifæri f fyrri hálfleik. Jim (innsk. þjálf- ari ÍA) var hissa að sjá mig, en það var ánægjulegt að sjá lið hans sigra. Mér fannst markvörður ÍA góður og einnig vinstri bakvörðurinn (innsk. Birkir Kristinsson og Heimir Guðmundsson), en völlurinn var lítill," sagði Graham Turner, framkvæmdastjóri Aston Villa, f samtali við blaðamann Morgunblaðsins. _ Morgunblaðið/Einar Valur .T.. a dÓr Einarsson með "ýja. Vínrauða Aston Villa-peysu. Graham Turner, framkvæmdastjóri Aston Villa til vinstri er ánægður með útlitið. lan Ross, þjálfari Vals, stendur á milli þeirra, en hann lék áður með Aston Villa. Turner kom til landsins á mið- vikudaginn og fór beint á mjólkur- bikarleik Hveragerðis og ÍA í Hveragerði. Tilgangur heimsókn- arinnar var hins vegar að fylgjast með framleiðslu búninga Aston Villa, en sem kunnugt er leikur lið- ið í Henson- búningum. Henson hefur einnig gert samning við 6 önnur ensk lið, Bristol Rovers, Aldringham, Peterborough, Bo- urnemouth, Exeter og Aldershot, sem öll munu leika í Henson- búningum næsta tímabil. „Við lékum í Hensonbúningum sl. keppnistímabil og líkaði vel og því var ákveðiö að halda sam- vinnunni áfram. Búningarnir eru ekki allt, en þeir skipta máli og sumir leikmenn eru mjög hjátrúar- fullir varðandi búninga sem annað eins og þú veist," sagði Turner. Stefnan sett á Evrópukeppni Blaðamaður sagði Turner frá drættinum í Evrópukeppninni og >■ samgladdist hann Ross, þjálfara Vals, með að fá Juventus. „En Evrópukeppnin er ekki söm, þegar ensku liðin vantar. Það var rétt að banna enskum liðum að taka þátt eftir það sem á undan var gengið, en ég vona og geri fastlega ráð fyrir að banninu verði aflétt næsta vor. Enskir áhorfendur hafa hegð- að sér betur að undanförnu og er skemmst að minnast prúðmann- legrar framkomu þeirra á HM í Mexíkó. En það eru og verða alltaf svartir sauðir innan um og ef til vill er best fyrir alla að þeir komi á völlinn, því þar er öflug lögreglu- gæsla og því auðveldara að ráða við þá en annars staðar. Þetta er ekki vandamál á Villa Park, en því er ekki að neita að við höfum feng- ið hótunarbréf vegna svartra leikmanna í liðinu. Eins og öll önnur lið í upphafi tímabils stefnum við að því að vinna einn þriggja bikara, sem keppt er um í ár, en raunhæft tak- mark er að vinna okkur sæti í Evrópukeppni næsta ár." Liðið hefur öðlast reynslu Graham Turner er 38 ára, kvæntur og fjögurra barna faðir og hefur verið framkvæmdastjóri Aston Villa í tvö ár. Áður var hann i 11 ár hjá Shrewsbury og lék einn- ig með liðinu í 5 V2 ár. „Ensku deildinni hefur oft verið líkt við maraþonhlaup, því tímabiliö er svo langt. Ef lið ætlar sér að sigra í þessari erfiðu keppni, verð- ur að taka einn leik fyrir í einu og gæta þess að springa ekki á fyrstu leikjunum. Manchester United er gott dæmi. Liðið samanstendur af stjörnuleikmönnum, en þeir byrja á fullu í upphafi en þannig hegðar maður sér ekki i maraþon- hlaupi. Við byrjuðum ágætlega í fyrra, en töpuðum óróttlátt fyrir Arsenal í 8. umferð og þá komu fjórir tap- leikir í röð. Breytingar urðu á liðinu og ég gat ekki fengið leikmenn sem mig vantaði fyrr en of langt var liðið á tímabilið. Því leit ég ekki á stigatöfluna, en við enduð- um neðarlega. Við höfum lært af reynslunni og nú höfum við greitt um milljón pund fyrir nýja, unga leikmenn. Við borguðum 450 þúsund pund fyrir Gary Thompson, sem var hjá Sheffield Wed. og 125 þúsund pund fyrir Martin Keown hjá Ars- enal. Það voru góð kaup, en eftir 20 leiki með okkur þurfum við að greiða 25 þúsund pund að auki, önnur 25 eftir 40 leiki og loks 25 þúsund pund til viðbótar eftir 60 leiki. Þá er ekki útséð með verðið á Neale Cooper hjá Aberdeen og er málið fyrir dómi. Við ætluðum að framlengja samninginn við Ray Walker, en hann vildi fara til Port Vale og var kaupverðið 12 þúsund pund. Þá erum við með nýja þjálfara og höfum breytt skipulaginu. Ron Wilie þjálfar liðið með mér og Col- in Dobson, sem var hjá Coventry, verður með unglingaliðið, en það verður ekki þjálfari í fullu starfi með varaliðið eins og var áður. Leik- mennirnir koma til með að æfa annaðhvort með unglingaliöinu eða aðalliðinu og þá verður enginn stimplaður sem varaliðsmaður. Við erum með betra lið en í fyrra, leikmennirnir eru ungir en hafa meiri reynslu og við eigum að geta náð langt. Liverpool og Everton eru með yfirburðalið, en við ættum að vera í hópi næstu liða. Deildin getur jafnast eitthvað við að Rush og Lineker fara til It- alíu, en samt virðist alltaf koma maður í manns stað, sérstaklega hjá Liverpool, sem hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lið í 20 ár." Fyrsta umferð í ensku 1. deildar- keppninni hefst 23. ágúst. „Við byrjum að æfa 22. júlí og verða þrekæfingar í hálfan mánuð. 2. ágúst leikum við æfingaleik við Celtic í Skotlandi og förum síðan til Italíu og ætlum að reyna að fá tvo leiki við ítölsk neðrideildarlið. Alvaran hefst svo á Villa Park 23. ágúst og eigum við fyrsta leik gegn Tottenham. Það verður erfiður leikur og ekki síður sá næsti, sem er útileikur gegn Wimbleton. Wim- bleton hefur aldrei leikið í 1. deild og það er alltaf erfitt aö leika fyrsta leik gegn nýliðum á þeirra heima- velli samanber leik Oxford og Tottenham í fyrra." Sigurður á mikla möguleika Aðspurður um íslenska knatt- spyrnu sagðist Turner ekkert vita um íslensku liöin, en hann vissi að íslenskir knattspyrnumenn hefðu gert það gott í Evrópu og hann hefði fylgst með Sigurði Jóns- MEISTARAMÓT golfklúbbanna hór á landi hófust í gær eða fyrradag vfðsvegar á landinu og standa yfir þessa helgi. Þátttak- endur f þessum mótum eru yfir 1.000 talsins og hafa aldrei ver- ið fleiri. Golffþróttinni hefur vaxið fiskur um hrygg á sfðustu árum og fer kylfingum stöðugt fjölgandi. Flestir þátttakendur eru hjá GR og GS eða um 150 talsins og hjá Ness-klúbbnum og GA voru skráðir um 100 keppendur. Hér á eftir fer skrá yfir meistara- mótin. JaAarsvöllur, Akureyri, QA (72 holur). Bolungarvik, golfkl. Bolungarv. (18 holur). Hamaravöllur, Borgamesl (72 holur). syni bæði með Sheffield Wed. og eins þegar hann var lánsmaður hjá Barnsley. „Siggi er góður miðvallarleik- maður, en hann þarf að leika í léttleikandi liði til að njóta sín. Ég er ekki viss um að leikaðferð Sheffield henti honum, en hann er ungur og á framtíðina fyrir sér. Ég gæti notað hann í mínu liði og víst er, að óg mun fylgjast áfram með honum." Nú voru sýnishornin af búning- unum tilbúin. Turner var ánægður með það sem hann sá og þar með var ekkert eftir nema að ganga frá pöntuninni. Graham Turner hólt aftur til Englands í gær. Byggðarholtsvöllur, Eskifiröi (72 holur). Húsatóftavöllur, Grindavík (72 holur). Strandarvöllur, Hellu (72 holur). Silfurneavöllur, Hornafiröi (72 holur). » Katlavöllur, Húsavfk (72 holur). Tungudalsvöllur, ísafiröi (72 holur). Fróöárvöllur, Ólafsvlk (72 holur). Hvaleyrarvöllur, Hafnarflröi (72 holur). Hlíöarvöllur, golfkl. Kjölur (72 holur). Garöavöllur, Akranesi (72 holur). Nesvöilur, Seltjarnarnesi (72 holur). Skeggjabrekkuvöllur, Ólafsfiröi (72 holur). Grafarholtsvöllur, Reykjavfk (72 holur). Hlíöarendavöllur, Sauðárkróki (72 holur). Strandarvöllur, Selfossi (72 holur). Hólsvöllur, Siglufiröi (72 holur). Stykkishólmur, golfkl. Mostri. Blönduós, golfkl. Ós. Hólmavöllur, Leiru (72 holur). Vestmannaeyjar, GV (72 holur). Morgunblaðið mun birta úrslit frá öllum mótunum á þriðjudag- inn. Morgunblaðið/Einar Falur S Ragnheiður Jóhannsdóttir, saumakona, er að ganga frá æfingabún- ingi fyrir Aston Villa. Félagarnir fylgjast með. Fram UBK Aðalleikvangi a * kl. 20.00 Nýtt ekta Kebab Nýr matseðill AMEHIGAN STYLE SKIPHOLTI 70 SIMI 68^838 Morgunblaðið/Þorkell # Þessir hressu kylfingar taka þátt f Meistaramóti Ness é Nes- vellinum á Settjarnarnesi. Fjöldi þátttakenda á hinum ýmsu golfvöllum landsins hefur aldrei verið meiri en nú. Taliö er að yfir 1.000 kylfingar taki þátt í mótunum. Metþátttaka í meistaramóti golfklúbbanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.