Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 3 Sex íslensk lög meðal tíu efstu VINSÆLDALISTI hlustenda rásar tvö var valinn í gser. Nú var val listans með öðru sniði en veríð hefur, því hlustendur gátu hríngt inn á fjóra staði á landinu, Reykjavík, Akureyri, Egils- staði og Vestmannaeyjar. Sá háttur var hafður á að ef hlustandi greiddi íslensku lagi atkvæði sitt var hann spurður að nafni og nafnnúmeri. Síðan var flett upp í þjóðskránni til að stað- festa þær upplýsingar og í sumum tilfella var hringt í fólkið og kann- að hvort það hefði í raun greitt atkvæði. Tók vinnsla listans því lengri tíma en ella, en starfsmenn rásar tvö sögðu að þátttaka hefði verið mjög góð. Vinsældalistinn lítur nú svona út (staða laga fyrir tveimur vikum innan sviga): 1.(1) Þrisvar í viku / Bítlavinafé- lagið 2. (7) Papa don’t preach / Mad- onna 3. (-) Hesturinn / Skriðjöklar 4. (-) Götustelpan / Pálmi og Gunnar 5. (3) The Edge of Heaven / Wham! 6. (30) Hunting high and low / Aha 7. (-) Tengja / Skriðjöklar 8. (23)If you were a woman/ Bonnie^ Tyler 9. (-) Útihátíð / Greifamir 10. (-) Heilræðavísur / Faraldur Starfsmenn Rásar tvö notuðu þjóðskrána óspart til að sannreyna upplýsingar hlustenda um nafn og nafnnúmer. Nú var listinn valinn á fjórum stöðum á landinu. Vinsældalisti Rásar tvö: Ferskfiskverð hátt í Hull og- Grimsby VERÐ á ferskum þorski og ýsu er nú gott í Hull og Grimsby og verð á kola hefur hækkað verulega frá því á síðustu viku. Meðalverð á þorski fór í 59 krónur á fimmtudag, á ýsu í 60 krónur og á kola í 60. Verð fyrir karfa og ufsa í Þýska- landi er einnig gott eða um 51 króna fyrir karfann. Börkur NK seldi á miðvikudag og fímmtudag 162 lestir, nær ein- göngu þorsk í Grimsby. Heildar- verð var 9.372.000 krónur, meðalverð 57,92. Aflinn fór í fyrsta flokk. Sólborg SU seldi 50 lestir í Hull á miðvikudag. Heildarverð var 2.534.000 krónur, meðalverð 50,69. 33,6 lestir aflans voru þorskur, sem fór á 54,59 krónur kílóið og ýsan fór á 47,35. 75% aflans fór í annan flokk og 25% í þriðja. Á fímmtudag seldi Snorri Sturluson RE 150 lestir í Hull. Heildarverð var 7.032.000 krónur, meðalverð 46,96. Meðalverð á þorski var 56,37, á ýsu 59,06 og á ufsa 22,00. Sama dag seldi Haukur GK 140 lestir, mest þorsk í Grimsby. Heildarverð var 7.730.000 krónur, meðalverð 55,18. meðalverð fyrir þorsk var 59,13. Aflinn var allur fyrsta flokks. Á þriðjudag voru seldar í Hull og Grimsby 245 lestir úr gámum. Meðalverð á kíló var 53,18 krónur. Þorskurinn fór á 54,24, ýsan á 60,15 og kolinn á 57,23, en verð á kola var á tímabili komið niður fyrir 40 krónur. Á miðvikudag voru á sömu stöðum seldar 165 lestir úr gámum. Meðalverð var 52,96. Meðalverð á þorski var 53,12, áýsu 60,41 ogákola 60,58. Talsverð aukning hefur orðið á sölu físks úr gámum héðan í Cux- haven og Bremerhaven í Þýzka- landi. I þessari viku verður selt úr 35 til 40 gámum, um 500 lestir. Meðalverð fyrir karfa hefur verið 51 til 52 krónur og fyrir ufsann um 35 krónur. SÍS með lægsta tilboð í flutninga á áfengi og tóbaki gefið TILBOÐ í flutninga á áfengi og tóbaki til landsins voru opnuð fyrir skömmu, en Innkaupastofn- un ríkisins bauð flutningana út fyrir hönd Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins. Reyndist lægsta heildartilboðið vera frá Ósk afmælisnefndar Eskifjarðar: Fólki verði frí 18. ágúst AFMÆLISNEFND Eskifjarðar, sem starfað hefur að undirbún- ingi hátíðahaldanna vegna 200 ára afmælis bæjarins, sendi ný- lega öllum atvinnurekendum á Eskifirði bréf þar sem þess er óskað að gefið verði frí um há- degi á sjálfan afmælisdaginn 18. ágúst. Svör hafa engin borist við þessari ósk að sögn Hrafnkels A. Jónssonar á Eskifirði. Morgunblaðið náði tali af Magn- úsi Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Hraðfrystihúss Eski§arðar, og spurði hann hvort þar hefði verið tekin afstaða til þessarar óskar af- mælisnefndarinnar. Hann sagði að þetta hefði ekki enn verið rætt og því engin afstaða tekin, hins vegar reiknaði hann með að frí yrði gefið svo fremi ekkert sérstakt kæmi upp á. Hraðfrystihús Eskifjarðar er stærsti vinnustaðurinn á staðnum. Þar vinna 180—200 manns um þess- ar mundir, að sögn Magnúsar. Skipadeild SÍS, eða um 40 millj- ónir króna. Boðnir voru út flutningar á 4.900 tonnum af áfengi og iðnaðarvam- ingi og um 2.800 rúmmetrar af tóbaki og koma vörur þessar frá um 20 höfnum víðs vegar um heim. Sex aðilar buðu í flutningana, Eim- skip, Skipadeiid SÍS, Sjóleiðir, Ok, Gunnar Guðjónsson skipamiðlari, og Flugleiðir. Aðeins tveir fyrst nefndu aðilamir buðu í flutningana í heild. Var lægsta heildarverð hjá Skipa- deild SIS, eins og áður sagði, eða um 40 milljónir. Taxtaverð er um 99 milljónir króna og nemur lækkun því tæpum 60%. Eimskip var með lægsta verð frá einstökum höfnum, en tilboð þeirra var háð því að þeir fengju jrfír 90% flutninganna. Ekki hefur enn verið tekin endanleg ákvörðun um það að hvaða tilboði verður gengið. Erlendir skátar færðu Reykjavík afmælisgjöf Erlendir skátar flykkjast nú hingað til lands til að taka þátt í Landsmóti skáta sem hefst í Viðey um helgina. Þessi hópur heimsótti Davíð Oddsson borgarstjóra og færði Reykjavík afmælisgjöf, en 200 ára afmæli borgarinnar réði vali á mótsstað í þetta sinn. Niðurgreiðslur á lambakjöti og smjöri: Lækka framfærsluvísi- töluna um allt að 0,70% Fjármálaráðherra samþykkir 75 milljóna króna fjárveitingu til niðurgreiðslna á lambakjöti en landbúnaðarráðherra hafði ákveðið 150 milljónir „ÉG HEF ákveðið að veija til niðurgreiðslna á lambakjöti 75 milljónum króna, sem svarar tíl þess að 1.800 tonn þeirra 3.600 tonna af lambakjöti sem nú. eru óseld verða greidd niður um 20%, sem er helmingi minna magn en það sem talað var um í útvarp- ðinu í gærkvöldi," sagði Þor- steinn Pálsson, fjármálaráð- herra, í samtali við Morgunblaðið í gær. Með þessum niðurgreiðsl- um, svo og fyrirhuguðum niður- greiðslum á smjöri, er ráðgert að hækkun framfærsluvísi- tölunnar verði minni en þau 1,85%, sem voru sett sem hámark fyrir tímabilið frá 1. maí til 1. ágúst. Ráðgert er, að þessar að- gerðir þýði um 0,45—0,50% lækkun framfærslunnar. Þá er reiknað með að enn lækki fram- færsluvísitalan um 0,20% þegar verðlækkunar á lambakjöti fer að gæta í unnum kjötvörum. Fjármálaráðherra sagði að út af fyrir sig hefði ekki verið um ágrein- ing að ræða á milli sín og land- búnaðarráðherra um þetta mál, en landbúnaðarráðherra hefur eins og kunnugt er reiknað með því að öll 3.600 tonnin verði greidd niður um 20%, sem myndi kosta ríkissjóð 150 milljónir króna. Hafði landbúnaðar- ráðherra heimilað framleiðsluráði landbúnaðarins þessa verðlækkun, án þess að fyrir lægi ákvörðun fjár- málaráðherra um það hversu hárri upphæð yrði varið til verkefnisins. „Ég gerði tillögu um það á ríkis- stjómarfundi sl. fímmtudag að ég ásamt viðskiptaráðherra og land- búnaðarráðherra fengi heimild til þess að gera ráðstafanir í því skyni að koma í veg fyrir að vísitalan færi yfír sett mörk, og þessi ákvörð- un er tekin í framhaldi af samþykkt þeirrar tillögu, en þessi niður- greiðsla lambakjötsins á að lækka framfærsluvísitöluna nægjanlega til þess að það takist." Fjármálaráðherra sagðist ekki hafa fengið gögn um kostnað við þetta frá landbúnaðarráðherra fyrr en undir kvöld í fyrrakvöld, þannig að hann hefði ekki getað tekið ákvörðun um hversu hárri upphæð yrði varið til niðurgreiðslnanna fyrr en í gærmorgun. Jafnframt hefur verið ákveðið að greiða niður smjörið um 16 til 17%, þannig að kílóið af smjöri kosti eft- ir lækkun 229 krónur, en rú kostar það 275 krónur. Peninga til þeirrar niðurgreiðslu verður aflað úr svo- nefndum Léttmjólkursjóði, sam- kvæmt upplýsingum fjármálaráð- herra, en það er sjóður sem heyrir undir framleiðsluráð og í hann falla fjármunir sem safnast vegna þess að léttmjólk er seld á fullu verði, en fitan sem sprengd er frá mjólk- inni er seld sérstaklega., og þannig verða til peningar í Léttmjólkur- sjóði, og eru þeir ætlaðir til þess að lækka verð á smjöri nú.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.