Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 * smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Dyrasímaþjónusta Gestur rafvirkjam. — S. 19637. National olíuofnar VUkgerða- og varahlutaþjónusta. Rafborg sf., Rauðarárst. 1, s. 11141. Innanhússkallkerfi 2ja, 3ja og 4ra stöðva. Rafborg sf., Rauðarárst. 1, s. 11141. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir 25.-27. júlí: 1. Hveravellir — gist í sæluhúsi Ferðafélagsins á Hveravöllum. Heitur pollur við eldra sæluhús- ið. Gönguferðir um nágrennið. 2. Landmannalaugar — Eldgjá. Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum. Ekið í Eldgjá, gengið að Ofærufossi. 3. Þórsmörk. Gist i Skagfjörðs- skála. Aðstaða í sæluhúsum Ferðafé- lagsins er viðurkennd af ferða- fólki. Helgarferö í óbyggðum er tilbreyting sem veitir ánægju. Uppl. og farmiðasala á skrifstofu Ferðafélagsíns, Öldugötu 3. Ferðafélag fslands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir Ferðafélags- ins — sunnudag 27. júlf: 1) Kl. 8.00 ÞÓRSMÖRK - dags- ferð kr. 800. Þeim fjölgar sem njóta sumaleyfis í Þórsmörk. Aðstaðan hjá Ferðafélaginu er sú fullkomnasta sem völ er á i óbyggöum. 2) Kl. 8.00 Þórisdalur - Kaldl- dalur. Gengið frá Kaldadalsvegi í Þórisdal. Verð kr. 800. Farar- stjóri: Þorsteinn Þorsteinsson. 3) Kl. 13.00 Hrútagjá - Fffla- vallafjall — Djúpavatn. Ekið framhjá Vatnsskaröi. Gengið um Hrútagjá, á Fiflavallafjall og að Djúpavatni. Verð kr. 500. Farar- stjóri: Bjarni Ólafsson. Miðvikudagur 30. Júli, kl. 20.00 - BLÁFJALLAHELLAR - Verð kr. 350. Æskilegt að hafa Ijós með. Brottför frá Umferöarmið- stöðinni, austanmegin. Farmið- ar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fuliorðinna. Ferðafélag fslands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins 1) 25.-30. júlf (8 dagar): Land- mannalaugar-Þórsmörk. Gengið á milli gönguhúsa Ferða- félagsins. Fararstjóri: Sturla Jónsson. 2) 30. júlf-4. águat (6 dagarj: Landmannalaugar-Þórsmörk. 3) 31. júlf-4. ágúst (6 dagarj: Hvftárnes-Þverbrakknamúll- Þjófadallr-Hveravelllr. Gengið milli sæluhúsa F.i. Biðlisti. 4) 31. júlf-8. ágúst (8 dagar): Kvfar-Aðalvfk. Gengið með við- leguútbúnað frá Kvíum ( Lóna- firði um Veiðileysufjörö, Hest- eyrarfjörö og frá Hesteyri til Aðalvíkur. Fararstjórar: Jakob Kárason og Gísli Hjartarson. Sumarleyfisferðir Ferðafélags- ins eru góð tilbreyting. Upplýs- ingar og farmiöasala á skrifstof- unni Öldugötu 3. Ferðafélag fslands. UTIVISTARFERÐIR Helgarferðir 25.-27. júlí 1. Þórsmörk — Goðaland. Gist f skálum Útivistar Básum. Gönguferöir. Kvöldvaka. Mið- vikudagsferð verður 30. júlf kl. 8.00. Básar er staður fjölskyld- unnar. 2. Kjölur - Kerllngarfjöll - Hveravellir. Gist í góðu húsi. Gönguferöir. 3. Landmannalaugar — Eldgjá — Strútslaug. Fjallabaksleiðir heilla. Gist í húsi. Við minnum á möguleika á ódýru sumarieyfi i Básum Þórsmörk. Ferðir um verslunar- mannahelgina 1.—4. ágúst: Brottför föstud. kl. 20.00: 1. Núpstaðarskógar — Lóma- gnúpur. Sambærilegt svæði við fegurstu ferðamannastaði landsins en utan alfaraleiöa. Gist í tjöidum. 2. Þórsmörk — Goðaland. Gist í skálum Útivistar Básum. Friö- sæll staður. 3. Eldgjá - Langisjór - Svelnstindur — Laugar — Strútslaug. Gist í góðu húsi við Eldgjá. 4. Snæfellsnes — Brelðafjarð- areyjar — Flatey. Gist í húsum. 5. Brottför laugard. kl. 8.00: Þórsmörk — Goðaland og Skógar — Flmmvörðuháls. 6. Homstrandir — Homvfk 31. júlí-5. ágúst. Góð fararstjórn. Gönguferðir og hressandi úti- vera í öllum feröunum. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinnl 1, sfmar: 14606 og 23732. Sjáumstl Útivist. Þröstur tefl- ir á heims- meistaramóti unglinga Skák Karl Þorsteins ÞRÖSTUR Þórhallsson, 16 ára nemi úr Taflfélagi Reykjavík- ur, verður fulltrúi íslands á Heimsmeistaramóti unglinga undir tvítugt sem frændur vor- ir Norðmenn halda á háfjalla- hótelinu í Gausdal í Noregi dagana 4.—18. ágúst nk. Móts- staðurinn verður varla tilefni til deilna eins og i fyrra þegar mótinu var valinn staður í Sam- einuðu arabisku furstadæmun- um í óþðkk vestrænna rikja. Riki Vestur-Evrópu sniðgengu þá mótið ásamt Sovétríkjunum í mótmælaskyni, enda hljómar það sem pólitískt skrípamál og þvert gegn lögum alþjóða skák- sambandsins að fulltrúar ein- stakra aðildarlanda hafi ekki aðgang að mótsstað eins og er með fulltrúa ísraels í þessu til- viki. Skáksamband Banda- ríkjanna tók þó þá ákvörðun á skjön við Evrópuríkin að senda þátttakanda, Maxirn Dlugy, sem einmitt sigraði á mótinu. Mótið verður með sterkara móti þetta árið og meðal þátttak- enda er norska undrabamið og stórmeistarinn Simen Agderstein. Róðurinn verður því Þresti erfíður auk þess sem stefna mótshaldara er gjaman að gefa keppendum sem fæsta frídaga, til að hvíla lúin bein. Þá reynir oft ekki síður á líkamlega hreysti en fræðikenn- ingar. Minnir fyrirkomulagið óneitanlega á maraþonhlaup þar sem sá er sprettur hraðast í byij- un þarf §arri því að koma fyrstur á áfangastað. Þröstur ætti þó að hafa alla burði til að spjara sig, enda í góðri æfíngu, sólbrúnn og sæll eftir Bandaríkjadvöl þar sem hann tefldi gegn liði Collins. Þá hafði hann nýlokið að tryggja sér þátt- tökurétt á heimsmeistaramótið með sigri í einvígi gegn Davíð Ólafssyni 3*/2—2l/i. Þröstur sigr- aði í annarri skákinni og þeirri síðustu en Davíð í þriðju. Úrslitin hefðu þó getað farið á annan veg, þvi í 4. skákinni kom upp staða þar sem Davíð hafði hrók og bisk- up gegn einsömlum hróki Þrastar. Sú staða er fræðilegt jafntefli þó mörgum meistaranum hafí fatast vömin. Þröstur fylgdi líka í þeirra spor, en Davíð tókst ekki að hag- nýta sér mistökin og biskupstetrið mikilvæga fauk út af í tímahraki og jafntefli var samið. Davíð verður Þresti til halds og trausts á meðan á mótinu stendur og kemur hér að lokum síðasta skákin úr einvígi þeirra félaga. Hvitt: Davíð Ólafsson Svart: Þröstur Þórhallsson Skoskur leikur 1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. d4 — exd4, 4. Rxd4 — Dh4, 5. Dd3? (5. Rb5 er skarpari mögu- leiki.) 5. - Rf6, 6. Rd2 - Rb4, 7. Db5? (Vafasamt drottningarflan. 7. De2 var vafalaust betra.) 7. - c5, (7. - Rg4) 8. Rf5 - Df4, 9. g3 - De5, 10. f4 - De6, 11. Bc4 (Hvítur virðist hafa komið ár sinni vel fyrir borð en nánari að- gæsla sýnir annað og veldur verbúðargangur drottingarinnar þar mestu um.) 11. — a6! (11. Rxc2+ kom einnig til greina, en óþarfí er að flækja taflið þegar kostur er á góðum leiðum. Mannsfóm hvíts í næstu Þröstur Þórhallsson leikjum er líka hreint neyðarúr- ræði.) 12. Da4 - b5, 13. Bxb5 - Rxe4, 14. 0-0 — Rxd2 (Línumar hafa skýrst og svartur hefur einfald- lega manni yfír. Úrvinnslan er líka með ágætum.) 15. Bxd2 - Dxf5, 16. Hel+ - Be7, 17. Bxb4 - Bb7! (Einfald- ast. Svartur tekur til bragðs að gefa drottninguna fyrir hrók, tvo biskupa og yflrburðastöðu því til viðbótar og 18. Bd3 — Dd5 geng- ur skammt hjá hvítum.) 18. Hé5 - cxb5!, 19. Dxb5 - Dxe5, 20. fxe6 — Bc6, 21. Dc4 — cxb4, 22. c3 — bxc3, 23. Dxc3 - 0-0, 24. a3 - Ha4, 25. Hdl - Hb8, 26. h4? (26. Hd4 var algjör nauðsyn.) 26. - He4, 27. Hfl - He2 (Nú, þegar svarti hrókurinn hefur brostist inn fyrir vamarmúr hvíts, er mótspyman á þrotum. Síðustu leikimir voru líklegast leiknir í tímahraki.) 28. Hbl - Hg2+, 29. Kfl - Hxh2, 30. e6 (Ef hrókurinn færði sig kæmi svarið 30. — Hbxb2). 30. - Hhl+, 31. Kf2 Hxbl, 32. exf7+ - Kf8, 33. b4 - Hb5, 34. Dc2 - Hhl, 35. Dxh7 - Kxf7, 36. a4 - He5, 37. Dd3 - g6, 38. Dd4 - Hh2+, 39. Kfl - Hf5+, 40. Kel — Hhl+ og hvítur gafst upp. Alþjóðlegt skákmót að hefjast í Noregi: Fjórir íslenskir skákmenn verða með OPIÐ alþjóðlegt skákmót hefst í Gausdal í Noregi um helgina. Fjórir íslenskir skákmenn hyggj- ast taka þátt í mótinu, þeir Margeir Pétursson, stórmeistari, Karl Þorsteins, alþjóðlegur meistari, og ungu piltarnir Hann- es Hlífar Stefánsson og Þröstur Árnason. Tefldar verða 9 umferðir, ein á dag. Að sögn Margeirs Péturssonar hafa 5 stórmeistarar skráð sig til leiks. Evrópumót yngri spilara í bríds: Hollendingar efstir, ísland í 14. sæti HELDUR sígur á ógæfuhliðina hjá íslenska liðinu sem keppir á Evrópumóti yngri spilara i brids í Búdapest. Eftir 13 umferðir er sveitin dottin niður í 14. sæti með 174 stig. 19 þjóðir taka þátt í mótinu. Hollendingar eru efstir með 243 stig, Frakkar koma fast á eftir þeim með 241 stig, Svíar hafa 237, Pólveijar 228, Norð- menn 227 og ítalir 226 stig. í 11. umferð spilaði íslenska sveitin gegn þeirri efstu, sveit Hollands, og tapaði stórt, 7—23. ísland tapaði næst naumlega fyr- ir Austurríki, 14—16, og aftur gegn Spáni í 13. umferð, 12—18. Að sögn Ólafs Lárussonar, liðs- stjóra islenska liðsins, var leikur- inn við Spánveija sérlega óheppiiegur: „Við hefðum átt að vinna 20—10 ef ekki hefðu komið til tvö hroðaleg spil. í öðru þeirra fór íslenska parið í alslemmu þar sem vantaði trompásinn á meðan Spánveijarnir á hinu borðinu létu sér nægja að spila þijú grönd. Hitt spilið var geim á hættunni, sem við töpuðum vegna rangrar spilamennsku," sagði Ólafur. Island sat yfir í 14. umferð, sem spiluð var í gærkvöldi, en í dag á sveitin að spila gegn Bret- um, Þjóðveijum og írum, en írar eru langneðstir. Mótinu lýkur á laugardag, en þá spilar ísland við tvær af efstu þjóðunum, Frakka og Svía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.