Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 37 Komin með svarta beltið í karate — níræð að aldri Margir þeirra, sem komnir eru yfir miðjan aldur hrista hausinn, fussa og sveia, þegar því er haldið fram sð það sé undir manni sjálfum komið hversu gam- all maður sé. Opinn og síkvikur hugur sé það eina sem þarf til að halda í æskuna. Þetta segja hinir fyrrnefndu hið mesta bull og kjaft- æði, elli kelling komi og banki upp á sama hvert hugarástandið sé. Fyrir tveimur árum tilheyrði banda- ríska konan Lucille Thompson þessum hóp. Hún var 88 ára gömul kona, með bogið bak og liðagigt í fingrum. Hún sat heima alla daga, horfði í gaupnir sér og hneykslaðist á ungdómi nútímans. En þá átti sér stað hræðilegur atburður, sem gjör- breytti lífsstíl Lucille. Tvær eldri konur í heimabæ hennar, Danvilte, voru myrtar um hábjartan dag, er þær voru að koma úr kjörbúðinni. Lucille fylltist réttlátri reiði og skelfingu. „Það er greinilegt að menn veigra sér ekki við að ráðast á fólk, þó svo það sé minni máttar og geti ekki varist á einn eða annan hátt,“ hugsaði hún með sér og dró síðan þá ályktun að „maður yrði því að vera viðbúinn til vamar, það hraustur að maður gæti tekið vel á móti, ef á þyrfti að halda. Hún fór því á stúfana og kynnti sér vand- lega hvað hún gæti lært, sjálfri sér til vamar. Tveimur dögum síðar var þessi aldraða kona komin á fulla ferð í Tae Kwon do, kóreanska af- brigðinu af karate. Viðbrögð fjölskyldunnar vom misjöfn og æði blandin. Meðan elsta dóttir hennar og hennar sjö böm vom himinlifandi með framtakið mótmælti yngsta dóttir hennar, 55 ára, harðlega. „Fólk hélt að ég væri orðin brjáluð og hikaði ekki við að segja mér það,“ rifjar Lucille upp og hlær. „En ég svaraði þeim fullum hálsi, benti þeim á að það væri ekki öfundsvert að leggjast í kör, þau ættu bara að prófa það sjálf. Svo stríddi ég þeim, sem vom á móti þessu, óspart með því að þau myndu eldast meðan ég myndi yngj- ast.“ Lucille Thompson fæddist í Iowa árið 1896. Hún ólst upp hjá föður sínum, sem var prestur og hlaut afar strangt uppeldi. „Ég var aldrei hvött til að gera neitt," sagði hún. „íþróttir þóttu langt frá því að vera kvenleg iðja og því var mér haldið frá þeim. Ég veit ekki hvað hann faðir minn myndi segja ef hann sæi til mín núna á efri árum,“ bætir hún við og skellihlær. „Já, hún var afskaplega stirð og lúin þegar hún kom hingað fyrst," segir kennari Lucille, _Min Kyo Han, 49 ára að aldri. „Ég varð til að mynda að styðja hana í hvert sinn sem hún Hún Gucille Thomp- son var orðin 88 ára þegar henni ofbauð ofbeldið í heiminum og ákvað að læra að verja sig og sína. Nú er hún orðin níræð og komin með svarta beltið í karate. Geri aðrir betur. sparkaði. Annars missti hún bara jafnvægið og hmndi saman á gólf- inu. Á aðeins 20 mánuðum hefur hún hinsvegar tekið ótrúlegum framfömm, enda hefur hún bar- áttuvilja á borð við heila herdeild. Hún náði nú nýlega þeim áfanga að mega bera svarta beltið og er hún elsta manneskjan sem nær þeim árangri í Tae Kwon do,“ seg- ir hann. Lucille Thompson gengur nú óhrædd um götur bæjarins, teinrétt og tíguleg. Hún flu';ti nýlega í þjón- ustuíbúðir aldraðra, þar sem hún segist ekki hafa tíma til að standa í öllum þessum hreingemingum og tiltektum sem húshaldinu fylgi. „Ég verð að halda mér í góðri þjálfun og það tekur sinn tíma,“ segir hún alvarleg í bragði. En það er fleira sem fylgir þessu framtaki. Lucille er orðin landsfræg og eftirsóttur gestur í sjónvarps- og útvarpsþátt- um. Ekki alls fyrir löngu kom hún fram í hinum sívinsæla viðtalsþætti Johnny Carsons. „Hann er ósköp indæll," segir Lucille um leikarann, „en svolítið taugaveiklaður. Hann hrökk t.d. alveg í kút þegar ég sýndi honum nokkur brögð. Kannske eru það öskrin, sem spörkunum fylgja, sem hafa komið honum svona á óvart," bætir hún við. Stjarna Selleck greyptí gijót Það þykir mikill heiður í Hollywood-hverfinu í Los Angeles að fá stjörnu sína greypta í gangstéttina á Hollywood Boule- vard. Til þess verða menn að hafa sannað að þeir séu annað og meira en stundarfyrirbrigði — þeir hafi raunverulega hæfileika. Leikarinn Tom Selleck náði þessum áfanga á dögunum og mætti hann ásamt fjöl- skyldunni allri til að vera viðstaddur afhjúpun sinnar stjömu. Með hon- um í för voru foreldrar hans, Robert Og Martha, bræðumir Bob og Dan og náin vinkona hans, Jillie Mack. COSPER Segðu lögreglustjóranum að þjófurínn sé enn laus, en að nú sé hann í lögreglubúningi. 77/ sölu BMW 728 Árg. 1978. Steingrár með sóllúgu, álfelgum, lituðu gleri, fjórum hauspúðum. Verð 480 þús. Upplýsingar i síma 688688. Blaðburóarfólk óskast! , AUSTURBÆR Miðtún Samtún Hátún 23-43 Hátún 1-19 Drápuhlíð 1-24 Skúlagata ÚTHVERFI Ofanleiti Kleppsvegur 8-38 KÓPAVOGUR Holtagerði Hraunbraut Álfólfsvegur 65- Sunnubraut B • O • R • G . 1 w Opið 10—03

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.