Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 7- Þingvallavegurinn: Aðeins 5 kmán slitlags Nú á aðeins eftir að leggja slit- lag á um 5 km kafla af Þingvalla- vegi, en nýlega var lokið við að leggja fyrra slitlagið á um 6 km kafla vegarins, sem byggður var upp í fyrra. Síðara slitlagið verð- ur lagt á í sumar. Að sögn Snæbjöms Jónassonar vegamálastjóra binda menn vonir við að viðbótarfjármagn fáist til að klára veginn næsta sumar, en sam- kvæmt núgildandi vegaáætlun, sem gildir til ársins 1988, er ekki gert ráð fyrir meira fjármagni í Þing- vallaveginn. Það er verktakafyrirtækið Hag- virki hf. sem vinnur að lagningu slitlagsins nú. Sjúkrahúss- læknar semja FÉLAGSFUNDUR sjúkrahús- lækna samþykkti síðastliðinn mánudag sérkjarasamning í anda Kjaradóms, sem samninga- nefndir Læknafélags íslands og ríkisins höfðu skrifað undir í síðustu viku. Sérfræðingar á sjúkrahúsum fá 9,27% hækkun frá 1. mars síðast- liðnum, og aftur 3% hækkun 1. desember næstkomandi. Aðstoðar- læknar fá 6,09% frá 1. mars, en 4,5% 1. desember. Að sögn Magna Jónssonar for- manns Læknafélags Reykjavíkur var samningurinn samþykktur með töluverðum meirihluta, en almenn óánægja var þó með að ýmis atriði sem samninganefndimar vom með uppi á borði í vor fengust ekki rædd nú. Nefndi Magni sem dæmi vaktafyrirkomulag og trygginga- mál. Borgarráð: Nýtt skipulag á Granda- svæðinu kynnt FRUMDRÖG að nýju skipu- lagi á Grandasvæðinu í Reykjavík voru kynnt í borg- arráði á þriðjudag. Jón Haraldsson, arkitekt, sem er höfundur skipulagsins, sagði í samtali við Morgun- blaðið að ekki væri unnt að greina frá einstökum atrið- um í hinu nýja skipulagi þar sem hér væri aðeins um framdrög að ræða og eftir að kynna nánari útfærslu skipulagsins fyrir ráða- mönnum borgarinnar. Ottar Proppé ráðinn fram- kvæmdasljóri Framkvæmdastjóm Alþýðubanda- lagsins ákvað á fundi sínum í fyrradag að ráða Ottar Proppé sem framkvæmdastjóra Alþýðubanda- lagsins. Ottar hefur gegnt starfi bæjarstjóra Siglufjarðar undan- farin fjögur ár, en hefur nú látið af því starfí. Hann mun taka við framkvæmdastjórastöðunni nú í haust. Eru þeir að fá 'ann ■ Fleirií Leirvogsá Það er meira komið á land í Leirvogsá heldur en frá var greint í Morgunblaðinu í gær, rétt tala er milli 130 og 140 laxar og munar þar rúmlega heilli blaðsíðu í veiðibókinni. Að öðru leyti stendur fréttin eins og stafur í bók, líka síðustu tíðindin, að veiðin hefði glæðst á ný með úrkomunni og stór- streyminu. Slappt í Reykjadalsá Það eru komnir innan við 20 laxar á land úr Reykjadalsá í Borgarfirði sem er lélegt þótt áin sé ein af þessum „síðsum- arsám“. Vatnsleysi, það sem af er júlí, hefur auðvitað hamlað veiðum þar sem ofan á allt sam- an er vatnið í ánni óþægilega heitt fyrir laxinn, en í landi Sturlu-Reykja er gamall gos- hver úti í miðri ánni. Um helgina gerði skýfall vestra og rauk aflinn úr 4 löxum upp í 11 stykki, líklega ekki síst fyrir tilstilli kunnugleika Jóns Hjart- arsonar og Steingríms Her- mannssonar sem voru að veiða um það leyti. En rigningin hef- ur hleypt skoti í ána, því mikill lax hefur legið í vatnaskilunum við Svarthöfða í allt sumar og þar hefur verið geysigóð veiði, mokveiði á köflum. Kunnugir segja mest af laxinum í Reykja- dalsá liggja í svokölluðum Sturlu-Reykja-bug. Sá veiði- staður var löngum hvorki fugl né fískur, eða þar til ábúandinn á samnefndum bæ fyllti tunnu af grjóti og möl og óð með tunn- una út í ána, sem er lygn þama sem og víðar. En straumur var þó nægur til þess að áin hóf þegar að grafa ál niður af tunn- unni og í þó nokkur ár hefur mátt heita árvisst að þar liggi lax og sum árin hefur Bugurinn verið í hópi bestu veiðistaða árinnar. Þrælgott í Haffjarðará Góð veiði hefur verið í Haf- íjarðará það sem af er sumri eins og víðast annars staðar, komnir eru milli 500 og 600 laxar á land eftir því sem kom- ist verður næst og allt er það fluguveiddur lax, því „hér er ekkert til sem heitir ánamaðk- ur“, eins og viðmælandi einn við ána orðaði skýrt og skorin- ort. Laxinn er bæði smár og vænn í bland, sá smái feitur og fallegur. Stærsti laxinn um 19 pund. Farinn að sjást og- veiðast á Lýsunni Haft er eftir veiðimönnum sem voru á Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi fyrir skömmu, að líflegt sé í vötnunum og í kring um 40 laxar hafí þegar veiðst auk slatta af silungi. Silungur- inn er yfírleitt fremur smár, en feitur og gengur iðulega í læk- Beint úr ánni á vogina: 7 punda hængur úr Varmadaisgrjótun- um. ina sem renna milli vatnanna. Þar þykir mörgum gaman að kljást við hann. Það mun hins vegar vera hending ef hittist í lax í lækjunum, helst í vatna- vöxtum, laxinn er einkum veiddur með dorgi með flotkúlu og maðk á ákveðnum stöðum í vötnunum, eða á spón í Hópinu. Stöku sinnum í Vatnsholtsánni. Þetta svæði heillar marga og yfirleitt er hægt að komast þar í veiði með litlum fyrirvara. Plássið er nóg og umhverfís- fegurð viðbrugðið. HERJÓLFSFERÐ ER GÓÐ FERÐ HERJÓLFSFERÐ ER ÖRUGG FERÐ HERJÓLFSFERÐ ER ÓDÝR FERÐ FARMIÐASALA: Reykjavík: Umferðarmiðstöðin, sími 22300. Afgreiðsla Herjólfs v. Köllunarklettsveg, sími 686464. Selfoss: Árnesi íÁrsölum, sími 99-1599. Auk þess um borð í Herjólfi. FERÐIST ÓDÝRT FERÐIST MEÐ HERJÓLFI. HERJÓLFUR h.f. Símar: 98-1792, 98-1433. Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.