Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 48
SEGÐU RHARHÓLL ÞEGAR ÞU EERÐ ÚT AÐ BORÐA ----SÍMI18833-- „eimSókhalwð FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. fyrir Japansmarkað. Japanskur skurðarmaður og íslenzkur skera hvalkjöt til frystingar í hvalstöðinni í Hvalfirði í gser. Vinnslu háttað eins og venjulega — segir Eggei*t Isaksson, skrifstofustióri Hvals hf. kJötsin;s væn "f0 samfhætti °e __ ' " undanfann ar, po með þeim und- „ÞAÐ er í gildi samningur við hætta að kaupa af okkur hval- við Morgunblaðið í gær. antekningu að meira færi nú á stjórnvöld frá síðustu áramót- kjöt, setur það strik í reikning- í gærmorgun höfðu veiðzt 58 innanlandsmarkað. Svo virtist, um um ákveðnar veiðar á inn, en hefur tæpast áhrif á langreyðar og 13 sandreyðar, en sem umræðan um hvalveiðarnar árunum 1986 til 1990. Hann veiðar og vinnslu I sumar,“ alls er fyrirhugað að veiða 80 hefði þau áhrif á íslendinga, að má endurskoða á hverju hausti. sagði Eggert ísaksson, skrif- langreyðar og 40 sandreyðar. þá fýsti frekar en áður til að borða Verði Japanir þvingaðir til að stofustjóri Hvals hf., í samtali Eggert sagði, að vinnsla hval- hvalkjöt. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra: Rök Bandaríkj amanna eru allsekki haldbær — ljóst að Japanir hætta ekki hagsmunum sínum með kaupum á hvalkjöti í óþökk Bandaríkjamanna Mikil eftir- spurn og salaá " fasteignum LÍFLEG sala virðist nú vera á fasteignum, en þeir fast- eignasalar sem Morgunbiaðið ræddi við í gær voru sammála um að verulegur skortur væri á þriggja og fjögurra her- bergja íbúðum á markaðnum. Var ástæðan talin sú að fólk héldi að sér höndum með sölu þar til i haust, þegar búist er við nokkurri verðhækkun. F asteignasalarnir voru þó sammála um að ekki yrði um neina verðsprengingu að ræða. Fasteignasalarnir sögðu sölu mjög góða nú miðað við undan- farin ár, en þá hefði ástandið að vísu verið óeðlilegt. Þeir töldu nokkrar ástæður fyrir þessum sölukipp nú. J fyrsta lagi hefði verð fasteigna staðið í stað undan- farið og því í raun lækkað miðað við verðþróun annars. Nú teldu kaupendur einnig að verðið myndi rjúka upp í haust og ætlaði því að kaupa áður en það yrði. Ekki töldu fasteignasalar þó að hætta væri á mikilli hækkun. Þá töldu þeir einn- ig að mikil bjartsýni ríkti hjá fólki, sem teldi betri tíð í vændum með breyttum lánum til fasteigna- kaupa. Þessi bjartsýni gæti þó leitt til þess að fólk keypti stærri íbúð- ir en það réði við. Það sé almennt álitið nú að aftur sé vænlegt að fjárfesta í húsnæði og að fólk eigi auðveldara með að kaupa húsnæði án þess að skuldabyrði verði óbæri- leg. Sala á stærstu eignunum hefur tekið nokkurn fjörkipp, en er þó erfíð sem fyrr. Sagði einn fast- eignasalinn að hann teldi að hjálpa X ætti fólki til að selja hluta af þess- um eignum, eins og gert hefði verið sums staðar erlendis, t.d. með því að breyta stórum einbýlis- húsum í tvær íbúðir eða fleiri. Þrátt fyrir að nokkurrar var- kámi gætti hjá fasteignasölum að telja nýju lánareglumar eingöngu af hinu góða voru þeir þó sam- mála um að þessi mál þróuðust í rétta átt. Það væri smám saman að verða auðveldara fyrir fólk að festa kaup á húsnæði, en bjartsýn- in mætti þó ekki bera skynsemina ofurliði. „ÉG VIL ekkert um það segja nú hveraig ég tek á þéssu máli á ríkisstjórnarfundi næsta þriðjudag. En ef af viðskipta- þvingunum verður gagnvart okkur, sem ég á bágt með að trúa, þá tel ég það mjög alvar- legt áfall fyrir samskipti íslands og Bandaríkjanna og það myndi hafa verulegar afleiðingar," sagði Halldór Ásgrimsson sjáv- arútvegsráðherra í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, en þá var ráðherrann staddur í Bremen. „Það kemur mér mjög á óvart að þetta mál skuli leka út með þessum hætti á svo viðlcvæmu stigi," sagði ráðherrann. Hann sagði, að um það hefði verið rætt milli Bandaríkjamanna og íslend- inga að ekki yrði rætt um þessi mál opinberlega á meðan þau væru á svo viðkvæmu stigi sem nú væri, en þessi leki hlyti að vera frá Bandaríkjamönnum kominn. „Ég hef verið í stöðugu sambandi við Bandarílcjamenn út af þessu og fór til Washington fýrir skömmu til að koma sjónarmiðum íslendinga á framfæri," sagði Halldór. „Þeir hafa aldrei getað fært að því nein haldbær rök að við værum að bijóta gegn samþykktum Alþjóðahval- veiðiráðsins og ekki getað sýnt fram á að veiðar okkar væru ekki nauðsynlegar vegna vísindalegra rannsókna. Á meðan þeir gera það ekki liggja einhverjar aðrar ástæð- ur að baki afstöðu þeirra, án þess að ég vilji geta mér til um hverjar þær eru. „Japanir munu að sjálfsögðu ekki hætta sínum hagsmunum. Þeir hafa mikilla hagsmuna að gæta vegna veiðiheimilda við strendur Bandaríkjanna og ef Bandarílcjamenn ætla að beita okk- ur einhveijum þvingunum geta þeir sjálfsagt komið sínu frarn," sagði Halldór þegar Morgunblaðið spurði hann hvort hann vissi til eða hefði ástæðu til að ætla, að Japan- ir myndu hætta við kaup á hvalkjöti héðan, ef hvalveiðar íslendinga mættu andstöðu Bandaríkjamanna. „Það hefur ekki komið beinlínis fram í viðræðum við Japani að þeir ætli ekki að kaupa Jivalkjöt, því Japanir hafa mikinn áhuga á því að auka allar vísindarannsóknir og er mjög fylgjandi því að við gerum það sem við ætlum okkur,“ sagði Halldór. „Það er hins vegar hægt að beita þá þvingunum eins og aðra.“ Sjá á bls. 2 frétt um fund ríkis- stjórnarinnar í gær og ummæli utanríkisráðherra og forsætisráðherra og frétt um samtal Morgunblaðsins við talsmann japanska sendiráðs- ins í Washington. Menntamálaráðherra undirrit- ar reglugerð um þýðingarskyldu sjónvarps Ríkisútvarpsins SVERRIR Hermannsson menntamálaráðherra undirritaði í gær reglugerð um Ríkisútvarpið sem kveður á um íslenskan texta eða íslenskt tal með því erlenda efni sem sjónvarpið tekur til sýninga, en i febrúar sl. var undirrituð samskonar reglugerð um útvarp samkvæmt tímabundnum leyfum. Reglugerðin um Ríkisútvarpið hljóðar svo: „Ríkisútvarpið skal stuðla að almennri menningar- þróun og efla íslenska tungu. Efni á erlendu máli, sem sýnt er í sjónvarpi Ríkisútvarpsins skal jafnan fylgja íslenskt tal eða neð- anmálstexti á íslensku, eftir því sem við á hveiju sinni. Það skal þó ekki eiga við, þegar í hlut eiga erlendir söngtextar eða þegar dreift er viðstöðulaust um gervi- hnött og móttökustöð fréttum eða dagskrárefni, er sýnir at- burði, sem gerast í sömu andrá. í síðastgreindu tilviki skal að jáfnaði fylgja kynning eða endur- sögn þular. Allt ísienskt tal og texti í dag- skrám Ríkisútvarpsins skal vera á lýtalausu máli.“ Sjá á bls. 4 ummæli útvarps- stjóra: „Þýðingarskyldunni verður framfylgt þannig að efnið verði áfram áhuga- vert.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.