Morgunblaðið - 25.07.1986, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.07.1986, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 ÚTVARP / SJÓNVARP Barna- sjónvarp Enn einu sinni rita ég um bama- dagskrá sjónvarpsins og þykir máski einhveijum nóg að gert en samt hef ég merkt af viðbrögðum lesenda að margir foreldrar fylgjast grannt með bamaefni sjónvarpsins þótt menn séu nú duglegri við að lyfta símtóli en stílvopni nú til dags. Virðist mér áhuginn fyrir bamaefninu ekki síður ná til þeirra foreldra er eiga „mynd- iða“ (myndbandstæki — nýyrði samsett af mynd og sögninni að iða). Hvað um það þá vil ég nú freista þess að kíkja á bamadagskrána. Eins og menn muna þá ríkti heimsmeistara- keppnin í knattspymu á skerminum í sumar og kom í veg fyrir að fremur rýr dagskrá sjónvarps opinberaðist landsmönnum í allri sinni nekt, en sumir dagskrárstjórar virðast telja sér skylt að fljúga ögn lægra í sól og sumaryl. Bamadagskrárstjóramir unnu það afrek að sigla fram hjá Bjama Fel. og leið bamadagskráin lítt vegna heimsmeistarakeppninnar. Ber að þakka það þótt stundum hafi út- sendingartíminn verið ókristilegur. En skoðum nú að gamni næstu viku bamasjónvarpsins. Á laugardögum er nýhafinn þáttur er nefnist: Ævintýri frá ýmsum lönd- um. Þessi þáttur lofar góðu því honum fylgir íslenskt tai sem ætti að fylgja hveijum einasta barnaþætti nema máski Andrési og Tomma og Jenna. Á sunnudögum skarta Andrés, Mikki og félagar við miklar vinsældir en þessi þáttur er því miður aðeins 25 mínútna langur. Á dögunum brugðu umsjónarmenn bamaefnis á það ráð að sýna úr safni sjónvarpsins þá fé- laga Karíus og Baktus í beinu framhaldi af Andrési, Mikka og félög- um. Sannarlega snjallræði hjá umsjón- armönnum bamaefnisins og mætti gera meira af þvi að sýna valið bama- efni úr myndasafni sjónvarpsins. Á mánudögum er miðvikudagsþátturinn Úr myndabókinni endursýndur. Ég tel það ekkert ofverk hjá þeim sjónvarps- mönnum að opna myndabókina tvisvar í viku með nýju efhi. Myndabókin er vinsæl og þá máski einkum vegna þess hversu fjölbreytt hún er en þar má jafnt fínna innlent, frumsamið efni einsog hann Kugg blessaðan, sem Sigrún Eldjám hefír fest á mynd, og bamamyndir frá ýmsum löndum svo sem fályndu prinsessuna, franskt meistaraverk, og þá er vænn slatti af a-evrópskum teikni- og brúðumyndum ásmt hinum vestræna bleika pardus. Á þriðjudögum er svo unglingaþáttur- inn Fame á dagskrá. Ég er þeirrar skoðunar að bama- efnið verði að skipa fastan sess í dagskránni og að það sé ætíð sent út á sama tíma því þannig kemst regla á bömin og sjónvarpið verður hluti af hversdagstilverunni. Finnst mér vel koma til greina að þættir fyrir stálpuð böm séu sýndir í beinu framhaldi af bamaefninu sem gæti þá færst eitt- hvað fram, til dæmis klukkan 18:00. Unglingaþættir svo sem Fame og poppþættir ýmiss konar gætu hins vegar flust að lokum dagskrár þannig að viðtalsþættir, skemmtiþættir og bíómyndir nytu sín á skikkanlegum tíma. Á föstudögum er svo á dag- skránni nýr brúðumyndaþáttur Litlu Prúðuleikaramir, ættaður úr smiðju Jim Henson. Ég vona bara að íslenskt tal fylgi þessum þætti og að hann verði ekki jafn langdreginn og enda- leysan í Búrabyggð. Annars er brýn þörf á að lengja bamadagskrána um helgar og vanda til hennar á allan máta en þar er nú komið efni í nýja grein. Að lokum bið ég bara að heilsa umsjónarmönnum bamaefnis sjón- varpsins og þakka heimboðið á deild- ina. Ég veit að þið hyggið á landvinninga og ekki má gleyma því að forráðamenn nýju einkasjónvarps- stöðvanna hyggja líka á landvinninga, til dæmis með því að senda út bama- dagskrá á laugardagsmorgnum. Gangi ykkur öllum allt í haginn. Ólafur M. Jóhannesson Unglingarnir í frumskóginum: Víða leitað fanga ■■■■ Á dagskrá sjón- OA40 varps í kvöld er þáttur Jóns Gústafssonar „Ungling- amir í frumskóginum". Að þessu sinni er ætlunin að kynna helstu útihátíðir sem haldnar verða um verslun- armannahelgina. Farið verður á helstu staði, s.s. Þjórsárdal, Viðey, Galta- lækjarskóg, Vestmanna- eyjar og Laugar og rætt við forráðamenn úti- skemmtananna og nokkra skemmtikrafta sem koma munu fram, þ. á m. Bubba Morthens og Faraldur. Bergerac: Nýr framhalds- myndaflokkur ■■■■ í kvöld hefur 91 45 nýr breskur " -I ” sakamála- myndaflokkur göngu sína í sjónvarpi. Nefnist sá Bergerac og greinir þar frá samnefndum rannsóknar- lögreglumanni sem oft kemst í hann krappann. Hver þáttur er sjálfstæð saga. Lögreglumanninn Bergerac leikur breski leik- arinn John Nettles. Þýð- andi er Kristmann Eiðsson. John Nettles Fijálsar hendur: Þáttuinn helgaður Samuel Beckett ^■■H Þátturinn er OQOO helgaður Samu- "O el Beckett sem varð áttræður á þessu ári. Rakinn er æviferill Bec- ketts fram að þessu og sagt frá helstu verkum hans. Flutt verður brot úr leikritinu „Beðið eftir God- ot“ og lesin smásagan „Ég gafst upp fyrir fæðing- Lágnætti ■■^■i í þætti sínum 0/105 Lágnætti ræðir Edda Þórarins- dóttir að þessu sinni við Hörð Áskelsson organista Hallgrímskirkju en gestir hennar í þáttum þessum eru starfandi tónlistar- menn. Talið berst að kirkjutónlistinni, hvemig megi hleypa nýju lífí í hana annaðhvort með nýsköpun eða ennþá eldri tónlist en nú er iðkuð. Einnig kemur Mótettukór Hallgríms- kirkju við sögu en Hörður stofnaði kórinn um leið og hann tók við starfi organ- ista við kirkjuna er hann kom heim frá námi í Þýska- landi 1982. M.a. fá hlust- endur að heyra kafla úr frægustu mótettu Jóhanns Sebastians Bach „Jesu, meine FVeude" í flutningi kórsins. Önnur tónlist í þættinum er eftir Schubert, Poulenc, Gounod og Moz- art. Tvær þokkadísir við nokkuð sem vart getur talist barna með færi. Birgitte Bardot og Jeanne Moreau við alsjálfvirka hríðskotabyssu. Þokkadísir og róstuseggir ■■■■ Föstudagsmynd 00 50 sjónvarpsins “ ^ nefnist Viva Maria. Hún er frönsk-ítölsk, frá árinu 1965. Með helstu hlutverk fara Birgitte Bardot, Jeanne Moreau, George Hamilton, Gregor von Rezzori, Paulette Dubost, Claudio Brook og hinn víðfrægi Carlos Lopez Moctezuma. Leikstjóri er Louis Malle. Sagan gerist í ónefndu ríki í Mið- Ameríku um síðustu alda- mót. Bylting er í uppsigl- ingu. Nöfnur tvær, önnur dansari en hin hryðju- verkakona, kynnast og slást saman í för. Þær kynnast ungum byltingar- manni, sem þær fella þegar hug til og veita honum lið- sinni er byltingin hefst. Kvikmyndahandbókin gef- ur þessari mynd eina stjömu sem þýðir „sæmi- leg“. UTVARP FOSTUDAGUR 25. júlí 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. 8æn. 7.15 Morgunvaktin. 7.30 Fréttir. Tilkynningar 8.00 Fréttir. Tilkynningar 8.15 Veðurfregnir 8.30 Fréttir á ensku. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barn- anna: „Pétur Pan og Vanda" eftir J.M. Barrie. Sigríður Thorlacius þýddi. Heiðdís Norðfjörð les (23). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesið úrforustugreinum dagblaðanna. 10.00 Fréttir 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Guömundur Sæ- mundsson flytur. 10.10 Veðurfregnir 10.30 Sögusteinn. Umsjón: Haraldur Ingi Haraldsson. (Frá Akureyri.) 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir og Þórar- inn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 Miðdegissagan: „Katrín", saga frá Álands- eyjum eftir Sally Salminen. Jón Helgason þýddi. Stein- unn S. Sigurðardóttir les (19). 14.30 Nýtt undir nálinni. Eiín Kristinsdóttir kynnir lög af nýútkomnum hljómplötum. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Á hringveginum — Austurland. Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir, Örn Ragnarsson og Ásta R. Jó- hannesdóttir. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síödegistónleikar. a. „Porgy og Bess", svita eftir George Gershwin. Sin- fóníuhljómsveitin í Dallas leikur: Eduardo Mata stjórn- ar. b. Slavneskir dansar eftir Antónín Dvorák. Sinfóniu- hljómsveit útvarpsins í Múnchen leikur; Rafael Ku- belik stjórnar. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpið. Stjórn- andi: Sólveig Pálsdóttir. Aðstoðarmaður: Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.45 í loftinu — Hallgrímur Thorsteinsson og Guðlaug María Bjarnadóttir. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.50 Náttúruskoðun. Einar Egilsson flytur þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins. Val- týr Björn Valtýsson kynnir. 20.40 Sumarvaka. a. Skírnardagur Jórunn Ólafsdóttir frá Sörla- stöðum les frásögn úr bók Arnfríðar Sigurgeirsdóttur „Séð að heiman". b. Tvísöngur. Jóhann Dani- elsson og Eiríkur Stefáns- son syngja við undirleik Guðmundar Jóhannssonar. c. Af dulrænum fyrirbærum. Jón R. Hjálmarsson ræðir við Pétur Þórarinsson á Sel- fossi. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveinsson kynnir tónverkið „Helfró" eftir Áskel Másson. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Vísnakvöld. Ingi gunnar Jóhannsson sér um þáttinn. 23.00 Frjálsar hendur. Þáttur i umsjá llluga Jökulssonar. 24.00 Fréttir. 00.05 Lágnætti. Spilað og spjallað um tónlist. Edda Þórarinsdóttir ræðir við Hörð Áskelsson organista við Hallgrímskirkju. 1.00 Dagskrárlok. Næturút- varp á rás 2 til kl. 3.00. 9.00 Morgunþáttur Stjórnendur: ÁsgeirTómas- son, Kolbrún Halldórsdóttir og Páll Þorsteinsson. 12.00 Hlé SJÓNVARP 19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Marianna Friöjónsdóttir 19.25 Litlu Prúðuleikarnir (Muppet Babies) Fyrsti þáttur. Nýr flokkur teiknimynda eftir Jim Hen- son. Hinir þekktu Prúðuleik- arar koma hér fram sem ungviöi — gris, hvolpar og lítill froskur. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Unglingarnir i frumskóg- FOSTUDAGUR 25. júlí Umsjónarmaöur Jón Gúst- afsson. Stjórn Upptöku: Gunnlaugur Jónasson 21.10 Kastljós Þáttur um innlend. málefni 21.45 Bergerac — Fyrsti þátt- ur. Breskur sakamálamynda- flokkur í tíu þáttum. Sögu- hetjan er Bergerac rannsóknarlögreglumaður en hver þáttur er sjálfstæð saga. Áðalhlutverk John Nettles. Þýðandi: Kristmann Eiðsson. 22.45 Seinni fréttir 22.50 Viva Marial Frönsk-itlösk biómynd frá árinu 1965. Leikstjóri: Louis Malle. Aöalhlutverk: Birgitte Bardot, Jeanne Moreau og George Hamilton. Sagan gerist i ónefndu riki i Mið- Ameríku um síöustu alda- mót. Söngkona í farandleik- hópi kynnist írskri hryöju- verkakonu og býður henni að slást i för með sér. Þær kynnast ungum byltingar- manni og veita honum liöveislu sína. Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir. 00.50 Dagskrárlok 14.00 Bót í máli Margrét Blöndal les bréf frá hlustendum og kynnir óska lög þeirra. 16.00 Fritiminn Tónlistarþáttur með feröa málaivafi í umsjá Ásgerðar Flosadóttur. 17.00 Endasprettur Ragnheiður Daviðsdóttir kynnir tónlist úr ýmsum átt- um og kannar hvað er á seyði um helgina. 18.00 Hlé. 20.00 Þræöir Stjórnandi: Andrea Jóns- dóttir. 21.00 Rokkrásin Stjórnendur: Snorri Már Skúlason og Skúli Helga son. 22.00 Kvöldsýn Valdís Gunnarsdóttir kynnir tónlist af rólegra taginu. 23.00 Á næturvakt með Vigni Sveinssyni og Þorgeiri Ástvaldssyni. 03.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 15.00, 16 00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.