Morgunblaðið - 25.07.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
15
Loftíð á Kjarvalsstöðum, hin margfræga og umdeilda smíð.
Ný reg’lugerð um
búmark undirrituð
„Búmarkið ónothæft til að skipta framleiðslu milli svæða eða
einstaklinga“ — segir Egill Jónsson
REGLUGERÐ um búmark og
fullvirðisrétt mjólkur og sauð-
fjárafurða fyrir næsta verðlags-
ár var undirrituð á þriðjudag.
Eins og kom fram í frétt blaðsins
í síðustu viku verður verðlags-
ábyrgð á kindakjöti um 3% minni
en á síðasta ári. Fullvirðismark
mjólkur lækkar um 2,2%.
Á næsta verðlagsári mun ríkið.
ábyrgjast fullt verð fyrir 106 millj-
ónir lítra af mjólk frá bændum, í
stað 108,5 milljónir lítra sl. ár.
Hvað dilkakjötið varðar ábyrgist
ríkið 11.800 tonn í stað 12.150
tonna. Endanleg úthlutun búmarks-
ins til framleiðenda verður ákveðin
á næstu mánuðum.
Egill Jónsson alþingismaður
sagði er Morgunblaðið leitaði álits
hans á nýju reglugerðinni, að at-
hyglisverðast við útgáfu nýju
reglugerðarinnar væri að nú hefðu
menn áttað sig á því að búvörulög-
in byggðust á öðrum markmiðum
en áður. „Bændur fá samnings-
bundna framleiðslu greidda í stað
þess að framleiðslan sé óheft og
búmarkið notað til viðmiðunar þeg-
ar skerða þarf útborgunarverð til
framleiðenda," sagði Egill.
„Reynslan sýnir að búmarkið er
ónothæft til að ákveða skiptingu
framleiðslunnar milli byggðarlaga
og getur raunar ekki heldur gilt
nema að takmörkuðu leyti þegar
framleiðslunni er skipt milli ein-
staklinga miðað við núverandi
framleiðsluhætti." Hann taldi það
ánægjuefni að nýja reglugerðin
byggðist að stærstum hluta á tillög-
um aðalfundar stéttarsambandsins.
Það staðfesti að bændur landsins
hefðu fullan hug á að aðlagast
breyttum framleiðsluháttum. Egill
sagði að þar sem enn væri ekki
búið að að skera úr um hver fram-
leiðsluréttur nokkurra bænda ætti
að verða væri skiljanlegt að umtals-
verð breyting væri ekki gerð á
stjóm mjólkurframleiðslunnar.
Reglugerðin um sauðfjárafurðir
tæki vafalaust mið af þessum lær-
dómi og væri þess vegna miklu
einfaldari og skýrari í framkvæmd.
„Ég hefí trú á að með þeim
ákvörðunum sem nú hafa verið
teknar og á grundvelli þeirrar
reynslu, sem fengist hefur af bú-
vörulögunum, sé landbúnaðurinn
að ganga inn í nýtt tímabil, jafn-
vægistímabil. Margar ákvarðanir
hafa verið teknar til að auðvelda
landbúnaðinum að laga sig að nýj-
um framleiðsluháttum. Ef fram-
haldið verður með sama hætti má
vænta að mikilsverð markmið sem
búvörulögin fela í sér verði að veru-
leika," sagði Egill að lokum.
fólk mun eiga erfitt með að setja
sig inn í þessar aðstæður og fyrir
það er bókin um Gerði holl lesning.
Hin mikla vinkona Gerðar, Elín
Pálmadóttir blaðakona, fer nær-
fæmum höndum um þau föng, sem
hún hefur á milli handanna og vinn-
ur úr þeim af mikilli nákvæmni og
einlægni. Bókin er ekki einasta vel
skrifúð og skemmtileg aflestrar,
heldur hefur hún orðið til þess að
opna augu ýmissa fyrir listakonunni
Gerði Helgadóttur og hlutverki
hennar í íslenzkri myndlist, einnig
myndlistarfólki, sem áður lét sér
fátt um finnast.
Það er mjög ánægjulegt og þýð-
ingarmikið að slíkar bækur um
myndlistarmenn skuli koma út á
íslenzkum bókamarkaði, ekki að-
eins hávirðulegar listaverkabækur,
þar sem allir setja sig í stellingar,
sem f hlut eiga.
Myndimar, sem prýða bókina,
falla vel að efninu og eru í senn
skemmtilegar og upplýsandi.
Uppgangur Gerðar Helgadóttur
á sjötta áratugnum í Parísarborg
er mikið ævintýri og einstakt afrek.
Hún telst þá einn af efnilegustu
myndhöggvurum heimsborgarinnar
og heldur sjálfstæðar sýningar, er
mikla athygli vöktu.
Landar hennar hafa efalaust
glaðst og verið stoltir, en þeir voru
hins vegar ekki viðbúnir að styðja
rausnarlega við bakið á henni, er
hún þurfti þess mest. Verkefni fékk
hún hér engin að ráði, en það hefði
verið gaman að vita, hvað hún hefði
afrekað á sviði höggmyndalistar-
innar, hefði hún t.d. fengið 5 ára
styrk svo sem tíðkast víða á Norð-
urlöndum. Hefi verið laus við
brauðstritið og fengið gert það eitt,
sem huga hennar stóð næst. í dag
gera námslánin fyrir margt sama
gagn.
Svo sem kunnugt er, þá hóf Gerð-
ur að vinna í gler og fékk hér smám
saman mikil og stór verkefni, —
verkefni sem tóku tíma hennar frá
höggmyndalistinni í síauknum
mæli, svo að hún náði þar aldrei
sömu fótfestu og fyrr, er best lét.
Þótt Gerður hafi gert ágæt verk
á sviði glermynda- svo og einnig á
sviði kirkjulistar almennt var hún
fyrst og fremst myndhöggvari allt
sitt líf, svo sem mörg verk hennar
á þessum vettvangi bera með sér.
Þau eru sum þannig mótuð, að
maður skynjar að hér hefur mynd-
höggvari verið að verki.
Gerður Helgadóttir var gríðarleg
atorkukona í lífi og starfi, þótt ekki
væri hún mikil vexti og gerðist æ
fíngerðari, eftir því sem fram liðu
stundir, svo að Iítið var eftir af hinni
bústnu og þreknu persónu æsku-
og námsáranna. Lést svo langt fyr-
ir aldur fram og í miðju lífsverki
sínu. Kom þó ótrúlega miklu í verk.
Þetta er enginn dómur um bókina
í heild, ég vildi einungis koma því
í framkvæmd, sem ég hef lengi
haft hug á, og vekja athygli á þessu
merka framtaki Elínar Pálmadótt-
ur, blaðakonu. Hún var um árabil
starfsmaður við sendiráðið í París
og mikil hjálparhella landa sinna.
íslendingar erlendis þurftu á þeim
árum á meiri og annars konar að-
stoð að halda en í dag og voru
tengdari sendiráðunum sem voru
líkast vin í frumskógi stórborganna.
Ætti ég að finna eitthvað að
bókinni, væri það helst, að nöfn
nokkurra nafntogaðra myndlistar-
manna voru rangt stafsett og t.d.
er málarinn Jean Jaques Deyrolle
sagður myndhöggvari, en slíkar vill-
ur ætti að vera auðvelt að lagfæra
með aðstoð uppsláttarbókar við
næstu útgáfu. Helst aukinni og þá
einkanlega að myndefni.
Styrkir til verkfræði-
og raunvísindanáms
Samkvæmt erfðaskrá hjón-
anna Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar, kaup-
manns, hefur verið stofnaður
sjóður til styrktar efnilegum
nemendum í verkfræði- og
raunvísindanámi.
Stofnfé sjóðsins var ákveðinn
hluti af eignum þeim er þau létu
eftir sig, en heimilt er skv. skipu-
lagsskrá að veita styrki af þeim
vöxtum sem sjóðurinn ber.
Nú er fyrirhugað að veita nokkra
styrki úr sjóðnum og hafa þeir ver-
ið auglýstir til umsóknar. Umsókn-
areyðublöð fást á aðalskrifstofu
Háskóla Islands og ber einnig að
skila umsóknum þangað. Umsókn-
arfrestur er til 10. september nk.
og verður tilkynnt um úthlutun fyr-
ir 25. sama mánaðar. Lágmarks-
upphæð hvers styrks mun
væntanlega verða 75 þúsund krón-
ur.
Islensk kona í Al-
þjóðasljórn málfreyja
ERLA Guðmundsdóttír sem er
aðili að málfreyjudeildinni Vörð-
unni í Keflavík var kjörin í stjóm
Alþjóðasamtaka Málfreyja á árs-
þingi samtakanna í Kansasborg
í Bandaríkjunum fyrir skömmu.
Arsþingið sátu fulltrúar deilda
viðsvegar að úr heiminum.
í frétt frá málfreyjum segir að
fram til þessa hafi flestir aðilar
verið starfandi í Bandaríkjunum og
að 11 ár séu liðin síðan fyrsta
íslenska deildin var stofnuð í
Keflavík.
Erla tekur við embætti 1. ágúst
og heldur því til 31. júlí á næsta
ári. Hún mun sækja stjómarfundi
til höfuðstöðva Alþjóðasamtakanna
í Anaheim í Kalifomíu í Banda-
ríkjunum tvisvar á þessu tímabili.
Erla Guðmundsdóttír sem nýlega
var kjörin í Alþjóðastjórn mál-
freyja.
Kammerkórinn lofaður í Danmörku
ÍSLENSKI kammerkórinn, sem
nýverið hélt 5 tónleika, í Dan-
mörku hefur fengið mjög
lofsamlega dóma í danska blað-
inu Beriingske Tidende. Þar er
talað um úrvalskór með frá-
bærum einsöngvurum.
í greininni er minnst íslenskra
tenórsöngvara s.s. Stefáns íslandi
og Magnúsar Jónssonar, sem no-
tið hafa mikillar virðingar í
dönskum óperuheimi, og síðan
sagt að eftir að hafa hlýtt á ís-
lenska kammerkórinn undir stjóm
Garðars Cortes sé einnig óhætt
að dást að öðrum söngröddum.
Greinarhöfundur segir kórfé-
lagana 13 alla í hópi úrvalssöngv-
ara sem eigi vísan frama sem
óperusöngvarar á alþjóðlegum
vettvangi. Sérstaklega er farið
lofsamlegum orðum í Berlingske
Tidende um tenórinn Gunnar Guð-
bjömsson og bassann Viðar
Gunnarsson, altsöngkonuna
Hrönn Hafliðadóttur og sópran-
söngkonumar Katrínu Sigurðar-
dóttur og Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur.
Juvena snyrtivörukynningar
ídagkl. 13.00-18.00
Libía — Laugavegi 35
Hárprýði — Háaleitisbraut 58-60
Juuena snyrtivörur - Suissnesk gæðavara unnin úrjurtum
fyrirþá sem láta sér annt um uelferð húðarinnar
0)
JUVENA
OF SWITZfkLAND
Munið Juvena getraunina
Viku ferð til Sviss ogJuvena
vöruúttektir í verðlaun
Sundaborg 36