Morgunblaðið - 25.07.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
23
Mannréttindi fótum
troðin í Víetnam
í ELLEFTU grein fjórða kafla friðarsamnings Bandarikjamanna
og Víetnama frá árinu 1973 skuldbinda báðir aðilar sig til að:
„__stuðla að þjóðarsátt, binda enda á hatur og óvild, banna
hvers kyns hefndaraðgerðir gegn þeim einstaklingum og stofnun-
um sem á einhvem hátt hafa starfað með öðrum hvorum aðilan-
um.“
Ennfremur að: __tryggja lýðfrelsi; persónufrelsi, málfrelsi,
fundafrelsi, frelsi fjölmiðla, trúfrelsi, ferðafrelsi, frelsi tíl þátt-
töku í stjórnmálastarfi, frelsi til búsetu og séreignarrétt.“
Þrátt fyrir ákvæði samnings
þessa og þrátt fyrir að Víetnamar
hafí skuldbundið sig til að virða
Stofnskrá Sameinuðu Þjóðanna
og Alþjóða mannréttindasátt-
málann gerast stjómvöld í Hanoi
ítrekað sek um mannréttindabrot
gegn þegnum landsins.
Innan Víetnam
500.000 pólitískir fangar sitja
í fangelsum og vinnubúðum án
þess að hafa hlotið dóm. Á árun-
um 1975-1983 voru 65.000
fangar teknir _af lífí í endurhæf-
ingarbúðum. í desembermánuði
árið 1985 voru 6.100 handteknir
í Long An héraði í Suður-Víetnam
og sendir til „pólitískrar endur-
hæfíngar" í þrælkunarbúðum.
Trúarsöftiuðir sæta stöðugum
ofsóknum. Stjómvöld hafa látið
handtaka leiðtoga búddista auk
þess sem réttindi kristinna manna
og katólskra em fótum troðin.
Prestar Jesúítahreyfíngarinnar
hafa verið dæmdir til langrar
fangelsisvistar og sviptir borgara-
legum réttindum. Leiðtogar
annarra trúarhreyfínga hafa verið
pyntaðir í fangelsum.
Menntamenn sæta einnig of-
sóknum. Þeir em iðulega hand-
teknir og færðir til yfírheyrslu auk
þess sem lögreglan ógnar fjöl-
skyldum þeirra. Skáldið Nguyen
Chi Thien, sem m.a. hefur hlotið
viðurkenningar frá samtökum rit-
höfunda í Frakklandi og Dan-
mörku, hefur síðustu 27 árin setið
í fangelsum í Norður-Víetnam.
Rúmar tvær milljónir manna
hafa verið fluttar frá heimkjmnum
sínum í hálendinu í mið- og norð-
urhluta landsins til annarra
landsvæða sem henta fólkinu illa
og ógna heilbrigði þess.
Utan Víetnam
200.000 víetnamskir hermenn
em nú í Kambódíu og stjómvöld
í Hanoi stefna markvisst að inn-
limun landsins. Ein milljón
Víetnama hefur sest að á land-
svæðum sem tilheyra Kambódíu
auk þess sem hvatt er til blóð-
blöndunar íbúa landanna tveggja.
Gríðarleg hækkun á verði
Le Duan, leiðtogi kommúnista-
flokksins i Víetnam, lést fyrr i
þessum mánuði 79 ára að aldri.
frímerkja í Víetnam er einn liður
í ritskoðunarstefnu stjómarinnar.
Venjulegt frímerki kostar nú sem
nemur einum mánaðarlaunum.
Rúm 1,5 milljón manna hefur flú-
ið Víetnam og fær þetta fólk
engar fréttir af ættingjum sínum.
Bréf em einnig ritskoðuð sam-
kvæmt fyrirmælum stjómvalda.
Víetnamska Mannréttinda-
nefndin heitir á heimsbyggðina
og einkum og sér í lagi á sendi-
nefndir þeirra ríkja sem aðild eiga
að Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna að styðja réttindabar-
áttu víetnömsku þjóðarinnar.
Nefridin skorar á aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna að tryggja að
gmndvallarmannréttindi séu virt
í öllum aðildarríkjunum auk þess
sem hvatt er til að sérstök nefnd
kanni nú þegar ástand mannrétt-
indamála í Víetnam.
(Byggt á fréttatilkynningu frá
fundi víetnömsku mannréttinda-
nefndarinnar í Þjóðahöllinni í
Genf.)
Rúmar tvær milljónir manna hafa verið fluttar nauðungarflutn-
ingum til nýrra heimkynna i Víetnam.
Nunn
efstur í
Bienne
Bienne, AP.
BREZKI stórmeistarinn John
Nunn var efstur eftir fjórar
umferðir á skákmótinu í Sviss.
Hann sigraði Svisslendinginn
Werner Hug í þriðju umferð og
gerði jafntefli við Alon Green-
feld frá ísrael í þeirri fjórðu.
Lánið lék ekki við stigahæsta
mann mótsins, Viktor Korchnoi, í
þriðju umferð, því þar tapaði hann
fyrir Greenfeld og var það annar
ósigur hans á mótinu. Úrslit í þriðju
umferð urðu annars þau, að Joseph
Klinger tapaði fyrir Tony Miles, en
jafntefli varð hjá Vlastimil Hort og
Eric Lobron.
Úrslit í fjórðu umferð urðu þau,
að Klinger tapaði fyrir Hort, en
jafntefli varð hjá Hubner og Lobr-
on, Greenfeld og Nunn og Pol-
ugajevsky og Cebalo. Skákir þeirra
Hugs og Miles og Rogers og
Korchnois fóru í bið.
Staðan eftir ijórar umferðir er
þannig, að Nunn er efstur með 3
vinninga, næstir koma Cebalo,
Lobron, Polugjevsky og Hort
með 2 '/2 vinning hver, en síðan
Greenfeld og Húbner með 2 vinn-
inga hvor. Miles er með 1 V2 vinning
og eina biðskák, en síðan koma
þeir Korchnoi og Rogers báðir með
1 vinning og eina biðskák. Klinger
er með 1 vinning, en lestina rekur
Hug, sem er með með V2 vinning
og eina biðskák.
Meintu kosningasvindli enn mótmælt:
Stórfelld fjárhags-
aðstoð við Mexíkó
Washington, AP.
GENGIÐ hefur verið frá samn-
ingi milli Mexíkó annars vegar
og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og
fleiri aðila hins vegar um lána-
fyrirgreiðslu, sem gerir landinu
Ideift að greiða afborganir og
vexti af erlendum skuldum lands-
ins. Þær nema nú um 98 milljörð-
um Bandaríkjadala.
í samningnum er kveðið á um
viðbótarlán, er nema allt að 12
milljörðum dala.
Fjármálaráðherra Mexíkó,
Gustavo Petrocioli, upplýsti, að Al-
þjóða gjaldeyrissjóðurinn myndi
útvega meira fjármagn, ef olíuverð
færi niður fyrir níu dali tunnan á
alþjóðamarkaði, en minna, ef verðið
næði 14 dölum. Gjaldeyristekjur
Mexíkana eru helstar af olíuvinnsl-
unni, en vegna verðfalls að undan-
fömu er búist við að olíutekjumar
verði helmingi minni í ár en í fyrra.
Aðstoðin er veitt með því skil-
yrði, að landsmenn geri ýmsar
róttækar breytingar í efnahagslíf-
inu. Halli á fjárlögum skal minnkað-
ur, dregið úr innflutningshömlum
gagnvart Bandaríkjunum og fleiri
löndum, vextir og gengisskráning
verður í samræmi við raunveruleik-
ann og verð á opinberri þjónustu
hækkað.
Petricioli sagði einnig, að mörg
fyrirtæki í ríkiseign yrðu seld einka-
aðilum til að auka afköst í efna-
hagslífí landsins.
I borginni Chihuahua heldur
borgarstjórinn, Luis Alvarez, áfram
hungurverkfalli sínu, sem staðið
hefur í þijár vikur. Alvarez vill með
þessu mótmæla meintu kosninga-
svindli stjómarflokksins, PRI, í
fylkis-og borgarstjómarkosningun-
um sjötta júlí síðastliðinn. Ýmsir
aðilar, þ. á m. stjómarandstöðu-
flokkurinn PAN, kaþólskir prelátar
og samtök um lýðræðisleg réttindi,
reyna nú að fá stjómvöld til að
ógilda kosningamar. Beitt er ýms-
um aðferðum, settir upp vegatálmar
á þjóðvegum, haldnir mótmæla-
fundir, verslunum lokað um tíma
og sparifjáreigendur hvattir til að
taka fé sitt út af bankareikningum.
Ekkert lát virðist á stjómvöldum
enn sem komið er.
MEIRA
EN
VENJULEG
MÁLNING
STEINAKRÝL____
hleypir raka mjög auöveldlega í
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
STEINAKRÝL er mjög veöurheldin
málning og hefur frábært alkalíþol
og viöloöun við stein.
STEINAKRÝL stendur fyrir sinu.
ÓSA/51A
í H-húsinu
Audbrekku Kópavogi
Opið 10-19 á virkum dögum, 10-17 á laugardögum.