Morgunblaðið - 25.07.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
fclk í
fréttum
Söngvan
sveitarinnar Aston
Reymers Rivaler á
fullri ferð.
Listilegt
samspil.
Inn á milli tónanna fengu brandarar að fjúka og svo virðist sem sumir þeirra hafi
verið æði skondnir.
Innlendir jafnt sem erlendir dönsuðu dátt og af mikilli innlifun. Morgunbiaðið/Bjami.
Söngur og spil
í sirkustjaldi
Sumarsins ’86 munu margir
eflaust minnast sem sérlega
viburðaríks tíma, í það minnsta á
menningarsviðinu. Það hófst með
glæsilegri listahátíð, þar sem
fjöldinn allur af frægum erlendum
listamönnum sótti okkur heim og
leyfði okkur að njóta hæfileika
sinna hér norður í hafi. Hefðu þar
allir átt að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi, því fjölbreytnin var
mikil — tónleikar, myndlistar- og
leiksýningar, að ógleymdum hin-
um óvæntu uppákomum ýmissa
hópa á götum úti, sem lífgaði all-
verulega upp á bæjarbraginn.
Varla höfðu svo síðustu lista-
mennimir fyrr kvatt, en aðrar
stjömur tóku að streyma til lands-
ins og í þetta sinn allar norrænar.
N’Art, er yfírskrift þeirrar nor-
rænu listahátíðar sem nú stendur
yfir og er hún haldin í tengslum
við 200 ára afmæli Reykjavíkur-
borgar. Það sem af er henni hefur
mikið verið um að vera á flestum
vígstöðvum, leikhópar hafa látið
ljós sín skína, tónlistarmenn kynnt
okkur sínar stefnur og strauma,
fræðingar haldið fyrirlestra,
galdrað, dansað og allt þar á
milli. Hátíðin hófst þann 18. þ.m.
og lýkur þann 27., eða næstkom-
andi mánudag. Meðal þeirra
erlendu rokksveita, sem fram
koma á hátíðinni em fínnska
sveitin Sielun Veljet og sænska
sveitin Aston Reymers Rivaler,
fyirum kalypsósveit, sem tekið
hefur suðræna taktinn með sér í
rokkið. Báðar hafa hljómsveitim-
ar þegar omið einu sinni fram og
vöktu mikla athygli meðal við-
staddra. Hljómleikamir fóm fram
í stóm sirkustjaldi, sem komið
hefur verið fyrir á háskólavellin-
um. Morgunblaðið leit inn í
gleðskap þann og festi fjörið á
fílmu. Dansinn dunaði og virtust
innlendir jafnt sem erlendir gestir
vera vel með á nótunum. Við birt-
um hér nokkrar svipmyndir frá
samkomunni og bendum þeim á,
sem einhverra hluta vegna létu
þetta fram hjá sér fara, að i
kvöld, föstudagskvöld, mun
hljómsveitin Aston Reymers Riv-
aler koma fram öðm sinni í
tjaldinu ásamt Bjama Tryggva-
syni og Fölu fmmskógadrengjun-
um. Finnamir fmmlegu bíða
hinsvegar til morguns — halda
sína hljómleika annað kvöld ásamt
þeim Bubba Morthens og hljóm-
sveitinni Röddinni.
Davíð Oddsson í
sænsku dagblaði
Do'-d Oddsson pð torget AvftvrvGtiv i Pe’/ífQYik.. Den
ytkóngé tog pj $,-+f konior i emc* 6 000
mifixpgaf*lom ^^n,i & Qfí úsMtro d=te& ned borg-
ta/iskonn
Greinin um Davíð og
Reykjavíkurborg.
að er betra að hægt sé að
kalla einn mann til ábyrgð-
ar, en heilan hóp af fólki er haft
eftir Davíð Oddssyni, borgar-
stjóra í nýlegu viðtali í sænsku
dagblaði. Blaðið gerir að umtals-
efni persónulegt fylgi borgar-
stjórans og skýrir meðal annars
frá því að samband hans við kjós-
endur sé svo náið, að til hans
hafí 6.000 borgarbúar leitað með
sín vandamál á síðasta ári. Hann
er sagður þúsundþjalasmiður —
stjómmálamaður, leikritahöfund-
ur og skáld — maður með
kímnigáfu í ríkum mæli. Þess er
þá einnig getið að þrátt fyrir
hvassyrta gagnrýni og mikinn
mótbyr í síðustu kosningum hafi
hann haldið meirihluta sínum,
hann virðist hafa unnið hugi og
hjörtu Reykvíkinga.
Um borgina sjálfa segir dag-
blaðið að félagsleg vandamál séu
þar fá. Atvinnuleysi er þar ekk-
ert, lítið um drykkjumenn og
eiturlyfjasjúklinga — húsnæðis-
skortur sé það, sem helst hái
henni, enda hefur íbúum fjölgað
allverulega undanfarin ár. Engin
ástæða er þó til að örvænta.
„Davíð lítur björtum augum til
framtíðarinnar, segir borg sína
standa vel að vígi,“ segir blaðið
að lokum.
Tom Selleck ásamt fjölskyldu sinni og fylgdarkonu fyrir framan
stjörnu sína á Hollywood Boulevard.