Morgunblaðið - 25.07.1986, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
43
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/1/T UVVMI káJOL ' u II
Flóknar beygingar-
reglur til baga
Skúli Ólafsson skrifar:
„Flóknar beygingareglur fyrstu
talnanna 1-4 eru mjög bagalegar í
viðskiptum, sem aukast dag frá
degi. Þeir sem fylgst hafa með
uppboði í sjónvarpi, t.d. á fiski eða
korni, hafa væntanlega gert sér
ljóst að ekki gefst mikill tími til að
beygja töluorð. í morgunleikfimi
þarf oft að tæpa á töluorðum t.d.
þrí-fjór fyrir 3-4, en í nafnaþulunni
Einbjöm, Tvíbjöm, Þríbjöm, Fjór-
bjöm em töluorðin einfölduð eins
og er í orðunum einburi, tvíburi,
þríburi, ljórburi og einnig mætti
nefna Pétur þríhross.
Vegna talnaflóðsins á tölvuöld
getur skipt töluverðu máli að töl-
urnar séu skýrar og einfaldar.
Svíar, Norðmenn og Englendingar
hafa einfaldar talnagerðir, en Þjóð-
verjar og Danir em með talnagerðir
sem kalla mætti afturvirkar, þar
er t.d. 52 orðað sem 2 og 50 (hálf
þriðju sinnum tuttugu) og óhentugt
í vélritun. Gamansamur maður
sagði að kunningi sinn væri góður
í tressunum þegar hann heyrði
kunningja sinn vera að þræða þessi
einstigi Dana í talnafræðinni. Danir
taka nýjungum opnum örmum en
ríghalda í þessa sérvisku. íslensku
talnastofnamir ein, tví, þrí og fjór
em stuttir og skýrir en tví og þrí
em of líkir í framburði og má' minna
á að Þjóðveijar hafa zwei og drei
fyrir sömu tölur, en þeir hafa tekið
upp töluna zwo (tvo) fyrir töluna
zwei, þar sem nauðsyn er á skýrri
og ótvíræðri merkingu talna t.d. í
veðurfræði, á uppboðum o.s.frv.
Viðskiptamál (víxlar, ávísanir,
visa-greiðslur) mætti gera einfald-
ari og skýrari með því að taka upp
fasta stofna ein, tvo þrí og fjór í
staðinn fyrir 1 2 3 4 með ijölda
stofnbreytinga og endinga."
Hverjir eiga rás 2?
Anna skrifar:
„Háttvirti Velvakandi!
Astæðan fyrir því að ég skrifa
til þín er sú að ég er mjög óánægð
með vinsældalistann á rás 2. Ekki
bætti það nú úr skák þegar ég las
um svindlið á listanum. Ég hef haft
gmn um það lengi að svindlað hafí
verið á rásinni. Það er kannski erf-
itt að koma í veg fyrir svindl af
ýmsu tagi en mér fannst nú alveg
hámarkið þegar Ragnar Gunnars-
son, söngvari Skriðjöklanna,
hringdi og bað um lagið „Hestar"
með félögum sínum. Stelpan,
starfsmaður rásarinnar, spurði
hann þá hvort hann gæti ekki valið
skemmtilegra lag!!! Getur starfs-
fólkið á rás 2 ekki hugsað sér að
hafa lag á toppnum ef það er flutt
af hljómsveit utan af landi? Það
ætti nú ekki að koma mörgum á
óvart að lögin „Hestar“ og „Tengja"
með Skriðjöklum skuli njóta ein-
hverra vinsælda því þeir em búnir
að gefa um 1.500 eintök af hljóm-
plötu sinni, bæði á Akureyri og í
Reykjavík. Enda þótt starfsliðinu á
rás 2 líki ekki lagið eða vilji taka
það út af listanum, hélt ég að það
væri ekki í þess valdi. Heitir vin-
sældalistinn ekki „Vinsældalisti
hlustenda rásar 2“? Eiga starfs-
Guðrún S. Jóhannsdóttir skrif-
ar:
yVelvakandi.
I þeirri trú að sem flestir vakni
til meðvitundar um hve oft er illa
farið með dýr hér á landi skrifa ég
þessar línur. Nú fyrir nokkmm dög-
um var sagt frá í dagblöðum að
deyddur hefði verið köttur með
steini, þ.e. mannvillidýr hefði læðst
á eftir 4 mánaða gömlum kettlingi
(sem var að leita eftir yl og húsa-
skjóli) og rotað dýrið til ólífís. Engin
lög sem menn hafa sett em nógu
menn rásar 2 e.t.v. að hafa vit fyrir
hlustendum og „leiðrétta" þá ef
þeir em svo ógæfusamir að velja
„vitlaus" lög.
ströng yfír slíkt og álíka athæfí. í
Morgunblaðinu í dag ( 15. júlí) er
frétt af þessu skv. upplýsingum lög-
reglunnar í Reykjavík og einnig
sagt frá tveimur öðmm málum
varðandi ketti, annað þess efnis að
köttur komst inn um glugga íbúðar
og gerði stykki sín í hjónarúm og
gardínur. Skilningsleysi og vesal-
dómur þess fólks sem kvartar til
lögreglunnar er stómndarlegt því
allir heilvita menn vita það að kett-
ir sem eiga góð heimili og gott
atlæti em þrifnustu dýr sem til em,
en í þessu tilviki er um „flækings-
kött“ að ræða og gegnir þá öðm
máli. Þó em klögumál hjóna í vest-
urbæ sem „höfðu orðið fyrir ágangi
kattar sem var eins og lítið ljón“
enn undarlegri. Þama er auðheyri-
lega um útigangsdýr að ræða sem
einhver hefur fleygt frá sér og ver-
ið sett út á guð og gaddinn. Dýrið
reynir auðvitað að ná sér í fæðu
hvar sem er og þessi hjón hafa orð-
ið fyrir ónæði af þessu. Þar sem
þau segjast hafa verið hrædd vegna
ungs bams síns hefðu þau átt að
leita strax til lögreglu. Síðan var
öllu ráðlegra að fara með litla ljón-
ið á Dýraspítala þar sem það hefði
verið svæft, sem virðist oft og tíðum
skásti kosturinn fyrir þessi blessuð
litlu dýr.
Nei góðir meðbræður, kennið
ekki neinum flækingsdýmm um
hvemig komið er fyrir þeim á einn
eða annan hátt, heldur því fólki sem
hefur átt að sjá um þessi dýr í
upphafí en bmgðist skyldum sínum
í þeim efnum. Athugið, það er sama
hvert húsdýrið er úr dýraríkinu. Það
er alltaf og ævinlega manninum að
kenna ef miður fer í samskiptum
þar á milli. Þess verður að gæta
að maðurinn er „æðsta" dýr jarðar-
innar, eða hvað? Þökk skal til allra
þeirra sem dýravinir em í raun og
sannleika, þeir bjarga oft ótrúlega
miklu á erfiðum stundum þessara
sakleysingja."
Kynntð ykkur vaðurepéna éður wi
ýtt ar úr vðr. Fylgict m«ð vaðrl og
vindum og t«nið akkl I tvbýnu.
Kynnið ykkur siglingaraglur og aH-
ar ataðbundnar aðataður. HvoM
bátnum, þA roynið að komaat á
kjðl og vak)a á ykkur athyglL
Munið tilkynningaakyldu. —
Sagðu ábyrgum aðila hvar þú atlir
að sigta — hvart þú astlir og hva-
nrsr þú ráðgarir að koma attur.
Menn eiga sökina
— ekki kettirnir
Hvaða bækur eigum við að lesa
í sumarleyfinu?
JÓIIANNA KRINTJÓNSDÓTTIR
%%stm(hdnmrnir
WiDiam Stuart Loag *
REFSIFANGARNIR BANNFÆRÐ
Ástralíufaramir eftir William
Stuart Long
Refsifangamir og Bannfærð
Þýðandi Ingibjörg Jónsdóttir
Útg. Prenthúsið 1986
Prenthúsið er ötult við að senda
frá sér reyfara sem em bersýnilega
mikið lesnir og kemur þar líklega
margt til; söguefnið nær til margra
og bækumar em ódýrar. Mig minnir
að Morgan Kane-bókin sem getið
var um í þessum dálkum nýlega
hafi verið númer rúmlega fimmtíu
og þá má ekki gleyma ísfólksbókun-
um.
I þessum nýja flokki er sögusviðið
England í fyrstu bókinni. Þetta er á
síðari hluta 18. aldar, Ástralía er
fundin og Bretar sjá að það er kjör-
ið að nema landið með því að senda
þangað þjófa og sakamenn. Þeir
gætu þá gert hvort tveggja í senn,
losað sig við óæskilega aðila og nytj-
að nýja landið.
Jenny Taggart, ung og saklaus
stúlka, verður fómarlamb skringi-
legra og óréttlátra aðstæðna og hún
er ein margra fanga sem Jeggja upp
í hina erfiðu sjóferð til Ástralíu að
taka út hegningu sína. Á skipinu er
hinn mesti óþjóðalýður, sem hrellir
og hijáir góðu fangana og aðbúðin
er ekki upp á maiga físka.
f seinni bókinni er svo sagt frá
fyrstu ámm þessara hópa í nýju
landi. Jenny stendur sig eins og
hetja, ræktar land og lærir veiðiað-
ferð af Ástralíunegmm og lætur sig
ekki dreyma um framtíð annars
staðar. Hún verður stöðugt fyrir
áreitni, en stendur af sér margar
raunir og nýtur virðingar frammá-
manna Breta í nýlendunni.
Ég er ekki svo vel að mér um
sögu Ástralíu á frumbýlingsáram
álfunnar, að ég viti hvort á að líta
á þetta sem sannferðuga frásögn.
Heldur fínnst mér frásagnarmáti
höfundar ósannfærandi til að maður
geri það. En kannski einhveijum
finnist bara gaman að renna yfír
þessar bækur.
A sparkling novel of high-life
glamour.love and intrigue.
Ariana Scott: Indiscretions
Útg. Coronet Books 1985
I kynningu segir meðal annars:
„Jenny Haven er goðsögn í Holly-
wood, kvikmyndadís sem lifir í
bláum heimi og þar sem sólin skín
stöðugt. En hvorki frægðin né eign-
imar né fegurðin geta forðað henni
frá hörmulegum dauðdaga ...“
Lesandi telur sumsé að hér sé
aðalpersónan hin hugnanlega Jenny
Haven. En það kemur I ljós að hinn
hörmulega dauða leikkonunnar ber
að höndum áður en við kynnumst
henni en þess I stað fjallar sagan
um dætur hennar, París, Indland og
Feneyjar. Þær era skfrðar eftir þeim
stöðum þar sem þær komu undir.
Svona var Jenny rómantísk og
óvenjuleg. París vill verða tízku-
hönnuður og slá í gegn, India er
efnilegur innanhússarkitekt og Fen-
eyjar er atvinnukokkur. Síðan er
lýst baráttu þeirra systra að komast
hver á sinn stað í tilverunni. Móðir
þeirra hafði að því er virðist sóað
öllum peningunum sínum, svo að það
er varla króna eftir handa dætran-
um. Þær spjara sig misjafnlega, en
í ljós kemur að svikahrappar hafa
hsit fé af leikkonunni og þá er líklegt
að þær stúlkumar geti komið undir
sig fótunum.
Þetta er boðleg afþreyingarbók
þótt hún risti ekki djúpt. Systumar
era teknar fyrir í köflum, oftast til
skiptis og þær hittast ósköp sjaldan,
svo að sagan er eiginlega þrískipt
saga þeirra systra.
Baðstofan á
Rifi til sölu
Lítið timburhús ca. 70 fm. (Stofa, herb, eldhús,
geymsla, salerni). Tilvalið fyrir sumarhús, verslun eða
annan smárekstur.
Upplýsingar í síma 93-6499 (Páll Ingólfsson) eða 92-
6000 (Einar Jóhannesson.
j Gódan daginn!