Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
12 umferðir búnar á íslandsmótinu:
GuðmundurTorfason með
hæstu meðaleinkunnina
- Og Fram með bestu einkunn liðanna
• Guðmundur Torfason hefur forystu f stigagjöf Morgunblaðsins og er jafnframt markahæsti ieikmaður 1. deildarkeppninnar. Hér fagnar
hann einu marka sínna f sumar.
NÚ ER lokið tveimur þriðju hlut-
um fyrstu deildar íslansdsmóts-
ins f knattspyrnu. Eins og öllu
knattspyrnuáhugafólki er kunn-
* ugt hefur Fram nokkuð örugga
forystu f mótinu, og virðist hafa
haft áberandi besta liðið á
landinu það sem af er sumarsins.
Það hefur skorað flest mörkin,
hefur hæstu meðaleinkunn f ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins, á
markahæsta leikmanninn og á
fjóra af sex stigahæstu einstakl-
ingum, og þar á meðal tvo þá
efstu.
Markabikar Morgun-
blaðsins
Morgunblaðið gefur í fyrsta sinn
í sumar glæsilegan bikar því liði
^ sem flest mörk skorar í 1. deild.
Gripnum er ætlaö að vera hvatning
til liðanna að leika sóknarleik, og
viðurkenning til þess liðs sem
skorar mest. Eftir 12 umferöir í ár
bendir flest til þess að Fram hljóti
bikarinn í haust. Liðið hefur skorað
27 mörk í leikjunum eða rúmlega
tvö mörk aö meðaltali í leik. Það
er glæsilegur árangur.
Skagamenn koma næstir í
keppninni um Markabikarinn, hafa
gert 19 mörk. Valsmenn hafa gert
18, FH hefur gert 17, Þór 16, IBK
' 15, KR 13, UBK og ÍBV 16 og Víðis-
menn hafa aðeins gert 9 mörk í
deildinni til þessa, eða minna en
eitt mark að meðaltali í leik.
Einkunnagjöf Morg-
unblaðsins
Eins og þeim sem fylgjast með
íþróttaumfjöllun Morgunblaðsins
er kunnugt gefur blaðið öllum leik-
mönnum sem þátt taka í leikjum
fyrstu deildar einkunn fyrirframmi-
stööu sína í hverjum leik frá einum
og upp í fimm.
Það eru íþróttafréttamenn
blaðsins sem gefa þessar einkunn-
ir ásamt fréttariturum þess úti á
-•*. landi, sem fylgjast með leikjunum
á Akureyri, Vestmannaeyjum, Suð-
urnesjum og Akranesi. Jafnan er
þessi einkunnagjöf til umræðu
manna á meðal og sýnist sitt hverj-
um um einstakar einkunnir og mat
á frammistöðu leikmanna. Það er
eðlilegt. Einkunnir sem þessar
byggjast ávallt á persónulegri
skoðun hvers íþróttafréttamanns
og geta aldrei orðið algildur mæli-
kvarði. Og því er ekki að neita að
íþróttafréttamennirnir eru stund-
um í vafa um hvaða einkunn
einstakir leikmenn eiga að fá.
Hvað á t.d. að gefa markverði
sem stendur í marki hjá sigurliði,
fær nánast ekkert að gera en
gripur inní af öryggi þegar á þarf
að halda. Á hann að fá 2 fyrir að
gera sáralítið í leiknum, eða á hann
aö fá 4 fyrir að gera engin mistök
í öllum leiknum? Og hvað á að
gefa miöherja í tapliði sem er mjög
ógnandi allan leikinn, skapar sér
og samherjum góð færi með leikni
sinni og hraða — en brennir af
tveimur dauðafærum? Á hann að
fá 4 fyrir að vera varnarskelfir eða
2 (eða 1) fyrir að brenna af færum
sem gætu hafa fært liði hans sigur-
inn í leiknum? Svörin við spurning-
um sem þessum eru ávallt háð
persónulegu mati þess sem fjallar
um leikina.
En þó þessi formáli sé hafður
þá fer ekki milli mála að mjög mik-
ið samræmi er á milli einkunnagjaf-
ar Morgunblaðsins og frammi-
stöðu liöanna á íslandsmótinu. Og
það kemur líklega fáum á óvart að
Guðmundur Torfason skuli vera
með hæstu meðaleinkunnina og
að Pétur Ormslev komi næstur
honum.
Þessir leikmenn hafa hæstu
meðaleinkunn eftir 12 umferðir:
leikir
GuAmundurTorfason, Fram 3,26/12
Pétur Ormslev, Fram 3,08/12
FriArilt FriAriksson, Fram 3,00/11
Óli Þór Magnússon, iBK 3,00/11
Valur Valsson, Val 3,00/11
ViAar Þorkelsson, Fram 3,00/11
Ágúst Már Jónsson, KR 2,91/12
GuAni Bergsson, Val 2,91/12
Gauti Laxdal, Fram 2,87/8
GuAjón ÞórAarson, lA 2,86/7
Og listinn yfir samanlagöa með-
aleinkunn liðanna er á þessa leið:
Fram 29,83 stig
Valur 27,50 stig
ÍBK 26,58 stig
ÍA 26,58 stig
Þór 26,50 stig
KR 26,00 stig
FH 25,91 stig
Víðir 24,91 stig
ÍBV 23,25 stig
UBK 23,08 stig
Fram
Fram hefur átt gott
keppnistímabil það sem af er
sumri, og flestir spá þeim öruggum
sigri á íslandsmótinu og vandséð
hvaða lið stöðvar þá í bikarnum.
Liðið er jafnt, öryggi er yfir leik
þess og greinilegt að leikmennina
hungrar eftir meistaratitlinum sem
Fram hefur ekki unnið síðan 1972.
Sex leikmenn Fram hafa leikið alla
leikina í mótinu til þessa, einn hef-
ur leikið 11 leiki, einn hefur leikið
9 leiki og þrír hafa leikið 8 leiki.
Það eru því greinilega sömu leik-
mennirnir sem skapa þennan
árangur. Guðmundur Torfason
hefur gert 13 mörk fyrir liðið í sum-
ar, Guðmundur Steinsson 6, Pétur
Ormslev 3, Kristinn Jónsson og
Gauti Laxdal 2 hvor og Ormarr
Örlygsson 1. Aðrir hafa ekki gert
mörk í deildinni. Eins og fram kom
á listanum hér að framan þá eru
Guðmundur Torfason, Pétur
Ormslev, Friðrik Friðriksson og
Viðar Þorkelsson stigahæstir
Framara, en Gauti Laxdal og Guð-
mundur Steinsson koma skammt
undan.
Valur
Valsmenn eru í öðru sæti í ein-
kunnagjöfinni en í því þriðja í
deildinni, eftir tapið fyrir Keflvíking-
um á dögunum. Þeir hafa átt
fremur jafna leiki, fengið mjög lítið
af mörkum á sig en ekki skorað
mjög mikið heldur, nema í 7:0
leiknum gegn Breiðabliki. Aðeins
fjórir leikmenn liðsins hafa leikið
alla 12 leikina, þeir Ársæll, Guðni,
Hilmar Sighv. og Ingvar Guð-
mundsson. Tveir hafa leikið 11
leiki, einn hefur leikið 10 leiki, tveir
9 leiki og 4 sex leiki. Alls hefur
Valur notað 19 leikmenn í sumar.
Sigurjón Kristjánsson hefur skorað
flest mörkin, 5 talsins, Hilmar Sig-
hvatsson 4, en aðrir færri. Valur
Valsson hefur hæstu meðalein-
kunnina, næstur honum er Guðni
Bergsson, þá Guðmundur Hreið-
arsson með 2,83, Ársæll með 2,75
og Stefán Arnarson, Hilmar Sig-
hvatsson, Sigurjón Kristjánsson
og Ingvar Guðmundsson hafa
einnig yfir 2,50 í einkunn.
ÍBK
Keflvíkingar eru í þriðja sæti hjá
Morgunblaðinu en í öðru sæti í
deildinni. Þeir byrjuðu
keppnistímabilið ekki mjög vel —
áttu þá í vandræðum vegna
meiðsla og veikinda leikmanna, en
upp á síökastiö hefur liðið verið
illstöðvanlegt. Þrír leikmenn hafa
leikið alla leiki þess í sumar, Þor-
steinn Bjarnason, Freyr Sverrisson
og Gunnar Oddsson. Fimm hafa
leikið 11 leiki, einn 10 leiki og einn
9 leiki. Alls hafa Keflvíkingar notað
18 leikmenn í sumar. Óli Þór
Magnússon er hæstur í einkunna-
gjöfinni, Einar Ásbjörn Ólafsson
er næstur með 2,70 og Þorsteinn
Bjarnason, Sigurður Björgvinsson
og Valþór Sigþórsson hafa einni
meira en 2,50 í meðaleinkunn. Óli
Þór Magnússon hefur gert fimm
mörk í sumar, Freyr Sverrisson 3
og Einar Ásbjörn tvö.
ÍA
Alls hafa tuttugu leikmenn leikið
með ÍA í sumar. Sex hafa leikið
alla leikina, einn 11 leiki og þrír
10 leiki. Það er því á Skaganum
eins og víðast annarsstaðar að
ákveðinn fjöldi leikmanna myndar
kjarnann í liðinu, en um tvær til
þrjár stöður berjast sex til átta
leikmenn sem eru í 20 manna
hópnum. Valgeir Barðason hefur
gert sex mörk fyrir liðið í sumar,
Guðbjörn Tryggvason 4, en aðrir
færri. Guðjón Þóröarson, sem var
meiddur framan af sumri hefur
hæstu meðaleinkunn liðsins 2,85,
en Guðbjörn Tryggvason með 2,75
er honum næstur. Sigurður Lárus-
son og Ólafur Þórðarson hafa
einnig yfir 2,50 í einkunn. Liðið
hefur leikið misjafnlega í sumar,
átt góða leiki og unnið góöa sigra,
en síðan tapað leikjum óvænt —
leikjum sem reiknað var með að
liðið ynni, eins og á móti Víði uppi
á Skaga.
Þór
Þórsarar hafa valdið sjálfum sér
og aðdáendum sínum nokkrum
vonbrigðum í sumar, því búist var
við miklu af liðinu í vor. Þórsarar
hafa þó sýnt í sumar að þeir eru
orðnir rútínerað fyrstu deildarlið,
og eru í öruggri stöðu í deildinni.
Akureyringarnir hafa notað 17 leik-
menn í leikina í 1. deild og þar
hafa 7 leikið alla leikina. Tveir hafa
leikið 11 leiki, einn 10 leiki og einn
9 leiki. Hlynur Birgisson hefur skor-
að flest mörkin, 5 talsins og
Kristján Kristjánsson sömuleiðis.
Sérstaka athygli hlýtur að vekja
að Halldór Áskelsson, sem var
markahæsti maður liðsins í fyrra,
hefur enn ekki skorað mark í deild-
inni í ár. Hæstu meðaleinkunn
liðsmanna hefur Baldvin Guð-
mundsson markvörður 2,83. Jónas
Róbertsson er honum næstur með
2,66, Árni Stefánsson og Halldór
Áskelsson hafa einnig yfir 2,50 í
einkunn.
KR
Lið KR hefur verið skipað mikið
til sömu leikmönnum í allt sumar,
en þrátt fyrir það hefur 21 leikmað-
ur fengið að spreyta sig. Sjö menn
hafa leikiö alla leikina, tveir menn
alla leikina nema einn, einn hefur
leikið 10 leiki og einn 9 leiki. Það