Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 169. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 31. JULI 1986 Prentsmiðja Morgxinblaðsins Vestur-Berlín: Aukínn flótta- mannastraumur veldur deilum Berlin, AP. SNORP orðaskipti urðu milli stjórnvalda í Vestur-Þýskalandi og Austur-Þýskalandi í gær vegna vaxandi flóttamannastraums til Vest- ur-Berlínar. Flóttamennimir, sem flestir era frá þróunarríkjum, koma til Austur-Berlínar með sovéskum og austur-þýskum flugvélum og eru síðan sendir áfram til Vestur-Berlínar, þar sem þeir hafa sótt um pólitískt hæli. I tilkynningu hinnar opinberu austur-þýsku fréttastofu, ADN, segir að ákveðnir vestur-þýskir stjómmálamenn standi fyrir „rógs- herferð gegn austur-þýskum stjóm- völdum“. Þar segir ennfremur að yfirvöld í Vestur-Berlín beri ábyrgð á flóttamannstraumnum, enda hafi þau ekki reynt að koma í veg fyrir hann. Talsmaður vestur-þýsku stjóm- arinnar, Friedhelm Ost, kvaðst vera gáttaður á tilkynningu austur- þýsku stjómarinnar og sagði að öllum væri ljóst að flóttamennimir kæmu án vegabréfs til Austur- Berlínar, þar sem þeir væru sendir Kasparov á sigurlíkur í biðstöðu ÖNNUR einvígisskák Kasparovs og Karpovs í London fór í bið í gærkvöldi. Er Kasparov talinn standa mun betur að vígi. Báðir keppendur lentu í tíma- hraki þegar leið á skákina, en áskorandinn, Anatoly Karpov, veikti peðastöðu sína nokkuð, og er líklegt að Kasparov muni færa sér það í nyt þegar þeir halda áfram skákinni í dag. Sjá „Karpov veikti peðastöð- una í tímahraki" bls. 29. áfram til Vestur-Berlínar. Málið væri komið á það alvarlegt stig að það skaðaði samskipti ríkjanna. Sjá grein af erlendum vett- vangi á bls. 33. AP/Símamynd Jenco fær áheyrn páfa JÓHANNES PáU páfi II. sést hér taka við umslagi úr hendi séra Lawrence Martin Jenco, en í því voru skilaboð frá mann- ræningjum Jenco, en þeir héldu honum í gislingu í 19 mánuði. Sjá nánar um Jenco á blaðsiðu 29. Ennekki samið um SALTII Genf, AP. VIÐRÆÐUM fulltrúa risaveld- anna um Salt II-samkomulagið lauk í gær í Genf með því að Sovétmenn höfnuðu tillögu Bandaríkjamanna um að virða ákvæði Salt-II svo framarlega sem likur væru á að samkomulag næðist um fækkun langdrægra kjaraorkueldflauga. í tilkynningu Sovétmanna segir að Bandaríkjamönnum hafí verið bent á að hætti stjóm Reagans að virða Salt Il-samkomulagið hefði það alvarlegar afleiðingar í för með sér. Reagan Bandaríkjaforseti lýsti yfír því 27. maí sl. að Bandaríkja- stjóm hygðist hætta að virða Salt II-samkomulagið, sem var aldrei staðfest af Bandaríkjaþingi, vegna þess að Sovétmenn hefðu brotið það. I yfírlýsingu, sem Bandaríkja- menn gáfu út eftir viðræðurnar í Genf, segir, að Sovétmenn hafí ver- ið 'hvattir til að taka tilboði Bandaríkjastjórnar um að gera bráðabirgðasamning um gagn- kvæma fækkun langdrægra kjam- orkueldflauga þangað til komist verði að endanlegu samkomulagi. Fundur Samtaka olíuframleiðsluríkja: Sjö ríkí samþykkja skerta framleiðslu Hér sjást flóttamenn frá þróun- arríkjum í Vestur-Berlín, þar sem þeir bíða eftir fari til Vest- ur-Þýskalands. Genf, AP. FORSETI Samtaka olíufram- leiðsluríkja sagði í gær að a.m.k. helmingur aðildarríkja OPEC hefðu samþykkt að draga úr framleiðslu olíu af fúsum og frjálsum vilja. Haft er eftir ónafngreindum heimildarmanni að Saudi-Arabar séu á meðal sjö ríkja sem samþykkt hafa að Hætta talin á þorska- stríði við Svalbarða Oaló, frá fréttaritara Morgunbiaðsins, Jan Erik Laure. TALIN er hætta á að þorskastríð brjótist út á hafsvæðinu um- hverfis Svalbarða, þar sem Norðmenn gera tilkall til 200 mílna fiskveiðilögsögu. í krafti þess hafa þeir ákveðið að hámarks- þorskafli á svæðinu verði 18.600 tonn á þessu ári, til að koma í veg fyrir ofveiði. Evrópubandalagið hefur mótmælt og telur afla- skerðinguna allt of mikla. Þar sem búið er að físka upp í hámarkskvótann, tók þorskveiði- bann gildi á miðnætti í nótt. Norsk stjómvöld hafa aðvarað hlutaðeig- andi þjóðir um stöðvun þorskveið- anna og vestur-þýskir, portú- galskir og margir breskir togarar eru farnir burt af svæðinu. Sömu sögu var að segja af austur- þýskum togurum. 16 spænskir togarar og fáeinir grænlenskir tóku upp veiðarfæri sín, en héldu kyrru fyrir á haf- svæðinu og biðu fyrirmæla frá yfírvöldum heimalanda sinna um stöðvun veiðanna. Skilyrði til fjar- skipta voru slæm í gærkvöldi. Evrópubandalagið mótmælti í gær þorskveiðibanninu opinber- lega. í yfírlýsingu þess segir að aðstoða beri Norðmenn við að varðveita fískstofnana, en veiði- bannið sé ekki byggt á vísindaleg- um forsendum og komi ekki með réttlátum hætti niður á fiskveiði- þjóðunum. Norskir fiskimenn njóta þó engra sérréttinda við Svalbarða, en úr hópi þeirra hafa komið kvartanir um að erlendir togarar stundi rányrkju og veiði aðallega undirmálsfísk. Norsk yfirvöld óttast að Spán- veijamir hefji veiðar þar sem spænskir togarar hafí oft brotið gegn veiðitakmörkunum á þessum slóðum. Þijú norsk varðskip eru á svæðinu og Orion-könnunarvél flýgur daglega yfír til að fylgjast með fískiskipunum. „Við erum viðbúnir öllu. Ef Spánveijamir hefja veiðar, þá tökum við þá. Við vitum ekki, hvemig þeir bregðast við. Til að fyrirbyggja misskilning vegna tungumálaerfiðleika höfum við spænskumælandi túlka um borð,“ sagði yfirmaður varðskipanna, Thorstein Myhre. minnka olíuframleiðslu sína, en nú stendur yfir þriggja daga fundur OPEC í Genf. Forseti samtakanna, Rilwanu Lukman, sagði að samanlagt væri hér um talsverða minnkun olíu- framleiðslu eða 1,6 milljón tunna á dag. Hins vegar hefði ekki enn tekist að ná samkomulagi um sam- ræmdar aðgerðir til að hækka verð á olíu. Lukman viðhafði þessi ummæli á fréttamannafundi en neitaði að segja hvort umrædd ríki minnkuðu framleiðsluna ef önnur ríki OPEC sigldu ekki í kjölfarið. Lukman, sem er olíumálaráð- herra Nígeríu, sagði ennfremur að hann ætti eftir að fá svör frá ráð- herrum sex ríkja um hvort þeir vildu skuldbinda sig til að draga úr olíu- framleiðslu. Olíumálaráðherra íraks sagði hins vegar að það væri ósanngjamt ef OPEC færi fram á að Irakar, sem framleiða nú um tvær milljónir tunna á dag, minnkuðu olíufram- leiðslu sína. Yrði það gert mundi stjóm hans neita að verða við til- mælum þess efnis. Olíumálaráðherrar Sameinuðu arabíska furstadæmisins og Quatar hafa einnig lýst yfír því að ekki komi til greina að draga úr olíu- framleiðslu. Þá hafa Iranar sagt að þeir muni ekki minnka fram- leiðsluna nema að því tilskyldu að öll aðildarríkin gerðu slíkt hið sama. Að dómi fréttaskýrenda bendir af- staða þessara ríkja til þess að litlar líkur séu á að samkomulag náist um einhliða skerðingu olíufram- leiðslu á fundi ráðherranna. Bush í Jórdaníu: Hussein ræðir ekki við Peres Jerúsalem, Amman, AP. VARAFORSETI Bandaríkjanna, George Bush, sagði á miðvikudag að hann bæri skilaboð frá Shim- oni Peres, forsætisráðherra Israels, til Husseins Jórdaníukon- ungs. Bush sagði þó að hvorki væri um að ræða neinar sérstak- ar tillögur, né óvæntar orðsend- ingar. Bush ræddi við Peres í einn og hálfan tíma á miðvikudag, áður en hann hélt til Jórdaníu. Hussein Jórdaníukonungur sagði hins vegar að engar beinar viðræður yrðu við ísraela, nema þær færu fram á al- þjóðlegri ráðstefnu, sem fastafull- trúar öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna tækju þátt í, ásamt öllum málsaðilum í deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Skömmu áður en Bush hélt frá ísrael sagðist hann vona að enginn hefði misskilið för sína til Jerúsalem en Bandaríkin hafa enn ekki viður- kennt innlimun hennar í Israelsríki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.