Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐH), PTMMTUPAGUR Qli'JÚhí WSB
Eyjólfur Guðmundsson skrifar frá Noregi
lil
Marianne Mjáland, læknir, hefir verið i Afghanistan nokkrum sinnum. Hún hefir mjög Látið Afghanistan-
málið til sín taka og ekki látið hræðast að fara inn í landið, þrátt fyrir hernað Sovétmanna.
Norsku Afghan-
istansamtökin
Fyrir nokkru var haldið árlegt
landsþing Afghanistansamtakanna
í Noregi. Þingið var haldið í Höne-
fors, rétt fyrir utan Ósló. Alls
mættu þar um 50 fulltrúar frá hin-
um ýmsu félögum í landinu. Sá sem
þetta ritar mætti fyrir hönd félags-
ins í Sogndal, i Sygna og Firðafylki.
Á landsþingi þessu var nýr formað-
ur valinn, Ivar Eskjeland, sem er
íslendingum að góðu kunnur.
Gegnum Afghanistansamtökin
er rekin víðtæk hjálparstarfsemi við
skæruliðasveitir Afghana, sem berj-
ast hetjulegri baráttu gegn sovéska
innrásarhemum. Það er á allra vit-
orði að Sovétmenn hafa aukið mjög
grimmdarhemað sinn í landinu eft-
ir að Gorbasjov komst til valda í
Kreml, og byijaði friðarvæl sitt og
lygaþvætting varðandi það að Sov-
étmenn hafi áhuga á að draga
hersveitir sínar út úr landinu. Því
miður hafa margir látið blekkjast
af orðum hans, og það jafnvel orðið
til þess að Afghanir hafí fengið
minni hjálp en ella. Þetta var með-
al annars til umræðu á landsþing-
inu, og voru fulltrúar þingsins
sammála um að Gorbasjov væri
slóttugur undirhyggjumaður, sem
talaði um frið og afvopnun meðan
hermenn hans myrða böm og gam-
almenni í nágrannalandinu Afg-
Skæruliðaforingi frá V-Afghan-
istan, sem kom í heimsókn til
Bergen sl. vetur. Hann kom við
í ýmsum skólum þar og var fagn-
að mjög vel af nemendum.
hanistan.
Hjálparstarfsemi Norðmanna við
Afghana er bæði að gefa þeim
meðul og beina læknishjálp, en
einnig að gefa þeim fjármuni og
stuðla að því að þeir fái þau vamar-
vopn, sem þeir þurfa. Norðmenn
hafa þá „sína menn“ bæði inni í
Afghanistan og eins í nágranna-
löndunum. Matvæli, vopn og annað
flytja skæruliðar inn í landið, bæði
á múldýmm og á eigin herðum.
Flugvélar Sovétmanna hafa varpað
sprengjum á þessar flutningalestir
og upp á síðkastið hafa sérþjálfaðir
hryðjuverkamenn sovéska hersins
(Spetsnaz) leitast við að veita
skæruliðadeildunum fyrirsát. Þessi
ófögnuður kemur í mörgum tilvik-
um loftleiðis, frá þyrilvængjum sem
lenda á Qaílstindum, og þar frá
reyna Rússamir að laumast að
skæmliðum. Ekki verða allar þessar
ferðir þeirra til frægðar, þvi Musa-
hedin-skæmliðamir í Afghanistan
em staðkunnugir í íjalllendinu og
harðir bardagamenn, sem ekki
hræðast sár eða bana. Þeir hafa
nú barist við Rússa í 7 ár, og tals-
menn þeirra hafa sagt að þeir muni
halda áfram baráttu sinni, þar til
innrásarherinn hverfur út úr
landinu.
í flokkum afghanskra skæmliða
em ungar stúlkur, sem beijast við
hlið bræðra sinna og ættmenna,
t.d. í héraðinu Nurdistan. Þar búa
enn þann dag í dag afkomendur
hermanna úr liði Alexanders mikla,
sem fór þarna um fyrir um það bil
2500 ámm. Ástæða er til að ætla
að þetta sé rétt, því á þessum slóð-
Skæruliðar í Afhanistan. Fá þeir betri vopn?
um er víða að fínna ljóshært og
bláeygt fólk, sem er annars sjald-
gæft í þessum heimshluta. Bæði í
Nurdistan og í fleiri hémðum, á
landamæmm Afghanistans, gegnt
Pakistan, er nú víða „sviðin jörð“,
og í þorpum sem Rússar hafa lagt
í rústir stendur varla steinn yfír
steini. Óbeyttir borgarar era þá
annaðhvort reknir á flótta eða
SUMARÚTSALAN
HELDUR ÁFRAM
Dömupeysur — Herrapeysur — Barnapeysur —
og buxur. 30—60% verðlækkun
Opið mánudaga — föstudaga frá kl. 9.00—18.00
Dömublússur-
/ PRJÖNAST0FAN
Umttv.
Verslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi.
drepnir. Rússar svífast einskis í
þessu sambandi. Þegar þeir ráðast
á þorp, er það venjulega fyrst með
sprengjuflugvélum, og vopnuðum
þyrilvængjum, sem skjóta á allt sem
lifír og hrærist. Síðan senda þeir
skriðdreka sína inn í þorpin, sem
keyra yfír hús, þótt böm eða gamal-
menni séu þar innan veggja. Þyril-
vængjur Rússa liggja þá eins og
ský yfír skriðdrekasveitunum, og
skjóta í allar áttir. Að siðustu
þramma hermenn Rússa inn á
svæðið og myrða það fólk sem er
á lífi í húsarústunum. — Þeir sem
hafa mesta möguleika á að sleppa
úr slíkum hildarleik lifandi, em
skæmliðar Afghana, en þeir leynast
bæði í húsarústum, hellum og þétt-
um skógi. Þeir hafa því miður
heldur léleg vamarvopn, en nokkuð
hefír þetta lagast síðustu mánuð-
ina, eftir að þeim hefur borist magn
nýtísku eldflauga. Nú tekst þeim
af og til að skjóta niður herflutn-
ingaflugvélar Rússa og þyrilvængj-
ur. Gegn sprengjuflugvélum Rússa,
sem kasta sprengjum úr mikilli
hæð, hafa þeir hinsvegar engin
vamarvopn.
Afghanistanfélögunum hér í
Noregi vex mjög fískur um hrygg.
Sama er einnig að segja í Svíþjóð
og Danmörku. Sagt er að íslending-
ar hafí lítið eða ekkert gert í þessum
málum.
Rétt er að geta þess að samtökin
hér í Noregi gefa út tímaritið Afgh-
anistan nytt, sem hefur inni að
halda mikinn fróðleik um hemaðinn
í þessu Ijarlæga Qallalandi. Fyrir
þá sem vilja kynnast þessum mál-
um, skal bent á að hægt er að
skrifa til:
Afghanistankometeen i Norge,
Postboks 1773, Vika, 0122,
Oslo 1.