Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
21
TF-SIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, lendir í Surtsey, Súlnasker,
Geirfuglasker, Geldungar og Hellisey í baksýn.
Linsa af myndavél í hreiðri svart-
baksins en melgresið veitir gott
skjól.
lagið fokið burt og hart móbergið
berðist nú við vinda og vatn.
Einn landnemi á hveiju
ári í 23 ár
Dr. Sturla Friðriksson sem var í
þessum leiðangri ásamt öðrum
líffræðingi, dr. Borgþór Magnús-
syni, sagði þegar við gengum
saman um „grænu akrana“ þeirra,
að lífið væri erfitt í Surtsey fyrir
plöntumar. Þær næðu sér kannski
á strik en síðan rétt hjörðu þær
áfram og sumar yrðu að lúta í lægra
haldi fyrir öðrum sterkari þáttum
í náttúmspilinu. Þeir Sturla og
Borgþór fóru í þessa könnunarferð
til Surtseyjar til þess að huga að
gróðri og dýralífí, en í ferðinni
fundu þeir 13 tegundir æðri plantna
og þar af þtjár nýjar fyrir eyjuna,
geldingahnapp, langkrækil og vall-
arsveifgras, en líklega hefur það
einnig vaxið í eynni síðastliðið ár.
Síðastliðið sumar fundust aðeins 9
tegundir æðri plantna, en síðan
Surtsey myndaðist árið 1963 hafa
fundist 23 tegundir æðri plantna í
vexti á eynni og samsvarar það því
að ein tegund hafí numið land á ári
í sögu eyjarinnar.
Sumar plönturnar hafa hafið
landnám en ekki náð að verða land-
nemar, því þær hafa ekki lifað af.
Fjöruarfinn er eina plantan sem
hefur náð verulegri útbreiðslu, en
hún fylgir foksandinum út í hraun-
ið. Síðastliðið sumar var gott fræár
og margar ungplöntur hafa vaxið
upp í vor. Stór fjöruarfaplanta get-
ur borið mörg hundruð þúsund
fræja á hveiju ári að sögn dr.
Sturlu þannig að viðkoman getur
verið geysimikil. Víða er fjöruarfinn
farinn að mynda sambýli með öðr-
um tegundum æðri plantna, einkum
melgresi og blálilju. Þá er eftirtekt-
arvert að langkrækill vex á einum
stað í sambýli með mosa. Oftast
vex langkrækill í dýjum eða upp-
þomuðum pollum, en þama í
Surtsey vex hann á flötu hrauni
þar sem vatn safnast í vætutíð.
Geldingahnappur er blómstrandi
efst í barmi gamla gígsins ásamt
skarfakáli og sennilega hefur fugl
borið fræ þessara jurta þangað, því
alveg við jurtirnar er svartbaksbæli
með beinum böndum og spýtum.
Náttúran fléttar styrk
fyrir þróunina
Það er á margan hátt sérkenni-
legt að sjá hvernig náttúran styðst
við hina ýmsu þræði í náttúrunni
og hvað styður annað í þróuninni.
Svartbakurinn notar til dæmis mel-
hólana sem skjól og í stórri melþúfu
austast á eynni var hreiðurstæði
en auk þess að nota svæðið til hreið-
urs ber svartbakurinn áburð á með
driti sínu og einnig ber hann fískúr-
gang sem einnig verður að hluta
til að áburði fyrir gróðurinn. Þá er
eftirtektarvert að silfurmávurinn er
að auka varp sitt á eynni, en dr.
Sturla sagði að þeir Borgþór hefðu
fundið 8 hreiður ýmist með eggjum
eða ungum. Silfurmávurinn notar
mosa við hreiðurgerðina en svart-
bakurinn reytir einkum fjömarfa
til þess að gera hreiður sitt hlýlegra
og oft verpir hann í miðja fjöruarfa-
þúfu.
*
Okeypis hitaveita
hjá fýlnum
Þá var það athyglisvert í þessari
ferð að fýllinn er farinn að velja
gígbarmana sem varpstöðvar. Þar
er ömggt hreiðurstæði án hmn-
hættu sem er allmikil í sjávar-
hömmnum, gott aðflug og fýllinn
virðist njóta hitauppstreymisins úr
hraungígunum og una sér hið besta
þótt því fylgi nokkur brennisteins-
fýla. Allt um það hefur hann
ókeypis hitaveitu.
Dr. Sturla sagði að landnám
lífvera í Surtsey vekti alltaf mikla
athygli meðal líffræðinga og í byij-
un september nk. verður á Hótel
Sögu í Reykjavík ráðstefna um
landnám plantna og uppgræðslu
lands á norðurslóðum, en ráðstefna
þessi er á vegum Alþjóða heims-
skautaráðsins.
Auk þeirra þriggja tegunda æðri
jurta sem em nýgræðingar í Surts-
ey, geldingahnapps, vallarsveif-
grass og langkrækils, búa þar nú
fjöruarfí, melgras, blálilja, baldurs-
brá, túnvingull, bjúgstör, skarfakál,
vegarfi, hundasúra og varpafítjung-
ur.
Lífið heldur áfram sinn gang í
Surtsey, hægt og sígandi, eitt vinn-
ur á og annað lætur undan. Þannig
er Surtsey í stanslausri mótun og
hún er augasteinn margra vísinda-
manna og áhugamanna um þróun
náttúmnnar, enda eins konar al-
hliða sýnishom í jarðfræði og
líffræði.
Grein og myndir:
Árni Johnsen
Um hlutverk utvarps-
ráðs — að gefnu tilefni
• ••
eftirMarkús Orn
Antonsson
Vegna yfírlýsingar fjögurra út-
varpsráðsmanna, þeirra Arna
Bjömssonar, Eiðs Guðnasonar,
Magnúsar Erlendssonar og Mark-
úsar Á. Einarssonar í Ríkisútvarp-
inu og dagblöðum, vill undirritaður
taka fram eftirfarandi:
Það er misskilningur útvarps-
ráðsmanna að ég hafí á nokkum
hátt gefíð í skyn að ný reglugerð
um Ríkisútvarpið breyti í einhveiju
nýjum útvarpslögum, sem gildi tóku
um sl. áramót.
í viðtali við sjónvarpið sl. föstu-
dag dró ég það 'eitt fram, að
breyting hefði orðið á hlutverki út-
varpsráðs með nýju lögunum, og
að það væri nánar skilgreint í nýrri
reglugerð. Þá em ákvæði nýju lag-
anna og reglugerðarinnar að sjálf-
sögðu borin saman við gömlu
útvarpslögin, sem giltu til síðustu
áramóta.
Til að skýra þetta nánar skal
vitnað beint í lögin. I gömlu út-
varpslögunum sagði: „Utvarpsráð
tekur ákvarðanir um hversu út-
varpsefni skuli haga í höfuðdrátt-
um, og leggur fullnaðarsamþykkt á
dagskrá, áður en hún kemur til
framkvæmda." í nýju lögunum seg-
ir: „Útvarpsráð tekur ákvarðanir
um hversu útvarpsefni skuli haga
í höfuðdráttum innan marka fjár-
hagsáætlunar."
I reglugerðinni, sem gefín var út
í sl. viku segir svo m.a.: „Dagskrá
Ríkisútvarpsins skal lögð fyrir út-
varpsráð til kynningar áður en hún
kemur til framkvæmda." (Letur-
breyting mín.)
Markús Örn Antonsson
„Það er misskilningur
útvarpsráðsmanna að
ég hafi á nokkurn hátt
gefið í skyn að ný
reglugerð um Ríkisút-
varpið breyti í ein-
hverju nýjum útvarps-
lögum, sem gildi tóku
um sl. áramót.“
Þegar þetta er skoðað saman,
annars vegar gamla lagaákvæðið
og hins vegar ákvæði nýju laganna
og reglugerðarinnar, má ljóst vera
að breyting hefur orðið á hlutverki
útvarpsráðs.
Útvarpslaganefnd, sem samdi hið
tilvitnaða ákvæði nýju laganna,
skilgreindi þessa breytingu ítarlega
í athugasemdum sínum við útvarps-
lagafrumvarpið. Hún sagði: „I
þessari grein eru nokkrar mikilvæg-
ar breytingar frá 6. gr. núgildandi
laga. I 1. mgr. er ákveðið að út-
varpsráð taki ákvarðanir um hversu
útvarpsefni skuli haga í höfuðdrátt-
um svo sem verið hefur, en því nú
bætt við, að þær ákvarðanir séu
innan marka fjárhagsáætlunar.
Það ákvæði núgildandi laga, að
útvarpsráð leggi fullnaðarsamþykkt
á dagskrá, áður en hún kemur til
framkvæmda er hins vegar fellt út.
Skipulagning dagskrár er orðin
viðamikið starf margra manna og
vart á færi útvarpsráðsmanna að
kynna sér dagskrána ætfð til hlítar
fyrirfram, enda ástæðulaust að út-
varpsráð eyði miklu af tíma sínum
til umfjöllunar um einstaka dag-
skrárliði, og þá oft smávægileg
atriði. Þykir útvarpslaganefnd það
meginatriði að útvarpsráð móti
fyrst og fremst dagskrárstefnuna.
Þessi breyting eykur hlut og þar
með ábyrgð dagskrárstjóranna.“
(Leturbreyting mín.)
Að endingu skal aðeins látin í
ljós von um náið og árangursríkt
samstarf starfsmanna Ríkisút-
varpsins og útvarpsráðs í anda
hinna nýju laga og reglugerðar.
Fyrir starfsmenn Ríkisútvarpsins
er mikilvægt að samstarfsreglur
séu skýrar og að enginn vafí leiki
á um verksvið og ábyrgð þeirra sem
daglegum störfum sinna við undir-
búning og framkvæmd dagskrár
hjá stofnuninni.
Höfundur er útvarpsstjóri.