Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGÍJR 31. JÚLÍ 1986
Akstur og- ölvun
eiga ekki samleið
eftir Margréti
Sæmundsdóttur
Árlega skilur áfengisneysla eftir
sig slóð umferðaróhappa með
hörmulegum afleiðingum. Hvað
skyldu margir menn hafa verið
teknir fyrir meinta ölvun við akstur
árið 1985? Hvorki fleiri né færri
en 2.132 voru kærðir fyrir ölvun
þetta ár. Þó tölumar séu háar segja
þær ekki nema hálfa sögu. Fjöldi
fólks sleppur framhjá vökulum aug-
um lögreglu og eru aldrei kærðir.
Hveijir eru það sem aka undir
áhrifum áfengis?
86,3% þeirra 2.132 sem teknir
voru fyrir ölvunarakstur 1985 voru
karlar, 13,7% voru konur.
Menn á aldrinum 19—24 eru oft-
Herferð
gegn hraðakstrí
||SEB*AR
ast kærðir, eða í 39,2% tilvika, þá
koma menn á aldrinum 25—60 ára,
44,7%. Afgangurinn skiptist á ald-
urinn 19 ára og yngri, 14,6%, og
61 árs og eldri, 1,5%.
Af hveiju er hættulegt að aka
undir áhrifum áfengis?
Afengi sljóvgar menn, slævir
dómgreind manna og viðbragðsflýti
og þar með ökuhæfni. Efnafræði-
lega er vínandi C2, H6 OH. Læknis-
fræðilega er vínandi deyfandi efni,
er slævir eða lamar taugakerfið og
heilann, og setur þar með úr skorð-
um allt stjómunarkerfi mannsins.
Nokkrar staðreyndir
um áfengi
Áfengi meltist ekki. Allur vínandi
fer út í blóðið og brotnar niður í
lifrinni. Vínandi fer hraðar út í
æðakerfið ef áfengis er neytt á
fastandi maga.
Hvað tekur langan tíma að
verða allsgáður á ný?
Lifur mannsins eyðir að meðal-
tali 100 milligrömmm af vínanda/
kg/klst. Þessi bmnahraði helst
stöðugur fyrir sama einstakling en
Margrét Sæmundsdóttir
„Hættuiegastir eru þeir
sem ekki virða lög og
rétt, láta sér ekkert að
kenningu veða og aka
áfram ölvaðir.“
I LANDSBANKANUM FÆRÐU
DOLLARA, PUND, MÖRK,
FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR,
ESCUDOS OG LÍRUR
HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM
g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta
ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda
okkar vísum.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Góða ferð.
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiðlum.
Við minnum líka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.
frávik milli einstaklinga geta verið
vemleg; 50—180 milligrömm af
vínanda kg/klst. í einni flösku (750
ml) af viskíi (45 rúmmáls %) em
268 g af hreinum vínanda. Maður
sem vegur 75 kg brennir á einum
sólarhring 75x100x24=180 þús.
milligrömmum eða 180 grömm af
hreinum vínanda. Það tæki hann
því 1,44 sólarhringa að losna við
þetta vínandamagn úr líkaman-
um.
Gömlu húsráðin eins og köld
sturta, ferskt loft, svart kaffi,
líkamsæfmgar eru gagnslaus. Það
er vinnslan í lifrinni sem ræður ferð-
inni.
Víðast hvar í heiminum em
ströng viðurlög við því að aka und-
ir áhrifum áfengis (og annarra
vímugjafa). Svo er einnig hér á
landi.
Ölvun er metin eftir vínanda-
magni í blóði. Hægt er að mæla
viðkomandi með því að láta hann
blása í þar til gerða blöðm eða með
töku blóð- og/eða þvagsýnis. Sam-
kvæmt íslenskum lögum má ekki
vera meira en 0,50 -0/ til 1,20 1,2
0/ af vínanda í blóði manns til þess
að hann teljist óhæfur að stjóma
ökutæki.
Hveijir eru hættulegastir í
umferðinni?
Hættulegastir em þeir sem ekki
virða lög og rétt, láta sér ekkert
að kenningu verða og aka áfram
ölvaðir. Þeir sem aka ölvaðir telja
sjálfa sig gjaman heiðarlega menn
og bera umhyggju fyrir fjölskyldu
sinni. En þeir vilja ekki horfast í
augu við staðreyndir. „Það kemur
aldrei neitt fyrir mig,“ er viðkvæðið
þangað til um seinan. Það er of
seint að iðrast þegar slys hefur
orðið, og ekki hægt að bæta örkumt
eða þjáningu. Það er ekki einkamál
að aka ölvaður. Ef slys verða af
völdum ölvaðra ökumanna valda
þeir ekki aðeins sjálfum sér mikilli
hugarraun heldur líka öltum sinum
nánustu. Þeir sóa dýrmætum tíma
starfsfólks sjúkrastofnana, dómara
og lögreglumanna. Þeir eiga einnig
dijúgan þátt í hækkun tryggingaið-
gjalda. Missir ökuleyfis er ef til vill
minnsta málið en hefur samt í för
með sér margskonar óþægindi og
kostnað.
Áfengi og akstur em slæmir
fömnautar.
Höfundur er forskólafulltrúi Um-
ferðarráðs.