Morgunblaðið - 31.07.1986, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
ÚTVARP/ SJÓNVARP
Við erum
líka
Símaspjall hefír færst mjög í
aukana með tilkomu rásar
tvö. Er slíkt spjall orðið næsta
hversdagslegt en samt sperrir mað-
ur nú ætíð eyrun þegar hlustendur
hringja, það er jú aldrei að vita
nema leyndarmál afhjúpist. Helsti
ókosturinn við símaspjallið á rás tvö
er hversu margir krakkar hringja
og flissa einhveija andleysu í tólið.
En stundum ber þó svo við að mál-
æðið ýtir við gráu sellunum í höfði
undirritaðs. Lítum til dæmis á til-
svör tveggja hlustenda í símaþætti
morgunþáttarmanna í fyrradag.
Spurt um skattinn
{ þessum símaspjallsþætti var
fólk spurt um skattinn. Að venju
hringdi hópur af krökkum og voru
sumir óánægðr með skattlagningu
sumarvinnunnar, jafnvel þótt upp-
hæðimar væru stundum ekki háar,
svona 500-700 krónur á mánuði.
En svo hringdi ungur maður eld-
hress og kotroskinn: Ég er að vinna
hjá manni sem er ekkert að segja
frá því að ég vinn hér.. . Andar-
taks þögn og þá spyr útvarpsmað-
urinn. Og skammastu þín ekkert
fyrir að segja frá því? Nei, nei. Og
hvað ertu með í tekjur? 70 þúsund
á mánuði. Ég rek ekki frekar sam-
talið en skömmu síðar hringir
miðaldra kona. Ert þú ánægð með
skattinn þinn? Ég fékk engan tekju-
skatt að þessu sinni, bara eigna-
skatt, en mig langar að segja frá
því hvað ég hafði í laun á síðasta
ári. Ég hafði 157.000 krónur og
af þeim launum var mér ætlað að
framfleyta dóttur minni og halda
íbúð. Og er þetta fyrir fulla vinnu?
spyr útvarpsmaðurinn. Já, fyrir átta
stunda vinnu og mig langar að
spyija ráðamenn þjóðarinnar hvort
þeir treysti sér til að lifa af þessum
launum? Ertu í verkalýðsfélagi? f
Framsókn og fæ þessi laun eftir 6
ára starf og einnig var húsmæðra-
skólamenntunin loksins metin en
ég hef verið húsmóðir í 21 ár.
Að gamni reiknaði ég út hve lengi
þessi ágæta kona væri að vinna
fyrir mánaðarlaunum hæsta skatt-
greiðanda höfuðborgarinnar og
komst að því að það tæki hana
ríflega fimmtán ár.
Fréttir á síðkveldi
Ég minnist þess ekki að hafa
fyrr fjallað um fréttir sjónvarps er
ber fyrir augu við lok dagskrár.
Fyrst í stað var þessi fréttatími
aðallega notaður til að rifla upp
helstu atriði aðalfréttatímans og er
svo enn en þó hefir mikilvægi þessa
síðkveldsfréttatíma aukist nokkuð
uppá síðkastið. Þannig birtast æ
oftar í þessum fréttatíma glóðvolg-
ar fréttir er hafa borist inn á borð
fréttamannanna fyrr um kvöldið
eða hver man ekki eftir því er Guð-
mundur Jaki var dreginn „glóðvolg-
ur“ úr flugvélinni inn í einn
síðkveldsfréttatímann og í fyrra-
kveld náði að birtast yfirlýsing
yfirmanna í bandaríska viðskipta-
ráðuneytinu þar sem Steingrímur
er fordæmdur fyrir að lesa upp úr
„leyniskjölum" ráðuneytisins.
Slíkar fréttir eru ekki beint til að
róa hugann fyrir svefninn. Þannig
dreymdi mig í fyrrinótt hræðilega
drauma um höfrunga er krömdust
sundur þúsundum saman í túnfisks-
kraftblökkum og sumir töluðu
mannamál og hrópuðu á hjálp: „We
are also whales!" Eða á íslensku:
við eru einnig hvalir! En eins og
menn vita er talið að höfrungar séu
vitrastir hvala og hafi jafnvel greind
á við menn.
Ólafur M.
Jóhannesson
Reykjavík í
augnm skálda
Myndir af f öður
mínum grátandi
■I í kvöld verður
20 tekið fyrir tíma-
bilið frá árinu
1945 til ársins 1955 í þætt-
inum Reykjavík í augum
skálda á rás 1.
Lesin verða ljóð frá þess-
um tíma, sögur og frásagn-
ir. Meðal annars ætlar
Halldór Kiljan Laxness að
lesa úr Atómstöðinni, lesið
verður úr Sóleyjarsögu eft-
ir Elías Mar, ljóð eftir
Hugrúnu, Sigfús Daðason,
Stefán Hörð Grímsson og
fleiri.
Umsjónarmenn eru þau
Símon Jón Jóhannsson og
Þórdís S. Mósesdóttir. Les-
ari með þeim er Inga Hildur
Haraldsdóttir.
Halldór Laxness les úr
Atómstöðinni i þættinum
um Reykjavík í augum
skálda í kvöld.
WM Sagan Myndir
20 af föður mínum
grátandi eftir
Bandaríkjamanninn Dori-
ald Barthelme er á dagskrá
rásar 1 kl. 22.20. Hallberg
Hallmundsson þýddi en
Ámi Blandon les og flytur
inngangsorð.
Donald Barthelme fædd-
ist árið 1931. Hann er
allþekktur smásagnahöf-
undur, meðal annars er
mikið lesið eftir hann í
háskólum i Bandaríkjun-
um.
í sögunni fjallar hann
um blekkingu sem hann
telur að búi í frelsi nútíma-
mannsins, rejmir að færa
nútímamanninn nær sjálf-
um sér og biður hann að
endurskoða mörkin á milli
veruleika og ímyndunar.
Hannes Baldursson og
Mendelsohn-fiðlukonsertinn
■i í kvöld verður
00 flutt á rás 1 leik-
ritið Hannes
Baldursson og Mendel-
sohn-fiðlukonsertinn í
leikgerð Þórdísar Bach-
mann.
Verkið er byggt á sögu
eftir Barry Targan og fjall-
ar um miðaldra verslunar-
mann, Hannes Baldursson,
sem býr í litlu þorpi út á
landi og leikur gjaman á
fiðlu í tómstundum. Dag
einn ákveður hann að veija
aleigunni til að láta stóra
drauminn rætast og halda
tónleika í Reykjavík með
sinfóníuhljómsveitinni.
Fjölskylda hans, vinir og
vinnufélagar eru ekki ýkja
hrifín af uppátækinu og
óttast að Hannes verði að
athlægi um allt land. Neyta
þau allra bragða til að
stöðva hann.
Með hlutverk Hannesar
fer Aðalsteinn Bergdal en
aðrir leikendur eru Asdís
Skúladóttir, Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir, Rúrik Har-
aldsson, Erlingur Gíslason,
Jakob Þór Einarsson, Karl
■I í þættinum Um
00 náttmál á rás 2
“" verður að þessu
sinni rætt við þá Friðrik
Þór Friðriksson kvik-
myndagerðarmann, Einar
Kárason rithöfund og Ara
Guðmundsson, Valdemar
Helgason, Skúli Gautason,
Valdimar Öm Flygenring
og Þröstur Leó Gunnars-
son. Leikstjóri er Helgi
Skúlason og tæknimaður
Hreinn Valdimarsson.
Leikritið verður endur-
flutt þriðjudaginn 5. ágúst
kl. 22.
Kristinsson kvikmynda-
tökumann. Þeir hafa allir
tekið þátt í „íslenska kvik-
myndaævintýrinu" svo-
nefnda og em núna að
vinna að nýrri mynd,
„Skyttunum".
Um náttmál
Tónlistarkrossgátan
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
31. júlí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veöurfregnir
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Góöir dagar" eftir
Jón frá Pálmholti. Einar Guö-
mundsson les (2).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesiö úr forystugreinum
dagblaöanna.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ég man þá tíð
Hermann P.agnar Stefáns-
son kynnir lög frá liönum
árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. ■ Umsjón:
Guömundur Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Efri ár-
in. Umsjón: Finnbogi
Hermannsson.
14.00 Miðdegissagan:
„Katrín", saga frá Álands-
eyjum eftir Sally Salminen.
Jón Helgason þýddi. Stein-
unn S. Siguröardóttir les
(23).
14.30 I lagasmiðju Oddgeirs
Kristjánssonar.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Á hringveginum —
Noröurland. Orn Ingi, Anna
Ringsted og Stefán Jökuls-
son.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Rapsódiur Franz Liszts.
Fjóröi þáttur. Umsjón: Guö-
mundur Jónsson.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Vernharöur Linnet.
Aöstoöarmaöur: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.45 I loftinu. — Hallgrímur
Thorsteinsson og Guölaug
María Bjarnadóttir. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Guðmund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
20.00 Leikrit: „Hannes Bald-
ursson og Mendelssohn
fiölukonsertinn". Leikgerö
Þórdísar Bachmann eftir
smásögu Barry Targans.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Leikendur: Aöalsteinn
Bergdal, Ásdís Skúladóttir,
Lilja Guörún Þorvaldsdóttir,
Rúrik Haraldsson, Erlingur
Gíslason, Jakob Þór Einars-
son, Karl Guðmundsson,
19.16 Á döfinni
Umsjónarmaöur Maríanna
Friöjónsdóttir.
19.26 Litlu Prúöuleikararnir
(Muppet Babies) — Annar
þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson.
Þýöandi Guöni Kolbeins-
son.
19.60 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.35 Rokkarnir geta ekki
þagnaö
Magnús Þór Sigmundsson
flytur nokkur lög og Abdou
leikur undir á ásláttarhljóö-
færi.
Umsjón: Jón Gústafsson.
Valdemar Helgason, Skúli
Gautason, Valdimar Flygen-
ring og Þröstur Leó Gunn-
arsson. (Endurtekiö nk.
þriðjudagskvöld kl. 22.20.)
20.40 Óbótónlist ítalskra óper-
utónskálda. Hansjörg
Schellenberger og Rolf Ko-
enen leika á óbó, enskt
horn og píanó lög eftir Pon-
chielli, Rossini, Yvon,
Donizetti og Pasculli. Fyrri
hluti. Kynnir: Guömundur
Gilsson. (Hljóðritun frá
Berlinarútvarpinu).
21.20 Reykjavík í augum
skálda. Umsjón: Símon Jón
Jóhannsson og Þórdis Mós-
esdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 „Myndir af fööur minum
grátandi", smásaga eftir
Donald Barthelme. Hallberg
Hallmundsson þýddi. Árni
Stjórn upptöku: Björn Emils-
son.
20.56 Bergerac
— Annar þáttur
Breskur sakamálamynda-
flokkur i tíu þáttum.
Söguhetjan er Bergerac
rannsóknarlögreglumaður
en hver þáttur er sjálfstæö
saga.
Aöalhlutverk John Nettles.
Þýöandi Kristmann Eiösson.
21.65 Heimsókn á Picasso-
sýningu Listahátíðar
Forseti Islands, Vigdís Finn-
bogadóttir, skoöar sýning-
una í fylgd Jacqueline
Picasso. Áður á dagskrá
þann 17. júni síöastliöinn.
Blandon les og flytur inn-
gangsorö.
23.20 Á slóöum Jóhanns Se-
bastians Bach. Þáttaröö
eftir Hermann Börner frá
FIMMTUDAGUR
31. júlí
9.00 Morgunþáttur
i umsjá Ásgeirs Tómasson-
ar, Gunnlaugs Helgasonar
og Kolbrúnar Halldórsdótt-
22.15 Seinni fréttir
22.20 Staðgengill Picones
(Mi Manda Picone)
(tölsk biómynd um iöandi
mannlífið í Napólí.
Leikstjóri Nanni Loy.
Aöalhlutverk: Giancarlo
Giannini og Lina Sastri.
Maöur aö nafni Picone
sviptir sig lifi en líkiö af hon-
um hverfur. Ekkjan felur
manntetri nokkru aö leita
líksins. Sá kemst á snoöir
um ýmislegt dularfullt á slóö
Picones og fyrr en varir er
hann nauöugur viljugur tek-
inn aö gegna störfum hans.
Þýöandi Steinar V. Árnason.
00.20 Dagskrárlok.
austur-þýska útvarpinu.
Þriðji þáttur. Umsjqn: Jór-
unn Viöar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
12.00 Hlé.
14.00 Andrá
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00 Sólarmegin
Þáttur um soul- og funktón-
list í umsjá Tómasar
Gunnarssonar. (Frá Akur-
eyri)
16.00 Hitt og þetta
Stjórnandi: Andrea Guö-
mundsdóttir.
17.00 Gullöldin
Guömundur Ingi Kristjáns-
son kynnir lög frá sjöunda
áratugnum.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö
Leopold Sveinsson kynnir
tiu vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Um náttmál
Árni Þórarinsson sér um
þáttinn.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Strákarnir frá Muswell-
hæð
Fimmti og siöasti þáttur þar
sem stiklaö er á stóru í sögu
hljómsveitarinnar Kinks.
Umsjón: Gunnlaugur Sig-
fússon.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
1. ágúst
ur. Guöríður Haraldsdóttir
sér um barnaefni í u.þ.b.
15 minútur kl. 10.05.