Morgunblaðið - 31.07.1986, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
Minning:
1*
stór
og sterkur
ÞJÓÐÞRIFARÁÐ FRÁ PLASTPRENT
SVÖRTU - STÓRU sorpsekkirnir frá Plastprent nýtast þér á marga vegu,
á heimilinu, í garðinum, sumarbústaðnum, ferðalaginu.
Svörtu plastpokarnir frá Plastprent eru sannkallað þjóðþrifaráð þegar taka
þarf til hendinni og sópa út úr hornunum.
Fást í öllum matvöruverslunum, byggingavöru- Einfalt og þægilegt statíf fyrir þá
verslunum og á bensínstöðvum um allt land. sem nota mikið af þeim STÓRA frá
Plastprent.
Brautryöjandi á svidipökkunar
Plastprent hf.
Höfðabakka 9, sími 685600
Sva var Magnússon
Fæddur 17. apríl 1931
Dáinn 22. júlí 1986
Það er fögur sveit Landsveitin.
í austri gnæfír Hekla yfír sveitinni
með sinni miklu reisn, í vestri renn-
ur Þjórsá stærsta vatnsfall landsins.
í þessari sveit fæddist vinur okkar.
Foreldrar hans voru Magnús Sig-
urðsson bóndi á Leirubakka og
síðari kona hans Jóhanna Jóns-
dóttir, börn þeirra voru Svavar,
Jóna og Jón. Böm Magnúsar frá
fyrra hjónabandi vom 7, þar af em
2 dáin.
Svavar ólst upp við venjuleg
sveitastörf á Leimbakka. Sautján
ára gamall fór hann fyrst til Veiði-
vatna, til veiða, sem í þá daga vom
ailmiklar ferðir, yfír stór vatnsföll
að fara. í heimahúsum dvaldi hann
til 1954, þá fór hann til starfa á
Keflavíkurfiugvelli og síðan vann
hann í nokkur ár hjá steinsteypu-
stöð B.M. Vallá, einn af fyrstu
starfsmönnum þess fyrirtækis. Því
næst hóf hann akstur leigubíla,
fyrst um tíma hjá Bifreiðastöð
Steindórs en svo akstur eigin bíls
hjá Bæjarleiðum og starfaði við það
ailt fram á síðastliðið vor að heilsa
hans bilaði. Svavar var góður vinnu-
félagi, hæglátur í allri umgengni
og vel látinn af vinnufélögum á
Bæjarleiðum. Hann var víðlesinn
og fróður um marga hluti þó skóla-
gangan hafi ekki verið mikil. Kynni
okkar, veiði- og spilafélaga hans
hófust er hann byijaði að starfa á
Bæjarleiðum. Því er margs að
minnast eftir nær 30 ára kynni.
Veiðiferðir um hálendið, á Arnar-
vatnsheiði og Veiðivötn og laxveiði-
ferðir um 20 ára skeið, geyma
minningu um afburða veiðimann
sem Svavar var, en hann var harð-
dugiegur göngumaður og fjölhæfur
veiðimaður. I þessum ferðum var
oft slegið á létta strengi og glatt á
hjalla.
Um árabil spiluðum við bridge
saman á vetrum. Þá var oft rætt
um væntanlega veiði næsta sumars
og sagðar veiðisögur. Allar þessar
samverustundir þökkum við nú og
geymum minningu um góðan vin,
sem nú er kvaddur. Innilegar sam-
úðarkveðjur sendum við móður
hans og systkinum.
Guð blessi minningu hans.
Þorkell Þorkeisson
Guðbjartur Fransson
Narfi Hjartarson
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargrein-
ar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast
í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni
ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minning-
arorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili. Meginregla er að minningargreinar
birtist undir fullu höfundamafni.
Þegar þú velur trimmgalla frá World Apart velur þú sjálf(ur)
saman buxur og peysur. Fjölmargar geröir - nýjustu
tískulitirnir. Stærðir: Small - Medium - Large.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 42
tVJ?
oS
to'