Morgunblaðið - 31.07.1986, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
V
WM
■am
Góðar endurminn-
ingar frá þjóðhátíðum
- segir Valtýr Snæbjörnsson, byggingafulltrúi
Vestmannaeyjum.
ÞEGAR þjóðhátíö í Herjólfsdal er
hafin og gestir ganga til skemmt-
unar og fagnaðar í fagurlega
skreyttum dalnum, gera kannski
ekki allir sér grein fyrir því gifur-
lega starfi fjölmargra sjálfboða-
liða sem liggur þar að baki. í
heilan mánuð hefur stór hópur
tryggra og fórnfúsra manna og
Frá vinstri: Þór Vilhjálmsson formaður þjóðhátíðarnefndar, Þorsteinn
Ingólfsson, Friðrik Már Sigurðsson og Guðni Sigurðsson.
Brekkusviðinu breytt
Vestmaunaeyjum.
VESTMANNEYINGAR eru nú
farnir að telja dagana fram að
þjóðhátíð sem verður í Herjólfsdal
um næstu helgi. Fólk er farið að
viðra þjóðhátíðartjöldin og koff-
ortin, mála tjaldsúlurnar og taka
til vistir fyrir búferlaflutningana
í dalinn. A fimmtudaginn verður
tjöldun leyfð og þá hefst mikið
kapphlaup um góðar „lóðir“. Um
kvöldið verða síðan upphitunar-
dansleikir í bænum.
„Allur undirbúningur hefur gengið
mjög vel, jafnvel betur en oft áður,
og hér verður allt til reiðu á föstudag-
inn þegar hátíðin hefst,“ sögðu Þór
Vilhjálmsson og Þorsteinn Ingólfsson
í þjóðhátíðarnefnd íþróttafélagsins
Þórs, þegar fréttaritari truflaði þá
önnum kafna við vinnu í Heijólfsdal.
Um allt hátíðarsvæðið voru menn og
konur að störfum við að smíða, mála
og koma upp ýmsum mannvirkjum.
Rafvirkjar voru að koma fyrir um-
fangsmiklum Ijósaskreytingum. Þeir
Þór og Þorsteinn sögðu að góður
kjarni dugmikilla félaga í Þór hefði
mætt vel til vinnu og mannvirkin
hefðu rokið upp. „Skreytingar í daln-
um verða svipaðar og áður hjá okkur,
það er ávallt ákveðinn heildarsvipur
yfir svæðinu. Við höfum þó breytt
brekkusviðinu verulega, snúið því og
stækkað, og einnig stækkað stóra
danspallinn. Þá verður nú algjör bylt-
ing f hreinlætisaðstöðu á svæðinu,
Þór, Týr, skátafélagið og bærinn
hafa byggt hús fyrir hana og er hún
nú komin í varanlegt horf.“
Dagskrá þjóðhátíðardagana þijá
verður vönduð og fjölbreytt eins og
áður hefur komið fram í Morgun-
blaðinu. Hátíðin verður sett kl. 14 á
föstudaginn og alla þijá dagana verð-
ur svo til samfelld dagskrá í dalnum
frá hádegi og fram á rauða morgun.
Fastir og ómissandi liðir þjóðhátíða
verða á sínum stað, kveikt verður í
gríðarstórri brennu á Fjósakletti á
miðnætti föstudags, stórfengleg flug-
eldasýning verður á laugardagskvöld,
varðeldur og brekkusöngur með al-
þingismanninn Árna Johnsen sem
forsöngvara á sunnudagskvöld.
Óskar Svavarsson mun sýna bjargsig
í Fiskhellanefi á föstudaginn. Sér-
stakt þjóðhátíðarlag hefur verið
samið og stórt og vandað þjóðhátíðar-
blað kemur út. Aðgangur að hátíðinni
verður 2.000 kr. og er þar innifalinn
aðgangur að svæðinu og tjaldstæð-
um, öll skemmtidagskrá og aliir
dansleikir á tveimur pöllum.
Þór og Þorsteinn voru spurðir um
væntanlega aðsókn að hátíðinni.
„Okkur heyrist að hingað verði
straumur fólks og við finnum að það
er mikil stemmning fyrir þjóðhátíð-
inni. Ef veður verður gott, reiknum
við með miklum mannfjölda. Allar
aðstæður í Heijólfsdal eru góðar til
að taka við miklum fjölda fólks en
við viljum minna fólk, sem hyggst
búa í tjöldum, á að koma vel útbúið
fyrir útilegu." -hlý.
kvenna úr því íþróttafélagi sem
að hátíðinni stendur hverju sinni,
unnið á hveiju kvöldi og um allar
helgar við að klæða dalinn i þann
skrúða sem síðan blasir við gestum
þegar hátíðin hefst. Sérstök þjóð-
hátíðarnefnd hefur starfað frá
áramótum að margvíslegum undir-
búningi.
Iþróttafélagið Þór og Knattspymu-
félagið Týr skiptast á um að halda
þjóðhátíðina og afrakstur hennar er
helsta tekjulind þeirra. Að þessu sinni
er það Þór sem stendur fyrir hátíð-
inni, þessari öldnu en síungu hátíð
sem er fastur og órjúfanlegur punkt-
ur í tilveru Eyjabúa. Hátíðin var fyrst
haldin 1874 og aðeins i örfá skipti
fallið niður síðan.
Fréttaritari brá sér eina kvöldstund
í Heijólfsdal að skoða framgang
mála þar og ræða við fólk að störf-
um. Þar hitti hann að máli Valtý
Snæbjömsson byggingafulltrúa, sem
er heiðursfélagi í Þór fyrir mikil og
góð störf fyrir félagið í áraraðir, jafnt
innan vallar sem utan. „Ég byijaði
sem krakki að vinna við þjóðhátíðar-
undirbúning fyrir Þór og var í
þjóðhátíðamefnd félagsins frá 1942
til ársins 1974 þegar við héldum upp
á 100 ára afmæli þjóðhátíðarinnar.
Ég var því í nefndinni einar 15—16
þjóðhátíðir, var aðeins ijarverandi
eina hátíð, árið 1948, en þá fór ég á
síld. Þegar ég hætti í nefndinni voru
strákamir mínir komnir af fullum
krafti í þetta svo mér fannst tími til
kominn að draga mig í hlé en ég
mæti samt ailtaf í dalinn á Þórsþjóð-
hátíðum og reyni að hjálpa eitthvað
til. Þetta er alltaf jafnskemmtilegt
og hér ríkir ávallt góður andi,“ sagði
Valtýr Snæbjömsson. Hjá Þór er brú-
in yfir tjömina einskonar tákn
þjóðhátíðarinnar en hún er hugmynd
Valtýs, hann er eini starfandi brúar-
smiðurinn í Eyjum. „Já, brúin er
mitt verk frá upphafi, en margir góð-
ir félagar hafa unnið með mér að
brúarsmíðinni, lengst framan af var
það Guðlaugur vinur minn Helga-
son,“ sagði Valtýr. „Þetta er traust
og gott mannvirki sem þolir mikla
umferð og til þess að staðfesta það
fékk ég bankastjórann okkar til þess
að aka yfir brúna á bílnum sínum
um daginn, tvær ferðir frekar en
eina.“ Valtýr sagðist ávallt hafa haft
jafnmikia ánægju af því að vinna í
dalnum fyrir þjóðhátíð. „Engin þjóð-
hátíð er mér svo sem annarri eftir-
minnilegri, ég á bara góðar
endurminningar frá þjóðhátíðum í
Heijólfsdal."
- hkj.
Morgunblaðið/Torfí Haraldsson
Valtýr Snæbjörnsson, byggingafulltrúi, átti hugmyndina að brúnni
í Herjólfsdal, sem nú er orðin einskonar tákn þjóðhátíðarinnar.
VERSLLJNARMAN riAHELQI N
»/.. *».»**"*** **■ ***./». m, m. .<m m. mv. mí. m>. immr' m*.. m. .»
HEFST í EVRáFU í
Sensation og Módelsamtökin koma öllum í ferðaskapið
Verslunarmannahelgin hefst með
réttu á morgun. Þrátt fyrir það tökum
við forskot á sæluna í EVRÓPU í kvöld,
því nauðsynlegt er að koma sér í rétta
ferðaskapið sem allra fyrst.
Við höfum haft spurnir af því að fjöldi
fólks, sem ætlar á Þjóðhátíðina í
Eyjum, hyggist fjölmenna í EVRÓPU í
kvöld.
Módelsamtökin sýna baðfatatískuna
frá Sportvöruverslun Ingólfs Óskars-
sonar og sólgleraugu frá Linsunni, því
enginn getur farið baðfata- og sólgler-
augnalaus í ferðalagið.
Hollenska söngtríóið Sensation fékk
frábærar móttökur um síðustu helgi,
enda eru þau með stórgott atriði sem
enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Komdu í EVRÓPU í kvöld og fáðu óska-
byrjun á Verslunarmannahelgina.
Opið frá kl. 22.00-01.00
Borgartúni 32
„Góð aðsókn að
ferðum Smyrils“
— segir Engilbert Gíslason hjá
Ferðaskrifstofu Vestmannaeyja
BÚIST er við miklum mannfjölda á Þjóðhátíð Vestmannaeyja um verslun-
armannahelgina og ef svo fer fram sem horfir stefnir í metaðsókn að
þessari elstu og þekktustu útihátíð landsins. Fréttaritari hafði samband
við þá aðila sem annast um mannflutninga milli lands og Eyja um þjóð-
hátíðina og bar þeim öllum saman um að mikil og vaxandi eftirspurn
væri eftir ferðum til Eyja þessa helgi og fólk væri nú mun fyrri til að
ákveða sig og panta far tímanlega en áður.
Bragi I. Ólafsson umdæmisstjóri sagði að búinn væri að vera mikill
Flugleiða í Vestmannaeyjum sagði að
þegar væri búið að bóka í 14 vélar á
föstudaginn og mikið fleiri ferðum
annaði Flugleiðir varla á einum degi.
Þá er búið að bóka í 7 vélar á fimmtu-
daginn. Sagði Bragi að bætt yrði við
vélum eins og unnt væri til þess að
anna eftirspuminni.
Hjá Heijólfi er búið að panta alla
klefa og allt bílapláss i skipinu fram
yfir Þjóðhátíð en skipið mun fara tvær
ferðir á dag, miðvikudag, fimmtudag
og föstudag. Hugsanlega verður enn
bætt við ferðum ef þörf verður á.
„Við erum kátir menn þessa dag-
ana og þegar er ljóst að þetta dæmi
ætlar að gánga upp hjá okkur“, sagði
Engilbert Gíslason hjá Ferðaskrif-
stofu Vestmannaeyja þegar hann var
spurður um aðsókn að ferðum Smyr-
ils sem FV tók á leigu fyrir Þjóðhátíð-
arumferðina. Skipið kemur til
Seyðisfjarðar á fimmtudagskvöld og
til Eyja á föstudagsmorgun. Engilbert
erill hjá þeim síðustu dagana, þeir
væru komnir með net úmboðsmanna
víða um land og þá hefði verið mikið
að gera við að senda miða til staða
þar sem ekki væru umboðsmenn.
„Það hefur komið í ljós sem við vissum
fyrir, að full þörf og nægur markaður
var fyrir þetta skip. Það er ljóst að
Austfirðimir koma mjög sterkir út
og þar og víðar á landinu hefur þetta
framtak okkar mælst vel fyrir." Engil-
bert sagði ennfremur að vel hefði
selst í skipið í Færeyjum, betur en
hann hefði reiknað með fyrirfram.
Þá hefði og verið talsvert spurst fyrir
um ferðir með skipinu til Færeyja
aftur.
Auk þeirra aðila sem hér hafa ver-
ið nefndir er vitað að Leiguflug
Sverris Þóroddssonar mun fljúga á
klukkustundar fresti milli Hellu og
Vestmannaeyja þjóðhátíðardagana.
-hkj