Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
59
Miklar annir vegna bil-
ana á jarðsíma á sumrin
Jóhann Hjálmarsson, blaðafull-
trúi Póst- og símamálastofnunar
skrifar:
„f dálkum Velvakanda (22.7. sl.)
birtist kvörtun íbúa við Seilugranda
vegna þess sem hann kallar „furð-
anlega lélega þjónustu Pósts og
síma“. íbúinn heldur því fram að
fjölbýlishúsið sem hann býr í hafi
verið símasambandslaust í viku.
Þegar hringt hafi verið í forráða-
menn Pósts og síma um helgina
(væntanlega 12.—13. júlf) segir
hann að þau svör hafí fengist að
ekki væri gert við um heigar.
Fimmtudaginn 10.7. sl. barst
kvörtun um bilun á síma frá Seilu-
granda 5. Við athugun bilanaþjón-
ustunnar kom í ljós að um bilun á
jarðsímastreng væri að ræða. Dag-
inn eftir var reynt að fínna bilunina
með mælingum á strengnum. Ávallt
er töluvert um jarðsímabilanir, ekki
síst vegna mikilla vinnufram-
kvæmda á sumrin. Um sama leyti
og bilunin varð við Seilugranda bil-
aði m.a. 500-lína jarðsímastrengur
í Breiðholti. Mikið var því að gera
hjá viðgerða- og mælingamönnum.
Þegar biiun verður á jarðsíma er
Bréfrítari tekur undir það að það
geti komið sér illa að sitja uppi
með óvirkan síma, síminn sé og
eigi að vera öryggistæki.
gerð mæling á streng til þess að
kanna nákvæmlega hvar bilunin sé
liggi hún ekki í augum uppi. Áður
en grafíð er þarf örugg mæling að
fara fram svo að ekki sé verið að
grafa á röngum stað og valda með
því óþarfa raski og tjóni, sérstak-
lega ef bijóta þarf upp malbikaða
götu eða steypta gangstétt.
Föstudaginn 11.7. fór fyrsta
mæling fram, en þá var ekki unnt
að staðsetja bilunina nákvæmlega.
Ekki var vitað þá að allt Qölbýlis-
húsið væri sambandslaust. Mánu-
daginn 14.7. var mælt á ný og
bilunin fundin. Bilunin, sem var
margþætt, hafði orðið vegna fram-
kvæmda á lóð, þegar teinar voru
reknir niður til merkinga. Einnig
var um að ræða bilun í svonefndum
götuskápi. Viðgerð lauk miðviku-
daginn 16.7.
Starfsmenn Pósts og síma vinna
yfírleitt ekki við viðgerðir um helg-
ar, en þegar um bilanir eins og
fyrmefnda bilun er að ræða, heilt
fjölbýlishús verður sambandslaust,
er reynt að bregðast fljótt við á
helgidögum sem öðrum dögum.
Hvað Seilugranda 5 varðar skorti
starfsmenn upplýsingar um hversu
víðtæk bilunin var og einnig má
kenna um miklum önnum á sama
tíma.
Tekið skal undir að það getur
komið sér illa að sitja uppi með
óvirkan síma. Síminn er og á að
vera öryggistæki."
Gunnar telur að hefðbundnar landslagsmyndir hrífi útlendinga ekki upp úr skónum.
Þessir hringdu . .
Hraðakstur á
Laugaveginum
Baldur Snæiand hringdi:
„Þetta er nú ekki í fyrsta sinn
sem ég kvarta undan alltof mikl-
um umferðarhraða á innanverðum
Laugaveginum en það virðist aldr-
ei neitt gerast í þessum málum.
Það er aldeilis forkastanlegt
hvemig ökuþórar leyfa sér að
keyra á þetta 70 til 100 km hraða
með tilheyrandi hávaða og djöful-
gangi. Þetta er ekki bara stór-
hættulegt heldur veldur þetta líka
íbúunum í nágrenni Laugavegar-
ins miklum óþægindum. Það væri
hægt að sekta hér fólk tugum
saman fyrir of hraðan akstur en
það sést aldrei lögregluþjónn hvað
þá meira. Það er eins og allir
keyri eins og vitlausir þegar kom-
ið er upp fyrir mjólkurstöðina og
jafnvel á spottanum frá mjólkur-
stöðinni og niður að Hlemmi. Þótt
það sé gangbraut með umferðar-
ljósum við mjólkurstöðina er mikið
um það að gangandi vegfarendur
stytti sér leið jrfír götuna og eiga
þá oft fótum fjör að launa.“
Á ríkið ekki að
ganga á undan
með góðu
fordæmi?
6555-0199 hringdi:
„Hafa menn gert sér í hugar-
lund hversu örðugt er fyrir fatlaða
að komast inn í og út úr mörgum
byggingum hins opinbera? Á ekki
ríkið að ganga á undan með góðu
fordæmi og búa vel að fötluðum?
Sem dæmi má taka Tollstöðina
í Reykjavík og Skattstofuna. Það
verður ekki séð af hönnun þeirra
bygginga að gert sér ráð fýrir að
fatlaðir kunni að eiga erindi við
þessar stofíianir.“
Menninguna
framan á
póstkortin
Gunnar Hannesson hringdi:
„Ég geri mikið af þvf að tefla
bréfskák og sendi því mikið af
póstkortum út um allan heim, allt
frá Argentínu til Moskvu. Þetta
hefur vakið mig til umhugsunar
um hve fábreytt val fyrirmynda á
póstkort er hérlendis. Ég veit til
þess að þegar hópi Bandaríkja-
manna voru sýnd nokkur póstkort
frá ísiandi var það eina sem vakti
athygli þeirra kort af Bessastöð-
um með mynd af forsetanum
okkar á. Væri ekki tilvalið að
framleiða póstkort með myndum
sem sýndu ágæti íslensks anda,
kort með myndum af stórmeistur-
unum okkar, af uppfærslum í
Þjóðleikhúsinu og því um líku.
Það væri leitt til þess að vita að
útlendingar héldu að hér lifðu ein-
hver andleg örverpi innan um
fallega fossa, fyöll og jökla."
i Kjúklingur er hollur, góður og síðast en ekki síst
Iódýr matur.
Við viljum að allir borði kjúkling að minnsta kosti
einu sinni í viku og velji sér kjúklingadag.
Hér birtist spennandi uppskrift úr samkeppni
ÍSFUGLS, veldu þér kjúklingadag og reyndu
uppskriftina.
APPELSÍNUKJÚKLINGUR
SIGRÍÐUR J. AXELSDÓTTIR
1 stórkjúklingur
eóa 4-6 kjúklingalæri
1 stórlaukur
1 gulrót
1-2 sneiðar sellerírót
eða 2 sellerístönglar
1 lítilpúrra
1/2 græn paprika
1-2 appelsínur
1/4 I kjúklingasoó (teningar)
salt og pipar
negull á hnífsoddi
smjör til steikingar
2 msk. maisenamjöl
Kjúklingurinn hlutaður og brúnaður í 2 msk. af smjöri, á
djúpri pönnu. Kryddað með salti og pipar.
Hakkið laukinn og rífið selleríið og gulræturnar. Skerið hitt
grænmetið í fína strimla. Setjið grænmetið á pönnuna,
einnig kjúklingasoðið og safann af 1/2-1 appelsínu.
Skerið ysta lagið af appelsínunum í litla strimla og setjið á
pönnuna með grænmetinu og kjötinu og sjóðið við lítinn
hita í ca. 20 mín. eða þangað til kjötið er meyrt. Látið
appelsínuna á pönnuna rétt áður en rétturinn er borinn
fram. x
Bætið síðan kryddi við eftir smekk og jafnið soðið með
maísenamjölinu sem er hrært út í köldu vatni.
Rétturinn er borinn fram með brauði, hrísgrjónum og
salati.
P.S. Þegar mikið stendur til er ekki verra, ef einhvers-
staðar leynist örlítið vodka eða appelsínulíkjör, að flam-
bera kjúklingahlutana eftir að þeir hafa verið brúnaðir og
áður en grænmeti og soð er sett á pönnuna.
Flambering:
2 msk. af víni hellt yfir kjötið og kveikt í. Pannan er hrist
þar til eldurinn er slokknaður.
ísfugl Sími: 666103 1 G0TT-H0LLT ’ 0GÓDÝRT