Morgunblaðið - 10.10.1986, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
228. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands tók á móti Ronald Reagan Bandaríkjaforseta á Keflavíkurflugvelli. í viðræðum þeirra þakkaði Reagan íslendingum fyrir að vera gest-
gjafar leiðtogafundaríns. Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Höldum til Reykja-
víkur í friðarskyni
- sagði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti við upphaf Islandsferðar
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti skaut öxlum í veðrið
er hann kom til íslands í gærkvöidi, til fundarins við Mik-
hail Gorbachev aðalritara Kommúnistaflokks Sovétrílg-
anna. Hann hélt ræðu í Washington áður en hann hóf
flugferðina til íslands og sagði þá um horfurnar á fundin-
um: „Við höldum til Reykjavíkur I friðarskyni. Við komum
til þessa fundar fyrir frelsið. Og við förum vongóðir".
Flugvél forsetans lenti á
Keflavíkurflugvelli klukkan 19.00
og sjö mínútum síðar steig hann
út úr vélinni þar sem Vigdís Finn-
bogadóttir forseti íslands bauð
hann velkominn. Að svo búnu
heilsaði Reagan Steingrfmi Her-
mannssyni forsætisráðherra
Matthíasi Á. Mathiesen utanríkis-
ráðherra og embættismönnum,
sem voru í móttökunefndinni.
Hellirigning var þegar flugvél
Bandaríkjaforseta ók upp að flug-
stöðvarbyggingunni og jók á
dembuna meðan á mótttökuathöfn-
inni stóð. Vigdís og Reagan heilsuð-
ust við landganginn og ræddust
örlítið við, en síðan kynnti Vigdís
aðra í mótttökunefndinni fyrir
Bandaríkj aforseta.
I ávarpi því, sem Bandaríkjafor-
seti flutti fyrir brottför sína frá
Washington vék hann sérstaklega
að íslandi og sagði: „Ég vil geta
þess hér, og það á einkar vel við á
degi Leifs Eiríkssonar, hve mikils
bandaríska þjóðin metur gestrisni
íslenzku ríkisstjómarinnar og ís-
lendinga allra. Bandaríkjamenn og
íslendingar hafa verið bandamenn
í meira en 40 ár. Fyrst á dögum
síðari heimsstyrjaldar þegar brugð-
ist var til vamar frelsi og lýðræði
og nú í Atlantshafsbandalaginu þar
sem sömu hugsjónir eru hafðar að
leiðarljósi. Ekkert ermeira til marks
um þessa staðfestu fslendinga, ein-
Reagan stígur út úr flugvél sinni í gærkvöldi. Fremstur fer Þórður
Einarsson siðameistari og fyrir aftan hann er sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, Nicholas Ruwe. Morgunblaðið/RAX
læga friðarlöngun þeirra, en að
þeir skuli hafa fúslega samþykkt
að annast þennan fund.“
Að lokinni móttökuathöfn steig
Ronald Reagan upp í stóra og gljá-
fægða Cadillac-bifreið, sem merkt
var forsetaembættinu með stórum
skjaldarmerkjum á hliðunum. Brun-
aði löng bflalest forsetans síðan af
stað og var hann kominn til bústað-
ar síns, bandaríska sendiráðsins við
Laufásveg í Reykjavík, klukkan 20.
í fylgdarliði Bandaríkjaforseta
voru m.a. George Shultz, utanríkis-
ráðherra. Á flugvellinum ræddi
hann stuttlega við Matthias Á.
Mathiesen, utanríkisráðherra, og
lýsti Shultz þar ánægju sinni með
afgreiðslu Öldungadeildar Banda-
ríkjaþings á milliríkjasamningi
þjóðanna um sjóflutninga til lands-
ins á vegum Vamarliðsins.
Sjá ennfremur um komu Reagans
og aðrar fréttir og greinar um
leiðtogafundinn á bls. 26, 27, 28,
29, 32, 33, 60, 61 og baksíðu.