Morgunblaðið - 11.10.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
Rafmagnsleysi
vegna bilana
í tækiabúnaði
RAFMAGNSLAUST varð í gær-
kvöldi í Háaleitishverfi, Smá-
íbúðahverfi og nýja miðbænum
í Reykjavík. Bilun í tækjabúnaði
í aðveitustöð á horni Háaleitis-
brautar og Miklubrautar olli
rafmagnsleysinu.
Að sögn Hauks Pálmasonar að-
stoðarrafveitustjóra hjá Rafmagn-
sveitu Reykjavíkur var bilunin
algjörlega ófyrirsjáanleg. Hann var
spurður hvort möguleiki væri á því
að um skemmdarverk væri að ræða
þar sem rafmagnslaust var einnig
í fyrradag, en svaraði því neitandi,
sagði engin tengsl milli þessara bil-
ana. Rafmagnið fór af rétt fyrir
klukkan 18 í gærkvöldi, en viðgerð
var lokið um klukkan 22.
Sjálfstæðismenn
bjóða Kristínu
í þingflokkinn
ÞINGFLOKKUR Sjáifstæðis-
flokksins samþykkti á fundi
sínum i gærmorgun að bjóða
Kristínu S. Kvaran sæti í þing-
flokknum, með öllum þeim
réttindum og skyldum sem því
fylgja.
Olafur G. Einarsson, formaður
Ráðstefna um Há-
skóla íslands:
Breyttir kennslu-
hættir - betri
háskóli?
„HÁSKÓLI íslands í nútíð
og framtíð, breyttir
kennsluhættir - betri há-
skóli?“ er yfirskrift ráð-
stefnu sem Stúdentaráð
gengst fyrir í dag klukkan
14.00 í Odda. Ráðstefnan
er haldin í tilefni 75 ára
afmælis Háskólans.
Framsöguerindi á ráðstefn-
unni verða sjö talsins. Ráð-
stefnan verður sett af
háskólarektor, Sigmundj
Guðbjamarsyni, en ráðstefnu-
stjóri verður formaður Stúd-
entaráðs, Eyjólfur Sveinsson.
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sagði þessa ákvörðun hafa verið
tekna vegna þess að Kristín væri
nú gengin í sjálfstæðisfélag og
hefði lýst því yfir að hún óskaði
eftir að starfa með þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins á komandi
þingi. Hann sagði þá meginreglu
gilda um störf þingflokksins að
aðild að honum ættu þeir einir sem
kjömir hefðu verið á þing af fram-
boðslistum Sjálfstæðisflokksins.
„Það fínnst þó einnig ákvæði í
reglum þingflokksins um að heim-
ilt sé að víkja frá þessari reglu og
um það voru allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins sammála", sagði
Ólafur G. Einarsson.
Ekki tókst að ná í Kristínu í
gær, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun hún taka
sæti í þingflokki Sjálfstæðismanna
nú þegar við upphaf þings.
mui^uuuiauiU/UI.IY.M.
Frá setningu Alþingis i gær. Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþingis, Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, Matthías Á Mathiesen, utanríkisráðherra, forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir,
og Vilborg Kristjánsdóttir.
Alþingi sett:
Fjárlagafrumvarpið
lagt fram á mánudag
Stefnuræða forsætisráðherra flutt á fimmtudag
Þrjú mál ber sennilega hæst
í störfum Alþingis næstu viku:
frumvarp að fjárlögum kom-
andi árs, sem væntanlega
verður lagt fram á mánudag
eða þriðjudag nk., stefnuræðu
forsætisráðherra, Steingríms
Hermannssonar, sem flutt
verður á fimmtudag nk., og
svokallað „Rainbow-mál“, þ.e.
samkomulag utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og íslands um
jafnræði íslenzkra og banda-
rískra skipafélaga til að bjóða
í sjóflutninga til varnarliðsins
frá Bandaríkjunurn til íslands.
Alþingi var sett í gær með hefð-
bundnum hætti, en í viðameiri
ijölmiðlaumgjörð vegna hérveru
erlends fjölmiðlafólks í tengslum
við leiðtogafund stórveldanna.
Séra Þorleifur Kjartan Krist-
mundsson predikaði í Dómkirkju
fyrir þingsetningu.
Þingsetning fór síðan fram í
Sameinuðu Alþingi. Forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
las upp forsetabréf um setningu
109. löggafarþings íslendinga.
Vék hún að hérveru leiðtoga stór-
veldanna og lét í Ijós von um, að
þeim tækist að lægja öldur ósam-
komulags í veröldinni.
Aldursforseti þingsins, Stefán
Valgeirsson, þriðji þingmaður
Norðurlandskjördæmis eystra,
flutti minningarorð um Jón heit-
inn Sólnes, fyrrv. alþingismann.
Þingfundi var síðan frestað til
mánudags nk.
Sjá bls. 34 og 35: þingpredik-
un Sr. Þorleifs K. Krist-
mundssonar og minningar-
orð um Jón heitinn Sólnes.
Reagan fylgdist með komu
Gorbachovs í sjónvarpinu
RONALD REAGAN forseti
Bandaríkjanna svaf vel fyrstu
nótt sina hér á landi, að sögn
Larry Speakes, blaðafulltrúa
Morgunblaðið/AP
GORBACHEVHJÓNIN HJÁ FORSETANUM
Mikhail Gorbachev, aðalritari Kommúnista-
flokks Sovétrikjanna, og kona hans, Raisa
Gorbacheva, heimsóttu frú Vigdísi Finnboga-
dóttur, forseta Islands, að Bessastöðum í gær.
forsetans. Hann vaknaði
skömmu eftir kl. 7 í gærmorg-
un og snæddi morgunverð.
Klukkan 11.30 átti forsetinn
fund með sérfræðingum sínum í
utanríkismálum, og að hádegis-
verðarhléi loknu, þar sem forset-
inn snæddi nýja, steikta lúðu, var
fundi haldið áfram.
Þeir sem voru á fundinum með
Bandaríkjaforseta voru George
Shultz, utanríkisráðherra, Don-
ald Regan, starfsmannastjóri
Hvíta hússins, John Poindexter,
öryggisráðgjafí, Paul Nitze, ráð-
gjafí um afvopnunarmál, Roz-
anne Ridgway, aðstoðarutanrík-
isráðherra, Arthur Hartman,
sendiherra í Moskvu, Jack
Matlock, sendiherra, Robert Lin-
hard, ofursti, Dennis Thomas og
Bill Henkel ráðgjafar og Larry
Speakes blaðafulltrúi Banda-
ríkjaforseta.
Forsetinn og ráðgjafar hans
fylgdust að fundi loknum með
beinni útsendingu íslenska sjón-
varpsins, frá komu Gorbachev
og frú frá Keflavíkurflugvelli.
Því næst hélt forsetinn áfram
fundarhöldum með sérfræðing-
um sínum í afvopnunarmálum.
Að fundarhöldum loknum hélt
forsetinn til Bessastaða, þar sem
forseti íslands Vigdís Finnboga-
dóttir tók á móti honum með
kampavíni og kransakökum.
I gærkveldi snæddi Banda-
ríkjaforseti kvöldverð í banda-
ríska sendiráðinu ásamt þeim
George Shultz, Donald Regan og
John Poindexter, og hvíldist að
því loknu.
Reagan heldur til Höfða kl.
10.20 nú fyrir hádegið, og áætluð
koma hans að Höfða er kl. 10.25.
Koma Sovétleiðtogans Gorba-
chevs er áætluð tveimur mínút-
um síðar, eða kl. 10.27.
Leiðtogamir heilsast fyrir utan
Höfða, en ganga síðan saman inn
í Höfða. Ráðgert er að fyrsti
fundur þeirra standi í tvær
stundir. Verða þeir tveir einir á
fundi, ásamt túlkum sínum, en
ekki hefur verið ákveðið hvort
túlkamir verða tveir eða fjórir.
Seinni fundurinn í dag hefst kl.
15.30 og er einnig áætlað að
hann standi í tvær stundir.
Bandaríkjaforseti mun síðan
snúa á nýjan leik til bandaríska
sendiráðsins, þar sem hann mun
snæða kvöldverð. Að sögn Larry
Speakes, er ekki gert ráð fyrir
að neinir gestir snæði með forset-
anum.