Morgunblaðið - 11.10.1986, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
LEIÐTOGAFUNDURINN í REYKJAVÍK
Björgimarhundasveit íalands stóð næturvaktina við Höfða sl. nótt og gerir svo einnig í nótt fram á
sunnudagsmorgun
Byggingar innsiglað-
ar í grennd við Höfða
Jöbúartveggja íbúðaurðuað flytjaút
BYGGINGAR í grennd við
Höfða, fundarstað leiðtoganna,
voru innsiglaðar af lögreglu í
gærkvöldi, en eins og kunnugt
er setti ríkisstjórnin bráða-
birgðalög um leigunám nokkurra
húsa þar vegna leiðtogafundar-
ins um helgina. Um er að ræða
fyrírtæki og verslanir i grennd
við Höfða og einnig þurftu íbúar
tveggja íbúða við Borgartún að
flytja úr híbýlum sínum yfir
•íelgina.
Rafn Johnson, forstjóri Heimilis-
tælg'a, sagðist í samtali við
Morgunblaðið um kvöldmatarleytið
í gær skilja aðstæður, en þó fannst
honum heldur langt gengið. „Hús-
næðið verður marg yfírfarið, fyrst
af íslensku lögreglunni og ef banda-
rískir og rússneskir öryggisverðir
sjá ástæðu til að yfirfara bygging-
amar eftir það, munu þeir hafa
heimild til þess. Það er sjálfsagt
verið að tryggja að enginn sé innan
dyra þama þegar leiðtogamir fara
hjá. Eigendur húsanna eða annað
starfsfólk fær ekki aðgang að hús-
unum yfir helgina - okkur er bara
skutlað út á meðan. Úr því íslend-
ingar eru búnir að samþykkja að
halda fundinn, verðum við auðvitað
að gera allt til að tryggja öryggi
Ieiðtoganna."
Rafn sagði að undir venjulegum
kringumstæðum hefði verslunin
verið opin í dag, laugardag, og hefði
örugglega orðið mikið að gera,
a.m.k. í sölu lyklanna fyrir Stöð 2
þar sem þetta er fyrsta helgin sem
nýja sjónvarpsstöðin sendir út efni.
Rafn sagði að ekki væri enn farið
að ræða um leigu fyrir húsin, en
hann gerði samt ráð fyrir að eigend-
ur þessarra húsa fengju einhveija
sárabót þar sem þeir misstu af gylli-
boðum hinna ýmsu sjónvarpsstöðva
um víða veröld. „Við erum auðvitað
tilbúnir til að hafa lokað í dag ef
það stuðlar að friði í heiminum,"
sagði Rafn og verslunarstjórinn
Birgir Öm Birgisson bætti því við
að þar sem Heimilistæki auglýstu
sig sem sérstaklega sveigjanlega í
samningum væri það auðvitað sjálf-
sagt að hafa lokað í dag vegna
fundarins.
Margrét Kristmannsson fluttí heim tíl foreldra sinna ásamt manni
sínum Siguijóni Alfreðssyni á meðan á fundinum stendur. Á mynd-
inni er Margrét ásamt foreldrum sínum, Kristmanni Magnússyni og
Hjördísi Magnúsdóttur
Morgunblaðið/Þorkell
Lögreglan innsiglar hér eitt af húsunum i Borgartúni sem tekið var
leigunámi fyrír fund leiðtoganna
Þau Margrét Kristmannsdóttir
og Sigurjón Alfreðsson pökkuðu
niður í tösku sína í gær í íbúð sinni
á þriðju hæð í Pfaff-húsinu, Borg-
artúni 20, og fluttu sig um set í
Bergstaðastrætið, heim til foreldra
Margrétar yfír helgina. Það var
faðir hennar, Kristmann Magnús-
son, sem jafnframt er forstjóri
Pfaff, sem varð fyrir svörum. „Þau
hafa búið í íbúðinni síðan í júní frá
því þau giftu sig. Þetta er húsvarð-
aríbúð og sinna þau því starfí. Við
vorum afskaplega svekt þegar við
fréttum um þetta leigunám fyrst.
Ég er nýkominn frá útlöndum og
hafði hugsað mér að vinna mikið
um helgina, en maður skilur auðvit-
að allt þetta öryggi," sagði Krist-
mann. Eigendur húsanna voru
beðnir um að hafa ljós alls staðar
svo að öryggisverðir á næstu þökum
sæju inn um gluggana ef einhver
hreyfing væri þar innan dyra.
Sovétmenn vekja falskar vonir
á kostnað Bandaríkjamanna
Nicholas Daniloff
fylpst hér með
beinni útsendingn
Ríkisútvarpsins
frá komu Gorbachevs
til íslands.
Nicholas Daniloff í viðtali
„Það kom mér ekki á óvart að Gorbachev skyldi halda ræðu
við komu sína til íslands", sagði Nick Daniloff í viðtali við
Morgunblaðið í gær. „Ég tel að Sovétmenn séu að reyna að
beina athyglinni að vígbúnaðarmálum, enda hafa þeir rika
ástæðu til. En með þvi að vekja falskar vonir, með þeim hætti
sem þeir hafa gert, eru þeir í raun að hagræða málinu sér í
hag. Gangi Reykjavikurfundurinn að óskum mun Gorbachev og
samningsvilja hans vera þakkaður árangurinn. Fari hann á hinn
bóginn út um þúfur verður Bandaríkjaforseta að ósekju kennt
um“.
Bandaríski blaðamaðurinn Nick
Daniloff kom til íslands í gær og
mun hann fylgjast með Reykjavík-
urfundinum fyrir tímarit sitt, U.S.
* News and World Report. Hann tók
sérstaklega fram að hann væri
hingað kominn til þess að fylgjast
með fundinum og skrifa um hann,
ekki til þess að ögra Sovétmönnum.
Daniloff var spurður hvort hann
myndi þá taka á Sovétmönnum með
silkihönskum og svaraði hann því
því til að hann myndi vitaskuld
ganga jafnhart eftir svörum og
þörf krefði, en bætti við að hann
væri hingað kominn til þess að afla
frétta, ekki búa þær til.
Daniloff bjó um níu ára skeið í
Moskvu, talar rússneskú reiprenn-
‘ andi og veit gjörla hvað gerist innan
múra og utan í Kreml. Hann var
því spurður á hvað hann teldi áð
Gorbachev myndi leggja áherslu í
viðræðum sínum við Reagan.
„Það sem Gorbachev leggur
mesta áherslu á heima fyrir eru
efnahagsmálin og það hefíir áhrif
á það sejn gerist hér. Að minnsta
kosti 15% þjóðartekna Sovétmanna
renna til hermála og Gorbachev
hefúr einfaldlega ekki efni á slíkum
útgjöldum, ætli hann að auka lang-
þráða velmegun. Þess vegna ríður
á fyrir Gorbachev að knýja á um
vígbúnaðartakmarkanir".
Vikið var að handtöku Daniloffs
í Moskvu og hann spurður um til-
drög og kenningar hans um
ástæður hennar.
„Ég var leiddur í gildru og sakar-
giftum logið á mig. Á meðan
varðhaldinu stóð yfír var ég ekki
borubrattur og ef ég hefði ekki
fengið stuðning starfsbræðra minna
ura heim allan, veit ég ekki hvort
ég stæði hér. Þá var konan mín
besti blaðafulltrúi sem ég gat haft
og blaðið stóð 100% á bak við mig.
Það sem mér þótti þó aðdáunar-
verðast var hvemig bandarísku
blaðamennimir í Moskvu slógu
skjaldborg um mig, allir sem einn,
þegar eitthvað gerðist, og vom ekki
eigingjamir á fréttina eins og búast
Morgunblaðið/Einar Falur
og gerðu allt sem þeir gátu mér til
aðstoðar. Þeir létu hver annan vita
mætti við“, segir Daniloff, en stillir
sig þó ekki um að bæta við: „Flest-
ir létu þó eigin fréttastofu ganga
fyrir, en það hefði ég nú líka gert“.
— En nú virtist Gorbachev koma
af fjöllum fyrst þegar uppvíst var
um handtöku þína. Telur þú að það
bendi til þess að hann hafí ekki það
taumhald á KGB, sem haldið var?
„Það leikur enginn vafí á því að
Gorbachev er óskoraður leiðtogi
Sovétríkjanna. Hins vegar er það
svo að margir háttsettir skrifkerar
og þeir sem njóta ýmissa forréttinda
telja að sér stafí hætta af baráttu
Gorbachevs gegn spillingu og skrif-
ræði og myndu ekki sakna hans.
Það sem þó skiptir e.t.v. meira
máli er það að hemum hugnast lítt
niðurskurðaráætlanir hans og
Gorbachev má varla við því að fá
skrifræðið upp á móti sér líka.
Varðandi KGB, þá hafa tengsl
Gorbachevs . við leyniþjónustuna
yfirleitt verið góð“.
Daniloff var inntur eftir því hvort
hann teldi að mannréttindamál
fengju mikla umQöllun á Reykja-
víkurfundinum og sagðist hann
engu geta spáð um það. Hann taldi
þó að yfirlýsingar Reagans og ráð-
gjafa hans gæfu til kynna að svo
yrði. „Hvað sem gerist á fundum
leiðtoganna, er ekki við sýnilegum
árangri að búast í bráð. Mannrétt-
indamál em viðkvæmt umræðuefni
fyrir Sovétmenn og allar breytingar
til batnaðar myndu ekki fara hátt.
— Mun Gorbachev takast að
breyta Sovétríkjunum í samræmi
við yfírlýsingar sínar?
„Það er alltaf mjög erfítt að spá
fyrir um þróun í Sovétríkjunum, þar
gerist allt mjög hægt og silalega,
en breytingamar em samt sem
áður óútreiknanlegar og yfírleitt
verður þeirra ekki vart fyrr en eftir
á. Gorbachev hefur þó nógan tíma,
hann er tiltölulega ungur og hann
hefur gefíð í skyn, bæði í ræðu og
riti, að hann hyggist sitja í valda-
stóli fram til aldamóta“.