Morgunblaðið - 16.11.1986, Page 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
■ AMERIKUSTIKLUR I
Furður
á al-
faraleið
Þessa leið að Roy Rogers-safn-
inu; að risaeðlugarðinum; að
Lundúnabrúnni, sem risin er í Ariz-
ona; að stærstu steintöflum í heimi
með boðorðunum tíu; að safninu,
sem geymir dósahníflnn hans Lee
Harvey Oswalds. Þeir sem bruna á
bflnum sínum eftir bandarísku þjóð-
vegunum komast ekki hjá því að
sjá þessa vegvísa. Þeir benda á
margt skrýtið og skemmtilegt við
þjóðveginn í Ameríku, á ýmislegt,
sem þessi stóra þjóð er mjög hreyk-
in af og nú má lesa um í bók, sem
að sjálfsögðu heitir „Við þjóðveginn
í Ameríku".
í bókinni, sem skrifuð er af §ór-
um ungum mönnum, er farið um
næstum öll ríki Bandaríkjanna. Það
er taisverður háðskeimur í henni
en hún er samt hin skemmtilegasta
og er skrifuð af mikilli ást á við-
fangsefninu. Höfundamir hrífast
greinilega af því, sem fyrir augu
ber, þrátt fyrir allan afkáraskapinn.
Sem dæmi má nefna Aquarena-
lindimar í San Marcos í Texas þar
sem ungar stúlkur í pilsgopa einum
klæða sýna gestunum grís, sem
kann að kafa og stinga sér til
sunds, og finna má að minnsta
kosti tíu söfn, sem helguð eru minn-
ingu Elvis Presleys, auk heimilis
hans í Tennessee. Þau em til dæm-
is reist yfir sólgleraugun hans,
Exxon-krítarkortið og rafknúna
skóburstann.
Ótölulegur fyöldi safna og
skemmtigarða er kenndur við frægt
fólk. í Liberace-safninu í Las Vegas
má sjá pínulitla píanóið hans, dúkk-
ur í öllum sviðsbúningum hans um
dagana og gifsafsteypu af hönd
bróður hans. Sá, sem á leið um
Winterset í Iowa, getur kíkt á
bemskuheimili John Waynes og
skoðað augnleppinn, sem hann not-
aði í myndinni „True Grit“.
Þessum séramerísku fyrirbærum
fer heldur fækkandi en þau eru þó
furðu lífseig. Að óreyndu mætti
ætla að fólk, sem daglega er matað
á öllum þeim furðum sem sjón-
varpið getur boðið upp á, hefði ekki
áhuga á sviðsettum indíánadönsum,
hellum, sem baðaðir eru marglitu
ljósi, eða pylsuvagni, sem er í lag-
inu eins og pylsa. Risastórir
skemmtigarðar eins og Disneyland
og margir
aðrir hafa
auðvitað
upp
á margt
stórkostlegra
að bjóða en
tré, sem hægt ^
er að aka í
gegnum, stærstu
kú í heimi eða
vaxmyndasafn, en
alvarlegasta
tilræðið við
PRESTLEY: gestirnir gapa á
gleraugun hans.
þjóðvegasöfnin eru lögin frá 1965
um betra og fegurra umhverfí við
þjóðbrautimar.
Þessi lög útrýmdu nær alveg
auglýsingaspjöldunum meðfram
þjóðbrautunum, sem allir lang-
réttvísinHHB
ferðamenn nota. Foreldrar, sem
áður höfðu ekki frið fyrir suðinu í
krökkunum, sem langaði til að sjá
Weeki Wachee-sýningarstúlkumar
leika listir sínar í vatninu eða
Nomadjrflissuna í Salem í Massa-
chussets, geta nú ekið ótruflaðir svo
klukkustundum skiptir.
Þrátt fyrir allt hefur þessum sýn-
ingum einhvern veginn tekist að
blómstra áfram. Gott dæmi er Gatl-
inburg, bær í Tennessee, sem bókin
kallar Mekka þessara uppátækja
enda allur undirlagður af þeim. Þar
er aðaláherslan lögð á glys og gróf-
leika. Þar er safn til minningar um
Elvis Presley, hringar frá honum,
Biblían hans, ein glæsikerran og
hin ómissandi sólgleraugu, og sitt
lítið af hvetju frá Barbra Streisand
. og Sylvester Stallone. í sjónhverf-
ingasalnum er bijóstmynd af
Presley og þegar fólk hefur glápt
á hana nokkra stund breytist hún
skyndilega, lifnar við og tekur að
syngja eitt af vinsælustu lögunum
hans.
I Gatlingburg er einnig safnið
„Þið ráðið hvort þið trúið því“,
Guiness-heimsmetasafnið og
Kristsgarðamir með vaxmyndum,
gerðum í Englandi „með mannshári
og læknisfræðilega réttum augum",
sem eiga að sýna alkunnar svip-
myndir úr Biblíusögunum.
- SIMON HOGGART
*
Ogerlegt að koma
lögum yfir dómarana
Saksóknarinn í Vestur-Berlín til-
kynnti fyrir skömmu að þeir
dómarar alþýðudómstóla nasista
sem enn eru á lífí þyrftu ekki að
sæta málsrannsókn. Rannsóknir af
þessu tagi hafa staðið yfír undan-
farin 20 ár en ekki leitt af sér einn
einasta sektardóm.
Þessi ákvörðun kemur sér vel
fyrir þá liðlega áttatíu menn sem
gegndu hlutverkum sækjenda og
dómenda á nasistatímabilinu og lifa
enn. Ástæðan fyrir því að hætt
hefur verið við rannsóknir á ferli
þeirra er sú að nær ógerlegt hefur
reynzt að sanna sekt þeirra vegna
þeirra meintu glæpa sem þeir gerð-
ust sekir um fyrir meira en ijörutíu
árum. Aðeins hafa farið fram rétt-
arhöld í máli tveggja manna í
þessum hópi. Hans Joachim Rense,
sem fór með embætti dómara á
nazistatímabilinu, var árið 1967
dæmdur í fímm ára fangelsi fyrir
aðild að morðmáli. Hann áfrýjaði
og var síðar sýknaður. Paul Reim-
ers, sem einnig hafði verið dómari
á nazistatímabilinu, fyrirfór sér
82ja ára að aldri árið 1984 eftir
að honum hafði verið tilkynnt að
hann ætti að mæta fyrir rétti og
svara til saka fyrir aðild sína að
122 dauðadómum.
Rubert Sholz, sem fer með stjórn
dómsmála í Vestur-Bérlín, segir að
það sé hörmulegt og valdi sárum
vonbrigðum, að ekki skuli hafa
tekizt að fá dæmda neina af þeim
110 fyrrverandi dómurum nazista
sem stefnt var fyrir rétt. Hann
skellir samt ekki skuldinni á hinn
opinbera saksóknara en segir skýr-
inguna einfaldlega vera þá að
fyrirmæli um að hefja rannsóknina
hafí komið allt of seint, nefnilega
ekki fyrr en árið 1965 eða 20 árum
eftir stríðslok.
Yfívöld Vestur-Berlínar rannsök-
uðu alls starfsferil 577 dómara og
saksóknara frá nazistatímabilinu.
Tuttugu og sjö voru látnir áður en
ákærur voru lagðar fram, 29 voru
taldir ófærir um að mæta fyrir rétti
og erfitt reyndist að sanna aðild
hinna að glæpaverkum nasistanna.
Roland Freisler, sem var alræmd-
asti dómari Hitlerstímabilsins, fórst
í loftárás bandamanna í febrúar
1945. Hann kvað upp sjö þúsund
dauðadóma. — Vitað er að þrír
starfsbræður hans frá stríðsárunum
hafa verið dæmdir til refsingar í
Austur-Þýzkalandi.
- MICHAEL FARR
Japanir
orðnir
langeyg-
ir eftir sældinni
Japan er orðið eitt
af ríkustu löndum
heims, en japanska
þjóðin lætur sér fátt
um fínnast. Fólk segir
að þaö njóti fárra
lífsgæða þrátt fyrir
efnahagslega vel-
megun landsins og að
það hafí að minnsta
kosti alltof lítinn tíma
til að njóta þeirra
mola sem falla því í
skaut.
Verð á matvöru í
Japan getur orðið allt
að 10 sinnum hærra
en í öðrum löndum og
húsnæði er bæði dýr-
ara og lakara en
víðast þekkist, að því
er segir i skýrslu
ríkisstjómarinnar um
japanskt þjóðlíf.
Þeir sem hafa séð
ofsjónum yfír efna-
hagslegri velgengni
Japana komast að
raun um að hún hefur
verið keypt dýru
verði, ef marka má
fyrrgreinda skýrslu.
Konur í japönskum
borgum spóka sig í
fínum fötum með
frægum vörumerkj-
um, en aðeins eitt
heimili af hverjum
þremur í Japan er
samt þess munaðar
aðnjótandi að vera
tengt við holræsa-
kerfí.
Flestar japanskar
fjölskyldur hafa ráð á
að eiga bíla en geta
á hinn bóginn lítið
notið þeirra. Vega-
kerfíð er mun lakara
en á Vesturlöndum
og þar að auki
eru
gríðarlega háir vega-
tollar og stöðumæla-
gjöld.
Skýrsla ríkisstjóm-
arinnar felur í sér
margvíslegar upplýs-
ingar um hvemig
japanska efnahags-
undrið og afstaða
þjóðarinnar stangast
á. Til að mynda kváð-
ust aðeins 3,8%
þjóðarinnar vera
ánægð með lífskjör
sín og aðstöðu. Flest-
um þótti sem hagsæld
landsins hefði ekki
skilað sér til þjóðar-
innar.
Almenn þægindi
eru minni í Japan en
á þeim Vesturlönd-
um, sem státa af
góðum lífskjörum. í
skýrslu ríkisstjómar-
innar er bent á
nauðsyn þess að
fjöiga skemmtigörð-
um og bæta aðstöðu
til hvers kyns tóm-
stundaiðkana. Enn-
fremur er lagt til að
framlag til umhverf-
ismála verði aukið.
í skýrslunni kemur
fram að Japanir em
áberandi verr settir í
húsnæðismálum en
þær þjóðir sem þeir
miða sig helzt við.
Lóðaverð er 13 sinn-
um hærra en í
Vestur-Þýzkalandi og
24 sinnum hærra en
í Bandaríkjunum. Þar
af leiðir hafa Japanir
að jafnaði miklu
minna húsiými en
fólk í öðmm iðnríkj-
um. Fáir hafa ráð á
að kaupa eða leigja
húsnæði í nágrenni
við þéttbýliskjamana
þar sem þeir stunda
vinnu sína. Það getur
því tekið fólk um þijár
klukkustundir að aka
til og frá vinnu og
leiðir það jafnvel til
meiri þreytu en allur
vinnudagurinn, eftir
því sem sérfræðingar
segja.
Hið háa verð á
matvöm sem fyrr er
nefnt veldur einnig
mikilli óánægju.
Hrísgrjón í Japan em
tífalt dýrari en í Thai-
landi og um það bil
sjö sinnum dýrari en
í Bandaríkjunum.
Menn em mun lengur
að vinna fyrir nauð-
synlegustu matvöm
en launþegar í Banda-
ríkjunum, Vestur-
Evrópulöndum og
Ástralíu.
Þá kemur enn fram
í skýrslunni að vinnu-
dagur Japana sé
lengri en hjá fólki í
iðnríkjum Vestur-
landa, sem leiðir til
þess að þeir eiga að
sjálfsögðu færri tóm-
stundir en Vestur-
landabúar.
En í skýrslunni er
líka ýmislegt tínt til
sem harla gott má
teljast. Lífslíkur Jap-
ana em hærri en
annarra þjóða. Og þar
er lítið um glæpi,
verðlag er stöðugt og
almenn menntun á
mjög háu stigi.
- ROBERT
WHYMANT
ALLT I HERSHONDUM
Svíaherer kom-
inn á kúpuna
Að undanfömu hefur verið upp-
lýst um mikið hneyksli innan
sænska hersins, óheyrilegt fjárbmðl
ef ekki beint misferli, og hafa þessi
tíðindi aukið enn á efasemdir sér-
fróðra manna innan Atlantshafs-
bandalagsins um að Svíar séu færir
um að veijast sovéskri skyndiárás.
Til að gera langa sögu stutta þá
er sænski landherinn einfaldlega
gjaldþrota.
Sænska stjómin hefur skipað
rannsóknamefnnd í málinu og jafn-
framt hefur Bengt Gustafsson,
nýskipuðum yfírmanni herráðsins,
verið falið að fínna út fyrir sitt leyti
hvemig unnt hafí verið að glutra
niður samtals sem svarar 3,6 millj-
örðum íslenskra króna.
Svo alvarlegt er þetta mál, að
það er nú þegar farið að ógna ör-
yggishagsmunum sænsku þjóðar-
innar. Vegna fjárskortsins hefur
orðið að hætta við nauðsynlegar
æfíngar fyrir nýliða, afturkalla
pantanir á nýjum búnaði og frestað
hefur verið herkvaðningu
15.000 manna.
„Það verður að
taka strax til hendinni
við að greiða úr fjár-
málaóreiðunni í í
landhemum," sagði
Roine Carlsson, vam-
armálaráðherra, „og
það verður að tryggja,
að svona ástand geti
ekki skapast aftur.“
Þeim fer nú §ölg-
andi, sem krefjast
þess, að Erik G.
Bengtsson, hershöfð-
ingi, segi af sér vegna
málsins en hann hefur svarað með
því að skipa starfsliði sínu að finna
tafarlaust leiðir til aukins spamað-
ar. Auk þess er verið að íhuga aðrar
og róttækari aðgerðir. Það era þó
ekki aðeins fjárhagsáhyggjumar,
sem Bengtson hefur við að glíma,
því að hann er einnig að vera uppi-
skroppa með foringja. Til þeirra