Morgunblaðið - 16.11.1986, Page 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
BUMUFUOKQ
náttúruleg nceringt
NÆRING
PÓSTHÓLF 1602 - 121 REYKJAVlK
SlMI 68 77 70
Nú eru high-DESERT® honeybee pollens™ blómafrjókornin
frá CC pollen co. fáanleg á eftirtöldum stöðum:
• Lyfjabergi, Breiðholti
• Holts Apóteki
• Laugamesapóteki
• Lyfjabúðinni Iðunni
• Nesapóteki
• Apóteki Norðurbcejar, Hafnarfirði
Blómafrjókomin fást í þrenns konar formi: sem hylki, töflur og
laus korn. Hollusta þeirra er ótvíræð - engin þekkt fæða er jafn alhliða
og blómafrjókorn og búin jafn fjölbreytilegum bætieiginleikum.
v>
|
2
§
vottaefni
mitt fynr
amio
Pað inniheldur engin
ilmefni eða ijósvirk
bieikiefni og er því
hentugt til þvotta á
fatnaði þeirra sem eru
með viðkvæma húð.
Lyngási 1 -210 Garðabæ - Sími 91-51822
Alþjóðlegur
samskiptadagur
21. nóvember
- Fólkáað
heilsa 10 manns.
FJÓRTÁNDI alþjóðlegi sam-
skiptadagurinn, The World Hello
Day, verður 21. nóvember en
þann dag eru allir beðnir um að
heilsa að minnsta kosti 10 manns
og er sú athöfn táknrœn til að
fagna þeim skerfi sem persópu-
leg samskipti hafa lagt að
mörkum til lausnar á deilumálum
og varðveislu friðar, bæði manna
i milli og þjóða.
Tólf manns sem fengið hafa friðar-
verðlaun Nobels, tugir alþjóðasam-
taka og þjóðhöfðingjar 86 landa,
hafa opinberlega lýst stuðningi
sínum við þetta árlega framtak um
heim allan. Fólk í 130 löndum hef-
ur tekið þátt í deginum með því að
heilsa tíu manns 21. nóvember.
Fræðslufund-
ur Blóðgjafa-
félagsins
BLÓÐGJAFAFÉLAG íslands
heldur fræðslufund mánudaginn
17. nóv. nk. kl. 21 í Nóatúni 21,
Reykjavík. Þar verða flutt tvö
stutt erindi, hið fyrra flytur Ólaf-
ur Jensson yfirlæknir og nefnist
það Tegundir dreyrasýki hér-
lendis og siðan mun Alfreð
Árnason erfðafræðingur skýra
frá nýlegum rannsóknum hér-
lendis á ónæmiserfðafræði
giktar, segir í frétt frá Blóð-
gjafafélagi íslands.
Blóðgjafafélag íslands var stofn-
að í júlí 1981 og er tilgangur
félagsins að fræða blóðgjafa, al-
menning og stjómvöld um mikil-
vægi blóðs til lækninga, um
blóðsöfnun og blóðbankastarfsemi,
rannsóknir á blóðefnum og erfða-
þáttum blóðsins og að styrlga
rannsóknir í þágu blóðgjafa og
sjúklinga, sérstaklega á sviði blóð-
ónæmisfræði og ónæmiserfðafræði.
Til að ná þessum tilgangi sínum
hefur félagið m.a. haldið fræðslu-
fundi og er þessi hinn 16. f röðinni.
Formaður Blóðgjafafélags íslands
frá stofnun þess hefur verið Ólafur
Jensson yfírlæknir Blóðbankans.