Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 C 15 Dómsmálaráðherra á fundi Evrópuráðs: Hryðjuverkastarf- semi framandi hugsun- arhætti Islendinga Jón Helgason dómsmálaráðherra sótti fund með dómsmálaráðherrum allra ríkja innan Evrópuráðsins, sem haldinn var á vegum Evrópu- ráðsins í Strasbourg, dagana 4. og 8. nóvember til að fjalla um baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi. Fyrir fundinum lágu tillögur að yfírlýs- ingu og ályktunum, sem unnar höfðu verið af undirbúningsnefnd embættismanna um nokkurt skeið. í umræðum á fundinum kom fram hjá öllum ráðherrunum, að aukin samvinna milli ríkja væri forsenda þess að takast mætti að koma í veg fyrir hryðjuverkastarfsemina, segir í frétt frá dómsmálaráðuneyti. í ræðu sinni sagði dómsmálaráð- herra að íslendingar hefðu lifað friðsömu lífí og vinnubrögð hryðju- verkamanna væru hugsunarhætti okkar framandi og okkur Qarri þeg- ar við værum að vinna að félagsleg- um- og stjómmálalegum markmiðum. Við værum okkur samt meðvitandi um nauðsyn þess að allar þjóðir sinntu vel öryggis- málum sínum því hiyðjuverkastarf- semin væri orðin alþjóðlegt vandamál. Alþjóðasamvinna væri því mjög nauðsynleg í vöm gegn hryðjuverk- um. íslendingar styddu slíka samvinnu heilshugar og það yrði ekki þolað að hryðjuverkamenn komist undan refsingu. Ráðherramir lögðu áherslu á að niðurstaða fundarins yrði meira en pappírsframleiðsla og var aðal- ályktun fundarins því breytt nokkuð í samræmi við þetta viðhorf og nefnd nánustu samstarfsmanna ráðherranna falið að koma á nánari samvinnu milli þeirra nefnda innan Evrópuráðsins og vinna að laga- samræmingu og kanna hvemig hindra má ferðir hryðjuverkamanna á milli landa. Þá vom samþykktar tvær aðrar ályktanir, önnur um að skora á öll aðildarríkin að fullgilda fyrri samninga er gerðir hafa verið á vegum Evrópuráðsins^ um þetta málefni, en það hafa íslendingar þegar gert, en hin var um að koma í veg fyrir að störf sendiráðsstarfs- manna og ræðismanna væm misnotuð í þágu hryðjuverka og þá einnig að hindra að þeim sem slíkum störfum gegna stafí sérstök hætta af hryðjuverkastarfsemi. 22 SÍMÍ 31788 Málverkalampary blómamyndir, hring- og sporöskjuramm- ar. Málverka- og myndainnrömmun. Málverka- og umboðssala á málverkum. FLYTJUM Verið velkomin í nýtt húsnæði okkar að ÁRMÚIA7 SÍMI: 681040 0 Glitnirhf NEVI - IÐN AÐARBANKINN-SLEIPNER Nýtt og öflugt fyrirtæki á íslenskum fjármagnsmarkaði. T ækif ær i stékkarei kn i ng u r ...með allt í einu hefti! Hraðlán og Launalán Auðveld og hröð lánafyrirgreiðsla Eigendur TT-reiknings eiga kost á skuldabréfalán, að vissu hámarki. Hraðláni, að ákveðnu hámarki. Hrað- Launalánið er til allt að átján mánaða lánið er tveggja mánaða víxill. Þetta lán og er einnig afgreitt í afgreiðslu bank- fæst afgreitt í afgreiðslu bankans án ans án heimsóknar til bankastjóra. milligöngu bankastjóra. í þessu tvennu felst jafnt öryggi sem Ennfremur eiga TT-reikningseig- tímasparnaður. endur kost á Launaláni, sem er V/dRZlUNRRBRNKINN -vitutun, (4teð fi&i!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.