Morgunblaðið - 16.11.1986, Síða 24

Morgunblaðið - 16.11.1986, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 24 C ©1986 Univertal Pres» Syndtcale „ For'gu fromhjCL matsölunni, beygbu -til haegri viS kleínuhrir^jasöluna, hoJtu svo áfrwm |*xrtiL |?ú sérí) tiskbita-og-ftartöflu- ■flögusiað cx móti iv/eimur piZ2a.6joppum; og ef þú kemur aS Tommabo rgurum, þó. hefuréu fariá of langt." réttu ákvörðun. 047 TARNow&Kt ins. HÖGNIHREKKVÍSI SVEI ! .. . EKKI FLEIRI SRELLUfK/" Eldra fólkið og dag- skrá Ríkisútvarpsins Guðfinna Hannesdóttir Hvera- gerði skrifar. „Góðan dag góðir hlustendur." Vel þekkt röddin berst frá útvarps- tækinu. „Þetta lofar góðu", varð mér að orði og sú von brást ekki. Pétur Pétursson var mættur í þular- stofu. Hann hefur alla tíð leitast við að spila tónlist af því taginu sem gleður hlustendur. En það er ekki sama hver situr við takkana. Sumir þulir spila eitthvað sem nefnist tón- list en er slíkur ærandi hávaði að menn neyðast til að slökkva á við- tækjum sínum. Margur hefur beðið um lagfæringun á þessu en án ár- angurs. Ymsar dagskrárbreytingar hafa orðið að udanfömu sem hafa komið illa við eldra fólkið. Stöðugt er auk- ið við hávaðann með fjölgun útvarpsrása. Eg hef átt tal við eldra fólk sem hefur verið miður hrifið af þessu ráðslagi. Það hefur ekki viljað hlusta á rás 2, kannski ekki náð henni heldur. Þessi hópur hefur verið sviftur dagskrárliðum sem hann lét aldrei fram hjá sér fara. Má þar nefna Óskalög sjúklinga sem lengi hefur verið mörgum manninum kær. Enn má nefna erindin Um daginn og veginn. Þessi dagskrárliður hef- ur tekið breytingum, en átti þó vísan hóp hlustenda. Einnig þessi liður er úr sögunni eftir þá koll- steypu sem sjónvarpið tók nýlega Milljón sem mætti og ætti að spara SKÝRSLA dómprófasts segir að söfnuðir Reykjavíkur hafí auglýst fyrir eina milljón og eitt hundrað þúsund krónur sl. ár, að mestu leyti til að tilkynna messur á lögskipuð- um helgidögum, enda glymur þessi síbylja í eyrum hver vikulok, líkast því að um væri að ræða útsölu í KRON eða kynningarverð í Mikla- garði. Kirkjur í þéttbýli munu einu stofnanir sem auglýsa á þennan hátt starfsemi sína. Musteri mamm- ons — bankar — láta sér nægja að tilkynna slíkt við anddyri. Þetta er vítaverð sóun opinbers fjár, minnir á hinn illa þjón og þó sýnu verri. Hann varðveitti pund það sem honum var falið til forsjár í sokkbol og gat staðið skil á því þótt honum láðist að braska með það og hirða „hæstu leyfilega vexti“. Fyrir það eitt hlaut hann maklega hirtingu, hvað þá hefði hann bruðlað stofnfénu í fánýtar útvarpsauglýsingar. og setti allt á annan endann, en þa á ég við þegar fréttatíminn var færður til 19.30. Ekki var þá verið að hugsa um alla landsmenn. Von- andi standa nú allir saman um þá ósk að sjónvarpsfréttirnar verði aft- ur færðar til kl. 20. Til tals hefur komið að kanna í Velvakanda (11.10. sl.) er haft eftir Magnúsi G. Jenssyni að í af- mælismynd Pósts og síma sem sýnd var í sjónvarpinu hafi hvergi verið minnst á fyrstu bflasímana, þ.e.a.s. þá handvirku. Þetta er rangt hjá Magnúsi. I myndinni er sagt frá því að hand- virk farsímaafgreiðsla hafi verið opnuð í september 1983. Um sjálf- virku farsímaþjónustuna er aftur á móti fjallað, enda er hún meðal nýjunga í starfsemi stofnunarinnar, hófst í júlí á þessu ári. í myndinni er lögð áhersla á nýjungar í póst- og símaþjónustu, en einnig er nokk- uð um upprifjanir sögulegra áfanga eins og tíðkast á tímamótum. Því miður var ekki unnt að gera öllu skil hjá stórri stofnun í mynd sem ekki er nema 25 mínútna löng og varð því að velja og hafna eins og gengur. Magnús G. Jensson er einn þeirra sem á handvirkan farsíma. Hann segir: „Þegar ég keypti símann var mér sagt að hann myndi gagnast mér í sjálfvirka kerfinu þegar það yrði að veruleika. Þetta hefur þó ekki orðið og nú vil ég fá að vita hvað Póstur og sími hyggst gera í málinu." Póstur og sími hefur ekki selt farsímataæki svo Magnús hlýtur Nýlega birtist 2ja dálka smágrein á öftustu síðu Moggans, sem hefði mátt vera aðalfrétt blaðsins á for- síðu sama dag. Þetta var 4. nóvember. A forsíðu voru 5 erlend atriði nefnd, sem skiptu okkur litlu eða engu máli. En húrra fyrir unglingunum á Akureyri. Hugsið ykkur — aðrar eins gleðifréttir hefi ég ekki lesið lengi, lengi. hug fólks til þessa máls og hefur sést í skrifum um slíkt framtak að varla væri rétt að hafa gamla fólk- ið með í þannig skoðanakönnun. Fjórum sinnum á ári fá þessir eldri borgarar innheimtuseðil fyrir af- notagjöld þessara tækja. Þá er tekið mark á eldra fólkinu. að hafa fengið þessar upplýsingar annars staðar, en líklegra er að um misskilning sé að ræða. Rekstur handvirka farsímakerfísins mun halda áfram, að minnsta kosti fyrst um sinn. Handvirku tækin nýtast því eigendum sínum áfram, en nýju tækin eru mun þróaðri og leysa smám saman hin gömlu af hólmi. Magnús segir að það gangi „misjafnlega illa" að panta númer í gegnum miðstöð handvirka far- símakerfisins. Reynsla stofnunar- innar er aftur á móti sú, að notendur þessa kerfis hafa almennt verið mjög ánægðir með þá þjónustu sem þeir hafa fengið hjá talsímavörðun- um í 002. Jóhann Hjálmarsson, blaðafulltrúi Pósts- og símamálastofnunarinnar. Af hverju? Kæri Velvakandi Mig langar til að fá svar við því frá Bjama Félixsyni af hveiju hann sýnir ekkert frá landsmóti hesta- manna, sem haldið var í sumar? Og af hveiju er hann með fótbolta sýktn og heilagt? Ein sem óskar nafnleyndar Þessum nemendum gagnfræða- skólans ætti hinn skarpi mennta- málaráðherra að hygla á eftirminni- legan hátt í nafni þjóðarinnar. Þessu unga fólki verður treyst- andi til að taka við því besta sem Island getur boðið því. Húrra fyrir ungum Akureyring- um. Þeir verða ofan á í lífinu. Arni Gunnarsson Handvirkt og sjálf- virkt farsímakerfi Nemendur Gagnfræða- skólans á Akureyri eiga viðurkenningu skilið Útvarpsstjóri svarar í Morgunblaðinu sl. sunnudag var beint til mín spumingum frá lesanda um fjölda starfsmanna hjá Ríkisútvarpinu og tekið fram að um ítrekun væri að ræða. Ef Velvakandi hyggst gerast milligöngumaður um öflun upplýs- inga af þessu tagi frá stofnunum eða nafngreindum einstaklingum vil ég eindregið mæla með því að hann hafi beint samband við við- komandi aðila um síma eða sendi afrit af fyrirspurnum, í stað þess að treysta því að menn rekist á spurningar sem fyrir þá eru lagðar með birtingu í blaði einvörðungu. Svör við spurningum Þórgnýs Guðmundssonar, fyrrverandi skóla- stjórá, Sandi, Aðaldal, em þessi: 1. Hinn 1. nóvember sl. vom fast- ráðnir starfsmenn Ríkisútvarps- ins 227 talsins. Lausráðnir vom 102, þar með talið tímakaups- fólk. 2. Einn fastráðinn fréttamaður starfar fyrir Ríkisútvarpið er- lendis. Er það Ögmundur Jónasson, fréttamaður sjón- varps, sem aðsetur hefur í Káupmannahöfn. Fjöldi íslenzkra námsmanna í útlönd- um og Islendingar með fasta búsetu á erlendri grund hafa tjáð sig reiðubúna að aðstoða frétta- stofur Ríkisútvarpsins við frétta- öflun. Stærð þessa hóps er mjög breytileg og sömuleiðis framlag einstakra manna. Þeir fá að sjálfsögðu þóknun fyrir frétta- pistla sína en hún er háð frétta- mati, tíma og fyrirhöfn sem varið er til fréttaöflunar í hveiju tilviki. Virðingarfyllst, Markús Orn Antonsson, útvarpsstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.