Morgunblaðið - 16.11.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
C 27
Redford
leikstýrir
aftur
Þær fréttir berast af hjartaknús-
aranum Robert Redford að hann
sé kominn af stað með að leik-
stýra sinni annarri mynd en eins
og menn muna varð fyrsta myndin
sem hann leikstýrði, Venjulegt fólk
(Ordinary People), ósköp vinsæl
og vann til fjögurra Óskarsverð-
launa. Síðan hafa liðið sex ár.
Nýja myndin hans er sú nýjasta
í hópi amerískra mynda sem fjalla
um bændur og sveitina og heitir
The Milagro Beanfield War. Sjálfur
leikur Redford ekki í þessari mynd
sinni (hann lék ekki heldur í Venju-
legt fólk) en leikaravalið er í það
minnsta forvitnilegt. Með smærri
hlutverk fara Christopher Walken,
Melaine Griffith og Daniel Stern (úr
Diner og Blue Thunder) en með
önnur og stærri hlutverk fara Chick
Vennera og brasilíska stórstjarnan
Sonia Braga. Kvikmyndatakan fer
fram í Nýju Mexíkó og þegar er
farið að tala um að The Milagro
Beanfield War verði aðalmyndin
frá Ameríku á Cannes-hátíðinni
næsta vor.
Mel Brooks
gerir
grínmynd
og Brian
De Palma
leikstýrir
Sean
Connery
★
Robert Redford: Bændadrama.
Mel Brooks er farinn aftur á stað
með grínmynd, sem vonandi á eft-
ir að blessast hjá honum. Hann
hefur ekki gert mynd í þrjú ár en
núna ætlar hann að gera grín að
Star Wars-myndunum. Mel leikur
tvö hlutverk; hinn illa forseta
saman og hún heitir Macaroni.
Sumar myndir líta framhjá
tungumálinu yfirleitt. Þannig er t.d.
um japönsku myndina Ævintýri
Chatrans (The Adventures of
Chatran) eftir Masanori Hata, en
hún er einvörðungu um líf kattar
nokkurs frá Tókýó. Það voru hvorki
fleiri né færri en 30 kettir notaðir
í hlutverkið.
Hinn aldni breski leikari, Trevor
Howard, leikur í mynd á hátíðinni
sem heitir Windwalker, Louis
Malle fjallar um smábæjarlíf í
Ameríku í myndinni God's Country
og Eugene Carr lítur aftur til kalda-
stríðsáranna og kjarnorkutilrauna
í Nevada í Desert Bloom.
Af breskum myndum á Lund-
únahátíðinni má nefna nýjustu
mynd meistara Nicholas Roeg,
sem heitir Castaway og er með
Oliver Reed og Helen Mirren í
aðalhlutverkum, en myndin gerist
í Suöur-Kyrrahafi. Og hátíðinni lýk-
ur með nýjustu mynd Kens Russel,
Gothics með Gabriel Byrne (leikur
Byron), Julian Sands (Shelley) og
Natasha Richardson (Mary Shel-
ley) í aðalhlutverkum en myndin
segir frá atburðum þeim sem
veittu Shelly innblástur til að skrifa
Frankenstein.
Aðrar athyglisverðar myndir eru
Blunt eftir John Glennister með lan
Richardson, sem leikur njósnarann
sir Anthony Blunt, og Anthony
Hopkins, sem leikur Burgess; Play-
ing Away eftir Horace Ové og Boy
Soldier eftir Karl Francis. Einnig A
Kind og English um strák frá Beng-
ali í East End og The Magic
Toyshop eftir einni af sögum Ang-
elu Carter.
Amerísku „stórmyndirnar" á
hátíöinni eru m.a. Heartburn með
Jack Nicholson og Meryl Streep,
Flugan (The Fly), nýjasta mynd
Davids Cronenberg og nýja Copp-
ola-myndin, Þegar Peggy Sue
giftist (When Peggy Sue Married).
f
Skroob og gamlan vitring sem
heitir Jógúrt. Myndin er um hóp
af vondum mönnum sem klára allt
súrefnið á sinni plánetu og ráðast
á aðra plánetu til að fá loft. Á
þeirri plánetu er Druish prinsessa
að gifta sig og hvað haldið þið aö
plánetan og myndin hans Brooks
heiti? Spaceballs er nafnið. Mátt-
urinn fylgi honum.
★
Eftir að hafa leikið leynilögreglu-
munkinn í Nafni rósarinnar er Sean
Connery farinn að vinna á lögreglu-
stöð í Chicago. Hann er stjarnan
í myndinni The Untouchables, sem
gerð er eftir samnefndum og
geysivinsælum amerískum leyni-
Sean Connery: Gömul, frsk lögga.
Mel Brooks: Grfn um stjörnustrfð.
lögregluþáttum. En hann leikur
ekki aðalhetjuna Elliot Ness (sem
Robert Stack gerði ódauðlega)
heldur fer hann með hlutverk gam-
allar, írskrar löggu sem kennir
Ness (Kevin Costner úr Silverado)
gömul löggubrögð. Eins og t.d.
\hvernig best sé að handsama Al
Capone. Leikstjóri er Brian De
Palma. Bob Hoskin leikur Capone.
Jólalömbín
Já, hér eru þau mætt jól-
alömbin handa þeim yngri til
að knúsa. í þau má nota hvaða
efni sem er eftir smekk hvers
og eins, en þetta hnökrótta loð-
efni fínnst mér klæða þau bezt.
Þessi efni fékk ég í svörtu, gráu
og ljósbrúnu í Vogue við Skóla-
vörðustíg fyrir ekki ýkja löngu.
í lambið þarf eftirfarandi: 40
sm af 140 sm breiðu efni, eitt
par augu og 1 plasttrýni, og
um 300—350 g uppfyllingar-
efni.
troða fyllingunni í. Leggið búk-
stykkin á hliðarstykkin, látið
tölumar standast á, og saumið
fætuma allt í kring (á röng-
unni).
Snúið lambinu við og látið
augun í þar sem merkt er með
V-i milli nr. 5 og 6. Ef þið eig-
ið ekki augu eða trýni má að
sjálfsögðu bródera þau á. Troð-
ið síðan í lambið og fyllið vel út
í fætuma. Að síðustu er opið á
kviðnum saumað saman í hönd-
unum.
Það er ótrúlega auðvelt að
setja lambið saman, en munið
að sniðin eru án saumfars, sem
á að vera 1 sm. Búið til sniðin
og merkið vel með tölunum.
Byijið á eyrunum, saumið þau
saman á röngunni og hafíð opið
að neðan til að geta snúið þeim
við. Þræðið þau síðan á hliðar-
höfuðstykkið við töluna 5 og
saumið þau svo föst þar. Þá er
auðveldara að sauma þau með
þegar allt er saumað saman.
Saumið svo hryggsauminn frá
nr. 4 til 7. Saumið miðstykki
höfuðsins á hliðarstykkin frá
nr. 6 til 5, og síðan að nr. 7,
og auðvitað á röngunni.
Saumið neðri sauminn á
höfðinu frá nr. 1 til 6. Saumið
svo búkstykkin saman að neð-
an, en hafíð op á miðju til að
Eins og þið sjáið eru augun
ekki eins á mínum lömbun, en
þessi skemmtilegu augu fékk
ég í verzluninni Saumasporinu
í Kópavogi. Og fyrir ykkur sem
ekki hafíð áður verið með í að
sauma leikföng langar mig að
benda á uppfyllingarefni sem
ég get óhikað mælt með, en það
kallast ullardúnn og fæst !'
versluninni Bamarúm, Skóla-
vörðustíg 22.
Nú, þeir sem hafa áhuga á
að fá snið geta skrifað eftir
þeim. Utanáskriftin er:
Dyngjan,
c/o Morgunblaðið,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavik.
Með kveðju, Jórunn