Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
Helgí Magnússon
gjornmgar
og gæsluvaróhald
Hafskip
Gjörningar og
gæsluvarðhald
eftir Helga Magnússon
Frjálst framtak,
Ármúla 18,
sími 82300.
Frank Sinatra
nmaöur hennar
Ava
Gardner og eig1
ALLIR VITAHVAÐ ÞAU VOLDU
HVAD VELJIÐ ÞIÐ??
KARAKTER
GRÓFINNI
• Bók um eitt umtalaðasta mál seinni tíma á
íslandi.
• Hvernig leið bókarhöfundi í gæsluvarðhald-
inu?
• Af hverju lentu menn í gæsluvarðhaldi?
• Hverjir voru „gulldrengimir"?
• Af hverju varð Hafskip gjaldþrota?
• Hvað gerðist raunverulega?
Einstæð bók sem fjallar um stormasama sögu
Hafskips, orsakir gjaldþrots félagsins, tilraunir til
að bjarga því og ekki síst um söguleg eftirmál gjald-
þrotsins.
Evrópumeistara-
mót fyrir 20 ára
ogyngri:
Þröstur
teflir við
Manca
Evrópumeistaramót í skák fyr-
wir 20 ára og yngri var sett í
gær í Groeningen í Hollandi.
Þröstur Þórhallsson tekur þátt í
mótinu fyrir hönd íslands, en auk
hans eru 29 aðrir þáttakendur.
Tefldar verða 13 umferðir á
mótinu. Fyrsta umferð verður tefld
í dag og teflir Þröstur við Manca
frá Ítalíu. Enginn stórmeistari tekur
þátt í mótinu, en sex alþjóðlegir
meistarar. Þekktastir þeirra eru
sennilega Ivanchuk frá Sovétríkjun-
um og McDonald frá Englandi.
Mótinu lýkur 2. janúar.
Tekinn
með hass
25 ÁRA maður var handtekinn á
Keflavíkurflugvelli síðastliðinn
mánudag. Við tolleit fundust á
honum, innan klæða, um 800
grömm af hassi.
Maðurinn var að koma frá Kaup-
mannahöfn. Að sögn lögreglunnar
er málið fyllilega upplýst og hann
hefur verið einn í ráðum.
Gunnhildur Hrólfsdóttir.
Unglingasaga
eftir Gunnhildi
Hrólfsdóttur
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA hf.
hefur sent frá sér bókina Vil, vil
eftír Gunnhildi Hróifsdóttur.
í fréttatilkynningu frá útgefanda
segin „Þetta er unglingasaga og
fjallar um menntaskólastúlkuna
Elísu sem stendur á tímamótum í
lífi sínu. Hún er í föstu sambandi
við ungan mann á uppleið þegar
atburðir gerast sem vekja spuming-
ar um hvort sú trygga framtíð sem
við henni blasti sé það sem hún
raunverulega vill. Kýs hún kannski
óvissu og ævintýri frekar?
Skemmtileg og spennandi bók um
vaknandi vilja og sjálfsvitund."
Höfundurinn hlaut verðlaun í
bamabókasamkeppni Ríkisútgáfa
Námsbóka á bamaári. Bókin er 215
bls. unnin að öllu leyti í ísafoldar-
prentsmiðju hf.