Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 73
73 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 löngum. í veiðiskapnum var Karl sami heiðursmaðurinn eins og í öllu öðru, sem hann tók sér fyrir hendur, vandur að virðingu sinni og háttum. Einn son áttu þau Karl og Elín sem á legg komst, Grétar Þór, fædd- an 19. júní 1936. Honum kynntist ég einnig sem vönduðum manni. Hann féll frá rúmlega fimmtugur. Var það þeim hjónum þyngra áfall en þau sýndu, en tengdadóttirin Sig- rún Haraldsdóttir og sonarbömin, Haraldur Þór, nú 23 ára og Elín Klara 13 ára hafa verið þeim til mikillar gleði. Ég votta Elínu, ekkju Karls, Sig- rúnu og bömum hennar innilega samúð mína og konu minnar við frá- fall drengskaparmannsins Karls Benders. Gunnar J. Möller Þriðjudaginn 9. desember lést í Reykjavík Karl Chr. Bender, fyrrver- andi verslunarmaður. Karl var fæddur í Grímsey, 24. maí 1904, sonur hjónanna Sesselju Ingvarsdóttur og Carls Benders verslunarmanns. Fjölskyldan flutti austur á firði og bjó Karl þar sín unglingsár. Karl ólst upp í fjölmenn- um systkinahópi við leik og störf. Móðir Karls féll frá þegar hann var 15 ára og leystist þá heimilið upp og varð Karl eftir það á eigin vegum. Karl réðist ungur til búðarstarfa hjá Arnesen, faktor á Eskifirði, og varð starfsvettvangur hans þar ráð- inn. Á Eskifirði kynntist Karl Elínu Klöm, f. 9. apríl 1905, dóttur hjón- anna Hildar Jónsdóttur, ljósmóður og Valdimars Sigurðssonar, útgerð- armanns. Elín þótti hinn vænsti kvenkostur, þokkafull og lífsglöð stúlka. Felldu þau Karl og Elín sam- an hugi og gengu í hjónaband árið 1927. Þau lifðu síðan í farsælu hjóna- bandi í hartnær sextíu ár. Karli og Elínu varð tveggja sona auðið. Eldri drengurinn lést í frum- bemsku, en yngri sonurinn, Grétar Þór, var fæddur 19. júní 1932. Grétar Þór var menntaður loft- skeytamaður og starfaði um árabil hjá Pósti og síma, seinast sem yfír- skoðunarmaður radíóeftirlits þeirrar stofnunar. Var Grétar einstaklega umhyggjusamur sonur, sem ávallt var vakinn yfir velferð foreldra sinna. Fann maður greinilega til hins nána og sterka vináttusambands þeirra feðga. Grétar veiktist í árslok 1983 og lést 14. febrúar 1984 eftir mjög erfíð veikindi. Fráfall Grétars skildi eftir sig sár, sem ekki greri, en Karl bar harm sinn í hljóði. Grétar var kvæntur Sigrúnu Har- aldsdóttur og áttu þau tvö böm, Harald Þór og Elínu Klöru. Sigrún hefur reynst tengdaforeldrum sínum sem besta dóttir og hlúð að þeim eftir föngum, eftir að árin færðust yfir. Elfn og Karl hófu búskap sinn á Norðfirði, en fluttu um 1930 til Reykjavíkur. Fjölskylda Elínar var þá áður flutt suður. Heimili þeirra Karls og Elínar stóð á ýmsum stöðum, hér í borg, þar til Karl réðist í það stórvirki að reisa sér eigið hús og árið 1935 flutti fjölskyldan að Hringbraut 104, þar sem heimili þeirra stóð, þar til fyrir tveim árum, að þau fluttust að Hátúni lOb. Eftir að til Reykjavíkur kom, var atvinnusaga Karls bundin við Áust- urstræti. Hann vann um árabil í Soffíubúð og síðar hjá SÍS í Gefjun, sem deildarstjóri. Þar starfaði Karl, þar til hann lét af störfum í árslok 1978. Karl var áreiðanlegur og traustur og gekk til starfa sinna af alvöru. Hann var raungóður og greið- vikinn svo af bar. Samstarfsfólk Karls man hann sem hinn ljúfa heið- ursmann, er ávallt lagði gott til allra. Með þessu er ekki verið að segja, að Karl hafi verið skaplaus, langt í frá, heldur hafði hann tamið skap sitt. Aðfinnslur Karls vom fáar, sett- ar fram af ró, en festu, og þær gleymdust ekki. Karl átti sér sitt hjartans áhuga- mál, sem var stangveiði. Bestu stundir Karls voru á árbakka með stöng í hendi. Hann var slyngur veiði- maður og var m.a. fenginn til að kenna meðferð á flugustöngum. Hin síðari ár var veiðin stunduð í Meðal- fellsvatni og Bugðu. Ætla ég, að fáir hafi dregið þar fleiri laxa en Karl. Karl hélt ítarlegar veiðiskýrsl- ur, þar sem hann skráði veidda laxa, hvaða agni var beitt og eins veðurlýs- ingar. Fjölskyldan dvaldi mikið í sumarbústaðnum Dalakofa við Með- alfellsvatn og var sá staður Karli einkar kær. Attu þau hjónin þar ófá handtök við að prýða umhverfið. Karl Bender er einn þeirra er stað- ið hafa mér næst í lífinu og reynst mér best. Milli æskuheimilis míns að Guðrúnargötu 7 og fjölskyldunnar á Hringbraut 104 voru mjög náin fjöl- skyldu- og vináttubönd. Systumar, Steinunn, Margrét og Elín töluðust við oft á dag og daglega hringdi Karl til að fylgjast með og bjóða aðstoð sína. Eftir að ég hafði stofnað eigið heimili, hélt Karl áfram þessum sið. Karl þurfti að fylgjast með nafna sínum og bræðrum hans, og eins að leita frétta, helst að heyra veiðisög- ur. Síðustu árin hafa verið þeim hjónunum þung f skauti, sonarmissir og heilsan þverrandi. Elsku Ella mín, ég veit að þú ert þreytt og sorg þín sár, en ég veit líka að þú átt sterka trú og vissu. Þú hjúkraðir manni þínum og varst hans stoð og styrkur í löngu hjóna- bandi og varst hjá honum, er hann kvaddi. Megi þín einlæga trú veita þér huggun þá erfiðu daga, er nú fara í hönd. Góður Guð styrki þig og styðji, Ella mín. Guð blessi minningu kærs vinar, Karls Benders. Steinunn M. Lárusdóttir Bók um Marilyn Monroe BÓKHLAÐAN hf. hefur gefið út bókina Gyðjan — leyndardóm- urinn um Marilyn Monroe eftir Anthony Summers. Á bókarkápu segir m.a.: „Þó tutt- ugu og fímm ár séu liðin frá dauða Marilyn Monroe, er hún og hennar nafn stöðugt á vörum fólks. Bókin Gyðjan er árangur af meira en tveggja ára rannsóknarstarfi. Af viðtölum við hundruð manna sem aldrei áður hafa viljað segja frá kynnum sínum af Marilyn og lestri ýmissa gagna sem ekki var auðvelt að ná til. Höfundurinn kannar sannleikann á bak við sögumar er gengu um hana, um ástarlíf hennar, um eigin- mennina. Bókin varpar ljósi á ævintýralegt líf hennar sem ekki var alltaf dans á rósum. Bókin skýrir hvers vegna Marilyn varð kyntákn sem aldrei gat bund- ist einum manni til langs tíma. Barátta hennar við sálræn vanda- mál sem komu af misheppnuðu uppeldi og eiturlyfjanotkun. Gyðjan segir í fyrsta sinn frá sambandi hennar við Kennedy bræður. Þessi tengsl eru meðal höfuðskýringa á dauða hennar, og leið maJfiunnar til þess að koma helstu leiðtogum Bandarílganna á kné. Sagt er frá nýjum upplýsingum um hinn leyndardómsftilla dauða hennar. Gyðjan fjallar um konu sem virð- ist ætla að lifa í umræðu fólks áratugi eftir að hún dó.“ 'ANTOMMUR STCR. BYÐUR EINHVER BETUR? HLJOMRÆR Umboðsmenn: . . ”... —. — g . .. •' HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 Opið til kl. 16.00 í dag Bókaskemman Akranesi, Radíóver Húsavík, Kaupféiag Rangœinga Hvolsvelli, Kaupfélag Borgfiröinga, Skógar Egilsstööum, M.M.búöin Selfossi, Sería ísafirði, Kaupfélag Héraösbúa Egilsstööum, Rás Þorlákshöfn, Kaupfélag Skagfiröinga Sauöárkróki, Myndbandaleiga Reyðarfjaröar, Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum, KEA Akureyri, Djupiö Djúpavogi, Fataval Keflavík, Radíóröst Hafnarfiröi, Búland Neskaupstaö, J.L. húsiö Reykjavík, Hornabœr Hornafiröi, l blíðu og stríðu E\Iiðaárnar ÍSAFOLD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.