Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 ÚRSLIT í MÁLI „SÉRA JÓNS" Ingólfur Margeirsson greiddi ekki búslóðarflutningana eftirRagnar Kjartansson Við Ingólfur Margeirsson, ritstjóri Helgarpóstsins, höfum að undan- fömu skrifast á með blaðagreinum vegna endurgjaldslausra flutninga Ingólfs með Hafskip hf. á árunum 1983 og 1984. í Morgunblaðinu 2. desember sl. birtist heilsíðugrein Ingólfs undir fyrirsögninni: „Eg greiddi búslóðar- flutningana að fullu“. Og í undirfyr- irsögn sagði: „Af ógeðfelldri tvöfeldni Ragnars Kjartanssonar". Birtar voru myndir af gögnum sem sýna áttu fram á greiðslur Ingólfs. En nú eru komnar fram óyggj- andi sannanir þess að Ingólfur hafi ekki borgað neitt og stað- hæfingar þar með rangar. En riijum mál þetta aðeins upp: * í framhaldi af skítkasti Helgar- póstsins í nóvember sl. í garð dóttur Alberts Guðmundssonar vegna afsláttar af búslóðarflutn- ingi, vakti ég athygli á því að annar ritstjóra Helgarpóstsins hefði tvívegis notið frírra flutn- inga hjá félaginu. í stuttri grein, sem birtist í Morgunblaðinu 26. nóvember undir heitinu „Jón eða séra Jón“, benti ég á að Ingólfur Margeirsson, ritstjóri HP, hefði fengið búslóð flutta milli landa hjá félaginu á árinu 1983 og bif- reið á árinu 1984 — hvort tveggja án greiðslu flutningsgjalda. Fram- reiknuð eru þessi fríu fmtnings- gjöld talin nema 70—100 þúsund krónum. Þar er um að ræða svip- aða fjárhæð og blað Ingólfs telur að Helena Albertsdóttir hafi feng- ið eftirgefna hjá Hafskip, Helgar- póstinum til mikillar hneykslunar. Blaðið ræddi m.a. um það hvort hlunnindi af þessu tagi hafi verið talin fram til skatts. I blaðaskrif- um mínum hef ég hins vegar ekki enn sem komið er gert það að umtalsefni hvort Ingólfur Mar- geirsson taldi sín hlunnindi fram til skatts. * Ingóifur Margeirsson svaraði strax næsta dag í Morgunblaðinu með stuttri grein, „ Af rannsóknar- blaðamennsku Ragnars Kjartans- sonar". Þar viðurkenndi ritstjór- inn að hafa tvívegis þegið fría flutninga hjá félaginu eins og ég hafði haldið fram. Hann gerði þó lítið úr þeim og talaði um „litla búslóð" og „bíltík". Auk þess taldi hann mig hafa „vegið að starfs- heiðri sínum sem blaðamanns og ritstjóra". Hvorki meira né minna! * Þar næsta dag, hinn 18. nóvem- ber, bætti ég nokkrum línum við í Morgunblaðinu um Ingólfs-mál- ið. Þar sagði: „í gær, fimmtudag, staðfesti Ingólfur að þessi gagn- rýni mín um ógeðfellda tvöfeldni hans hefði verið rétt og að hann hefði notið sömu fyrirgreiðslu og fólkið sem blað hans sá ástæðu til að ráðast á í vikunni á undan." Einnig varpaði ég fram þessum spurningum: „Hvað hefði gerst ef Helgarpóst- urinn hefði talið sig komast að því að t.d. Seðlabankastjóri, Rann- sóknarlögreglustjóri eða alþingis- maður, sem ekki væri í náðinni, hefði fengið ámóta niðurfellingu flutningsgjalda að upphæð allt að kr. 100.000 á núvirði? Er ekki fullvíst að málinu hefði verið sleg- ið upp, rannsóknar krafíst og að viðkomandi segði af sér og skatt- rannsóknarstjóri rannsakaði hvort „gjöfm“ hefði verið talin fram til skatts?" * Nú liðu fórir dagar, en þá tók Ingólfs-málið óvænta stefnu þeg- ar ritstjóri Helgarpóstsins birti heilsíðugrein í Morgunblaðinu þann 2. desember undir heitinu „Ég greiddi búslóðarflutninga að Ragnar Kjartansson „Fyrst viðurkenndi hann móttöku hlunn- indanna og reyndi að réttlæta gjörninginn. Þá snéri hann við blað- inu og þóttist hafa greitt eitthvað sem hann alls ekki greiddi. Og nú hefur verið sann- að að Hafskip hf. greiddi þann víxil sem ritstjórinn þóttist hafa borgað „skilvíslega“.“ fullu". Undirfyrirsögn: „Af ógeð- felldri tvöfeldni Ragnars Kjart- anssonar". Með greininni birtust 5 myndir af gögnum sem sýna áttu fram á heiðarleika og skilvísi ritstjórans. Birtir eru reikningar sem gengið var frá með víxli svo og víxillinn sjálfur og greiðslu- nóta. Ingólfur segir m.a.: „Víxilinn greiddi ég skilvíslega þann 13. desember 1983“. * Daginn eftir, þann 3. desember, birti ég grein í Morgunblaðinu undir heitinu „Af „skáldsagnar- gerð“ ritstjóra Helgarpóstsins“. Ég var mjög undrandi á fullyrð- ingu Ingólfs er hann sagðist hafa greitt búslóðarflutningana því all- ir fyrrverandi samstarfsmenn mínir hjá Hafskip hf. sem höfðu af málinu að segja voru sannfærð- ir um að Ingólfur Margeirsson hefði aldrei greitt neitt vegna flutningsgjaldanna. Fullyrðing Ingólfs frá vikunni á undan vakti og athygli þegar hann hafði hald- ið hinu gagnstæða fram. Var til þess tekið að Helgarpóstsmenn töldu sig vera fama að ljúga upp á sjálfa sig. Fram til þess höfðu utanaðkomandi aðilar einungis orðið þess aðnjótandi. Fyrrverandi samstarfsmenn mínir hjá Hafskip hf. brutu nú mjög um það heilann hvemig Ingólfs-mál hefðu verið til lykta leidd hjá félag- inu. Ákveðin gmnsemd tók að vakna sem menn töldu óhjákvæmilegt að kanna til hlítar. Það fór að rifjast upp fyrir mönnum að Hafskip hf. hefði leyst til sín víxilinn sem Ingólfur hafði samþykkt. Því var það að lögmaður minn fór þess á leit við borgarfógetaembættið í Reykjavík að það aflaði afrita af fylgiskjölum vegna greiðslu þessa víxils. Nú liggja staðfestingar og gögn fyrir. Og hvað kemur á daginn? Hinn 13. desember 1983 greiddi Hafskip hf. víxil reikningi 1180 við Útvegsbankann og leysti fé- lagið þar með sjálft víxilinn inn til sín. Ritstjóri Helgarpóstsins greiddi því ekki búslóðarflutninga sína þrátt fyrir stóryrtar yfírlýsingar þar um sem nú liggur fyrir að em ósannar. Fullyrðingar hans em falln- ar. Ingólfur segir í Morgunblaðs- grein sinni: „Víxilinn greiddi ég skilvislega þann 13. desember 1983“. Það er rangt. Hafskip hf. HELGARPÓSTURINN 8lml 8180«-Box 320-Nifnnr. 0337-2751 3fr. 1305 T&iJt.uZlR KF.« 108 3 KRÓNUR 12.12. Vegna auglýeingar. UmBamiÖ verö: 37.697.00.- JkJtfSS&t C7 hMj Q- ORÍITT Afc ' u V </ Tilbúinn auglýsingareikningur frá Helgarpóstinum. Athygli vekur að reikningurinn er nákvæmlega sömu fjárhæðar og skuld ritstjóra Helgarpóstsins við Hafskip hf. vegna búslóðarflutninga hans. Reikn- ingurinn er undirritaður af Ingólfi Margeirssyni sjálfum! (Hvað myndi Helgarpósturinn kalla svona reikning — falsaðan?) MOKCUNBUUMD. MmUUDACUK 2. Di Ég greiddi búslóðar- flutningana að fullu Af ógeðfelldri tvöfeldni Ragnars Kjartanssonar eftirlagólf hf.. hefur i tvfgmng riðirt í legm mð mér I greinmmkhhim I MnrgunfaUðinu. Fjrrri greinin birtút miðrikudmginn 26. nðv- mérm Jðn". Þmr ber Rmgnmr Kjmrt- on i mig þaer mmkir að kip hí. hmfi fluU búmlðð mlnm Imndm i irinu 1983 in þeaa að taka flutningagjöld fyrir. Enn- takm flutningmgjútd fjrrir. Gcngið var f ri greiðalunni með vtzli I Útvegmbmnka fmlandm (nr. 039797) til þrigjom minaða. Vhillinn var mmmþykktur af und- irrituðum og geflnn út af pr. Hmfakip hfTTryggvi Viggðamon. I vimilupplueð voru frmmreiknaðir vextir kr. 4.781 þmnnig að allm hþððaði rixiUinn upp i kr. 91S97,- VixUinn greiddi ég mldl- vimlegm þ. 13. deaember 1983. (Sji meðfylgjmndi afrit af greidd- um reikningum, rixli og greiðalu- nðta banka.) Ég greiddi þri flutninga af búalðð minnl tfl fuflm að viðbtrttum vðxtum. Orð Ragnara Kjmrtanmsonar um „ðgeðfeilda tvöfeldni' og nið- urfellingu af flutningigjöidum eru Mr með dauð og ðtnerk. Um annað akltkamt hana hirði ég ekki að avara. Hvað varðar flutning af bifreið minni ( júniminuði 1984 tU Fredrikatad og aftur tfl lalanda minuði aiðar er þetta að aegja: Samkvmrnt farmakýnhi I mlnum fðrum eru fmrmgjöldin af t*að er umhugaunarefni fyrir leaendur og lýxir beat hugarfari og atarfaaðferðum fotTÍðajnanna Hmfakipa, þegmr fymim xtjðrnar- von um að kllna eigin aððamkap 4 saklauat fólk. Én riðþrota hefndarþoreti fær oft 4 aig undar- legustu myndir. „Éff fór því alvarlega í saumana á heimilisbók- haldi mínu til að komast h*n 1 að hinu sanna um þetta þriggja ára gamla _hneykslismál“. Og hvað fann ég? Jú, Ing- ólfur Margeirsson greiddi að fullu ÖU gjöld af flutningi á bú- slóð sinni frá Frcdrik- stad til Reylcjavíkur með ms. Laxá þ. 7.8. 1983“ ef ég vilji atefna Ragnari Kjartansayni fyrir upploginn iburð og ærumeiðingmr. Þmð mi vel verm. En ég æUm að hiðung aú og mneypm mem Rmgnmr Kjmrt- mnmmon hiýtur vegna þeaam púðurakota aé nmrgur dðmur fyrir fyrrvermndi atjðrnmrformmnn Hmfakipa og atti að nægja til að aýna þennmn mann I réttu (jðai. i Siksr feldni* og að ég hmfl fengið mál". Og hvmð fmnn ég? Jú, „ .„ GjöW von* * _________Mmrgeirmaoo g^rriddi H«'»''nK»Kjal<i Ég fðr þri alvarlegm I maummna mð"fuih. Bll gjðld mf nutningi Eftirkrmfa i heimilisbókhaldi mlnu Ul að i búmlðð aúmi íri Fredrlk.Lad t*PPH“'Pun kommmt mð hinu mannm um þetta til Krykjavíkur mrd ma. Uii orugjald þriggja ira gamla „hneykslis- þ. 7-8. 1983. ®,.:, jcmm i7 - li jí. U.*; t ZJJ ' A G-j-í ' Á’ zjznz 1 W-Æ_ r-j-,. Jlj. -'ýttner.'r-r- m .' . þykkti vrgna búvlóöarflutninga i vegum Hafakipa. lltgefandi pr. . Hafakip/Tryggvi Viggðmion. Viaillinn greiddur i gjalddaga og —--------- mtimplmður mf banka. CreiðalunðU Útvegmbmnkan. greidd og Samtmla kr. 32.966 mtiapluð af bankm. Hið stórbrotna útspil ritstjóra Helgarpóstsins í Mbl. 2. des. sl. leysti víxilinn til sín á síðasta degi, en Ingólfur Margeirsson greiddi ekki neitt eins og fyrrv. samstarfsmenn mínir hjá Hafskip hf. voru vissir um og hafa haldið ákveðið fram allan tímann. Um ástæður þess að Ingólfur Margeirsson samþykkti víxilinn upp- haflega er það að segja að hann mun hafa gengið frá skuld sinni með þeim hætti áður en hann færði niður- fellinguna í tal við forstjóra Hafskips hf. En þegar gjalddaginn tók að nálgast ítrekaði Ingólfur ósk sína um niðurfellingu og mun Björgólfur hafa samþykkt hana. Ingólfur ósk- aði hinsvegar eftir því að á móti víxlinum yrði færður tilbúinn aug- lýsingareikningur frá Helg- arpóstinum sömu upphæðar. Undir þennan „falska“ reikning ritar Ingólfur Margeirsson. Reikningur en engin auglýsing! Á árinu 1983 birtist engin aug- lýsing frá Hafskip í Helgarpóstin- um. En á árinu 1984 birtist aðeins ein þriggjadálka auglýsing frá Haf- skip hf., þann 19. apríl 1984, í blaðinu. Auglýsingareikningurinn, kr. 5.625, var greiddur af viðkom- andi auglýsingastofu og gerður upp af Hafskip hf. samkvæmt reikningi frá henni, svo eigi verður því bland- að saman við „prívat“-auglýsinga- reikningaútgáfu ritstjóra Helgar- póstsins. Um það þarf því ekki að deila að fullyrðingar mínar hafa verið réttar allan tímann um að ritstjóri Helgar- póstsins þáði tvívegis niðurfellingu flutningsgjalda hjá félaginu, en blað hans hafði einmitt atað fólk auri skömmu áður vegna slíkrar fyrir- greiðslu. Tilgangur minn með þessari ábendingu var upphaflega aðeins sá að sýna fram á „ógeð- fellda tvöfeldni“ forráðamanna blaðsins — sem töldu viðeigandi að atyrða aðra fyrir það sama og þeim þótti viðhlítandi fyrir sjálfa sig — og gott betur. Það er sitt- hvað Jón eða séra Jón — Helena Albertsdóttir eða Ingólfur Margeirs- son. En sá er munurinn að Ingólfur Margeirsson hefur orðið ber að lyg- um frammi fyrir alþjóð: Fyrst viðurkenndi hann móttöku hlunnindanna og reyndi að réttlæta gjöminginn. Þá snéri hann við blað- inu og þóttist hafa greitt eitthvað sem hann alls ekki greiddi. Og nú hefur verið sannað að Hafskip hf. greiddi þann víxil sem ritstjórinn þóttist hafa borgað „skilvíslega". Virtur blaðamaður hafði samband við mig fyrir skömmu. Hann hafði fengið pata af því að nú væru komn- ar óyggjandi sannanir þess að Hafskip hf. hafí greitt vixil Ingólfs Margeirssonar og ritstjórinn stæði því uppi sem ósannindamaður. Ég staðfesti þetta við blaðamanninn sem kvaðst vera mjög sleginn yfír þessu. Hann sagði: „Hér er á ferð- inni eitthvert versta mál sem íslensk- ur blaðamaður hefur lent í, einkum í ljósi stóryrða hans um málið áður og ennfremur að teknu tilliti til hinn- ar hörðu stefnu Helgarpóstsins í siðferðismálum, þar sem engum er hlíft. Blðamannafélag íslands kemst ekki hjá því að láta Ingólfs-málið tii sín taka.“ Að lokum vitna ég í heilsíðugrein Ingólfs Margeirssonar, ritstjóra Hel- garpóstsins, frá 2. desember sl. Er einkar athyglisvert að lesa stóryrði ritstjórans í ljósi fyrirliggjandi stað- reynda, sem sýna að málatilbúnaður Ingólfs er hruninn til grunna: „Orð Ragnars Kjartanssonar um „ógeðfellda tvöfeldni" og niðurfell- ingu af flutningsgjöldum eru hér með dauð og ómerk“. Ennfremur sagði Ingólfur: „Það er umhugsunarefni fyrir les- endur og lýsir best hugarfari og starfsaðferðum forráðamanna Haf- skips, þegar fyrrum stjómarformað- ur skipafélagsins öslar fram á ritvöllinn með lygar og órökstuddar fullyrðingar í veikri von um að klína eigin sóðaskap á saklaust fólk. En ráðþrota hefndarþorsti fær oft á sig undarlegustu myndir.“ Já, ritstjóri góður, er von þér blöskri! En hæst reiðir ritstjóri Helgar- póstsins til höggs í lokaorðum sínum: „Lögfræðingar sem ég hef verið í sambandi við, tjá mér að ég hafí borðleggjandi mál í höndunum ef ég vilji stefna Ragnari Kjartanssyni fyrir upploginn áburð og æru- meiðingar. Það má vel vera. En ég ætla að háðung sú og sneypa sem Ragnar Kjartansson hlýtur vegna þessa púðurskots sé nægur dómur fyrir fyrrverandi stjómarformann Hafskips og ætti að nægja til að sýna þennan mann í réttu ljósi.“ Rifjast nú upp það lögmál sem fram kemur í 7. kapítula, 1.—4. versi Mattheusar-guðspjalls, en þar segir: „Dæmið ekki til þess að jiér verðið ekki dæmdir; því að með þeim dómi sem þér dæmið, verðið þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, verður yður mælt. En hví sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu?“ Höfundur er fyrrverandi stjórnar- formaður Hafskips hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.