Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
3. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kína:
Stúdentar í Peking bera
eitt af daefblöðunum á bál
Pekinir. Reuter. AP. ^
Peking, Reuter, AP.
KÍNVERSKIR stúdentar
kveiktu í gær í mörg hundruð
eintökum af Daghlaðinu í Pek-
ing, einu útbreiddasta blaði
borgarinnar, og köstuðu síðan
á logandi báíl. Gerðist þetta á
aðaltorgi borgarinnar. Var
þetta gert til að mótmæla
röngum frásögnum í blaðinu
af mótmælaaðgerðum stúd-
enta að undanförnu.
Á veggspjaldi, sem sett var upp
við háskólann í Peking og kallað
„Opið bréf til Dengs“ leiðtoga
Reagan væntanlegnr
af sjúkrahúsi bráðlega
Washington, Reuter, AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti gekkst í gær undir skurðaðgerð á blöðru-
hálskirtli og jafnframt voru fjarlægðir fjórir separ af ristli hans.
Læknir sá, sem aðgerðina framkvæmdi, sagði að ekkert hefði komið
fram í þeim vefjasýnum, sem tekin voru, er vakið gæti grun um
krabbamein.
Nancy, kona forsetans, sagði eftir
aðgerðina, að hann væri „í góðu
skapi“. Aðgerðin tók um eina
klukkustund og fór fram í sjúkra-
húsi flotans í Bethesda. Beitt var
Ekkert lát
á verk-
f öllunum í
Frakklandi
Ríkisstjórnin kölluð
saman til skyndi-
fundar í dag
Parfa, Reuter, AP.
LESTARFERÐIR lágu enn að
verulegu leyti niðri í Frakklandi
i gær 19. daginn í röð og foringj-
ar verkfallsmanna lögðu á ráðin
um enn víðtækari verkföll. Var
gert ráð fyrir, að í dag legði
fjöldi annarra opinberra starfs-
manna niður vinnu.
Jacques Chirac forsætisráðherra
kallaði alla stjóm sína saman til
fundar í dag til þess að ræða það
ástand, sem komið er upp í landinu.
Lýsti hann því yfir, að stjóm sín
myndi ekki láta undan kröfum verk-
fallsmanna um hærri laun, þar sem
slíkt myndi spilla fyrir áformum
stjómarinnar um að blása nýju lífí
í efnahag Frakklands.
„Reiknið ekki með slíku," sagði
Chirac í blaðaviðtali. „Það myndi
aðeins leiða til sams konar stefnu
og var við lýði 1981-1986, er jafnað-
armenn vom við stjórn."
CGT, stærsta verkalýðssamband
Frakklands, hefur skorað á þá með-
limi sína, sem aka almenningsvögn-
um, starfa við póst og síma og enn
, fleiri að leggja niður vinnu á morg-
un. Á verkfall þetta að verða til
stuðnings starfsmönnum jámbraut-
anna, sem krefjast hærri launa og
bættra vinnuskilyrða.
Ekkert lát virðist því á verkföllun-
um, enda þótt aðaldeiluefnið sé úr
sögunni, þar sem tillögur stjómar
jámbrautanna um að láta starfsgetu
ráða meiru um laun en starfsaldur
vom dregnar til baka um helgina
samkvæmt kröfu verkfallsmanna.
staðdeyfíngu, þannig að forsetinn
var með meðvitund allan tímann.
Larry Speakes, talsmaður forset-
ans, sagði að George Bush varafor-
seti hefði verið í Hvíta húsinu, en
aldrei hefði til þess komið að hann
tæki við völdum forsetans, eins og
gert var er forsetinn gekkst undir
uppskurð við krabbameini fyrir 18
mánuðum.
Speakes sagði, að forsetinn hefði
tekið til við bréfaskriftir skömmu
eftir að hann var fluttur til sjúkra-
herbergis síns eftir aðgerðina og
gert var ráð fyrir að Donald Regan,
yfírmaður starfsliðs Hvíta hússins,
gengi þar á fund forsetans í gær-
kvöldi til að ræða við hann um
fjárlagafmmvarpið, sem lagt var
fram í gær. Vonir stæðu til að forset-
inn kæmi til starfa í Hvíta húsinu
um næstu helgi, enda þótt ekki yrði
þar strax um fullan vinnudag að
ræða.
kommúnistaflokksins, var því lýst
yfir, að stúdentar styddu hann.
Væri veggspjaldið skrifað vegna
þess, að stúdentar hefðu engin
tækifæri til þess að koma skila-
boðum sínum á framfæri öðruvísi.
Jafnframt var tekið fram, að stúd-
entar myndu gripa til annarra
ráða innan 10 daga, ef óskir
þeirra um aukið lýðræði yrðu að
engu hafðar.
Gremja stúdenta beindist eink-
um gegn Dagblaðinu í Peking.
„Það hefur birt illgjamar og
rangsnúnar frásagnir af mót-
mælaaðgerðum okkar," var haft
eftir lagastúdent einum. „Við
hötum þetta blað. Aðgerðir okkar
í dag em tákn um það sem okkur
finnst."
Blað þetta birti hvassyrta for-
ystugrein í gær þess efnis, að
fullyrðingar stúdenta um, að þeir
styddu sósíalismann og kommún-
istaflokkinn, ættu sér enga stoð
í veruleikanum. „Tilgang-ur þeirra
er að notfæra sér gervilýðræði
auðvaldsríkjanna og koma á
stjórnleysi," sagði blaðið.
Skírskotaði það til ræðu, sem
Deng Xiaoping leiðtogi flutti
1980, en þar hélt hann því fram,
að leyfi þyrfti fýrirfram til úti-
funda og að ólöglegar aðgerðir
og ólögleg blöð væru bönnuð.
Þetta var í fyrsta sinn sem
kínverskt blað skírskotaði til um-
mæla Dengs í gagnrýni sinni á
stúdenta í mótmælaaðgerðum
þeirra nú. Engir lögreglumenn
komu hins vegar á vettvang í gær
til að hindra stúdenta í mótmæla-
aðgerðum þeirra.
Blaðabrenna í Peking í gær. Reiðir stúdentar brenna eitt helzta
blað borgarinnar til að mótmæla röngum frásögnum þess um til-
gang og markmið stúdenta í mótmælaaðgerðum þeirra að undan-
förnu.
Fjárlagafrumvarpið í Bandaríkjunum:
Hærri ríkisútgjöld en
nokkru sinni í sögunni
Washington, Reuter, AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti lagði í gær fram fjárlagafrumvarp
fyrir næsta fjárhagsár, sem hefst 1. okt. nk., og eru niðurstöðu-
tölur þess yfir 1000 milljarðar dollara. Þetta verða hæstu ríkisút-
gjöld í sögu Bandaríkjanna. Gert er ráð fyrir, að frumvarpið
eigi eftir að mæta mikilli andstöðu á Bandaríkjaþingi.
AIls nema útgjöld samkvæmt
frumvarpinu 1.024 milljörðum
dollara en tekjur 916,6 milljörðum
dollara. Þar er því gert ráð fyrir
halla að fjárhæð 107,8 milljarðar
dollara. Framlög til vamarmála
eiga að hækka úr 289 milljörðum
í 312 milljarða dollara og er það
minnsta hækkun milli ára síðan
Reagan tók við völdum 1981.
Þrátt fyrir þessa útgjaldaaukn-
ingu er gert ráð fyrir minni
framlögum ríkisins á mörgum
sviðum og þá einkum í niður-
greiðslum á landbúnaðarvörum.
Er lagt til, að þær minnki um
rúml. 20 milljarða dollara á næsta
ári. Þá er Iagt til, að dregið verði
úr ríkisútgjöldum á öðrum sviðum
um 18,7 milljarða dollara. Efna-
hagsaðstoð við önnur ríki á þó
að aukast um 1,7 milljarða doll-
ara.
í greinargerð frá forsetanum,
sem gekkst undir skurðaðgerð í
sjúkrahúsi í gær, segir, að megin-
markmið frumvarpsins sé að
reyna að draga smám saman úr
hinum mikla halla ríkissjóðs
Bandaríkjanna. „Ef við náum ekki
tökum á þessu vandamáli með því
að draga úr útgjöldum ríkisins,
þá stofnum við öllu því í hættu,
sem áunnizt hefur í ríkisfjármál-
um,“ segir forsetinn í greinargerð
sinni.
Ymsir kunnir þingmenn úr röð-
um demókrata gagmýndu frum-
varpið harðlega, strax eftir að það
hafði verið lagt fram. Þannig
sagði James Wright, leiðtogi
demókrata i fulltrúadeildinni, að
útilokað væri að ætla sér að binda
enda á halla ríkissjóðs Bandaríkj-
nna með því að tvöfalda framlög
til hermála á fimm ára fresti, eins
og gert hefði verið.
Annar þingmaður demókrata,
David Obey, hélt því fram, að
stjórn Reagans hefði reynt að fela
samtals 51 milljarðs dollara við-
bótarframlög til vamarmála á
síðustu tveimur árum utan við hin
reglulegu framlög og koma yrði
í veg fyrir, að slíkt endurtæki sig.
Haft var eftir enn öðrum þing-
manni demókrata, að kanna yrði
leiðir til aukinnar skattheimtu til
þess að draga úr halla ríkissjóðs,
þar á meðal að leggja aðflutnings-
gjöld á innflutta olíu og aðrar
innfluttar vörur. James Miller,
fjárlagasérfræðingur forsetans,
sagði hins vegar í gær, að Reagan
myndi bæði snúast öndverður
gagnvart hærri sköttum og minni
framlögum til vamarmála en
fmmvarpið gerði ráð fyrir.