Morgunblaðið - 06.01.1987, Page 38

Morgunblaðið - 06.01.1987, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 4 Við áramót eftirSvein Guðmundsson Árið 1986 hefur að mörgu leyti yerið gjöfult. Vetur var mildur, vor og sumar gott. Heyfengur mikill og góður. Haustið var nokkuð gott, en tveir síðustu mánuðimir á árinu voru umhleypingasamir. Ný hreppsnefnd tók við á árinu og er Guðmundur Ólafsson, Grund, oddviti. Fráfarandi oddviti, Vil- hjálmur Sigurðsson, gaf ekki kost á sér. Götuljós voru sett upp á Reykhólum í haust. Oddvitaskipti urðu víðar í sýsl- unni. í Geiradal lét Grímur Amórs- son bóndi, Tindum, af oddvitastörf- um eftir áratuga_ þjónustu. Núverandi oddviti er Áshildur Vil- hjálmsdóttir, Króksflarðamesi. í Gufudalssveit lét Reynir Berg- sveinsson fyrrverandi bóndi í Gufudal af störfum og í hans stað kom Magnús Helgason, Múla. Unnið hefur verið að því á árinu að sameina alla hreppana 5 í Aust- ur-Barðastrandarsýslu í einn hrepp og miðar því verki heldur rólega. Ekki hefur orðið vart við neinn mótbyr í því máli, en félagsmála- ráðuneytið hefur nú forustu í málinu. Þörungavinnslan varð gjaldþrota á árinu og var nýtt félag heima- manna stofnað til þess að halda áfram rekstri. Hið nýja félag keypti þrotabúið á 25 milljónir króna. Þörungavinnslan hefur ekki verið sú lyftistöng fyrir héraðið sem ætl- að var í fyrstu. Hún hefur alltaf verið í fjármagnssvelti og vegna utanaðkomandi áfalla var hún dæmd til þess að fara á hausinn. Athygli vekur að þegar gjaldþrot var ákveðið var ekki haft samband við aðra hluthafa, enda réði stefna ríkisvaldsins í málefnum þömnga- vinnslunnar eingöngu. Reykhólaskip hf. varð gjaldþrota á árinu, en það var í eign Þömnga- vinnslunnar og heimamanna. Þetta er fyrsta fraktskipið sem skrásett er hér á Reykhólum. Rekstur þessa skips kom byggðinni lítið til góða að öðm leyti en því að hásetar vom stundum úr heimabyggð. Yfirmenn Helgeyjar, en svo hét skipið, urðu að flytja heimilisföng sín suður. 950 metra löng flugbraut var gerð á Reykhólum í sumar, en hún þyrfti að vera lengri til þess að þjóna því hlutverkí að vera öryggis- braut fyrir Vestfjarðaflugið. Hins vegar er þetta stór og góður áfangi. Fyrstu 6 km af bundnu slitlagi vom lagðir hér í sýslu í haust og fer nú að nálgast að helmingur leið- arinnar héðan til Reykjavíkur sé með bundnu slitlagi. Hins vegar verða Vestfírðir aldrei vinsælir fyrir ferðamenn fyrr en bundið slitlag er komið á alla aðalvegi bæði í Barðastrandarsýslum og alla leið til ísafjarðar. Staðreynd er að mörgum manninum er það annt um bílinn sinn að hann vill ekki hrista hann sundur á þessari fögm en löngu leið. Samgönguráðherra sagði hér þegar hann opnaði hina nýju flugbraut að það færi að stytt- ast í að vegur kæmi yfír Gilsfjörð og geta allir Vestfírðingar fagnað þeirri ákvarðanatöku. Á árinu hefur vamarstaða dreif- býlisins veikst. Ekki er eingöngu við stjómarherra að sakast. Stjóm- arandstaðan er veik og knýr ekki á að þörf sé á kröftugri byggða- stefnu. Það virðist orðið neikvætt að fjár- festa út á landi. Eignir manna seljast þar ekki nema á sport prís. Bú em hér mjög lítil. Uppbygg- EXCEL Áætlanagerð, línurit og gagnagrunnur Námskeið um notkun töflureikna á Macintosh, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna. Kennd er notkun EXCEL við ýmiss konar útreikninga og skýrslugerð s.s.: # Fjárhags- og tekjuáætlanir og aðra áætlanagerð Ú Uppsetningu skýrsla s.s. ársskýrsla Ú Launaútreikninga, verð- og tollskýrslur Ú Afborganir lána og víxla ofl. ofl. Lögð er áhersla á myndræna framsetningu með línuritum og sneiðmyndum. Ýtarleg námsgögn og líkanasafn innifalið! Námskeið verða sem hér segir: A: 10,-ll.janúar, 1987 kl. 9-16 (alls 12 klst), B: 16.,20.,22.og 23.janúar, 1987 kl. 17-20 (alls 12 klst) ITlacintosh námskeið ©ffmmiEiMáiMsk©að ^ WOEIKi Stýrikerfið, ritvinnsla, gagnagrunnur, áætlanagerð, tölvusamskipti og línuritagerð. Tilvalið námskeið fyrir þá sem vilja kynnast eiginleikum Macintosh frá gmnni en jafnframt tileinka sér nútimaleg vinnubrögð í leik og starfi. Lögð er áhersla á samtengingu allra þátta forritsins WORKS til hámörkunar á árangri. Sérstök áhersla er lögð á eftirtalin atriði: Útskiptingu leturgerða og hjálparforrita # Samtengingu ritvinnslu og gagnagrunns fl Samtengingu ritvinnslu og töflureiknis Ú Gerð línurita og sneiðmynda Ú Notkun tölvutelex Ytarleg námsgögn, fjöldi leturgerða og hjálpar- forrita auk tilbúinna dæma fylgja á disklingi! Námskeið verða sem hér segir: A: 19.,21.,23.,26.,28. og 30.janúar kl. 9-12 (alls 18 klst), B: 24.,25. og 31.janúar kl. 9-16 (alls 18 klst). Afsláttur fyrir eldri nemendur og ríkisstarfsmenn. Fjöldi nemenda á hverju námskeiði takmarkaðúr. Kennari: Halldór Kristjánsson, verkfræðingur. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, verkfræðistofa, Ármúla 5, 108 Reykjavík gffmik (SS M 2>(ö) ing hér var á eftir tímanum vegna samgönguerfíðleika og svo kom leiftursóknin í landbúnaðarmálum og mætti vitna í erindi úr Halarófu- kvæði, sem Ingunn Eggertsdóttir þýddi. „Set ég sjálfur mín lög eins og sýnast mér hög. Ég er laganna öm, annast sókn bæði og vöm og þig dæmi til dauðs.“ Fólki hér fer fækkandi og árið 1975 voru hér í sýslu 464 íbúar en 1985 eru þeir 388 eða þeim hefur fækkað um 16,3%. Hins vegar fjölg- aði þjóðinni á sama tíma úr 219.033 í 242.089 manns, eða þjóðinni fjölg- aði á þessu tímabili um 10,5%. Ef íbúafjöldi hér hefði haldið í við landsmeðaltalið ættu þeir nú að vera 513 að tölu og hefði fjölgað um 125 manns. Nú má ætla að fækkun gangi hraðar fyrir sig því skriðan er kom- in af stað og allt er gert til þess að auka hraða hennar og það þarf ekki neina spádómsvisku til að sjá að með svipuðu áframhaldi verður íbúatalan hér komin niður fyrir 300 um næstu aldamót. í vetur er skóli aðeins á tveimur stöðum í sýslunni, það er á Reyk- hólum og Króksfjarðamesi. Þar er skóli fyrir yngri nemendur í Geir- dal. Að Reykhólaskóla standa þrír hreppar sýslunnar, en nú er ekki búið í Múlasveit og fáir íbúar eru í Flateyjarhreppi. Vegalengdir eru miklar. Þrír bílar aka bömum til og frá skóla. Heimavist er fyrir böm úr Gufu- dalssveit og Geirdal. Þau em sótt á mánudagsmorgnum og ekið heim síðdegis á föstudögum. Ein leiðinleg uppákoma var hér á árinu en það em svokallaðar bú- marksnefndir. Þær eiga að leggja blessun sína yfír eyðingu byggða og em ótrúlega valdalitlar stofnan- ir og hafa úr litlu að spila til þess að jafna á milli bænda sem hafa lent illa í landeyðingarkerfínu. Ein garðyrkjustöð var stofnsett á Reyk- hólum á árinu, en önnur var fyrir. Verkaskipting verður með stöðvun- um. Sú nýrri verður með tómata og gúrkur, en hin aðallega með tijáplöntur og garðablóm. Prestaskipti urðu á árinu. Valdi- mar Hreiðarsson lét af störfum og flutti með íjölskyldu sinni til Stykk- ishólms, en Bragi Benediktsson var kosinn sóknarprestur hér og flutti hingað með fjölskyldu sína. Ný stjóm tók við á Dvalarheim- ili aldraðra á Reykhólum. Formaður hinnar nýju stjómar er María Björk Reynisdóttir hjúkmnarfræðingur. Þungt hefur verið undir fæti með framkvæmdir, en húsið er nú til- búið undir tréverk og málningu. Fjárveitingar á næsta ári em ekki fyrir hendi að vitað er. Jón A. Guðmundsson bóndi í bæ hefur fært út kvíamar. Auk venju- legs sauðfjárbúskapar rekur hann bensínafgreiðslu, sælgætisverslun og gistiþjónustu. Nú hefur hann opnað bókabúð og gjafavömversl- un. Ingibjörg Björgvinsdóttir kenn- ari, Reykhólum, opnaði fyrir jólin bókabúð. Við þurfum því ekki að kvarta um þá hlið menningar. Kaupfélag Króksfjarðar rak hótel Bjarkarlund í sumar og gekk sá rekstur allvel. Kaupfélagið verður að reka þijár verslanir. Eina í Króksfjarðarnesi, aðra á Reykhól- um og þá þriðju á Skálanesi í Gufudalssveit. Að jafnaði er rekst- urinn plúsmegin og gætu kaupfélög sem em að sigla rekstri sínum í strand ráðfært sig við kaupfélags- stjórann hér um það hvemig hægt er að reka smákaupfélag með al- hliða þjónustu, án þess að setja það á hausinn. Ekkert hús er hér í smíðum og hús sem byijað var á fyrir nokkmm ámm standa ófullgerð. Eitt hús á Reykhólum er búið að vera á sölu- skrá alllengi, en eigendur em fluttir burtu. Síðast þegar undirritaður frétti hafði enginn spurt um húsið. Tvær bækur komu út á árinu eftir höfunda búsetta í Reykhóla- sveit. Bók Játvarðar Jökuls Júlíus- sonar um Torfa í Ólafsdal, en hana má flokka undir fræðirit. Hin bókin er eftir Helgu Halldórsdóttur frá Dagverðará (Mýrartungu í Reyk- hólasveit) og heitir bókin „Öll emm við menn“. Sú bók fjallar um fólk sem hún sjálf kynntist. Að sjálfsögðu er mikið rætt um stjómmál hér um slóðir og auðvitað hvemig flokkamir haga framboðum sínum. Að sjálfsögðu fær Steingrímur mesta umræðuna en hann vill ekki þjóna Vestfírðingum lengur og verður að teljast að sú ákvörðun sé rétt ef hann er búinn að tapa trúnni á byggðastefnuna. Samtökin um jafnrétti á milli landshluta áttu hér mjög mikið fylgi hjá öllum. En þau gátu ekki slitið sig frá pólitísku flokkaþrasi og komið fram sem sterkt afl. Fram- boð hingað til bera þess engin merki að flokkamir taki nokkuð mark á þessum samtökum. Gleðilegt ár. Höfundur er fréttaritari Morgun- blaðsins á Reykhólum. Kveðjuorð: Alfreð E. Rasmus- sen skósmíðam eisturi Mig langar að minnast Alfreðs E. Rasmussen sem lést 29. nóvem- ber sl. Hann var fæddur í Stensby á Sjálandi 26. september 1904, og var því nýlega orðinn 82 ára er hann lést. Ungur að árum lærði hann skósmíðar, sem varð hans ævistarf, starf sem hann innti af hendi af vandvirkni og nákvæmni alla tíð. Sá sem keypti skó af honum gat verið viss um að fá góða skó unna af fyrsta flokks fagmanni, manni sem gerði fyrst og fremst kröfur til sjálfs sin. Árið 1937, þegar skóverslun Lár- usar G. Lúðvíkssonar setti á stofn skógerð við Rauðarárstíginn í Reykjavík, vom vélamar í verk- smiðjuna keyptar frá Danmörku. En þá vantaði einhvern til að und- irbúa gangsetningu verksmiðjunnar og leiða þetta barn síns tíma fyrstu skrefín. Fyrirtækið sem seldi vél- amar varð að sjálfsögðu að senda traustan mann og góðan fagmann til þess að leysa þetta mikilvæga verkefni af hendi, og valdi því Al- freð til fararinnar. Sýnir það val að vinnuveitendur hans bám mikið traust til hans bæði sem stjómanda og fagmanns. Áætlað var að verk- efni þetta tæki u.þ.b. eitt ár, eða þar til íslenskur maður væri búinn að læra svo mikið af Alfreð um rekstur verksmiðjunnar, að hann gæti tekið við. En margt fer öðm- vísi en ætlað er. Skömmu eftir að Alfreð kemur til landsins kynnist hann móðursystur minni, Margréti Þórðardóttur frá Efri-Bmnná í Sauðbæjarhreppi í Dalasýslu. Varð því aldrei úr því að hann sneri aft- ur til Danmerkur, heldur hófu þau Margrét búskap sem stóð í næstum 50 ár. Hélt Alfreð því áfram sem verksmiðjustjóri þar til verksmiðjan var lögð niður, en eftir það starfaði hann alla tíð sjálfstætt að iðn sinni, nú síðast í Stórholtinu í Reykjavík. Segja má að allir þeir skór sem hann smíðaði á sínu eigin verk- stæði hafi verið handunnir. Vand- virkni var honum í blóð borin og lagði hann því mikla vinnu í hvert skópar sem hann smíðaði. Þar að auki vom vélar þær sem hann not- aði, a.m.k. hin síðari ár, orðnar gamlar og því erfítt að keppa við verksmiðjuframleidda skó. Það féll því í hans hlut að smíða fyrir ýmsa sem þurftu að fá sérsmíðaða skó eins og t.d. lögregluna í Reykjavík, en fyrir þá smíðaði hann mikið af leðurstígvélum. Þá smíðaði hann fyrir fatlaða og ýmsa fleiri. Ég veit að lögreglumenn vildu ekki neitt annað fara til að fá sín stígvél smíðuð, því að þar fengu þeir góða gripi, sem bæði entust vel og fóm vel á fæti. Þegar ég kom til hans á verkstæðið var manni alltaf boðið inn í það helgasta, inn í sjálfa vinnu- stofuna, sem vár inn af afgreiðsl- unni. Þar var alltaf spjallað úm daginn og veginn, en ekki lét hann tímann fara til spillis, heldur hélt áfram við vinnu sína á meðan hann ræddi við gestkomandi, því hann hafði gaman af því að ræða við þá sem komu í heimsókn þama á verk- stæðið. Hann mun alltaf standa mér fyrir hugskotssjónum þar sem hann situr við vinnuborð sitt á verk- stæðinu í Stórholtinu með skó í hendi sem hann er að vinna við. Mér er alltaf minnisstæð hin sér- stæða lykt á verkstæðinu, leður- lyktin, sem að auðvitað átti þarna heima. Þar sem heilsa hans var tekin að bila seldi hann verkstæðið sl. haust, en var þó þar með annan fótinn til að aðstoða hina nýju eig- endur, sem kunnu að meta þennan góða fagmann. Þeim Margréti varð þriggja barna auðið. Sigurlaug, býr á Sel- fossi, gift Áma Tyrfingssyni, Níels Emil, sem lést árið 1950, tæpl. 11 ára að aldri og varð foreldrum sínum mikill harmdauði, og Gréta, sem býr hér í Reykjavík, gift Smára Ingvarssyni. Ég sem þetta rita var heima- gangur hjá þeim Margréti og Alfreð þegar þau bjuggu við Rauðarárstíg- inn. Ég leit á heimili þeirra sem mitt annað heimili og dvaldist hjá þeim heilu dagana, og gisti oft, stundum margar nætur í röð. Ekk- ert var sjálfsagðara frá þeirra hendi. Ég minnist þess að einu sinni lá ég veikur á heimili þeirra í 2 — 3 vikur, og þau frænka mín og Alfreð hugsuðu um mig eins og ég væri þeirra eigin sonur. Auðvitað var það oft erindi mitt til þeirra á Rauðarárstíginn að hitta vin minn og frænda, Níels Emil, því að við lékum okkur mikið saman, en einn- ig vegna þess að þama leið mér vel. Alfreð var ekki maður sem barði bumbur á torgum eða vakti á sér athygli í fjölmiðlum með hávaða og gífuryrðum, heldur vann hann störf sín af trúmennsku og kostgæfni, án þess að eftir því væri tekið af alþjóð. Mættum við eiga fleiri svona íslendinga, því að íslendingur var hann orðinn eftir að hafa búið hér í næstum hálfa öld. í mínum huga mun minningin um Alfreð ætíð vera sveipuð björtu ljósi og ég þakka honum samfylgd- ina og þær góðu stundir sem við áttum saman. Ég var viss um að honum hefur verið vel tekið er hann kom í hús föðurins. Megi blessun hans fylgja honum. Kæra Margrét, ég votta þér mína innilegustu hluttekningi.. Ég veit að þú hefur misst sv, mikið, því hann var þér ekki aðems góður eig- inmaður heldur einnig góður vinur sem bar þig á höndum sér eins og hann frekast gat. En hann bar einn- ig gæfu dætra sinna, tengdasona og bamabarna fyrir bijósti, og þeim votta ég samúð mína. En minningin um góðan mann mun lifa í minn- ingu okkar allra. Blessuð sé minning Alfreðs E. Rasmussen. Jóhannes Sverrisson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.