Morgunblaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 43 lagsins og gegnir því þar til í janúar 1938, er hann óskar lausnar á aðal- fundi og telur rétt að breyta til og að hann fari jafnframt alveg úr stjóminni, en ekki hafa félagamir viljað sleppa af honum hendinni því á þessum fundi er hann kosinn í varastjóm og næsta ár, 1939, er hann orðinn ritari. Samkvæmt fundagerðarbókum er Sigurður aftur kosinn formaður 1944 og formannsembættinu gegn- ir hann síðan samfellt í 21 ár eða þar til á aðalfundi í febrúar 1965, að hann baðst eindregið undan end- urkosningu. Samanlagt var Sigurð- ur því formaður í 29 ár eða því sem næst hálfan aldur félagsins, sem varð 60 ára á síðasta ári. Eftir þetta tók Sigurður dijúgan þátt í félagsstarfinu og var mér undirrit- uðum mikil stoð og stytta eftir að ég hafði tekið við embætti for- manns, sat með mér á iðnþingum o.fl. og var mér góður ráðgjafi og hvatti mig á margan hátt. Má segja að hvatningar hans hafi þegar hafist þegar ég starfaði sem formaður skemmtinefndar en eins og oft vill verða í litlum félög- um er útlitið ekki allt of gott með þátttöku þegar halda skal skemmt- anir og oft sýndist manni best að pakka saman og hætta við allt sam- an, en alltaf hvatti Sigurður til að 'reynt yrði til þrautar og ætíð tók- ust þessar skemmtanir með ágætum og var það ekki síst honum að þakka því hann fjölmennti iðu- lega með stóra fjölskyldu og vinahóp til að fylla upp í þá tölu, sem sýnilega vantaði til að skemmt- un gæti farið fram. Því var það meir en sjálfsagt, að Sigurður var gerður að heiðursfélaga er hann varð sjötugur árið 1970 og honum þökkuð mikilvæg störf í þágu Ljós- myndarafélags Islands. Sigurður var kvæntur Elínborgu Guðbjartsdóttur og naut hann dyggilegs stuðnings hennar við hin ýmsu félagsstörf, sem hann tók að sér, en Sigurður var mikill félags- málamaður og ekki hafði hann fyrr losnað frá starfi formanns Ljós- myndarafélags íslands en að hánn gerðist formaður Sjálfsbjargar í Reykjavík. Konu sína missti Sigurður á gamlársdag 1984 en með henni átti hann tvær dætur og eina dóttur átti hann af fyrra hjónabandi. Sig- urður fæddist í Tobbukoti í Reykjavík þann 14. ágúst 1900 og var því 86 ára er hann lést. Ungur að árum hóf hann nám í ljósmyndun og var m.a. í þijú ár við fagskólann í Kaupmannahöfn. Því lá það vel við að hann yrði fyrsti fulltrúi íslenskra ljósmyndara í Norræna ljósmyndarasambandinu og var hann það í mörg ár og eign- aðist íjölmarga vini meðal starfs- bræðra á Norðurlöndum. Ekki verður Sigurður sakaður um að hafa ekki haldið ljósmyndarastétt- inni við, en á starfsferli sínum útskrifaði hann 14 nema. Ljós- myndarafélag íslands minnist hans með þökk og virðingu og sendir öllum aðstandendum hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Þórir H. Óskarsson, formaður. Benjamín Fr. Einars- son - Kveðjuorð Á stórum tímamótum horfa menn ekki bara til framtíðar, heldur miklu fremur gaumgæfilega til baka. Svo er, þegar ævi manna lýk- ur, þessari óafturkallanlegu stað- reynd í gangverki lífsins. En þá standa þau spor skýrust í slóð hvers manns, sem lýsa af gleði. Benjamín FVanklín Einarsson lést aðfaranótt 26. desember 1986, 74 ára að aldri, 17 árum eftir andlát heittelskaðrar konu sinnar, Guð- rúnar Johnson. Það gat aldrei farið framhjá nein- um, sem umgengust Rúnu og Benna, að finna þá einstöku ást og virðingu, er ríkti á glæsilegu heim- ili þeirra. Því var sem Benjamín missti þá gleði, sem honum var svo eðlislæg, eftir fráfall konu sinnar. Þeim hjónum varð ekki bama auðið, en sýndu bömum vina og vandamanna alla tíð sérstök elsku- legheit. Ég minnist Benjamíns frá þeim ámm er ég ung sótti gleði og ánægju á heimili hans, þar sem söngur og frásagnargleði skipuðu veglegan sess á góðra vina fundum. Það má með sanni segja að Benjamín hafí vafið dans- og söng- listinni um hvern sinn fingur, því t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóðir og amma, ANNÝ MARIN OLSEN, lést í sjúkrahúsinu Lundi 1. janúar. Verður jarðsungin í Bara 16. janúar. Sigmundur Guðmundsson, Jenny BJörk Sigmundsdóttir, Birglr Sigmundsson, Haraldur Arason og barnabörn. t JÓHANNA JÓNSDÓTTIR, Ljósheimum 6, si'ðar SelJahUð, lést í Landspítalanum 21. desember. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hennar. Fyrir hönd aöstandenda, Skiíli Magnússon, BJÖrn H. Slgurðsson. honum var í lófa lagið að skemmta §ölda manns undirbúningslaust, sem ég hef engan annan séð leika eftir. Megi nú enn á ný gleðin ríkja í nýjum heimkynnum, við hlið þeirr- ar, sem Benjamín fannst svo sárt að lifa án. Hvíli hann í Guðs friði. Guðrún Þórsdóttir SÍMI FRUMSÝNUM NÝÁRSMYNDINA VOPNAÐUROG HÆTTULEGUR AND DANGEROIIS Þegar Frank Dooley er rekinn úr lögreglunni, ákveður hann að verða vopnaður öryggis- vörður. Þegardómari ráðlegg- ur Norman Kane að hætta starfi sem lögmaður, ákveður hann að verða vopnaður ör- yggisvörður. Tveirgeggjaðir, vopnaðir, hættulegirog mis- heppnaðir öryggisverðir ganga lausir í Los Angeles. Enginn eróhultur. Spreng- hlægileg, ný bandarísk gamanmynd með tveimur óviðjafnalegum grínleikurum í aðalhlutverk, þeim John Candy og Eugene Levy. Robert Loggia (Jagged Edge, Prizzis Honor, Scarface), leikur Michael Carlino, glæpaforingja. Frábærtónlist: Bill Meyers, Atlantic Star, MauriceWhite (Earth, Wind and Fire), Mic- hael Henderson, Sigue Sigue Sputnik, Glen Burtnick, Tito Puente and His Latin En- sambleog Eve. Harold Ramis (Ghostbust- ers, Stripes, Meatballs), skrifaði handritið að þessari bráðskemmtilegu gaman- mynd. SÝND í ASAL KL. 3, 5, 7, 9 OG 11 DOLBY STEREO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.